Morgunblaðið - 17.03.1931, Síða 5

Morgunblaðið - 17.03.1931, Síða 5
Þriðjudaginn 17. mars 1931. Barnahælið Sólhdmar I Grímsnesi. Austur í Grímsnesi, skamt þaðan er Brúará kemur í Hvítá,.er bær sem beitir Hverakot. Dregur hann nafn að liver miklum, sem þar er í túninu. Br vatnið í honum alveg tært og laust við kísil, og alt að 90 stiga heitt. Þessa jörð keypti Prestafjelagið fyrir tveimur árum og hefir af- hent hana ungfrú Sesselju Sig- mundsdóttur Sveinssonar, sem nú er dyravörður gamla barnaskólans hjer í Reykjavík, til þess að hún hafi þar barnahæli, rekið eftir bestu fyrirmyndum erlendis. í sumar hefir verið bygt þarna stórt timburhús, rjett hjá hvernum og er hverinn látinn hita það alt Barhahælið Sólheimar (myndin er tekin í vetur rjett eft- ir að húsið var komið undir þak. Berið saman stærðarhlutföllin á liúsinu og manninum, sem stendui' f'uiman undir því, eða stúlkunni í glugganum, sem opinn er). og leggja til heitt vatn í mat og til þvotta. Húsið er 8X19 metra tvílyft með kvisti og háalofti. en hár kjallari undir því öllu. Ekki er, það fullgert enn og eru þar fjórir smiðir að vinna. Mun hælið verða tilbúið að taka á móti börn- um.í vor, og verður þar þá rúm fyrir 30 börn. Á það að starfa all- an ársins hring, vetur jafnt og sumar, og taka að sjer börn, sem fólk lijer í Reykjavík er í vand- ræðum með. Hefir bæjarstjórn Reykjavíkur því stutt með fjárframlögum byggingu hælis þessa, sem á að heita „Sólheimar“, og hefir svo þess vegna forgangs- rjett að því að koma þar fyrir börnum, sem þurfa að komast burtu úr bæjarsollinum. Nú eru þar fimm börn úr Reykjavík, þrjú systkin, sitt á hverju árinu, og tvíburar, sem 17 ára stúlka eign- aðist. Bru börnin öll fjai^kalega frjálsleg og siðprúð, þótt ung sje og aldrei hefir þeim orðið misdæg- urt síðan þau komu þangað austur í sumar sem leið. Voru þau látin sofa í tjaldi þangað til hægt var að flytja í húsið, en það var ekki fyr en í nóvembyrjun. Gamli bær- inn, sem áður hafði verið búið í, Var svo hrörlegur, og loft þar svo slæmt, að ekki þótti viðlit að hafa börn þar. Þegar barnahælið er fullgert verður í kjallara þess „straustofa' ‘, baðherbergi, þvottahús, smíðastofa vefstóll, mjólkurbúr með skilvindu og strokk og geymsluherbergi. Á neðra lofti er eldhús og stór borð- stofa, sem jafnframt á að nota fyrir skólastofu, svefnherbergi yngstu barnanna og sjúkrastofa, en á milli þeirra er svefnherbergi forstöðukonunnar, og eru minstu börnin og þau, sem sjúk kunna að verða þess vegna undir verndar- væng hennar nótt og dag. Þar er Jjlfforgttttfel og dagstofa, svefnherbergi og fata geymsla. A efra lofti eru sveínstofur stálpaðra barna og starísíólks o. fi. Bru svefnstofur barnanna mjög skemtilegar, sjerstaklega herbergi sem búið er út eins og baðstofa með 6 rúmum. Undir rúmbotnun- um eru skúffur, þar sem börnin eiga að geyma sokkaplögg sín og öiium eru ætlaðir sjerstakir skáp- ar til fatageymslu. Er þetta eiti. með öðru til þess gert að venja börnin sjálf á reglusemi og vera hirtin um eigur sínar og fara vei með þær. Það er talsverður búskapur þarna: um hundrað fjár, tvær kýr og 3 hestar. Túnið gefur af sjer um 150 kapla í meðalári og auk þess má á útengjum heyja 300 th 350 kapla og landrými er talsvert mikið. En er fram í sækir verður sennilega hætt við sauðfjárrækt- ina, en kúm fjölgað, enda er það nauðsynlegt þegar mörg börn eru þangað komin. Það er mikill framkvæmdahug- ur í ungfrú Sesselja og er vonand. að hún sjái óskir sínar rætast um það að korna þarna upp fyrirmyno ar búskap og fyrirmyndar barna- hæli. Hún hefir dvalið lengi suðui í Þýskalandi og Sviss og kynst þai liinni miklu grænmetisrækt. Ætl- ar hún því að leggja kapp á fram- leiðslu garðávaxta og grænmetis, gera stóra kartöflugarða og græn- metisreiti. 