Morgunblaðið - 26.11.1930, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ
r «
Skermavinnustofa mín er í Hafn-
arstræti 18 uppi. — Hefi einnig
^ermamót, — efni, — kögur, —
slíxaur og kandgerða pergament-
sfcerma .Rigmor Hansen.
Ný ýsa best. — Hringið í síma
1776. —
Rjettindi að símanúmeri óskast.
Tilboð merkt ,Sími‘, sendist A.S.l.
Gíænýr, beinlaus fiskur (ýsa) í
dósum er bestur. Fiskmetisgerðin,
Hverfisgötu 57, sími 2212.
Blóm & ávextir. Kreppappír.
Kransaborðar. Kransaefni. Kerti.
Keramikvörur. Konfektkassar.
Körfur.
Cineirairiur, Nellikkur o. fl. í
pcttum í Hellusundi 6, sími 230.
GrammófónviSgerðir. Gerum við
grammófóna fljótt og vel. Öminn,
Laugaveg 20. Sími 1161.
Fengum
glænf egg
með e.s. Lyru.
Athngið
verC og gæði annarstaðar og
komið síðan í
Tísknbúðina,
Grundarstíg 2.
Statesmaii
er stóra orðið
5l. 1.25
a iorðið.
H. I'/í
árd. er fyrsta ferð úr Hafnarfirði
alla virka daga frá
Stelndöri.
Hitamestu kolin.
Best South Yorkshire
Hard Steam — kolin
frægu, ávalt fyrir*
llggjandi.
Kolaverslun
ðlafs Úlafssonar.
Slmi 588.
Snðn- og
böknnaregg.
E1 e i u,
Baldursgötu 14. Sími 73.
Saumastofa
luín er nú á Oðinsgötu 1, uppi.
Bergþóra Eliar.
„Sirius", Konsum súkkulaði
er fyrsta flokks vara, sem
allir gera rjett að nota.
Ekki skal berja .... Til dæmis
um það hvert „líf hefir verið í
tuskunum' ‘ á verklýðsráðstefn-
unni, er tillaga, sem kom franr
í fundarlok og fór fram á að sam-
þykt væri, að ekki mætti berja
menn, sem væru með gleraugu,
vegna þess að gleraugun gætu
brotnað og brotin eyðilagt sjón
þess er fyrir yrði. Bn meiri hlnt-
inn á ráðstefnunni leit, svo á, að
þessum mönnum væri ekki vancl-
ara en öðrum að þola högg, og
feldi því tillöguna.
Síldveiði Finna við ísland. í
sumar sem leið gerðu Finnar út
leiðangur til síldveiða hjer við
land. Höfðu þeir „kúttera" til
veiðanna, en gufuskipið „Astræa“
tók við aliri síldinni og var'hún
söltuð þar um borð. Alls veiddu
skipin 8000 tunnur og þykir Finn-
um það góður árangpir. Hátt verð
fekkst fyrir síldina í Finnlandi og
auk þess var útgerðinni gefinn eft-
ir innflutningstollur af henni. —
Formaður útgerðarinnar er Elving
konsúll.
Innflutningurinn: Fjármálaráðu-
neytið tilkynnir: Innfluttar vörur
í október kr. 4.044.490.00. Þar af
til Reykjavíkur kr. 3.014.487.00.
(F. B.)
Kvennagullið.
— Herra, svaraði jeg. Þessi
stúlka hefir verið dásömuð fyrir
fegurð sína og dygðir, og jeg hefi
ástæðu til að ætla, a£ hún mundi
sóma sjer vel, sem liúsfrú í höll
minni. Jeg er kominn á þann aldur
a? jeg verð að fara að eignast
konu. Þjer hafið sjálfur. yðar
hátign, oft minst á hið sama.
Hann leit þreytulega á mig og
röcldin titraði lítið eitt, er hann
spurði:
— Marcel, stendur yður alveg á
sama um mig?
-r— Herra, lirópaði jeg í ein-
hverju ofboði, gerist þess þörf að
jeg svari þessari spumingu?
— Ó-nei, svaraði hann stuttur í
spuna; þjer getið sýnt mjer það
svart á hvítu. Sleppið þessari
Languedoc-för. — Jeg hefi fulla
ástæðu til þess að krefjast þess
— ástæðu, sem hefir milda stjórn-
málalega þýðingu. Það er ósk mín
að ungfrú Lavédan giftist öðrum
manni og jeg vænti þess. að mjer
verði hlýtt.
