Morgunblaðið - 13.03.1931, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.03.1931, Blaðsíða 3
t'rtní' t't \t P t- V ** - tr. HtuimHiiiniiiiiiiiHiiiiiiiitiiiiiiiminttinmuittiitiiifir^ Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík || Ritstjórar: J6n Kjartansson. Valtýr Stefánsson. Ritstjórn og afgreiSsla: Austurstræti 8. — Slmi 600. = Auglýsingastjörl: E. Hafberg. = AuglÝsingaskrifstofa: S Austurstræti 17. — Slmi 700. = Heimasímar: J6n Kjartansson nr. 742. Valtýr Stefánsson nr. 1220. S E. Hafberg nr. 770. Áskriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánuSi. = Utanlands kr. 5.50 á mánuSi. = í lausasölu 10 aura eintakiB. 20 aura meC Lesbðk = íólksþing Dana samþykkir afvopnunarfrumvarpið. Ehöfn, 12. mars. United Press. PB. Pólksþingið hefir með 77 :64 at- kvæðum samþykt við 3. umr. af- vopmmarfrumvarpið, en sam- kvæmt því verður til stórmikilla ffiuna dregið úr landvörnum Dana. 1 stað hers og flota, kemur landa- aæralið og smáfloti til strand- vama og landhelgisgætslu. Prum- varpið fer nú til landsþingsins, en talið er mjög vTafasamt, að það fái ■®fgreiðslu úr nefnd þar, áður en þingi lýkur í marslok. Ástandið á Spáni. Madrid, 12. mars. United Press. FB. Sá orðrómur hefir leikið á að Úndanförnu, að ráðgert sje að ráð- «st á Jacavígi og hleypa út pólit- ffi>kum föngum, sem þar eru, en Jafnframt verði gerð tilravm til ;stjórnbyltingar. — Aznar aðmíráll kefir í viðtali við United Press Ifetið þess, að fullkomin kyrð væri J landinu. Orðrómur þessi og aðrir líkir væri sífelt að gjósa upp og Væri mjög skaðlegir, ekki síst með tilliti til gengisins, því á meðan «líkar fregnir væri á ferð og væri teknar trúanlegar væri meiri erfið- teikum bundið að vinna að geng- ^shækkun pesetans upp í hið góða Síengi, sem hann eitt sinn var í. Aukakosniivg í Englandi. London, 12. mars. United Press. PB. Auka-þkigkosninguna í Salis- ^arykjördæmi vann D. Robertson ^ajór (íhaldsm.), 15.800 atkv., Masterman (frjálsl.) hlaut ^058 atkvæði, Hancock (jafn.) ^•939 atkv. Flotamálin. London, 12. mars. United Press. PB. ^andaríkjamenn, sem kunnir ,ÍXl gangi flotamálasamningatil- *áunanna hafa látið í ljós, að skip verði fimmveldanefnd til þess ^ ganga frá og undirskrifa nýj- flotamálasamning, sem innifeli ^nkomulagið milli ítala og ^akka. — Nefndin kemur líklega ^öian á fund í London í apríl. ^av?es verður sennilega fulltrúi andaríkjanna, en Natsndaira ^apans. Samgöngnbann setti sýslnmaður rjaftfellinga á við Skaftafells- ^ln þegar 23. f. m., eða í byrjnn ^flúensnnnar. Eru reikningar ríkissjóðs falsaðir? Stjórnin hefir stungið undir stól 6—7 miljónum króna af útgjöldum ríkissjóðs árið 1930. Tekjuhalli síðasta árs hefir numið um eða yfir 6lta miljón króna. Jón Þorláksson ber fram fyrirspurn á Alþingi, um „skekkjur“ í fjárlaga- ræðu Einars Árnasonar. Jón Þorláksson hefir borið fram á Alþingi fyrirspurn til fjár- málaráðherra, um skekkjur í bráðabirgðauppgerð á tekjum og gjöldum ríkissjóðs 1930. Fyrirspurnin er á þessa leið: Fyrirspurn Jóns Þorlákssonar. Hvernic/ stendur á því, að fjármálaráðherra hefir í bráðtíbirgðauppgerð þeirri á tekjum og gjöldum ríkissjóðs árið 1.930, sem hann lagði fram við 1. umr. fjárlaganna í Nd. 21. f. m.: 1. Talið gjöld til veganvála og símamála samtcds um 550 þús kr. lægri en þau vitanlega voru orðin? 