Morgunblaðið - 24.04.1930, Síða 2
*
MORGUNBLAÐIÐ
Munlð hlutaveltu barnudagslns l H. R. ■ húslnu hl. SI úag.
nargir ágætir drættir. Hnndrað ávísanir á verðmæti frá kr. 3,00 og npp í 130,00.
Engiii ndlll.
Höfnm fyrirliggjandi s
Flórsykur, belgískan.
Svinafeiti.
Ðakarasmjörliki» 3 teg.
Marmelaði.
Ðakarar, taliö við okkur er yður vantar ofan-
greindar vörur, það marg borgar sig.
5 munna blfreli (Drusslu)
Öftafit til kaupa nú þefgar. — Tilboð merkt „Drossia", leggist inn á
A. S. í. ásamt verði, tegimd og númeri bifreiðarinnar.
nálverkasýnlng
Ásgríms Jónssonar
verður opin daglega fram yfir helgi, frá kl. 11—6.
Vjelbátur
óekast leigður nú frá þessum tíma fram í júnímánuð. Báturinn þarf
að vera 20—35 smálestir að stærð. Hraðskreyður og í góðu standi.
iildpshöfn að nokkru eða mestu leyti má fylgja með bátnum.
Upplýsingar hjá
Öskari H;alldórssyui,
Sími: 2370.
Breiðfjörðs-salnrinn*
við Bröttugötu, sem nú er fundarsalur Te'mplara, fæst leigður frá
1. október næstkomandi. P.h. húseiganda
Helgi Hjörvar, Aðalstræti 8. Sími 808.
Represenianl.
Et större Herre-Lingeri engros Firma i Köbenhavn
söger en paa Island godt indfört Representant paa Pro-
visions-Basis.
Billet mrk. „Herre Lingeri engros“ bedes sendt Morg-
enbladids’“ Expedition.
Drifanda kaffið er drýgst
Sumarglaðning,
Þegar jeg í gær, stundu eftir
miðaftan, var búinn að ljúka
spurningum í húsi K. F. U. M. í
Hafnarfirði, og var að bíða eft-
ir bíl til heimferðar, þá kom til
mín maður, Loftur Bjarnason í
Hafnarfirði, og sagði mjer þá
raunalegu sögu, að skeyti hefði
þá fyrir skömmu komið um það,
að háseta hefði tekið út af tog-
aranum „Venus“, og hefði hann
druknað. — Máðurinn hefði heit-
að Kristján Kristjánsson, og ver-
ið búsettur í Hafnarfirði, átt
þ^r konu og börn og fleiri vanda-
menn, og auk þess aldraða móð-
ur í Reykjavík. — Var það bæn
hans, að jeg vildi tilkynna vanda-
mönnum mannsins þennan sorg-
aratburð. — Mjer þótti erindið
annað en gott; en sjálfsagt var
þó, að fara. — Eftir nokkra
vafninga fann jeg heimili manns.
ins, og sagði konu hans, hvernig
komið væri, svo varlega sem jeg
gat. — Flestir munu geta skil-
ið, hvernig aumingja konunni
varð við. — Harmi hennar og
tárum og kveinstöfum barnanna
ætla jeg ekki að lýsa að þessu
sinni.; það er ekkert blaðamál.
— En ástæður konunnar eru
þær, að hún stendur ein uppi
með fjögur föðurlaus börn, og
eflaust fremúr lítil efni, eins og
gengur og gerist, þar sem ein-
ungis tvær mannshendur eru til
fyrirvinnu. — Yngsta barnið er
li/2 árs að aldri, hið elsta er 6
ára piltur og svo hin þar á milli.
— Eg dáðist einkum að elsta
drengnum, hann var svo skýr,
greindur og stiltur; jeg er viss
um að það er mannsefni í þeim
dreng. — Þegar mamma hans
var komin upp í rúm, og móðir
hennar búin að breiða ofan á
hana og hlúa að henni með móð-
urástar umhyggju, þá kom dreng
urinn til mín og fór að skegg-
ræða við mig um þennan sorg-
arlega viðburð með þeirri greind
og stillingu, sem mig stórfurðaði
á. — Mjer fanst hann vera sem
ljósgeisli á þessu raunaheimili,
sem þessa stundina var vafið
svo þungum hrygðar- og mótlæt-
isskuggum. —
Á morgun kemur sumarið; og
sumardagurinn fyrsti er einn
almennasti gleðidagur okkar Is-
lendinga. —
Jeg hefi í dag stungið niður
penna og sagt frá þessúm sorgar-
atburði, sem er alveg ný af
staðinn, til þess -að þeir, sem
ókunnugt er um hann, eigi kost
á því að auka sumargleði sfna
með því, að rjetta þessari rauna-
fjöJskyldu líknarhönd nú ' um
sumarmálin. —
Jeg vænti svo góðs til dag-
blaðanna, að þau veiti góðfúslega
viðtöku hverjum þeim smápen-
ing, sem til þeirra kynni að
komá.
