Morgunblaðið - 28.11.1930, Síða 2
MURGUNBLAÐIÐ
Seljnm:
Borðsmjörlíki „prima“.
Bakarasmjörlíki „B“.
Sultutau bl.
Belg. flórsykur
með lægsta verði.
Signrján Úlafsson
myndhöggvari.
J'jársöfnun til styxktar hinuxn
efnilega listamanni.
I gær liringdi Jón Pálsson
bankagjaldkeri til Morgunblaðs-
ins, út af greininni, sem var í
blaðinu um viðurkenningu þá og
styrk þann, sem hinn ungi íslenski
listamaður, Sigurjón Ólafsson, hef-
ir fengið í Danmörku.
Jóni fórust orð á þessa leið:
Mjer þykir óviðkunnanlegt, að
þessi ungi, fátæki piltur, sem nú
hefir sýnt frábæra hæfileika, sam-
fara fádæma dugnaði óg einbeitni,
fái ekki nú þegar einhverja við-
urkenningu hjeðan að heiman. —
Menn verða að sýna það í verki,
að þeir kunni að meta það að verð-
leikum, þegar ungir bláfátækir
inenn brjótast yfir allar torfærur
á skömmum tíma, og gera þjóð
.sinni mikinn sóma í útlöndum.
Jeg hefi þegar talað um þetta
við nokkra menn, og þeir hafa
alíir tekið vel í það að taka þátt
í samskotum handa hinum unga
listamanni — hafa lofað að leggja
fram, sumir jafnvel alt að 100
krónum.
Nú vil jeg láta bæjarbúa vita
af þessum samtökum, og biðja
Morgunblaðið fyrir þessi skilaboð
til almennings, og að jeg taki á
móti samskotafje handa Sigur-
jóni.
Hann þyrfti að fá 1—2000 kr.
— og það sem fyrst.
Jeg hefi hugsað mjer að 'senda
peningana til Jóns Krabbe skrif-
stofustjóra. Eftir því, sem dönsku
blöðin herma, hefir hann verið
Sigurjóni hjálplegur, veitt honum
athygli og hæfileikum hans fyrr
nn flestir aðrir.
Morgunblaðið flytur þessi skila-
boð frá Jóni Pálssyni, með mik-
ílli ánægju, og væntir þess, að
þeim verði vel tekið. Úr því einn
■ókunnugur útlendingur hefir sent
Sigurjóni 1000 krónur, ættu land-
ar hans ekki að vera miklu seinni
til og rjetta honum hjálparhönd,
honum til styrktar og uppörvunar.
Jón Pálsson tekur við samskota-
fjenu. Hann hefir síma 1925, á
Laufásvegi 59.
Rússnesku málaferlin.
Moskva 27. nóv.
United Press. FB.
Rjettarhöldunum hefir verið
frestað til kl. 10 árd. á fimtudag.
Játningar prófessoranna Kalini-
kov og Charnovski hafa vekið
fádæma eftirtekt. Hafa þeir báðir
játað rjettar vera ráðagerðirnar
um að koma rússneskum iðnaði í
kalda kol.
Þing Ribýðusambandsins
Það var sett á þriðjudaginn, en
ekki kom rauði fáninn upp á
Krónborg, eins og í fyrra.
Fyrsta daginn varð háa-rifrildi
út af kjörbrjefum fulltrúanna. T.
d. hafði Sjómannafjelag Isafjarð-
ar sent tvo fulltrúa í staðinn fyr-
ir einn og höfðu báðir kjörbrjef.
Var annar kommúnisti en hinn
hægfara. Um fulltrúana frá Vest-
manneyjum og klofninginn þar,
varð þó sennan snörpust. Brá •ki
svo einkennilega ,yið, að þeir hæg-
fara vildu ekki kannast við fje-
jagið hans ísleifs Högnasonar. —
Var alveg eins og þeir Finnur
póstmeistari, Erlingur Friðjóns-
son o. fl. hefðu gleymt heillaóska-
skeytunum, sem þeir sendu Isleifi
í fyrra þegar þeir þökkuðu honum
fvrir að „reka svikarana“. Kjör-
brjefanefnd kom með þá einkenni-
legu tíllögu, að fjelag Þorsteins
Víglundssonar (Þórshamar) yrði
tekið í sambandið „og þar með að
t’dra fjelagið yrði slcoðað sem
komið úr sambandinu eða dautt“.
Ait var álíka viturlegt á þessuin
fundi.
Á miðfvikudaginn var alt kyrt;
!as stjornin þá upp skýrslur sínar,
og kosið var í nefndir.
En í gær fór að hvessa aftur.
Kallaði þá hver annan lygara og
svikara, verkiýðsböðla, leiguþý
auðvaldsins o. s. frv.
Einar Olgeirsson hjelt 2 tíma
skammarræðu á Jón Baldvinsson.
Sagði að þótt þeir báðir ynni fyr-
ir auðvaldshringa, þá væri mun-
urinn sá, að hann ynni fyrir verka-
lýðinn, en Jón kappkostaði að við-
halda auðvaldsskipulaginu.Jón gat
ekki svarað öðru en því, að hann
hefði verið neyddu-r til að taka við
bankdstjórastarfi við Utvegsbank-
ann; en þegar hann var spurður
hver hefði neytt hann til þess,
varð honum orðfall.