2. Undanfelt með öllu að telja gjaldamegin kostnað- inn við nokkrar verklegar framkvæmdir ríkissjóðs á árinu 1930, er virðast hafa kostað um 4-^4 milj. kr. samtals, þar á meðal fjárhæðir til byggingar síldarbræðslustöðvar, landsspítala, landssímastöðv- ar, útvarpsstöðvar og skrifstofubyggingar á Arn- arhóli, svo og til kaupa á strandferðaskipinu „Suðin“ ? 3. Undanfelt einnig með öllu að telja til útgjalda það fje, sem varið var á árinu til kaupa á hlutabrjefum í Útvegsbanka íslands, þar á meðal sjerstaklega 1 i/o milj. kr., sem beinlínis var borgað út vegna þessara hlutabrjefa? og 4. Talið tekjuafgang 81933 kr., í stað þess, að greiðslu- halli hefir orðið sjáanlega um eða yfir 6 milj. kr., sem jafnaður hefir verið með lántökum ? Ekki er minsti vafi á því, að menn um gjörvalt Island fyllast undrunar og skelfingar, er þeir lesa fyrirspurn þá, sem birt er hjer að framan. Fyrirspurnin er ekkert leikfang. í henni felst þung ákæra á hendur æðstu valdsmönn- um þjóðarinnar. Þegar Einar Árnason fjármála- ráðherra gaf Alþingi yfirlit um tekjur og gjöld ríkissjóðs 1930, j skýrði hann frá því, að tekjur ríkissjóðs það ár, eftir því næst yrði komist hefðu orðið 17 milj. 247 þús. króna, en gjöldin 17 milj. 166 þús. króna. Tekjuafgang taldi ráðherrann rúmlega 81 þús. kr. Ráðherrann gat þess að reikningar væri eigi fyllilega upp gerðir enn þá, og myndi því niðurstöðutölur þessar breytast eitthvað. En samkvæmt venju undanfarinna ára átti ek-ki að þurfa að skakka miklu frá þessu yfirliti ráðherr- ans. Þessari ræðu fjármálaráðherr- ans var útvarpað til þjóðarinnar, og var sagt að forseti sameinaðs þings hefði staðið fyrir þeirri ráð- stöfun. Ekkert var við þessu að segja, því að það hefir hingað til verið ófrávíkjanleg regla, að fjár- lagaræða hefir verið lilutlaus og nákvæm skýrsla um fjárhagsaf- komu þjóðarinnar. í þetta skifti var brugðið frá þessari gömlu og góðu reglu. Ræða Einars Árnasonar var ádeiluræða til stjórnarandstæðinga. En hitt vár þó verra, að ræðan gaf sum- part villandi og sumpart alrangar Upplýsingar um fjárhagsafkom- una. Fóru því Sjálfstæðismenn fram á, að útvarpað yrði umræð- um þeim, er fram færu að lokinni ræðunni. En útvarpsstjórinn (hlut- lausi!) tók sjer Bessaleyfi og skrúfaði fyrir útvarpið óðara en fjármálaráðherrann hafði lokið sinni ræðu. Þjóðin mátti ekki fá að heyra gagnrýni andstæðing- anna. Fjárlagaræða Einars Árnasonar hefir verið birt í Tímanum. Við nákvæman lestur ræðunnar verða menn þess skjótt varir, að ýms- ar greiðslur, se.m vitað er um, að fram fóru á árinu 1930 eru alls ekki taldar meðal útgjalda ríkis- sjóðs það ár. Þessar fúlgur hefir stjórnin sýni lega hugsað sjer að fela þannig, að færa þær yfir á yfirstandandi ár. Með þessu hefir hún