Hjálparstöð Líknar, fyrir berlda-
veika, er á Bárugötu 2. Læknir
viðstaddur á mánudögum og mið-
vikudögum klukkan 3—4 síðdegis.
Dýraverndarinn, október-nóvem-
ber blaðið er nýkomið. Þar er
fyrst grein eftir Pál á Hjálmstöð-
um um hund, sem hjet Kolur, og
var mesta vitskepna. Þá er fram-
hald á grein Böðvars á Laugar-
vatni „Endurminningar úr harð-
indum.“ Jóhann Ö. Oddsson ritar
um tvær dýraverndunarkonur
norður á Akureyri og fylgja
myndir af þeim. Þrjár smásögur
um skepnur eftir Ingunni Páls-
dóttur frá Akri í ftunavatnssýslu.
Brjefkafli, hestavísur eftir ýmsa,
haustvísur og nokkrar greinir
teknar upp íir Lesbók Morgun-
blaðsins.
Bændanámskeið stendur yfir í
Vík í Mýrdal þessa dagana, byrj-
aði á mánudag og endar á morgun.
Stúdentadansleikurinn. Að gefnu
tilefni skal það tekið fram, að
ekkert sjerstakt samát verður á
dansleik Stíidenta 1. desember. —
Eingöngu* æskir clansnefnd, að
þeir, er hugsa sjer að snæða í
Hótel Borg á undan dansleikn-
um, segir til þess er þeir vitja
aðgöngumiða.
Alþýðufræðsla Stíident a f j ela gs-
ins. Guðmundur Bárðarson flytur
annan fyrirlestur sinn í Baðstofu
Tðnaðarmanna í Tðnskólanum
(gengið úr Vonarstræti) í dag
kl. 8V2 síðdegis: TTmræðuefni:
Tjörnes. Á Tjörnesí er að finna
um 700 metra þyklca jarðmyndun
með fjöldamörgum sæskeljalögum
frá Pliocentímunum (næst á und-
an Jökultímunum), sem vart á
sinn líka í öðrum löndum. Þar
finnast einnig kolalög sem mynd-
ast hafa á landi. Sýndar verða
skuggamyndir af jarðlögunum,
enn fremur sæskeljar, sem ^ifað
hafa fyrir hundrað þúsundum ára.
Eru margar þeirra útdauðar, og
hafa sumar hvergi fundist nema á
Tjörnesi. Einnig verða sýnd nokk-
ur bein úr hvalbeinagrind, sem þar
hefir fundist undir ca. 600 metra
þvkkuni jarðlögum. Eru beinin
orðin að steini. — Aðgöngumiðar
fást í bókaverslun Eymundsens í
dag til kl. 6 síðdegis og við inn-
ganginn.
Málverkasýning Sveins Þórarins-
sonar og konu hans verður opin
í síðasta sinni í clag.
Það munaði minstu að jeg ljeti
freistast og gripi þessa átyllu til
að losna við þetta fyrirlitlega fyr-
irtæki er ,jeg var þegar búinn að
fá mildu meira en nóg af. I að lá
opið við að safna öllum vinum
mínum, sem voru gestir mínir í
gærkvöldi saman til annarar veislu
og auðvitað varð Chatellerault
greifi að vera á meðal þeirra og
skýra þeim síðan frá vilja kon-
ungsins, að hann hefði bannað
mjer að biðja Roxalönnu de Lav-
édan og þar með yrði veðmálið að
falla niður.
En þá var eins og jeg sæi háðs-
svipinn á andliti þeirra og að þeir
gerðu gjrs að mjer fyrir að jeg
hefði gripið þessa átyllu með 'k-
fergju til þess að losna úr erfið-
leikum er jeg hafði balcað mjer
með gorti mínu.
— Herra, svaraði jeg og hneigði
liöfuðið auðmjúklega, það tekur
mig sárt að áform mín fara þann-
ig í þveröfuga átt við óskir vðar.
En vegna vinsemdar yðar og hlífni
er þjer altaf hafið veitt mjer áð-
ur, dirfist jeg að væuta fyrirgefn-
ingar j’ðar. enda þótt jeg neyðist
Böknnardropar Á. V. R.
