Morgunblaðið - 07.09.1930, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
l
liiitiiiiiiiiiiiiiiiuiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiL
=
■=§ Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk
§= Rltstjörar: Jön Kjartansson.
= Valtýr Stefánsson.
s Ritstjórn og afgreitSsla:
s Austurstræti 8. — Simi 600.
= Auglýsingastjóri: E. Hafberg.
Auglýsingaskrifstof b :
s Austurstræti 17. — Sími 700. =
1 Heimasfmar:
Jðn Kjartansson nr. 742. . =
Valtýr Stefánsson nr. 1220. =
E. Hafberg nr. 770.
Áskriftagjald: =
Innanlands kr. 2.00 á mánuSI.
Utanlands kr. 2.50 á mánubi. =
í lausasölu 10 aura elntakitS, =
20 aura meti Lesbök. s
iiiiiiiiiiimiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiinuuil
Gamanið gránar.
Á það var bent hjer rnn daginn,
-að eigi væri ástæða til þess að
gera mikið úr þessu klofningstali,
sem komið hefir fram innan „Al-
]?ýðuflokksins“, því svo myndi
reynast, að hjer væri um útreikn-
aðar blekkingar að ræða. Allir
myndu hinir valdasjúku hálauniiðu
bolsabroddar flokksins bræða
sig saman við kosningar eftir sem
áður.
1 blaði Alþýðuflokksins á Ak-
ureyri, „Yerkamanninum“, er nú
kveðið að því fullum stöfum að
menn eins og Jón Baldvinsson,
Hjeðinn, Stefán Jóhann og slíkir
sjeu verkalýðssvikarar og verka-
lýðsböðlar, og fylgi þeir að málum
morðvörgum eins og t. d. forsætis-
ráðherra Breta, MacDonald.
Við þetta virðist Alþýðublaðið í
svipinn ekkert hafa að athtiga. Þó
flokksmenn þess ráðist á formaun
flokksins og pólitískt venslalið
lians, og nefni þann liðsöfnuð
verkalýðssvikara, þá hefir Alþýðu-
blaðsritstjórinn, enn sem komið er,
valið þann kostinn, að leggja sam-
þykki sitt á slík ummæli með al-
gerðri þögn.
Fyr má nú rota en dauðrota.
Þeir eru þó í sama flokki, sam-
herjar í pólitíkinni Binar Olgeirs-
son og Jón Baldvinsson. Hing-
að til hafa menn álitið, að Jón,
sjálfur formaður flokksins og þeir
sem næstir honum standa, hefðu
einhver ítök í aðalmálgagninu, Al-
þýðublaðinu. En nú gerir blað það
ekki annað en styðja að útbreiðslu
v. því áliti á Jóni Baldvinssyni og
fj lögum lians, að þeir sjeu t. d.
Tjettnefndir verkalýðssvikarar og
verkalýðsböðlar.
Ætlar Alþýðublaðið að láta slíkt
gott heita?
Á að festa svikaranafnið eins
«g einskonar pólitíska Fálkaorðu
í hnappagat þeirra, bankastjórans,
nlíusalans og annara reykvískra
Alþýðuflokksbrodda ?
Ætlar aðal-málgagn Alþýðu-
flokksins að opinbera það alþjóð
manna, að þegar Alþýðuflokks-
menn norður á Akureyri taka sjer
fyrir hendur að níða aðalforingja
flokksins, þá sje dugurinn og
djörfungin ekki meiri en svo, að
blaðið þori ekki, vilji ekki eða
geti ekki borið hönd fyrir höfuð
foringjanna.
Haraldur Björnsson leikari byrj-
ar aftur tal og framsagnarkenslu
sína 10. sept. n. k. Var áður svo
mikil aðsókn að skóla hans, að
rjettara mun vera fyrir væntan-
lega nemendur að tryggja sjer
t'íma sem fyrst. Símanúmer hans
ei’ 2281.
Diöðieikhúsið og söfnin.
