Morgunblaðið - 28.12.1930, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
ynnmuHnMiuuiuiuuDHHnBBmnnuuii
THorsunblaHð ?
waL: ftt imktr. awttwfli
HUT-rr. «2iSSS55fc
AlMlNtiwU L — «1n< M*. i
stiért: B.
Aactfsi mik rlMate:
lietmtmtl ÍT. — Mai 1M.
ffi ximuiM mr. tta.
Taitfr
f. m
kr. 8.W * niaiH.
ntaUaif kf. LM 4 ntaaM
f laaaaoM* II ura ilitaMI.
•I un
Atvinnnleysi
hjá stórþjóðunum.
Atvinnuleysið í Englandi.
London, 24. des.
United Press. PB.
Yerkamálaráðuneytið tilkynnir,
að tala atvinnnleysingja um mið-
bik desembermánaðar hafi verið
tvær miljónir tvö hundruð og
nítján þúsund fimm hundruð níu-
tíu og tveir, eða sjö hundruð þús.
þrjú hundruð og sjötíu minna en
vikuna þar á undan, en 996.305
meira en á. sama t-íma í fyrra.
Atvinnuleysið í Bandaríkj-
unum.
Washington, 24. des.
United Press. PB.
Ameríska verkamannasambandið
Tiefir birt skýrslur um atvinnu-
leysi í Bandaríkjunum þ. 15. des.
Var tala atvinnuleysingja þá fimm
miljónir og þrjú hundruð þiisund,
eða þrjú hundruð þúsund meira en
þ>. 30. nóv. s. 1. í skýrslunni er
sagt, að vegna atvinnuleysisins
•eigi fjöldi manna þegar við afar
mikinn matarskort að stríða og
Tdæðleysi, en fjöldi manna eigi og
hvergi höfði sínu að að halla.
Atvinnuleysið í Þýskalandi.
Berlin 23. des. Mótt. 24. des.
United Press. PB.
Samkvæmt skýrslum frá aðal-
miðstöð bjargráðastarfseminnar
var tala atvinnuleysingja í Þýska-
landi um miðbik desembermánað-
ar þrjár miljónir níu hundruð níu-
tíu og sjö þúsund.
Kellogg
og friðarverslun Nobels.
New York, 23. des.
United Press. FB.
Kellogg, fyrverandi ráðherra í
U S. A., sem lilaut friðarverðlaun
Nobels í haust, kom hingað úr
Evrópuför sinni í dag. Þrátt fyrir
erfiðleika þá, sem Evrópuþjóðirnar
ættu við að stríða, kvaðst Kellogg
vera bjartsýnn um framtíð Ev-
rópu. Nú verandi erfiðleikaástand
kvað hann ekki mundu leiða til
Styrjalda, stjórnmálamenn í Ev-
rópu ynni af meira kappi að því
en nokkru sinni fyr að koma í veg
fyrir styrjaldir. Játaði Kellogg að
vísu, að mikið væri um ófriðar-
hættur skrifað, en helstu stjórn-
málamenn álfunnar byggist ekki
við ófriði.
Stjórnmálamaður látinn.
Bukarest, 23. des.
United Press. PB.
Fyrverandi forsætisráðherra Vin
tila Bratianu andaðist í gærkvöldi
;af slagi.
Bruni
Eldsvoði í útbúi Útvegsbank-
ans í Vestmannaeyjum.
Vestmannaeyjum 26. des. PB.
Á aðfangadag jóla kom upp eld-
ur í húsi því, sem útbú Utvegs-
banka íslands er í. Er útbúið niðri,
en bankastjórinn býr uppi. Keypti
bankinn hiis þetta fyrir nokkru.
Eldurinn kom upp í eldhúsi, út
frá steikarpönnu á eldavjel. Eld-
urinn breiddist mikið út á efri
hæðinni og var 'farið að loga út
um þakið, er tókst að slökkva.
Eldurinn náði ekki neitt niður, þar
sem útbússkrifstofurnar eru. Alt
var borið út úr húsinu. Veður var
gott, austankaldi, en ef hvassviðri
hefði verið, er hætt við, að ver
hefði farið.
