Morgunblaðið - 07.09.1930, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Ve&rið (laugardag kl. 5): Lægð-
in sem var við Færeyjar á föstu-
■dagskvöldið, hefir breytt stefnu
og er nú á vesturleið skammt fyrir
sunnan ísland. Áttin er allsstaðar
austlæg hjer á landi og hefir víða
verið hyassviðri í dag á Norður
og Austurlandi. Á Austurlandi er
stórfeld rigning, en lítil vestan
lands. Hitinn er víða 12—15 stig
en 8 st. þar sem kaldast er
NA-landi.
Á morgun mun áttin verða SA
læg og talsvert hægari en í dag
Lítur einnig út fyrir þurt og hlýtt
veður á Vestfjörðum og Norður
landi.
Veðurútlit í Reykjavík í dag
'SA-kaldi. Hlýtt og rigningarlítið
mestan hluta dagsins.
Trúlofun. Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína Ólöf Briem, Stóra-
Núpi og Jóhann Sigurðsson frá
Hamarsheiði.
Hjónabönd. í gærkvöldi voru
gefin saman í hjónaband af síra
Bjarna Jónssyni, ungfrú Guðrún
Svava Árnadóttir og Ásgeir Þ.
Ólafsson dýralæknir.
1 gær voru gefin saman í hjóna-
band af síra Bjarna Jónssyni, Sig-
ríður Sigurbjömsdóttir verslunar-
mær og Þórður Guðmundsson raf-
virki. Heimili hjónanna er á Grett-
isgötu 19a .
Hlutaveltu eina mikla heldur
Knattspyrnufjelag Reykjavíkur í
dag í húsi sínu við Tjörnina. Það
verður fyrsta hlutaveltan á þessu
hausti. Margt verður þar eigulegra
drátta. Má þar til nefna farmiða
til Sviss — ferðamannalandsins
fagra, og vikudvöl á ÞingvÖllum
næsta sumar. Það má vænta þess
að bæjarbúar fjölmenni á hluta-
veltuna, bæði til þess að freista
hamingjunnar með að draga ein-
hvern góðmiðann og styðja þetta
dugandi íþróttafjelag í væntan-
legri vetrarstarfsemi. Reykvíking-
ai fjölmennið í K. R. húsið í
kvöld!
Hjálpræðisherinn. Samkomur í
dag Helgunarsamkoma kl. IOV2
árd. Sunnudagaskóli kl. 2 síðd. —
Útisamkoma á Lækjartorgi kl. 4.
Útisamkoma við Steinbryggjuna
kl. 7 síðd. Hjálpræðisherssamkoma
kl. 8 síðd. Ensain A. Aggerholm
stjórnar. — Hornaflokkurinn og
strengjasveitin aðstoðar. Allir vel-
komnir.
Nýtt íslenskt met var sett í gær
í kúluvarpi. Það afrek vann Þor-
steinn Einarsson (Ármann). Hann
kastaði kúlunni 11,85 metra. Eldra
metið var 11,55 m. og átti Marino
Kristinsson það. Þorsteinn er að-
eins 18 ára gamall.
Lægst verð
í borginni.
1
ndisalan
Af s 1 á 11 u r
af öllu<
araldarbnð
hefst á morgnn og stendnr yfir í nokhra daga.
Tækifærið býður yöar því stórmikill afsláttur er gefinn af ölium
hinum vönduðu vörum verslunarinnar, og gríðarmikið af ýmis-
konar vörum á að seljast fyri raðeins örlítið verð.
Nefnum hjer lítið eitt til minnis fyrir yður.
í Herradeildinni
verður meðal annars selt
afar mikið af:
Manchettskyrtum með tveim
flibbum, frá liðlega 4 kr.
stk.
Ýmsar stærðir af hvítum
skyrtum. m
Sjerstakt tækifæri til
gera góð skyrtukaup.
Regnfrakkar frá 22 kr.
Regnkápur, sterkar,
frá kr. 15,75.
Nokkur hundruð stakar
Buxur frá 3 kr.
Brúnar sportskyrtur 4,50.
Milliskyrtur vandaðar 4 kr.
Hitaflöskur kr. 1,25.
Plus Four föt og stakar
Buxur; — sjerstakt tæki-
færi.
En a 1 b e s t u kaupin má
þó gera á
karlasokkum
nærfatnaði.
f Dömudeildinni
má gera sjerlega góð kaup
á:
Kjólatauum ullar frá 1,50
mtr., einnig á 1,90 og 2,90
Flauel, mislit, sljett og riffl-
uð 2,90.
Prjónasilki 3kr.
að {Káputau, vönduð, á kr. 4 og
kr. 5.
Karla- og drengja-fatatau,
afar ódýr.
Svuntusilki og slifsi fyrir
hálft verð.
Ullarvetlingar og Silkiborð-
ar fyrir örlítið.
Gluggatjaldadúkar, mikið
úrval.
Hvít Ijereft og Tvistar frá
50 aurum metr.
Sirs, Fóðurtau og Flónel
ódýrt.
Handklæði Og dreglar,
Rúmteppi og Slæður
fyrir lítið.
Ennfremur Bróderingar
í búntum.
og
Á loftinu
verður margt selt fyrir lítið,
t. d.:
Allar sumarkápur undir
hálfvirði.
Dömukjólar frá 10 kr.
Morgunkjólar frá 3 kr.
Regnkápur frá 10 kr.
Regnfrakkar góðir 25 kr.
Ljereftsblússur, lítil númer,
1,50 stk.
Golítreyjur frá 4,75.
Ullarvesti frá 4,75.
