Morgunblaðið - 15.07.1930, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
iEB
Huglíslngadagbðk
Vinna.
Kaupakonu vantar að Móum
á Kjalarnesi. Upplýsingar á
Vesturgötu 57.
Tapað. — Fundið.
IIIII■■ 11IIII <1 llll !■ IIII -
Tapast hefir kvenhattur með
stórum börðum frá Gróðrarstöð
inni að Sóleyjargötu. Skilist á
Skólastræti 5.
Vlðakfiftt.
Sokkar, Sokkar, Sokkar, frá
prjónastofunni „Malin“ eru ís-
lenskir, endingarbestir og hlýj-
astir.
Ýmislegt til átplöntunar í Hellu-
lundi 6. Einnig plöntur í pottum.
Nýreyktar fiskpylsur og búð-
ingúr, kjötfars og fiskfars,
ma.rgar tegundir. Alt nýtt og
best í Fiskmetisgerðinni, Hverf-
isgötu 57, sími 2212.
Nýr fiskur, heilagfiski, lax,
nýr silungur, stútungur, ísaður
fiskur. — Nýja fiskbúðin, sími
1127. Fiskbúðin, Hverfisgötu
SíTsími 1974.
Til sölu bátur í ágætu standi,
hæfilegur fyrir 4 hesta vjel.
Listhafendur semji fyrir júlílok.
Upplýsingar á Ránargötu 7 A.
mmm
Leynðarððmar
Parísarborgarj
koma út I heftum (eitt %
hefti hálfsmánaðarlega
á 1 kr.)
II. bindi (7 hefti) fæst |
nú f Ðókaverslunum
mmm
Saðunah.
lítið meiri hagnað út úr kaup-
unum, hugsaði hann með sjálf-
um sjer. Hann er langt frá því
að vera eins og venjulega,
morðið á gamla manninum hefir
alveg farið með hann. Satt er
það að vísu, að hann var altaf
mjög greiðvikinn, var aldrei
fastur á fje. Jeg held, að jeg
fái ekki meira hjá honum. Jeg
geri ráð fyrir að nú þegar hann
hefir alla þessa peninga, muni
hann hætta öllu braski; hann
hefir brent fingur sína á því
helst til mikið síðustu tvö árin.
Hann leit út um gluggann, á
landslagið, sem þaut fram hjá
og hann hjelt áfram hugrenn-
ingum sínum: — Já, þetta var
góður biti í munn, sem jeg hjer
náði í. En einhvemveginn hefi
jeg það á tilfinningunni að þetta
muni vera það síðasta, sem okk-
ur IVfprrie fer á milli. Og jeg er
fegihn að jeg greip gæsina með-
an hún gafst.
Til Ástvaldár Eydals Kristins
sonar, til þess að nema landa-
fræði og lífeðlisfræði í Þýska-
landi (Hamborg).
Til Sverris Þorbjarnarsonar,
til þess að nema hagfræði í
Þýskalandi.
Verðlagið í Rvík í júní. Sam-
kvæmt útreikningi hagstofunn-
ar hefir smásöluverð á matvör-
um og eldsneyti og ljósmeti í'
byrjun júní verið nál. iy2%
hærra en í byrjun maímánaðar.
Veldur því mest venjuleg árs-
tíðarhækkun á kartöflum og
kjöti. En aftur á móti er verð-
lagið í júní í ár heldur lægra
en í júní í fyrra (nál. 1%).
Verðvísitala hagstofunnar á
þeim vörum, sem útreikningur-
inn nær til, er í júníbyrjun 215
(miðað við 100 f júlí 1914).
Hjónavígslustaður. — Síðan
1916 hafa á prestaskýrslunum
verið upplýsingar um, hvar
hjónavígslur hafi fram farið, og
hefir hagstofan gefið skýrslu
um þetta. Segir hagstofan, að
aðeins einn sjöundi til einn átt-
undi Hluti hjónavígslnanna fari
fram í kirkju og að kirkjubrúð-
kaupum fari fækkandi. Flestar
hjónavígslur fara fram annað-
hvort heima hjá prestinum eða
í heimahúsum brúðhjónanna
eða vandamanna þeirra. Borg-
aralegar hjónavígslur hafa síð-
ustu árin verið um 7% af öllum
hjónavígslum. Kirkjubrúðkaup
eru miklu fátíðari í Rvík en
annarsstaðar á landinu. Um fjór
ir fimtu af öllum hjónavígslum
í Rvík fara fram heima hjá
prestunum. —
Fólkseklan í sveitum. Aldrei
hefir verið eins svart útlitið hjá
bændum í byrjun sláttar og nú,
vegna fólkseklunnar. Kaupa-
fólk er varla mögulegt að fá, og
alls ekki nema fyrir kaup, sem
bændum er langsamlega um
megn að greiða, þótt þeir neyð-
ist til að gera það. Kaupakonur
munu nú alment ekki fáanlegar
fyrir lægra kaup en 40 kr. á
viku (í fyrra 30 kr.), og kaupa-
menn ófáanlegir fyrir lægra
kaup en 65—75 kr. (í fyrra 45
—50 kr.). En þrátt fyrir þetta
háa kaup fæst varla nokkur
maður í kaupavinnu.