Viuuustöðvuuin
við garnastöðina.
Tjónið af innbrotinu metið.
Morgunblaðið hafði í gær tal af
forstjóra Sambands íslenskra sam-
vinnufjelaga, Sig. Kristinssyni,
og spurði hann hvort nokkuð
gerðist í garnastöðvar-málinu.
Hann 1 jet lítið yfir því.
Six fregn flaug um bæinn ný-
lega, að Sambandið hefði stefnt
Hjeðni Valdimarssyni, formanni
Dagsbrúnar og e. t. v. fleirum.
En Sigurður sagði, að svo væri
ekki.
En er liann var spurður að því,
hvort rjett væri hermt, að tjón
það, sem Sambandið hefði orðið
fyrir í garnastöðinni, hefði verið
metið, þá hvað hann svo hafa gert
verið.
Um tilganginn með því mati var
ekki spurt.
Eigi skýrði forstjórinn frá því,
lxve tjónið væri metið hátt, en það
er tvíþætt. Pyrst er tjónið af
spellvirkjunum, þegar vatninu var
lileypt í saltið, og þá tjónið af
því, að eigi er hægt að fullhreinsa
og ganga frá görnum þeim, sem
voru í hreinsun, og liggja þær
undir skemdum.
Innbrotið.
Enn fremur spurði Morgbl. lög-
reglustjórann að því, hvort Sam-
bandið hefði kært innbrotið í
garnastöðina.
Bein kæra hefir ekki komið frá
því, sagði lögreglustjórinn, nema
hvað hringt var á lögreglustöðina
frá Sambandinu, daginn eftir inn-
brotið, og lögreglan beðin að fara
þangað, vegna þess að frjetst hefði
að þar hefði verið framið húsbrot.
En málið er undir rannsókn, alt
fyrir það, segir lögreglustjóri. —
Keynt verður að hafa upp á því,
hver brotist hefir inn í húsið, og
opnað fyrir vatnshanana.
Heldur var dauft hljóðið í lög-
reglustjóra. með það, að hægt yrði
að finna innbrotsmennina; inn-
brotið framið um nótt, og menn-
irnir ekkert aðhafst, annað en
opna fyrir vatnið.
Prófessorsnafnbót. Guðmundur
G. Bárðarson, náttúrufræðiskenn-
ari, hefir af konungi verið sæmd-
ur prófessorsnafnbót.
Þiug- og
hjoraðsmálafnBdiir
N orður-ísf irðinga.
Ríkisstjórnin vítt fyrir f járbruðlið.
Tillögur samþ. á þing- og hjer-
aðsmálafundi Norður-ísfirðinga:
„Pundurinn telur alveg óverj-
andi hve miklu fje hefir verið var-
ið iir ríkissjóði þrjú síðustu ár,
um fram það er fjárlög þess tíma-
bils gera ráð fyrir og telur að slík-
ar hóflausar umframgreiðslur
skerði til muna fjárveitingarvald
Alþingis og stofni þar með fjár-
málum þjóðarinnar í hættu. (Sam-
þykt með 18:4). Jafrframt vill
fundurinn skoia á Alþingi að gæta
hófs í fjárveitingum ríkíssjóðs og
láta fjárveitingar til styrktar at-
vinnuvegunum ganga fyrir (samþ.
í e. hlj.). Ennfremur að Alþingi
sjái um að ríkisstjórnin haldi sjer
framvegis sem næst ákvæðum fjár-
laga með greiðslur úr ríkissjóði.
(Samþ. í e. hlj.)“.
„Fundurinn lýsir fullu trausti
sínu á þingmanni kjördæmisins“.
(Samþ. með 21 shlj. atkv.).
Vígahnöttur.
San Pranciseo, 26. des.
United Press. PB.
Afar stór og bjartur vígahnött-
ur sást falla til jarðar. Sást víga-
hnötturinn á 50 mílna svæði. —
Byggingar hristust sem í land-
skjálfta í 12 borgum, er atburður
þessi gerðist.