í umræðunum um staðinn, sem
Þjóðleikhúsinu hefir verið fenginn,
hefir margsinnis verið bent á það,
að leikhúsið sjálft mundi njóta
sín þar illa. Það er önnur hlið
málsins. Hin er sú sem að söfnun-
um snýr, og að henni leyfi jeg
mjer að víkja, til árjettingar því,
sem áður hefir verið sagt. Lóð
Landsbókasafnsins takmarkast af
Lindargötu, Ingólfsstræti, girðing-
unni við Hverfisgötu og línu frá
austurenda hennar þverbeint í
Lindargötu. í þá línu er nú
verið að steypa kjallaragrunn und-
ir Þjóðleikhúsið. Allir sjá, að hár
húsveggur á þessum stað gerir
skuggsýnt og óyndislegt í austur-
enda Landsbókasafnsins, þar sem
útlánssalurinn er. Þá hefir verið
bent á að eldshætta gæti stafað af
leikhúsi þarna, og hve lítil sem hún
verður gerð með öllum varúðar-
tækjum, þá hverfur hún aldrei til
fulls, og það er alvarlegt mál, því
að fjársjóðir eru í veði, sem aldrei
verða bættir, ef þeir glatast. Þá
virðist leikhússjóðsstjórnin ætlast
tii, að bílvegur verði gerður milli
Landsbókasafnsins og leikhússins
frá Hverfisgötu og niður á Lind-
argötu. Hvaða heimild hún hefir
til að skamta sjer þannig af lóð
Landsbókasfnsins eftir þörfum er
mjer ókunnugt, en hitt er víst, að
með þessum hætti væri lóð Lands-
bókasafnsins orðin almanna tröð og
óverjandi, auk þeirrar herfilegu
óprýði, sem af því leiðir að girðing
in við Hverfisgötu sje styttri aust-
an liliðsins en vestan. Jeg hefi
margsinnis mótmælt þessari fyrir-
ætlun í viðtali við húsameistara og
hidriða Einarsson. Raunar hefði
, -/
það átt að vera sjálfsagt að spyrja
forstöðumenn safnanna í Lands-
bókasafnshúsinú um álit þeirra,
áður en leikhúsinu var fenginn
J?essi staður' því að þeim er skyld-
ast að vita, hvernig þetta horfir
við hag safnanna í nútíð og fram-
tíð, og það ætti að vera regla að
sjá svoNfyrir hag einnar ríkisstofn-
unar að ekki væri gengið á hag
annarar. Það hefir ekki verið gert
og okkur hefir því ekki verið ann-
ars kostar enkð mótmæla þessum
fyrirætlunum eftir á, Það höfum
við gert. En um framtíð safnanna
hjer, er þess að geta: Rúm það, er
Landsbókasafnið hefir nú, er bráð-
um offult, og er þó leigt herbergi
úti í bæ til geymslu bóka, sem
síst er eftir spurt, Er því bersýni-
legt, að Náttiirugripasafnið og
Þjóðminjasafnið verða bráðlega að
víkja hjeðan, enda er húsrými
þeirra nú báðum bagalega lítið.
Þegar þau fara, endist Landsbóka-
safninu um nokkurt árabil það
rúm, er autt verður. Þegar það
verður fult, er ekki annars úrkost-
ur en að reisa nýtt hús. Það mundi
verða gert á lóð safnsins við Lind-
argötu og Þjóðskjalasafnið flutt
þangað, en Lan-dsbókasafnið fengi
þá alt húsið, sem það nú er í. En
einhvern tíma dregur að því, að
bæði þessi hús verða söfnunum
ónóg, og væri þó ilt að skifta
þeim, eða flytja þau sundur. Eðii-
legasta og æskilegasta framkvæmd
in í þessu máli hefði því verið sii,
að reisa á þeim stað, sem leikhús-
inu nú.er ætlaður, hús fyrir Þjóð-
menjasafnið og Málverkasafnið og
Náttúrugripasafnið og haga því
3 daga.
Mánudag, þriðjudag og miðvikudag selur pappírsdeild
V. B. K.
nokkrar vörutegundir, sem útundan hafa orðið, langt fyrir neðan
innkaupsverð, svo sem:
Ljósmyndabækur fyrir hálfvirði.
Vindlingaveski fyrir hálfvirði.
Brjefaveski áður 8,90, nú 4,00.
do. — 8,00, — 3,50.
Lindarpennar áður 21,00, nú 10,00.
do. — 17,00, — 8,00.
do. — 13,25, — 6,00.
do. — 4,50, — 2,00.
©
Skrif pappír í skrautumslögum og kössum frá 0,10 til 1,50.
do. í pökkum, oktav, pakkinn áður 1,60, nú 0,85, hvítur.
do. í pökkum, oktav, pakkinn áður 1,35, nú 0,70, hvítur.
do. í pökkum, oktav, pakkinn áður 1,80, nú 0,90, bleikur.
Umslög bleik, hundraðið áður 2,10, nú 1,00.
D a g b æ k u r (kladdar) áður 3,50, nú 1,50.
Fjórblöðungar (kvartbækur) áður 3,70, nú 1,50.
Áttblöðungar (oktavbækur) áður 2,20, nú 1,00.
Blýantar tylft áður 7,40, nú 4,00.
do. — — 3,00, — 1,50.
do. — — 2,40, — 1,20.
do. -i- — 1,80, — 0,90.