22. kapítuli.
Við erum hólpin.
Jafnvel hinir allra svæsnustu
óvinir Jaffreys gátu ekki sagt
að hann ynni eitthvað það verk
hangandi hendi, sem vænlegt
var til þess að gefa arð I aðra
hönd. Hann var ekki fyr búinn
að skafa af sjer ryk og óhrein-
indi ferðalagsins, en hann
sat makindalega í snotri skrif-
stofu og bað um að fá að tala
við forseta Fan Farigoul fje-
lagsins.
Forsetinn var viðstaddur og
kvaðst fúslega vilja veita hon-
um áheyrn. Hann var harð-
neskjulegur, ólundarlegur Skoti
— engu líkara en andlitið væri
hoggið í stein.
— Takið yður sæti, Jaffrey.
Þjer komið vænti jeg vegna
viðskifta okkar.
Jaffrey kinkaði kolli. Hann
kunni lagið á þessum mönn-
um. Því minna sem hann sagði
þar til hann hefði unnið mann-
inn fyrir sig, því betra.
Harðneskjulegi maðurinn leit
illgirnislega til viðskiftamanns
Bráðabirgðabrú var í fyrra-
sumar sett á Hafursá í Mýrdal,
svo að bílar gætu komist tafa-
laust milli Seljalands og Víkur;
var þetta mikil bót. En nú hefir
Hafursá breytt um farveg, svo
brúin er á þurru og er áin orðin
vondur farartálmi fyrir bílana.
Verður reynt að veita ánni aft-
ur í sinn fyrri farveg, en vafa-
samt hvort það tekst. Er nauð-
synlegt að hafist verði handa
um byggingu á fullkominni brú
á Hafursá, svo að þessi fjöl-
farna leið verði örugg fyrir bíla.
Til Hjálmars á Hofi. ,
Gleðidags þjer skíni skin,
skyldur Braga’ og Fróða!
Kom nú sæll minn kæri vrn,
• kynning þakka’ eg góða.
Hálft þó skorti um hyggjuvang
hróðrarmála kyngi,
kvæðasvalan fljúgi í fang
frægum bragsnillingi.
Ó, hve milt er æfiskeið
unaðs strjálað ljósum,
þar sem lundin ljúf og heið
leikur sjer að rósum.
Andans bróðir, meiri mjer,
mótar glóð á vöku;
nú í hljóði þakka’ eg þjer
þína góðu stöku.
Listin rökum lyfti þá,
lifði vökult minni,
kvæðatök ef kynni á
hve*rri stöku þinni.
Böls við þr'auk og unaðseám
oft. í Haukagráði
þrá mín strauk að ,Hofi‘ heim
hægt upp lauk og gáði —:
Sá hún beim með sagnarós
signa dreyminn ’anda.
Kærleiksgeim, og dáðadrós,
drottning heimalanda.
Heyrði hún gjalla gullstrenginn,
glumdi snjalla vörnin; —.
Sá hún. allan auðinn þinn:
Ung og falleg börnin.
Alla tíð þess óska mjer
af þjer gott jeg fregni. —
Helli jeg nú í höfuð þjer
h e i llaó ska re'gni.
Jósef S. Húnfjörð.
síns. Hann krosslagði hendurn-
ar eins og dómari, sem ætlar
að fara að tala fyrir rjettí.
— Jeg er í vafa um herra
minn, mjög miklum vafa um
hvort jeg í raun og 'veru eigi
nokkuð að ræða þetta mál við
yður. Þjer og þessi bölvaði fje-
lagi yðar, sem þjer að sjálf-
sögðu leikið fyrir hjer, ættúð
báðir að vera á vissum stað.