Gullforði Frakklandsbanka.
París 27. des.
United Press. PB.
Gullforði Frakklandsbanka var
í dag 53 miljarðar 283 miljónir
850 þúsund og 425 frankar. —
Hefir gullforði bankans aldrei ver-
ið meiri en nú. Frakkland hefir
nú ná.lægt því 20% af gullmynt
heimsins.
Áfengisólyfjan í New York.
New York, 26. des.
United Press, PB.
11 menn biðu bana, en 27 voru
fluttir á spítala, fárveikir af völd-
um eit.raðra drykkja, í New York
jóladagana. Síðan bannlagaöldin
hófst hafa þessar tölnr aldrei ver-
ið jafn lágar og nú.
Forvaxtalækkun.
New York 23. des.
United Press. PB.
Móttekið 24. des. PB.
Federal Reserve bankinn hefir
lækkað forvöxtu Tir 2%% í 2%.
Franska stjórnin.
París 23. des.
United Press. PB.
Hvert sæti hefir nú verið skip-
að í ráðuneyti Steegs. Maurice
Iormann hefir verið skipaður eft-
irlaunaráðherra. (Hann tók þátt
í styrjöldinni og særðist. svo, að
taka varð af honum báða fætur).
Útvarpið.
Sunnudaginn 28. desember 1930.
Kl. 17: Barnamessa í Dómkirkj-
unni (síra Friðrik Hallgrímsson).
Kl. 19.25: Hljómleikar (grammó-
fónn). Kl. 19.30: Veðurfregnir. Kl.
19.40: Lesinn kafli úr óprentaðri
sögu (H. K. Laxness). Kl. 20:
Barnasögur (Nikólína Árnadóttir).
Kl. 20.10: Einsöngur með fiðlu og
píanóspili (Sig. Birkis): Hándel:
Largo. Brag'a: Englasöngur. Masse
net: Elegie (saknaðarljóð). Gior-
dano: Caro mio ben (Svo undur
kær). Kl. 20.30: Hljómleikar
(grammófónn). Kl. 20.40: Erindi:
Isleifur biskup (Ásm. Guðmunds-
son). Kl. 21: Prjettir. Kl. 21.10:
Organleikur í Fríkirkjunni (Páll
ísólfsson): Bach: Toccata í D-
moll. Mendelsohn: Adagio. Bon-
net: Variations de Consert op. 1.
Mánudaginn 29. desember 1930.
Kl. 19.25: Hljómleikar (grammó-
fónn). Kl. 19.30: Veðurfregnir. Kl.
19.40: Einsöngur (Guðrún Ágústs-
dóttir). Kl. 20: Barnasögur (Þorst.
G. Sigurðsson). Kl. 20.10: Hljóm-
leikar (Þór. Guðmundsson fiðla og
Emil Thoroddsen slagharpa): Tar-
tini: Sonata G-moll. Martini Krei-
sler: Andante. Hándel: Largetto
úr Sonata D-diir. Kl. 20.30: Hljóm-
leikar (grammófónn). Kl. 20.40:
Erindi: Þjóðabandalagið (Einar
Arnórsson prófessor). Kl. 21:
Frjet.tir. Kl. 21.10: Hljómleikar á
píanó (Emil Thoroddsen): Ad.
Henselt: Petit Walzer. M. Mosz-
kowski: Guitarre. M. Moszkowski:
Etincelles. Lionell Hymes: Noc-
turne. Lionell Hymes: Serenade.
Christian Sinding: Pruhlingsraus-
chen. Mac Powell: Hexentanz.
Dagbák.
□ Edda 5931166 — Ht..-. & vst.:.
Pyrirl. •. (RM. •.) Atkvgr. •. Listi í
□ og hjá sm. •. til 593114.