óska jeg svo ðllum, glöðum
og hryggum, góðs og gleðilegs
sumars. —
Rvík, á síðasta vetrardag 1930.
ólafur Ólafsson.
Mgbl. tekur fúslega við gjöfum
tit þessa bágstadda heimilis.
Snmarkveðjnr
sjðmanna.
FB. 23. apríl.
Óskum ættingjum og vinum
gleðilegs sumars með þökk fyrir
veturinn. Vellíðan.
Skipverjar á Nirði.
Gleðilegt sumar. Þökk fyrir
veturinn. Vellíðan. Kveðjur.
Skipshöfnin á Andra.
Bestu sumaróskir til ættingja
og vina með þökk fyrir veturinn.
Skipverjar á Hilmi.
Óskum vinum og vandamönn-
um gleðilegs sumars með þökk
fyrir veturinn. Kærar kveðjur.
Skipverjar á Þorgeiri skorargeir.
Óskum vinum og vandamönn-
um gleðilegs sumars. — Kærar
kveðjur.
Skipverjar á Arinbirni hersi.
Óskum ættingjum og vinum
gleðilegs sumars með þökk fyrir
veturinn.
Skipshöfnin á Ver.
Staddir í Vestmánnaeyjum. —
Óskum vinum og vandamönnum
gleðilegs sumars með þökk fyrir
veturinn. Vellíðan. Kærar kveðj-
ur. —
Skipshöfnin á línubátnum
Rifsnes.
Frjetlir.
Húsavík í apríl, FB.
ínfluensa hefir gengið hjer víða
í vetur, var hún fyrst í Húsavík í
haust og fram eftir vetrinum, en
fluttist svo þaðan upp í sveitimar.
Hafa sumir legið með 40 stiga
hita í nokkra daga og aðrir hafa
fengið önnur veikindi upp úr
henni, svo sem brjósthimnubólgu
og fleira.
Nýlega ljest ung stúlka i Sýr-
nesi f Aðaldal, sem le'gið hafði
meiri hluta vetrar og fjekk influ-
ensuna fyrst, en talið var að berkl-
ar hefði líka verið þar að verki.
Hún hjet Sigurlaug Hernitsdóttir.
Frystihús og sláturhús ætlar
Kaupfjelag Þingeyinga að láta
reisa í Húsavík í sumar komandi.
Þykir mönnum saltkjötsmarkaður-
inn óviss og þar að auki er mikil
þörf fyrir frystíhús í Húsavík,
það seta fyrir er, er orðið of lítið
og fullnægir alls ekki þörfum
manna í þorpinú.
Þá hefir mikið verið rætt um
hafnargerð í Húsavík 0g var ráð-
gert að hafist yrði handa um verk-
ið f vor.
Síðasti fundur
að sinni verður haldinn ann-
að kvöld kl. 8y2 í Kaupþings-
salnum.
Ýms mál rædd og síðan
sameiginleg kaffidrykkja,
ræður og söhgur. Bernburgs
tríó skemtir.
Fjelagsmenn beðnir að
skila öllum bókum.
Fjölmennið!
Stjórnin.
Sveinspról
í bakaraiðn fer fram mið-
vikudaginn 30. þ. m. kl. 6 að
morgni í brauðgerðarhúsinu
á Hverfisgötu 93.
Nemendur sendi umsóknirj
sínar, ásamt námsvottorði
til formanns prófnefiidar,
Sveins M. Hjartarsonar, fyr-
ir laugardagskvöld n. k.
PRÓFNEFNDIN.
Mnnið A. S. I.
Nýjar vörur teknar upp
daglega.
Feikn fallegt úrval af
Sumarkápum kom í gær.
Ennfremur
Kjólar — Káputau.
Kjólatau,
ullar og silki og ótal margt
fleira af fallegum
Sumarvörum.
Á