Morgunblaðið - 20.06.1930, Page 2

Morgunblaðið - 20.06.1930, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Li_____Si^-»----------------=g Það tilkynnist hjer með að konan min elskuleg, móðir og tengda- móðir okkar, Sigríður Jónsdóttir, andaðist í morgun. Reykjavík, 19. júní 1930. Ólafur Kristjánsson. Steingrímur Jónsson. Lára Arnadóttir. Jónína Guðmundsdóttir andaðist á Landakotsspítala 18. þ. m. Aðstandendur. Þökkur hluttekningu og samúð við andlát og jarðarför Gerðar litlu dóttur okkar. Ragnheiður Grímsdóttir. Jón Hj. Sigurðsson. Jarðarför móður minnar, ekkjunnar Guðnýjar Þorsteinsdóttur, frá Miðey í Landeýjum, fer fram frá dómkirkjunni laugardaginn 21. þ. m. og hefst með bæn frá Fálkagötu 36 kl. 11 f. h. Jón Jónsson. Hjer me'ð tilkynnist að bróðir okkar o gmágur, Halldór Eyjólfsson, andaðist að heimili sínu Hólmi í Hornafirði 17. þ. m. Fyrir hönd fjarstaddra ástvina. Stefán Sandholt. Innilegar hjartans þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu við fráfall •g jarðarför okkar hjartkæru eiginkonu og móður, Kristínar Árna- Sóttur. Einar Markússon og börn. Vegna jarðarfarar verða verslanir okkar lokaðar f dag frá 1-3. Mnawallaafcslur. í DAG kl. 4 e. h. verðnr byrjað að selja far- miða fyrir dagana 24. og 25. jání til Þingvalla. Öknskrifstofan, (í Mjólkurfjelagshúsinu) Hafnarstræti. Isleitsk spil með myndum úr íslendingasög- unum eftir Tryggva Magnússon í vetur hefir Tryggvi Magn- ússon málari unnið að því, að fullgera íslensk spil, sem nú eru komin á markaðinn. Hefir hann lagt í þetta-mikla vinnu. Um spil þessi farast honum þannig orð: Spil þessi, sem jeg hefi ráð- ist í að teikna og gefa út, og nú eru komin á markaðinn, hefi jog reynt að gjöra þannig úr garði, að með sem mestum rjetti sje hægt að kalla þau íslensk, þó þau sjeu prentuð erlendis — því annars var ekki kostur. — Það, sem vakað hefir fyrir mjer með útgáfu þessari, er meðal annars það, að gefa hinum erlendu gest- um, sem hingað koma í sumar, kost á að taka heim með sjer eitthvað það, er vakið gæti at- hygli þeirra á íslenskri sögu og menningu til forna, enda er það nú efst á baugi í sambandi við Alþingishátíðina. — Þess vegna hefi jeg valið ýmsa þekta menn frá söguöldinni á mannspilin, og til þess að koma fleiri myndum að. hefi jeg teiknað sinn mann- inn á hvorn enda á hverju spili. Myndirnar á mannspilunum verða þannig 24 í stað 12 eins og venjulegast er. Þetta. hefir að vísu næstum því tvöfaldað út- gáfukostnaðinn. Á ásunum eru myndir af íslensku landslagi, og gæti það ef til vill vakið löngun sumra útlendinga til þess að sjá Island með eigin augum. í öðru lagi — og raunar miklu fremur — hefi jeg með þessu viljað stefna að því, að vekja á- huga Islendinga sjálfra á Islend- ingasögunum. En það þætti mjer vel mega vera, að ýmsa unglinga er sjá myndirnar, sem þeim er sagt að sjeu af vissum köppum eða höfðingjum „gullaldarinn- ar“, myndi langa til að vita eitt- hvað meira um þessa menn, og máske langaði suma þeirra svo mikið til þess, að þeir færu að blcða í íslendingasögunum og þætti mjer þá ekki til einskis unnið. Sökum þess, hve hár útgáfu- kostnaðurinn er, hefi jeg orðið að hafa upplagið miklu minna en jeg hefði viljað, en af því leiðir aftur það, að hvert eintak verður dýrara en æskilegt hefði verið. Þó hefi jeg heldur kosið ð hafa útgáfuna vandaða þó bað yrði dýrara og sjálfsagt ó- hagkvæmara. Spilin eru af tvenskonar gerð, og verður vandaðri útgáfan seld á 10 krónur, en hin er helmingi ódýrari. Upplag spilanna er lít- ið, því að útgef. hefir ekki haft tök á að leggja í meiri kostnað. Má búast við, að þessi fyrsta útgáfa seljist upp á skömmum tíma. — Spilin eru prentuð í einni helstu verksmiðju Þýska- lands. Frágangur þeirra er að dómi blaðsins hinn besti, bæði frá hendi höfundar og verk- smiðjunnar. Þau eru til sýnis í glugga Morgunblaðsins. ——-— D A G B Ó K Veðrið (fimtudagskvöld kl. 5): Lægðin fyrir suðvestan landið virð ist nú vera á liægri hreyfingu aust ur eftir og því útlit fyrir að áttin færist smám saman í A og NA hjer um slóðir. Ennfremur er loftþrýst- ing orðin allhá yfir N-Grænlandi. Veðurútlit í Rvik í dag: Breyti- leg átt og hægviðri. Nokkrar skúra leiðingar, en úrkomulítið. Ársþing Sambands ísl. kennara hefst á morgun kl. 10 f. m. í Iðnó uppi. Fertugsafmæli á í dag Fridtiof Nielsen heildsali. Gistingu og fæði geta nokkrir gestir fengið fram yfir Alþingis- hátíð í Nýja Elliheimilinu. Eru all- ar nánari upplýsingar gefnar þar allan daginn. Trúlofun sína hafa nýlega opin- berað Elín Þorláksdóttir ljósmóðir á Hrauni í Ölfusi og Sigurjón Guð mundsson bílstjóri, Þingholtsstr. 