1 sambandi við hverinn ætlar hún að liafa vermihús, og bráðum ætlar hún að fara að sá i baltkana, þar sem lækurinn rennui frá hvernum, enda þótt klakabrún sje á næstu grösum. En bakkarnii sjálfir eru altaf þýðir og volgir ai jarðhitanum. Svo ætlar hún í sum- ar að brjóta stórt land til túnræki ar með þúfnabana eða dráttarvjel, og er áburði öllum vandlega tii haga haldið, bæði handa nýrækt- inni og gamla túninu. Það er um að gera að framleiða sem mest þarna handa barnahælinu, sjerstak lega af þeim fæðutegundum, sem börnum eru hollastar, svo sem grænmeti og mjólk. En jafnframt á að hugsa um að fegra og prýða. Fyrir sunnan barnahælið á að koma stór blóma og trjágarður. Hefir Sesselja kynt sjer vel blóma og trjárækt, og hún hefir t. d. flutt hingað til Reykjavíknr kirsi- berjatrje frá Þýskalandi og gróður sett hjer, og hefir það borið þrosk aða ávexti. Nú ætlar hún að gera tilraunir þarna með alls konar trjárækt. í fallegri hárri brekku, sem snýr móti suðri og er skamt vest- an við hiisið, hefir verið gerð all stór girðing úr vírni'ti. Þarna var sáð blómum ög trjáplöntum í sum- ar, og auk þess sprettur þarna mikið af íslenskum blómum. Þarna er leikvölur barnanna, og getur varla skemtilegri stað fyrir þau. Þar undu þau sjer tímunum sam- an í sumar, þegar gott var veður. Þar nutu þau sólskins og skjóls fyrir vindum, innan um blómskrúð og frjóvkvisti í dökkgrænni gras- brekkunni. Þar eiga þau að iæra að elska náttúruna og njóta henn- ar. Og yfirleitt mun Sesselja leggja alt kapp á að glæða feg- urðartilfinningu þeirra á þann hátt, að láta þau verða börn nátt- úrunnar. Þar á að verða skóli þeirra á sumrin, en á vetrum fá þaú bóklega þekkingu í skóla hæl isins. Yfirleitt á líf barnanne þarna að vera skóli, sem gerir þa' íð góðum mönnum, sem von ei um að verði nýtir borgarar í þjóð- fjelaginu, þegar þau vaxa upp. Frjettaritari Morgunblaðsins brá sjer á sunnudaginn ásamt fleirum austur að Hverakoti til þess að skoða barnaheimilið. Er þetta löng leiðjdíklega alt að 90 km., en versl ?r að vegur er ekki þangað allc eið. Má heita svo, áð frá Minni 3org sje vegleysa ein yfir vondai mýrar, en nú gerði það ekkert til. því að svell var yfir allar mýrarn- ar og ók bíllinn á ísum alla leið frá Brjámstöðum að Hverakoti og er það alllöng leið, og illfær á sumrum vegna þess þarna liggu alls staðar í keldum og uppætum. Er því mauðsynlegt að vegur fáist innan skams að Barnaliælinu, og mun þegar vera ákveðið að leggja iýslu- og hreppaveg um austanvert Grímsnesið og næði hann þá þang- að, en óákveðið mun með öllu hvar hann á að liggja og nokkur reip dráttur milli bænda um það. Ungfrú Sesseljá hefir framúr- skarandi áhuga fyrir þessu fyrir- tæki sínu, sem hún mun telja að sje lífsköllun sín, og hefir búið sig undir í mörg ár með ærnum kostn- aði. Fyrir henni vakir ekki það að betta verði