Veðrið (í gær kl. 5): Milli ís-
lands og Skotlands er djúp lægð
(undir 720 mm.), sem hreyfist nú
fremur hægt í NA, og veldur A-
átt um alt ísland. Á S- og SV-
landi er áttin fremur hæg, en á
N og NV-landi er veðurhæðin víða
7—8, og úti fyrir á V-fjörðum
mun vera 'NA-stormur. Um alt
land er 2—4 stiga hiti og rignir
allmikið á N- og AJandi, og norð-
an til á V-fjörðum, en á SV- og
V-landi er úrkomulítið. Á morgun
verður áttin NA-læg um alt land
og kólnar nokkuð um leið. A V-
fjörðum og N-landi má því búast
við slyddu eða snjókomu, en á
S- og V-landi verður úrkomulítið
en frostlaust.
Yfir NA-Grænlandi er loftþrýst-
ing fremur há. Þar er alt að 27
stiga frost á ströndinni.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
NA-stinningskaldi. Urkomulítið en
frost.laust.
Skemtiklúbburinn Astoria held-
ur dansleik í K. R. húsinu á gaml-
árskvöld. Eins og aUglýst er í
blaðinu í dag, verða aðgöngumiðar
seldir í K. R. húsinu í dag kl.
í—5. Sími er 2130. Nánari upp-
lýsingar gefur Sveinbjörn Árna-
son í versl. Har. Árnasonar.
Póstþjófnaðurinn. Þess var ný-
lega getið hjer í blaðinu, að fram-
inn hefði verið póstþjófnaður á
„Dr. Alexandrine", en ekkert upp-
lýstist hjer um það, hver valdur
væri að þjófnaðinum. Símaði því
lólatriesskemtun
fjelagsins fyrir börn fjelagsmanna
verður haldin sunnudaginn 4. jan.
kl. 5 síðd. í K. R. húsinu.
Aðgöngumiðar eru seldir frá því
á morgom og til 31. þ. m. hjá
Erlendi Pjeturssyni á skrifstofu
C. Zimsen. (Sameinaða).
Stjórnin. *
Flog-
eldar
Púðurkerlingar
Púðurstrákar
Flugeldar
Púðurskessur
o. m. fl. fæst í
Verslnninni
Ooðaf oss,
Laugaveg 5.
Sími 436.
I. O. G. T. St. Dröfn, nr. 55.
Fundur og jólaguðsþjónusta í
kvöld kl. 4T/2- Síra Kristinn Dan-
íelsson prjedikar. Hafið sálma-
bækur. — Æ.t.
póststjórnin til Kaupmannahafnar
og óskaði þess, að málið yrði rann-
sakað þar. Hefir nú póststjórn-
inni borist skeyti frá Höfn, þar
sem segir, að upp hafi komist hver
sje valdur að þjófnaðinum. Nánari
fregnir ókomnar.
Dansskóli Rigmor Hanson. Jóla-
dansskemtun heldur skólinn fyrir
barna og unglinganemendur og
gesti á morgun, mánudag, í Varð-
arhúsinu þþ 5, Poreldrar barnanna
frá ! vetur eru boðnir endurgjalds-
laust. KI, 10 fyyir fullorðna frá í
vetur og undanfarna vetur, ekki
gestir.
Barnaguðsþjónusta síra Friðriks
Halgrímssonar (jólaguðsþjónusta)
er í dag kl. 5, en ekki kl. 2, eins
og venjulega. Þetta eru bömin
beðin að athuga.
Á Vífilsstöðum hefir ríkisstjóm-
in látið setja upp viðtæki og
lögn með heyrnartækjum að
hverju sjúkrarúmi. Lagningar all-
ar annaðist Júlíus Björnsson. Eru
sjúklingar mjög þakklátir yfir
þessari ágætu og dýrmætu jóla-
gjöf.
Hjónaefni. Aðfangadag jóla op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú
Guðríður Bjarnadóttir, Skóla-
vörðustíg 16 og Júlíus Bjarnason
prentari, Fjölnisveg 15.
Á aðfangadag jóla opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Friðmey
Guðmundsdóttir og Magnús Gunn-
laugsson. Bæði til heimilis á Akra-
nesi.