8. Leiðarvísir fyrir vegfarendur heitir smábæklingur er gefinn he'f- ir verið út að tilhlutun lögreglu- stjórans í Reykjavík. Eru í honum hollar bendingar fyrir vegfarend- ur um það hvernig umferð sje hag- að á fjölförnum götum, þannig að auðveldast sje að komast hjá slys- um. Auk þe'ss eru þar ýmsar bend- ingar er bílstjóra.r mættu skrifa á bak við eyrað. Bæklingurinn fæst ókeypis á lögregluvarðstofunni. Móttaka Vestur-íslendinga'. Kl. 4 á morgún (laugardág) verður haldin móttökusamkoma í Nýja Bíó fyrir Vestur-íslendinga þá sem hingað eru komnir. Allir Vestur- íslendingar sem til næst fá að- göngu að samkomunni; og væri æskilegt að þeir gæfu sig fram annað hvort í Landsspítalanum eða Elliheimilinu, því þangað verða að- göngumiðar sendir. Er aðkomu- mennirnir verða komnir inn í hús- ið, fá vinir og vandamenn þeirra aðgang, eftir því sem húsrúm leyf- ir. Aðgangseyrir enginn, þar eð eigendur Nýja Bíó lána húsið ó- keypís. Morgunblaðið er 8 síður í dag. Lamdssýningin ve'rður opnuð í Mentaskólanum í dag kl. 5 e. h. fyrir almenning. Fluglð. Veiðibjallan var reynd í gærmorgun, flaug hún yfir bæinn nokkra hringi. í dag ínun hún fara norður á Akureyri ef veður leyfir og koma aftur í kvöld eða á morgun. Vestmannaeyingar, sem taka ætla þátt í Alþingishátíðinni eru farnir að búa sig til farar og flytja sig yfir til Stokkseyrar. Þaðan fara þeir á Þipgvöll. Skólaáhöld í bamaskólanum nýja. Á skólanefndarfundi nýlega var samþ. að fela Sig. Jónssyni skólastjóra, og Helga Elíassyni kennara að fara utan til að kaupa skólaáhöld. Áætlað er að þau kosti 63 þús. kr. Byggingamefnd samþykti ný- lega að viðurkenna þá til að standa fyrir húsasmíði í Reykjavík, Böðv- ar Stephensen Bjarnason trjesmið, Laugaveg 20 B. Valdimar Runólfs- son trjesmið, Urðarstíg 8 og Teit Júlíus Jónsson trjesmið, Spítala- stíg 10. Á Alþingishátíðinni veróa kvöld- iin notuð til ýmiskonar íþrótta- skemtana og fundahalda ,en um þau efni er eigi útgefin ákveðin tilhögunarskrá. Lokaveisla verður haldin á Þingvöllum sunnudaginn 29. júní ög hefst kl. 12 á hádegi. Hinn ágæti kvenfimle'ikaflokkur frá Akureyri sýnir fimleika í Good templarahúsinu í Hafnarfirði n. k. laugardagskvöld. Nýkomnir Sumarkjólar í fjölbreyttn nrvali. Brauns-Verslun fEttai tðlulsök sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglu- firði kemur út, þegar nægur á- skrifendafjöldi er fenginn: Ásltrifendur fá bókina fyrir 10 krónur. Bókhlöðuve'rð er ákveðið 15 krónur. Áskrifendalistar liggja frammi hjá Kolbeini Þorsteinssyni skip- stjóra, Hverfisgötu 53, Einari Þor- steinssyni í Söluturninum, Kjart- ani Sveinssyni í Safnakúsinu, Ár- sæli Ámasyni bóksala, Sveini Kaup manni Jónssyni í Kirkjustræti 10, Guðjóni Jónssyni bryta Elliheimil- inu og Morgunblaðinu. s iiinii mireio til sölu með sjerstöku tækifæris- verði til sölu í dag frá kl. 1 e. h. við bifreiðastöð. Magnðsar Skaftfeld. Sími 695. „Boðafoss“ fer hjeðan á hádegi f dag til Vestijarða I stað kl. 6 síðd. sem áðnr bafði verið auglýst). Kristilegt erindi flytur síra Frið- rik Hallgrímsson í dómkirkjunni kl. 814 í kvöld: Kirkjan og þjóðin. Suðurland kom frá Borgarnesi í fyrrinótt og fór til Borgarf jarðar í gær. Fjalla-Eyvindur vár leikinn fyr- ir troðfullu húsi í gærkvöldi. — Montcalm er væntanlegt í kvöld kl. 9. Var búist við að það kæmi um hádegi, eta því hefir seinkað vegna óveðurs. Alþingishátíðatjöldin. Þeir sem pantað hafa tjöld eða ábreiður til afnota á Þingvöllum yfir hátíðina, ern beðnir að vitja ávísunar á þau og greiða leiguna í dag og næstu daga á skrifstofu nefndarinnar í húsi Mjólkurfjelagsins í Hafnar- stræti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.