Morgunblaðið - 17.06.1930, Blaðsíða 6
6
MQRGUNBLAÐIÐ
Allir þeir orgeleigendur sem sjá og heyra fjórföldu
Köhler-Orgelin,
ejá eftir því að vera búnir að kaupa aðrar tegundir. Dag-
lega koma menn og biðja um skifti, oft einnig á nýjum
orgelum af ýmsum tegundum. Er því hyggilegra fyrir þá
•eem ætla aði fá sjer ný orgel, að skoða þessa tegund áður
fen kaup eru gerð annarsstaðar. Einnig eru til minni sortir,
einkennilega hljóðmikil. Allur frágangur viðurkendur í
besta lagi.
Hljóðfærasalan, Langaveg 19.
(Benedikt Elfar).
Beitusíld.
Kaupfjelag Eyfirðinga, Akureyri, vill selja 1500—2000
tunnur af frosinni beitusíld í sumar.
Verðið er 23 aurar fyrir kilo fob. Akureyri, sje síldin
tekin fyrir 15. sept. næstk. Semja ber við
Samband Isl. samTinnnfjelaga.
SCOTT’s beimsfræga
ávastasnlta
jafnan iyrirliggjandi.
1. Brynjólfsson & Kvaran.
Kappreiðamar.
Á annan í hvítasunnu hjelt
Hestamannafjelagið „Fákur' kapp
reiðar á Skeiðvellinum við Elliða-
árnar. C
Veðrið var ekki sem hagstæðast,
rigning allmikil fyrripart dagsins,
æn birti þó upp að mestu þefgar
kom fram yfir hádegi. En hálfkalt
var samt í veðri og dálítil norð-
austan gola.
Þrátt fyrir veðrið og þrátt fyrir
skemtanir í Hafnarfirði og á Ála-
fossi og stjórnmálafund í Reykja-
vík, kom margt manna inn á Skeið
völl. Sýnir það greinilega að augu
manna eru að opnast fyrir því, að
hjer er um að ræða, einhverja
bestu útiskemtun sem völ er á.
Kappreiðarnar hófust stundvís-
lega kl. 3 og var þeim lokið kl.
Má það teljast mjög vel að
verið, að koma af 8 hlaupum á
þeim tíma, e*nda mátti það heita
svo að hvert hlaupið ræki annað
viðstöðulaust.
Á veðmálunum var gerð sú ný-
breytni, að auk þess, að Veðja á
sigurvegaranna í hverjum flokki,
mátti líka veðja um hver hestanna
yrði annar í hlaupinu. Þetta eykur
mjög tilbreýtni í veðmálunum,
enda geta slík veðmál oft gefið
mikið í aðra hönd. Það má líka
telja það víst, að þegar áhorfendur
fara betur að kynnast þessum veð-
málum verða þau mikið notuð.
Úrslitin urðu þessi:
1. flokkur skeiðhesta. Skefiðvöll-
ur 250 m. Þátttakendur: Sjúss,
Hringur, Sprettur og Sindri. Hring
tjr var sá einj, sem lá sprettfærið.
Sjúss, sem oft hafði verið fyrstur,
hljóp upp 5 metra frá marki. Skeið
tími Hrings var 26.6 sek. Hinir
stukku upp. Veðbankinn borgaði á
1. hest 60 kr. fyrir 10.
2. flokkur, skeiðhestar. Þátttak-
ei dur voru: Blakkur, Fífill, Snig-
ill. Eftir dágóðan sprett, stukku
þeir allir upp skömmu áður en að
marki kom. Hringur fjekk önnur
verðlaun fyrir skeiðhesta (kr. 100).
3. flokkur, stökkhestar. Skeið-
völlur 350 m. Nr. 1 Dieyri 26.6,
(nýtt met), nr. 2 Kolskeggur 27.0
sek., nr. 3 Reýkur 27,3 sek., nr. 4
Hrani 27.4 sek. Þegar þett^ hlaup
var farið, var stinningskaldi norð-
an völlinn, og ljetti það auðsjáan-
lega mikið undir með hestunum,
enda var hraðinn mikill. Fyrsti
hestur gaf 12 kr. fyrir 10, annar
20 kr. fyrirlO.
4. flokkur, stökkhestar: Nr. 1
Neisti 27.9 sek., nr. 2 Eitill 28.7
sek., nr. 3 Mýlnir 28.7 se?k., nr. 4
Bjarmi 28.9 sek. Fyrsti hestur gaf
12 kr. fyrir 10, annar 20 kr. fyr-
ir 10.
5. flokkur stökkhestar: Nr. 1
Glói 29,4 sek., 2. Laufi 29.6 sek.,
3. Blesi, 4. Þytur.
Fyrsti hestur gaf 40 kr. fyrir
10, annar 80 kr. fyrir 10.
6. fl. stökkhestar: 1 Dreyri 26,9
sek., 2. Reykur 27.6 sek., 3. Kol-
skeggur 27.6 sek., 4. Neisti 28.0
sek. Neisti fór mjög illa af stað í
þessu hlaupi og varð fyrst tölu-
vert á eftir, en vann síðan mikið
inn á þá sem á undan voru. Fyrsti
hestur gaf 14 kr. fyrir 10, annar
40 fyrir 10.
7. flokkur stökkhestar: Nr. 1
Eitill 28.6 sek., nr. 2 Hrani 28.7
sek., nr. 3 Glói 28.8, nr. 4 Mýlnir
29.0 sek. Fyrsti hestur gaf 20 kr.
fyrir 10 annar 30 kr. fyrir 10.