hugsað sjer að fá heildarútgjöld ársins 1930 lægri, en þau voru í raun og veru. Þessi aðferð er vitanlega óleyfi- leg með öllu, og er ekkert annað en fölsun á reikningum ríkissjóðs. Enda þótt glöggir menn yrðu þess varir, að slíkar „yfirfærslur“ ættu sjer stað í reikningsfærslu stjómarinnar, gat engan órað fyr- ir því, að fölsunin væri svo gífur- leg, sem raun er á orðin. Samkvæmt fyrirspum Jóns Þor- lákssonar er upplýst, að stjómin hefir vantalið gjöld ríkissjóðs um a. m. k. 6y2 miljón bróna á árinu 1930. Af gjöldum til vega og síma hefir stjómin dregið undan um 550 þÚ8. króna. Þá hefir stjómin undanfelt með öllu að telja gjalda megin kostnað við ýmsar fram- kvæmdir, er kostað hafa um 4bá milj. króna .Loks hefir stjórnin sleppt með öllu að telja til út- gjalda það fje, sem varið var á árinu til kaupa á hlutabrjefum í Utvegsbanka íslands, og nemur sú fúlga samtals 4y2 milj. króna, þ. a. m. I14 niilj. kr., sem beinlínis var greitt úr ríkissjóði vegna þess- ara hlutabrjefakaupa. Þessar upp- hæðir, og vafalaust margar fleiri, eru gersamlega þurkaðar út af gjaldareikningi ríkissjóðs 1930! Sú spurning hlýtur að vakna: Vissi stjórnin ekki betur um fjár- liagsafkomu ríkissjóðs, er hún gaf Alþingi og alþjóð skýrslu um fjár- haginn ? Ellegar gaf hún vitandi vits og með ráðnum hug ranga skýrslu I Óhugsandi er, að stjórnin sje svo aum, að hún hafi ekki vitað hvað hún var að gera. En hvers vegna fer hún þá þannig að? Skýringin hlýtur að liggja í því, að kosningar standa fyrir dyrum á sumri komanda. Fyrir þann tíma gat landsreikningurinn 1930 ekki orðið fullgerður ,og því útilokað, að endurskoðendur gætu verið bún ir að leiðrjetta fölsunina. Skýrsla fjármálaráðherrans nú í byrjun þings, var því það eina, er þjóðin hafði við að styðjast um fjármála- stjórn ríkisins 1930. Og til þess að láta rekstursreikninginn líta betur út í augum kjósendanna, var það ráð tekið, að fela miljónir króna af útgjöldum ríkissjóðs. Fjármálaráðherrann er látinn koma fram á Alþingi með ræðu, sem liann þó vafalaust hefir ekki sjálfur samið nema að litlu leyti; hann er látinn skýra alþjóð frá því, að tekjuafgangur ársins 1930 hafi numið 81.933 krónum. Ekki vantar nákvæmnina: 33 krónur! En samkvæmt því, sem nú upp- lýsist. af fyrirspum Jóns Þorláks- sonar, hefir ekki orðið tekjuaf- gangur á árinu. 1930, heldur 6—7 milj. króna tekjnhalli. Þetta mátti þjóðin ekki fá að vita, svona rjett fyrir kosningar. Hún mátti ekki fá að vita það, að stjómin hafði eytt og sóað 23—24 miljónum króna síðastliðið ár, en fjárlög heimiluðu aðeins að eytt yrði 11.9 milj. króna. Stjómin hafði meira en tvöfaldað útgjöld þau, er fjárlög heimiluðu. Þjóðin mátti ekki fá vitneskju um það, að þrátt fyrir að tekjur ríkissjóðs urðu síðastl. ár meiri en nokkuru sinni áður í sögu landsins, tókst Tímasósíalistum með taumlausri eyðslu og fjárbruðli, að stýra þannig þjóðarbúinu, að útkoman verður 6—7 miljóna króna tekju- halli. Þetta átti að fela. Og þess vegna var þjóðinni gefin fölsk skýrsla um fjárhagsafkomu