Hann þagnaði en bætti síðan
glottandi við:
— Jeg geri ekki ráð fyrir, að
maður sem er jafn ágætlega
gáfaður og þjer, krefjist þess,
að jeg nefni nafnið á þessum
stað.
Jaffrey brosti góðlátlega. —
Meðan hann hjelt á betri spil-
unum stökk hann aldrei í bræði
upp á nef sjer. — Storkunar-
yrði Skotans fóru inn um annað
eyrað og út um hitt.
— Jeg lít svo á, hr. Ferguson,
að við sjeum hjer að tala um
verslun, en ekki eyða tímanum
í gagnkvæmar ásakanir. Látið
okkur á þann stað, sem þjer
svo góðfúslega nefnduð ekki.
Reiðhjólasmiðjan „Þór“
Hafnarstræti 4 (beint á móti Steindóri).
AUar viðgerðir fljótt og vel afgreiddar. Alt tilheyirandi reiðhjól-
um. Ábyggileg viðskifti.
Hlðkrunarkona.
Á heilsuhælinu á Vífilsstöðum er hjúkrunarkonustaðá
laus 1. septemb. Umsóknir sendist til yfirlæknis fyrir 10.
ágúst. —
Útborgnn
á aksturslaunum fyrir vörubifreiðar, fer fram í dag kl.
10—12 og 2—7 í skrifstofu hátíðarnefndarinnar í húsi H.
Magnússon & Co.
Öknskrifstofan.
SQdarsHUknr
vantar til Siglufjarðar með Dr. Alexandrine. Upplýsingar
í Hafnarstræti 15, hjá Óskari Halldórssyni, frá kl. 10—-
12 f. h., 6—7 e. h. — Sími 2370.
Tilboð
óskast í vjelbátinn á Þingvallavatni, „Grím geitskó“, og
Víkingaskipið á Öxará. Nánari upplýsingar gefur
Magnns Kjaran.
Alþingishátiðin.
Útsalan i dag
ísl. fánar 2y2 meter alull, búðarverð 25 kr., seljast á
15 kr.. — 1 sett húsgögn úr kontmgshúsi.
Gerið þjer það, farið að yðar
eigin vilja, en hvað verður þá
um hluthafa yðar?
Skotinn fór að átta sig. Hann
fór að velta fyrir sjer hvað
Jaffrey var að segja. — Jú,
sagði hann, og nú varð hann
augnablik mýkri á manninn aft-
ur. Þjer hittuð naglann á' höf-
uðið. Jeg er aðeins að hugsa
um veslings hluthafana, sem
hafa látið peninga sína í þenna
fjelagsskap.
— — Jæja, ættum við þá
ekki að snúa okkur að málinu,
svaraði Jaffray rólega.
En Fergusson rjetti upp vísi-
fingurinn til viðvörunar. Hann
ætlaði ekki að rasa um ráð
fram. — Málið er ekki eins
auðvelt og þjer gerið yður í
hugarlund Jaffrey. Á meðal
okkar eru tveir forstjórar, góð-
ir menn og guðhræddir, sem
álíta að okkur beri ekki að
umbera svikin. Jeg fyrir mitt
leyti, bætti hann við, er á báð-
um áttum.
En Jaffrey vissi við hvern
hann átti. Fergusson fekk sín
tvö þúsund í árslaun sem for-
seti fjelagsskaparins. Honum
hafði aldrei dottið í hug að láta
„gera fjelagið upp“ og missa
þannig laun sín. Það var ekki
mikill vandi að geta sjer til
hvoru megin Fergusson yrði ef
til baráttu kæmi milli samvisk-
unnar og hagsmunaseminnar.
— I hverju því fjel. sem jeg
hefi kynst, sagði Jaffrey íbygg-
inn, en þó blátt áfram og ró-
lega, eru tvö, ela ef til vill þrjú
framhleypin fífl, sem ekki vita
hvoru megin brauð þeirra er
smurt og langar til þess að ota
fjelagsbræðrum sí’num, sem
varfærnari eru, til þess að rasa
um ráð fram.
— Þjer talið, eins og þjer
hefðuð haft reynslu í þessu efni
sagði maðurinn með steingerv-
ingsandlitið.
— Jeg hefi verið forseti
margra fjelaga, hjelt Jaffrey
áfram, og hefi átt í samskonar
vandræðum, sem þjer eigið í.
Fáráðlingar þessir vilja á kostn-
\