8. flokkur stökkhestar: Nr. 1
Neisti 27.4 se'k„ nr. 2 Kolskeggur
27.6 sek., nr. 3 Dreyri 27.9 sek., nr.
4 Reykur 28.0 sek., nr. 5 Hrani
28.1 sek. Fyrsti hestur gaf 30 kr.
fyrir 10 annar 40 kr. fyrir 10.
í síðasta spretti fór Neisti mjög
vel af stað en Dreyri fremur illa.
He'fir það sennilega ráðið nokkru
um úrslitin.
Fyrstu verðlaun 200 kr. fje'kk
Neisti, önnur verðlaun 100 kr. Kol-
sk ggur, þriðju verðlaun 50 kr.
Dreyri, sem auk þess fjekk 50 kr.
metverðlaun, fjórðu verðlaun Reyk
ur 25 kr. Auk þess fje'kk Glói
flokksverðlaun.. Næstu kappreiðar
„Páks“ verða háðar í Bolabás á
Þingvöllum 27. þ. m. kl. 9 f. h.
Þar koma margir ágætir hestar til
að keppa um hin háu verðlaun,
(fyrsti hestur fær 1000 kr.) og er
mjög óvíst um hver happið muni
hljóta. Að vísu verður Dreyri að
teljast fljótasti hestur á íslandi
me'ðan hann heldur metinu, en síð-
ustu kappreiðar sýndu þó greini-
lega að ekki má miklu muna til
þess að annar hestur beri sigur af
hólmi. Og svo er hitt, að í Bolabás
standa allir hestar jafnt að vígi,
þar er nýr völlur, sem hvorki
Dreyri eða aðrir hlaupagikkir
þekkja. H.
ninningarorð.
Kristmnndnr Gnðjónsson
1 æ k mi r .
Hann fæddist á Höinrum í Gríms-
nesi hinn 16. júní 1890. Ólst hann
upp hjá móður sinni, Kristbjörgu
Jónsdóttur, og manni hennar, Sig-
urði Einarssyni, og fluttist með
þeim til Stokkseyrar 1902. Eru þau
hjón annáluð þar eystra fyrir
mannkosti. Enda reyndist Sigurður
Kristmundi sál. flestum feðrum
betur.
Árið 1907 fór Kristmundur í
Verslunarskóla Islands og lauk
þar prófi 1909. Árið 1910 settist
hann í lærdómsdeild hins almenna
Mentaskðla. Tók stúdentspróf
1913. Las læknisfræði við Háskólq,
fslands og lauk embættisprófi
1920. Sigldi hann þá til að ganga
á fæðingarstofnun í Kaupmanna-
höfn, en var settur læknir í Reyk-
hólahjeraði, er hann kom úr utan-
förinni. Því næst gegndi hann eitt
ár læknisstörfum í Hólmavíkur-
hjeraði fyrir Magniis Pjetursson.
Síðan var hann skipaður hjeraðs-
læknir í Reykjarfjarðarhjeraði og
hafði gegnt því embætti í 6 ár, er
hann andaðist 19. maí 1929.
Kristmundur heit. var hár maður,
fríður sýnum og svipurinn einkar
göfugmannlegur. Hann var glað-
legur í viðmóti, smáfyndinn, en
algerlega laus við að særa menn
í viðræðum. Hann var gáfaður vel.
En hann naut ekki að öllu gáfna
sinna, við námið, því að margt
fleira hreif hug hans. Einkum var
hann mjög ljóðelskur.
Læknir var Kristmundur góður,
sjerstaklega var hann snillingur
í handlækningum. Hann var og
mjög samviskusamur læknir. Og
áreiðanlega kaus hann miklu held-
ur, að sjúklingar hans læknuðust,
þó að hann fengi ekkert fyrir
læknishjálpina, eín að hann fengi'
8 cylindra bílar
f fjórum Terðílokknm.
Athugið og reynið Marmon-bíliim „Model R“ og
berið hann saman við aðra 5 manna bíla, hvort
heldur er hvem hlut útaf fyrir sig eða bílinn í
heild, og yfirburðirnir leyna sjer ekki.
Vjelin er aflmeiri (77 hestöfl) en þó ódýrari til
skatts. Vinslan framúrskarandi. Vjelin er útbúin
með gangmýkir, olíuhreinsara, benzinhreinsara og
benzinsparara, enda er bíll þessi sjerlega sparneyt-
inn. Yfirvagninn er alt í senn, fallegur, rúmgóður
og þægilegur. Stýrisumbúnaður og breansur af
bestu tegund. Fjaðrimar eru langar og þýðar og
gúmmíið stærra en hjer þekkist á 5 manna bílum,
en þetta hvorttveggja gerir bíl þenna sjerlega
þýðan — Marmon er og löngu þekkt að því að
búa til þýðustu bxlana.
Reynslan hefir sýnt það að Marmon-bílarair bera
af öðrum sambærilegum bílum á hvaða sviði sem
er, enda eru Marmon-verksmiðjumar löngu heims-
kunnar fyrir að búa aðeins til það besta.
Aðalumboísmaður á íslandi:
Halldór Eirfksson.
Reykjavík. Sfmi 175.
Aðalfundnr
Vjelstjórafjelags Islands verður haldinn í Varðarhúsinu,
í dag 17. þ. m. og hefst kl. 3 e. m.
STJÓRNIN.
Schallophon
ferðafónarnir,
sem altaf er verið að spyrja eftir eru nú aftur komnir í
Hljóðfærasöluna, Laugaveg 19.
Benedikt Elfar.