Morgunblaðið - 17.03.1931, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.03.1931, Blaðsíða 6
MÖRGUNBLAÐIÐ Skóhlífar eru bestar. Hvannliergslsræðar. br anð, Það er þjóðarhagnaður að nota Ilreins vörur. Kaupið Hreins Sáp ur, Þvottaefni, Skóáburð, Gólfá burð, Vagnáburð, Pægilög, Kerti og Baðlyf. Stitesmai •r stðra orfilft kr. 1.25 á borfiið. H9komið: Karliíiannsúr á 6.00 Vekjaraklukkur á 5.60 Ávaxtasett 6 manna á 5.00 Skálasett 6 stk. á 5.00 Borðhnífar ryðfríir á 0.75 Bamaboltar frá 0.35 Munnhörpur Mýndarammar. Búsáhöld o. fl. I Eiin i Etfn Bankastræti 11. Hálshfiiðnnarbeiðni á hendnr dómsmálaráöherra. Páll HaHdórsson skólastjcai fer þess á Jeit við efri deild Alþing- is, að hún veiti sjer leyfi til þess að stefna Jónasi Jónssyni dóms- málaráðherra. Páll Halldórsson skólastjóri stýrimannaskólans hefir sltrifað efri deild Alþingis svohljóðandi brjef: „í frv. til laga, sem lagt hefir verið fram í efri deild Alþingis um fimtardóm, er m. a. komist þannig að orði í greinargerð um frumvarpið: „Pram að þessu mun hæstirjett- ur hafa í slíkum málum leitað til skólastjóra stýrimannaskólans, Páls Halldórssonar. Á leiðbeining- um hans hefir rjetturinn orðið að byggja niðurstöður í mörgum tog- aramálum. Bn nú er fokið í þetta skjól líka, því að hr. Páll. Hall- dórsson hefir tekið að sjer síðast- liðið ár að verja mál íslensks togara, sem dæmdur hefir verið í undirrjetti fyrir einsýnt landhelg- isbrot'1. Framangreind ummæli munu lúta að hinu svonefnda Belgaums- máli. Afskifti mín af því máli eru þau, að verjandi máls þessa í hæstarjetti bað mig að afmarka á sjókort og landkort staðarpunkta varðskipsins Ægis samkv. frum- skýrslu skipherrans á því skipi, út af kæru á hendur Aðalsteini Pálssyni skipstjóra á togaranum Belgaum, fyrir meint landhelgis- brot 17. mars f. á. Verjandinn baðst þess og, að jeg ljeti skriflega í ljós álit mitt um kæru þessa svo og um það, hvort Belgaum mundi hafa verið í land- helgi samkvæmt nefndri kæru. Eftir tilgreindum hornmæling- um skipherrans markaði jeg bæði á sjókort og landkort staðar- punkta varðskipsins, en komst í verulegum atriðum að alt annari ■niðurstöðu en skipherrann. Áleit jeg að mælingar þessar væru svo varhugaverðar, að ekki mundi unt samkvæmt þeim að sakfella Bel- gaum. Þetta álit mitt styrkti og sjerstaklega önnur atriði, sem jeg álít óþarft að greina í þessu brjefi. Geta vil jeg þess, að mjög færir siglingafróðir menn hafa athugað afmarkanir mínar á kortunum, og komist að sömu niðurstöðu.. Af þessu verður ljóst, að í grein argerð frumvarpsins er því drótt- að að mjer, að jeg hafi vísvitandi gefið ranga skýrslu fyrir rjetti og þar með gerst brotlegur við hegn- ingarlög. En þar sem jeg tel slíka aðdróttun freklega árás á mannorð mitt, leyfi jeg mjer að beiðastþess, að e. d. Alþingis veiti mjer leyfi til að stefna dómsmálaráðherra ís- lands, eða til vara flutningsmanni frumvarpsins, hr. alþm. Ingvari Pálmasyni til ábyrgðar fyrir um- mæli þau, sem að framan getur. Vænti jeg fastlega að háttvirt deild veiti mjer umbeðið leyfi. Virðingarfylst, Páll Halldórsson. Til efri deildar Alþingis". —-—---------------- 9lBiO Bill“ kosinn borgarstjciri í Chicago. Nýlegu fóru fram borgarstjóra- kosningar í Chicago og var Thompson, sem nefndur er Big Bill kosinn í fjórða sinn. Pjekk hann 45.000 atkvæði fram yfir keppinaut sinn Lyle dómara. Það var A1 Capone og hinir smyglarakónagarnir í Chicago sem komu Thomson að enn einu sinni. Hefir hann, jafnan verið þeim liinn þægasti, enda víst fengið sæmileg laun fyrir snúð sinn