gróðafyrirtæki, lieldur að það verði þjóðþrifafyrirtæki og landinu til blessunar, svo langt sem það getur náð. Hún er bjart- sýn og djarfhuga, og munu sumir máske segja, að fjárhagsl. hafi hún reist sjer hurðarás um öxl, því að stofnun hælisins hefir reynst dýr Húsið kostar aldrei minna en 30 til 40 þús. króna og svo bætist þar við allur rekstrarkostnaður. En Sesselja treystir því að sinn mál- staður sje góður og að góður mál- staður og viljí sje altaf sigursæll Hún treystir því, að sjer muni leggjast einhver hjálp meðan á frumbýlisárunum stendur t. d. að bingið veiti sjer einhvern styrk á næstu fjárlögum. Helena prinsessa ætlar að gifta sig. Helena prinsessa, hin fráskilda kona Carols Rúmenakonungs, hef- ir nú fyrir fult og alt afsagt að g'iftast honum aftur og gerast drottning í Rúmeníu. Er hún al- farin frá Búkarest. Samkvæmt sím fregnum þaðan að sunnan hefir hún gilda ástæðu til þess að afsala sjer drottningartigninni, því að hún hefir fest ást á rúmenskum herforingja, Skeletti að nafni, og ætlar að giftast honum bráðlega. Ný stjórn í Eistlandi. í Eistlandi fóru fram stjórnar- skifti í fyrra mánuði. Sá heitir Konstantin Páts, sem er forsætis- ráðherra, en utanríkisráðherrann heitir Jaan Tönisson. Þetta er sam- steypustjórn og hefir hún 61 atkv. af 100, sem í þinginu eru. í and- stöðu við hana er bændaflokkur, og verkamannaflokkur (ekki jafn- aðarmenn). Samkvæmt st.jórnar- skrá Eistlands er forsætisráðherr- ann jafnframt fo'rseti. Hestahafrar. Maísmjöl. Heill maís. ’Hænsnafóður blandað. Haframjöl, það ódýrasta í bænum, o. fl. o. fl., að ógleymd um dönsku kartöflunum, sem aldrei kemur nóg af. — t nawaCTianftr • ittía———iœserji n ~ r • Báter tilsalgs. Aabne Motorbáter foj Linefiske 20’ til 26’ lengde med 3 til 3 lik Maskin. Samt stort lager af Sjægter. Fiskekuttere bygges efter bestilling. Serdeles rimelige priser. Driftig Agent ansettes. Bátbyggeriet Svásand, Strandebarm, Hardanger. L U D 0. Taflmenn. — Taflborð. — Spil. — Spilapeningar o. fl. Bókaverslnn Isafoldfar. Timbupwei*siun P.W.Jacobsea & SSa. Stofnuð 1824 Simnefnli Granfuru — Cari- Lunesgadc, Kfi enhawn C. Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaupmhöfn. Eik til skipasmíða. — Einnig heila skipsfarma frá Svíþjóð. y • • :: • • I! • • • • :: • • • • • • • • • • Hefi verslað við ísland í 80 ár. ;; • • • • •••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• •••••••••••••••••••••••••••••••••••••••«•••••••••••• Stndebaker. iLaugferðaMll „RntnMll". Hvers vegna selst meira af Studebaker vörubílum en öðrum tegund- um ? Það er af því að Studebaker skarar nú langt fram úr öðrum bifreiðaframleiðendum, enda bílarnir mikið aflmeiri og sterkari en aðrir sambærilegir. IV2 tonn burðarmagn brúttó 2350 kg. 2 tonna burðarmagn brúttó 3102 kg. fást í þessum lengdum milli hjóla: 130, 136, 148 og 160 þumlungar fást einnig með 4 afturhjólum. Komið og sjáið sjálfir, berið saman við aðra bíla, og þá munið þjer kaupa Studebaker. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Aðalumboðsmaður Studebaker Eglll Vilhiálmsson. Grettisgötu 16—18. Símí 1717. Frosln beltnsild til sölu, frítt um borð á Siglufirði Leitið tilboða hjá Tðmasi Bjtfrnssyni Sími 155. Akureyri. Símnefni: Tjebje. Allir mnna A. S. I.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.