ríkissjóðs. Búreikningaform hefir Guðm. Jónsson kennari á Hvanneyri sam- ið. Var það lagt fyrir Búnaðar- þingið. Lagði þingið til, að tillög- ur Ouðmundar í þessu efni yrði athugaðar, áður en fjelagið tæki ákvörðun um hvort gefa ætti reikn ingsform þetta út. Er mikil nauð- syn á því, að bændur taki upp almennari reikningsfærslu á bú- rekstri sínum, en þeir hafa haft fram til þessa. Molar. Ósjerplægin. „Hvenær verður þjóðin ST« sjálfstæð að kippa umboði sínu af þeim mönnum, Jím' ekki koma fram fyrir lienh- ar hönd, nema í eigin hags- muna skyni“. Alþýðubl. 27. febr. 1931. Alþýðublaðið studdi Jón Bald- vinsson til þingmensku. Hann náði sjer í bankastjórastöðu með J50 þús. kr. árslaunum. Alþýðublaðið studdi Hjeðin til þingmensku. Hann varð aðalfrain- kvæmdamaður landsverslunarinn- ar með sæmilegum launum eg síðan Alþýðublaðið studdi Sigurjón Á. Ólafsson til þingmensku. Hattn krækti sjer í hálaunað milliþinga- starf og síðan afgreiðslustjóraém- bættið við ríkisútgerðina. Alþýðublaðið studdi Harald Guð mundsson til þingmensku. Hann hefir setið á launum úr ríkissjóði milli allra þinga og krækti sjer að lokum í bankastjórastöðu < á Seyðisfirði. Alþýðublaðið studdi Erling Frið jónsson til þingmensku. Hann er talinn ógreindasti maður, sem set- ið hefir á þingi síðan um aldamót. Þessi maður krækti sjer í hálaun- aða stjómarforsetastöðu miljóna- fyrirtækis ríkisins, síldareinkasöl- unnar. En hann er ekki ánægður. Hann vill verða bankastjóri eins og hinir. Er nú talað um að víkja bankastjóra Utvegsbankans á Ak- ureyri frá, svo hæfileikar Erlings fái notið sín. Ólafur helgi. Ólafur helgi var kallaður sann- heilagur. Óíafur Friðriksson er að minsta kosti skinheilagur. Ólafur skinhelgi hefir hneyksl- ast manna mest á þeim, sem lila á sveita annará. Sjálfur hefir hann áram saman lifað í tvöföldum skiln ingi á annara sveita. Hann hefir ár eftir ár gengið iðjulaus og lifað við allsnægtir. Einhver annar \n hann hefir sveitast fyrir þv5, sem hann hefir eytt. En andlega hefir hann nærst á því að telja alþýðu manna trú um, að hún svitni ekki fyrir sjálfa sig, heldur fyrir aðra, og að það sje böl að svitna. Ólafur skinheldi hefir næstmest allra manna á fslandi, ærumeitt þá, sem reka verslun. Sjálfur rakar hann saman fje á því ajS selja einskis nýtan, forgyltan, ráit- dýran vaming. En þó er þarna samræmi að vissu marki, þvi mikB líking er milli varaingsins og seQ- andans, t. d. grammófónanna. Á þá getur hver spilað, hvaða lag sem er, hafi hann aðeins plðtB og nál. Á Ólaf spila: kommúnistaT í gær; kratar í dag, Jónas & morgun. Sitt pólitískt lagið hveflft daginn. En hann spilar ekki nenaa með gullnál. Ólafur skinhelgi talar manna mest um illa fengið fje. Sjálfur lifir hann á verst fengnu fje allrh íslendinga, að því leyti sem hann lifir á erlendu mvitufje. óláfur skinhelgi nýtur meffla umburðarlyndis en nokkur annar maður á íslandi. Ástæður eru þess- ar: 1. að margir álitu að hann væri eldheitur hugsjónamaður, er

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.