Barnakjólar mjög Ódýrir.
Auk þess fjöldinn allur af
*
öðrum vörum, sem selst
með tækifærisverði.
I Skemmunni.
Þar er lögð sjerstök áhersla
á að selja:
Kvensokka ódýrt, úr ull,
silki og ísgarni.
Er verðið ótrúlega lágt.
Ennfremúr:
Barnasokka,
Barnalegghlífar frá 1 kr.,
Barnapeysur og
Dþ-engjaföt prjónuð og
Barna-prjónakjóla
fyrir alt að hálfvirði.
Barna útiföt, afar ódýr.
Kvenbolir, ullar,
Kvenbuxur,
Barnanærföt,
Lífstykki undir hálfvirði,
Kven-ljereftsnærfatnaður
afar ódýr, o. m. m. fl.
Komið
gerið góð kaup!
|»að er kunnugra en frá þurfi að
segja hjer í Rvík, að hjer hefir
um skeið dvalið erlendur blaða-
ritari, sem hefir átt í nokkrum
erfiðleikum að koma greinum eftir
sig á hinn erlenda blaðamarkað,
eða a. m. k. að fá fyrir þær
venjulega þóknun. Þessi maður
hefir fengið atvinnubætur með því
að rita væmið lof um Jónas Jóns-
son, og koma því í erlend blöð.
En þóknunina fyrir þann starfa
hefir hann fengið hjer heima, og
mun dómsmálaráðherranunv vera
einna kunnugast um hvernig
greiðslur hafa farið fram. Nú
hefir Tímaritstjórinn fengið at-
vinnu við að þýða greinar um Jón-
as upp úr hinum erlendu blöð-
Að sjálfsögðu
verður alt
afgreitt gegn
staðgreiðslu.
Vörur verða
ekki
lánaðai; heim.
um, og eiga greinar þessar að
verða einskonar gylling á ráðherr-
ann — hversu haldgóð sem hún
reynist. *
Eimskipafjelagsskipin. Gullfoss
kom hingað í gær frá Vestfjörð-
um. — Goðafoss er á leið til út-
landa. — Lagarfoss fór frá Kaup-
mannahöfn heimleiðis í fyrradag.
— Brúarfoss er í Kaupmannahöfn.
Dettifoss, hið nýja skip fjelags-
ins fer í fyrstu ferð sína hingað
frá Kaupmannahöfn 27. sept. —
Bokn aukaskip fjelagsins fer frá
Khöfn 9. sept.
ÍSland var á ísafirði í gær, er
væntanlegt til Reykjavíkur í kvöld
Botnia er væntanleg til Leith
í dag.
Er Jónas Jónsson landráðamað-
ur? Mikið vantar á að ritstjóri
Tímans geti altaf gert sjer það
ljóst, hvað hann er að skrifa.
Frá sjónarmiði þeirra sem hafa
óbrjálaða skynsemi, er þessi ágalli
ritstjórans ákaflega illkynjaður.
En lesendum Tímans hefir verið
boðið svo margvíslegt og misjafnt
andlegt fóður undanfarin ár, að
þeir sem kunnugastir eru í herbiið-
um Tímans telja að Gísli „geti
vel gengið** 1 fyrir þann hluta þjóð-
arinnar, sem aðallega les Tímann.
Þó hefðu menn haldið, að hann
myndi forðast í lengstu lög að
bregða Jónasi dómsmálaráðherra
xvm landráð. En í Tímanum í gær
kemst hann að þeirri niðurstöðu
að blaðagreinir sem varpa miður
lieppilegu Ijósi yfir fjármálaástand
landsins sjeu hin verstu landráða-
skrif, enda þótt eigi sje gert ann-
að en skýra. frá staðreyndum. —
Þó dómgreind Tímaritstjórans sje
ekki skörp, ætti hann þó að geta
eygt það, að sínu verra er að lýsa
ástandi fjárhagsafstöðunnar við
útlönd, ver en staðreyndir herma,
að sverta fjármálaástandið um-
fram veruleikann. En þá iðju hefir
Jónas stundað hátt upp í áratug,
með því að þrástagast á veðsetning
^tollteknanna. Skyldi Gísli ritstjóri
halda að „landráð" Jónasar helg-
! ist af því hann er í þeim efnum
svo gamall í hettunni. Ellegar vill
I Oísli með þessari síðustu „uppfinn-
ing“ sinni gefa í skyn að á Jónasi
sje ekki mark takandi?
Knattspyrnukappleikir í dag. —
Fjórir kappleikir verða háðir á
íþróttavellinum í dag. Hefjast þeir
með 3. flokks mótinu kl. 10 f. h.
Keppa þá Fram og K. R., en síðan
kl. 11—12 keppa Valur og Vík-
ingur. Kl. 2 hefjast úrslitakapp-
leikir 2. fl. mótsins. Valur og
Fram keppa fyrst, en síðan Vík-
ingur og K. R.
Jónas Þorbergsson var skorinn
upp síðastliðinn þriðjudag út af
botnlangaígerð. Hann er nú á
góðum batavegi.
Tvær bifreiðar rákust á á Kópa-
vogshálsinum í fyrrinótt. Bifréið-
arnar skemdust allmikið, en far-
þegar sluppu ómeiddir.
Kiristileg samkoma á Njálsgötu
1 kl. 8 í kvöld. Allir velkomnir.
Til fátæku stúlkunnar frá ó-
nefndum 2 kr.
Morgunblaðið er 12 síður í dng
og Lesbók.
Auglýsingar Bíóanna eru á 4.
síðu í blaðinu í dag.