Áfengisverslun ríkisins hefir samkvæmt lögum ein
heimild til að flytja inn og setja saman bök-
unardropa úr hinum venjulegum efnum.
S/ANILJUPRQPAT?
V Æ
/\FEN&I5VL7?ZLUN MlSlhS
iTjjmramp
ÓFENGl5VCf?ZLUN f?IKI5lN5
1S
Verslunum eru sendir droparnir gegn póstkröfu.
Fást í 10, 20 og 30 gr. glösum og eru 25 glös sjer-
pökkuð í pappastokk.
Húsmæður, biðjið kaupmann yðar eða kaupfjelag
ætíð um
Bökunardropa Á. V. R.
Þeir eru bestir! Þeir eru drýgstir!
Efnagerðar
Soyan
er sú eina, sem gerir matinn að
hnossgæti.
Munið ávalt þetta:
Það besta er frá
H.f. Efnagerð
ReykjaTíknr.
Á ^Töldborðið:
Oelbe Sorte
cigarettur
25 stk. pakkar (svartir með
gulu bandi), eru bestar. —
Reynið þær í dag. Fást í tó-
baksversiunum.
njólkarfjelag
Reykjavikm.
Spikfeitt, reykt auðakjöt, lúðu-
riklingur, ýsa, íslensk egg, soðinn
og súr hvalur, nýtt skyr og alls-
konar ofanálag.
Vörur sendar heim.
Vjelareimar,
Reimalásar,
bestu teg. sem fáanlegar eru.
Fást hjá
Björnfnn,
Bergstaðastræti 35.
Sími 1091.
Vafti. Penlsen
Klapparstíg 29, sími 24.
til að gera yður á móti skapi 1
þessu máli.
Hann þreif í handlegginn á
mjer, leit á inig fast 0g lengi.
—Þjer þverskallist við bænum
mínum ? sagði hann spyrjandi og
rödclin skalf af reiði.
— Guð forði mjer frá því, náð-
ugi herra, svaraði jeg í skyndi, en
jeg verð að þræða braut þá er
forlögin hafa úthlutað mjer.
Nokkra stund gekk hann um
gólf með hendurnar fyrir aftan
bak eins og sá er reynir að stilla
skap sitt áður en hann talar. Jeg
fann að óteljandi augu hvíldu á
okkur og jeg þóttist viss um að
meðal viðstadclra hafi elclci verið
svo fáir, er spurt hafi sjálfa sig
hvort Bardelys ætti nú þegar, að
hlíta sömu örlögum og keppinaut-
ur hans Chatellerault, er komist,
hafði í ónáð hjá konunginum dag-
inn áður. Lolcs staðnæmdist kon-
ungurinn fyrir framan mig.
— Marcel, sagði hann og rödd
hans var óþýð, enda þótt hann
ávarpaði mig með fornafni, farið
heim og íhugið ummæli mín. Ef
vernd mín er y.ður nokkurs virði
og þjer viljið áfram sem hingað
jtil njóta samúðar mínnar, þá slepp
ið þjer ferðalagi j’ðar til Langue-
cloc og hugsið ekki um að svo
stöddu að gera fröken Lavédan að
j lconu j’ðar. Ef þjer hins vegar
j lialdið fast við ósk yðar — þá
þurfið þjer ekki framar að ómaka
'j’ður heim afturi Konungur Frakk
lands hefir ekkert. að gera við
menn sfiri þverskallast við vilja
konungs síiis.
Málið var nú útrætt frá haus
liálfu. Hann snerist á hæli án þess.
að bíða eftir svari, og skömmu
síðar sá jeg hann vera að tala við
greifann af Saint Simon. Svona er
eðli þess clálætis er konungur liefir
á þegnum sínum. — Það er fordild
arfult og dutlungafult og umfram.
alt eigingjarnt. Hlýðnist maður
ekki — hvenær sem er og hvernig.
sem á stendur, hefir maður fyrir-
gert því.
Jeg gekk á burt dapur í lniga’
því að mjer þótti vænt um konung-
minn, þrátt fyrir veikleika hans
og þróttleysi og jeg mundi með
glöðu geði fórna fyrir liann lífi,
mínu ef svo bæri undir og það