Skrúfaðir blýantar áður 6,25, nú 2,50.
Kalkérpappír (blápappír) ritvjela, kassinn áður 7,00, nú 4,00.
,, Clarotype" ritvjelaleturs-hreinsari, áður 2,75, nú 1,50.
Brjefamöppur áður 0,40, nú 0,15.
VersluniR fliirn Hristlðnsson.
#©•••••<
svo að það væri í stíl við Lands-
bókasafnið og tæki sem minsta
birtu frá því. Þegar Landsbóka-
safnshúsið og húsið við Lindar-
götu verða ónóg sínum söfnum ein-
hvern tíma í framtíðinni, þá mundu
þau fá safnahúsið við hliðina, en
nýtt lnis reist á öðrum stað fyrir
hin söfnin. Besta leiðin fyrir alla
aðila þessara mála mundi verða sú,
að gera þegar gangskör að því að
finna Þjóðleikhúsinu hentugri stað.
en snúa því verki, sem þegar er
hafið á grunninum, upp í það að
reisa þar hús fyrir Þjóðmenjasafn-
ið. Það sem þegur er að gert væri
þá ekki til ónýtis unnið, enda
kæmi fult verð fyrir. Með góðum |
vilja ætti að mega liðka þetta alt
og jeg treysti því að þeir góðu
menn sem hjer eiga hluf að máli
taki þessa tillögu til íhugunar.
Guðm. Finnbogason.
Smásöluverð í Reykjavík hækk-
aði talsvert í júlímánuði á kjöti
og fiski, en hinsvegar varð tölu-
verð lækkun á kartöflum og dá-
lítil á kaffi. Annars breytist verð-
ið lítið. Verðl. í ágústbyrjun í ár
var heldur lægra en í ágúst í fyxra
(rúml. 2%). Þegar verðlagið á
nauðsynjavörum er borið saman
við verðlagið fyrir stríð, sjest að
sama vörumagn sem kostaði 100
kr. í júlí 1914, kostaði 222 kr. í
byrjun ágústmánaðar þ. á.
(Hagtíðindi).
Erlendar sdnfregnir.
London (UP) 6. sept. FB.
Frá Argentínu.
Buenos Aires: Irigoyen hefir
ekki, eins og fyrri fregn hermdi
sagt af sjer, en falið varaforsetan-
um stjórn landsins. — Hernaðar-
ástandi hefir verið lýst yfir í borg-
inni.
Hörmulegt mannfall af völd-
um fellibylsins í Santo
Domingo.
New-York: Ræðismaður Banda-
ríkjanna í Santo Domingo hefir í
við tali við United Press sagt að
það sje varlega áætlað að 1500
menn hafi beðið bana, en 5000
meiðst af völdum fellibylsins.
Santo Domingor Samkvæmt sein
ustu skýrslum biðu eitt þúsund
manns bana en fjögur þúsund
meiddust af völdum fellibylsins.
Yoldug bankasamsteypa í
Bandaríkjunum.
London (UP) 6. sept. FB.
New York: Samkomulag komst
á síðastliðinn fimtudag um sam-
steypu bankanna: Bank of Amer-
ica, Bank of California, Bank of
Italy og National Trusts Savings
Associations. Samkomulagið náðist
á fnndi, sem allir hlutaðeigandi
bankar höfðu sent fulltrúa á. —
Bankasamsteypan liefir til umráða
185 miljónir dollara. Giannini,
stofnandi Bank of Italy, er forseti
aðalráðs samsteypubankanna. —
Bankasamsteypan verður fjórða
stærsta peningastofnun í heimi.
Kommúnistar handteknir.
Varsjá: Fimm kommúnistar, fyr-
verandi þingmenn í Póllandsþingi
voru handteknir í dag, er þeir
gerðu tilraun til þess að komast
yfir landamærin til Rússlands, án
brottfararleyfis. — Þýðingarmikil
skjöl kváðu hafa fundist á þeim.
Sjómannakveðjur.
FB. 6. sept.
Farnir til Englands. Kveðjur.
Skipverjar á Braga.
Höfnin. Apríl kom af veiðum í
gær. — Tvö fisktökuskip fóru
hjeðan í fyrrinótt.
Sýning Eggerts Guðmundssonar
lístmálara er opin í dag frá kl.
11 t.il 8 í húsi K. F. U. M.
Lárus H. Bjarnason, hæstarjett-
ardómari hefir verið kjörinn for-
seti dómsins fyrir næsta ár.
Kveðjusöngkvöld Maríu Markan
er annað kvöld kl. 9 í K. R.húsinu.
Hún fer til útlanda með íslandi
á þriðjudagskvöld.