Kjartan Ólafsson í Hafnarfirði
skammaði stjórnina fyrirónytjungs
skap. „Alþýðublaðið“ væri bráð-
ónýtt; helstu greinarnar í því
væru eftir Ódd (Margir kölluðu:
Hann er betri heldur en þeir
Ólafur og Haraldur!) Þá skamm-
aði Kjartan flokkstjórnina fyrir
það að elta Framsókna.rflokkinn
og nudda sjer upp við hann. Með
því hefðu þeir svikið Alþýðuna,
enda hefði það komið í ljós við
seinustu kosningar (landkjörið)
að Alþýðuflokkurinn hefði mist
atkvæði hrönnum saman fyrir það.
Stefán Jóhann svaraði og sagði
að þeim væri nauðugur einn kost-
ur að vera í sambandi við Fram-
sókn, því að með því eina móti
gætu þeir vænst þess að koma
fram kröfum sínum (hefir sjálf-
sagt ekki átt við kröfur verka-
lýðsins, heldur lcröfur þeirra Al-
þýðuburgeisanna um að fá „bein‘ ‘)
heitir ný öltegund, sem vjer erum nýfarnir að framleiða.
Þessi öltegund líkist hvað mest „Gamla Carlsberg“ og
„Miincheneröli“ að gæðum, en þær öltegundir þykja með
þeim bestu sem framleiddar eru í heiminum.
Þ6rs-
Bförs
ágætu eiginleikar eru, að hann er sjerstaklega ljúffengur,
bragðgóður og hefir sterkan ölkeim, og er um leið sval-
andi drykkur.
Það er sannfæring vor, að Þórs-Bjór sje framtíðar drykk-
ur allra Islendinga, því í honum eru sameinaðir allir þeir
kostir sem gott öl þarf að hafa, samkvæmt framan-
greindu. —
Þ ó r s - B j ó r
fæst nú þegar í flest öllum verslunum og veitingahúsum.
Reynið einn Þórs-Bjór, stras i dng.
.F. ÖL6ERÐIN ÞÓR.
Ingólfur Jónsson bæjarstjóri í
ísafirði kallaði Hjeðinn „leiguþý
breska heimsveldisins“. Og mhrgt
var þessu líkt.
Heyrst hefir að kommúnistar
ffitli að stofna allsherjarsamband
sín á milli í dag, undir handleiðslu
erindrekans frá Moskva, sem hefir
dvalist lijer að undanförnu og
verið að kenna þeim byltinga-list-
irnar.
Signrþór Úlafsson
vjelasmiður.
Hann andaðist á Akureyri 27.
ágúst s.l. Hann fæddist á Stokks-
eyri 10. ágiist 1904, sonur Ólafs
Sæmundssonar og Sigríðar Þórð-
ardóttur. Var Sigurþór sál. af
góðu bergi brotinn og þó einkum
í móðurætt, og má þar til nefna
afa hans Þórð og bræður hans
Guðmund bónda í Marteinstungu,
foður Þorvalds sál. sem lengi var
hjá Sigurði Kristjánssyni bóksala.
Sigurþór sál. fluttist ungur með
foreldrum sínum suður með sjó og
ólst þar upp. Dvaldisthann síðustu
árin í Sandgerði og stundaði þar
sjómensku.
Sigurþór sál. var prýðisvel gef-
inn, hægur og dulur í skapi, vin-
sæll og vel látinn. Var hann hag-
leiksmaður til vinnu allrar, og
gtarfsmaður góður. Misti hann föð
ur sinn ungur, en fylgdi þá móður
sinni og var hún hjá honum til-
dauðadags í janúar s.l.
Er að mörgu leyti mannskaði í
Sigurþór sál., og er það þjóðar-
skaði, er ungir efnismenn eru
hrifnir, burtu á besta aldri.
Kunningi.
Rorð ob slóiar.
Nú höfum við fengið nýjar birgðir af okkar ágætu borðstofu-
stólum, fleiri tegundir en áður. Enn fremur mikið úrval af körfu-
stólum, ódýrum, fallegum og vönduðum.
Þá höfum við birkistóla, orgelstóla og eldhússtóla á kr. 3.50.
Enn fremur borðstofuborð mjög falleg, stráborð og furuborð.
Hðsgagnaverslnn Reykjaviknr.
Vatnsstíg 3. — Sími 1940.
uppboðið
4L
í Aðalstræti 3, heldur áfram í
dag, og verða þar seldar vefnað-
arvörur, skrifborð, taurullur og
margt fleira.
Lögmaðurinn í Reykjavík
28. nóvember 1930.
Bjöm Þórðarson.
Peysnfata-
kápnr
kanpið þjer bestar
hjá okknr.
Komið og skoðið.
Vðruhúsíð.
Fallegar
• Enskar
Manchett-
skyrtur
og Náttföt.
Hálsbindi.
falleg.
Silkiitreflar
og Klútar.
Axlabönd.
j{aia(duijhna±cti