hjá smyglurunum. En borgarstjórnin hefir farið honum frámunalega illa úr hendi, og lá við sjálft að hann gerði borgina gjaldþrota. í kosningabaráttunni, sem var mjög hörð hafði Lyle dómari í hótunum um það, að hann skyldi koma á betri reglu og skxpulagi 1 borginni heldur en verið hefir, ef hann yrði kosinn, en það kæra Chicagobúar sig sýnilega ekkert um. ------— lljtt bannhneyksli \ í New York. Mörg eru nú orðin bannlaga- hneykslin í Ameríku, en sumir segja, að nú hafi komist upp um stærsta launsalafjelagið í New York, og telja þetta mesta hneyksl- ið, vegna þess að um 1000 lækn- ar og 500 lyfjabúðir lenda í mál- inu. Það er talið, að fjelag þetta hafi ’ grætt 20 miljónir dollara á launverslun með áfengi. Lögregl- an hefir látið greipar sópa um borgina og hefir náð í 30 helstu forsprakka fjelagsskaparins, þar á meðal Sweetster, sem' er önnur hönd smyglarakonungsins Kessl- ers, sem talinn er „einn af þeim fimm stóru“ í Bandaríkjunum. Til dæmis um það hverja verslun Kessler rekur með áfengi, er, að stjórnin hefir gert honum að greiða 7y2 miljón dollara í „tekju- skatt.“ í leit sinni um boigina fann lög- reglan t. d. í borgarhlutanum Bronx 1500 vínseðla útgefna af læknum,-en stærð skamtsins ekki skrifað á þá. Árið sem leið liafa læknar þar í borg gefið út 1.200,- 000 slíka vínseðla, og tóku einn dollar fyrir hvern. Stalin rekur Rjasanoff. Rjasanoff hjet einn af helstu mönnum bolsa. Hann var kenni- maður þeirra og forstjóri Marx- Eungels-stofnunarinnar í Moskva. Hann var elsti maður í flokknum, því að árið 1889 gekk hann í jafn- aðarmannaflokkinn rússneska, sem þá var við lýði, og fyrir tveimur árum var 40 ára afniæli hans sem flokksbróður haldið við „pomp og pragt“ í Moska. En nú hefir Stalin rekin hann úr flokknum og fyrirboðið honum að koma nærri Marx-Eungels-stofnuninni. - Ástæðan er sú, að talið er að hann hafi v.erið í einhverju makki við menzhivika, og þar með gerst flokkssvikari. Friöun dýra. Víðkunnur sænskur dýrawnur og vísindamaður, Bengt Berg að nafni, kemur fram með þá uppá- stungu að Þjóðverjar gefi frið- land þeim viltum dýrum í Evrópu, sem nú eru að verða aldauða. Vill hann að skaginn Darss í Pomm- ern, sem er gegnt eynni Riigen, verði afgirtur og f>ar gerður dýra- garður í líkingu við Yellowstone- Park í Ameríku. Þarna er skógur mikill, um 6800 hektarar og gæti dýrin verið þar frjáls og frið- helg. Aðallega leggur hann kapp á að þangað sje fluttir elgir frá Þýskalandi (sem hann segir að sje af miklu betra kyni heldur en elgir í Svíþjóð og Noregi), enn fr mur vísundar og fleiri skógar- dýr. Iíann hefir borið mál þetta upp fyrir þýskum yfirvöldum, og hafa þau tekið því vel, til dæmis fixll- trúi stjórnarinnar í Stralsund, prússneska stjórnin og forstjóri dýragarðsins í Berlín, Heck. Sprenging í jafnaðarmannaflokknum breska. Um seinustu mánaðamót sagði Sir Charles Trevelyan kenslumála- ráðheri-a Breta af sjer. Um leið skx-ifaði hann Mac Donald harð- ort brjef, og segir þar, að það komi æ betur og betur í ljós að stjórnin triú alls ekki á „social- ismann“ að hann geti orðið Sir Oswald Mosley. landinu ,til bjargar. Kveðst hann eigi lengur vilja vera samábyrg- ur gerðum stjórnarinnar, sem ekki sje annað en kák. í hans stað hefir Lees-Smith póstmálaráðherra verið skipaður kenslumálaráðherra, en Atlee gerður að póstmálaráðherra. Stjórnin hefir nú beðið hvern ósigurinn eftir annan í þinginu, og er það álit manna að hún missi aðeins álit við það, að hanga fast við völdin, þrátt fyrir það, í stað þess að sýna af sjer hug- rekki og láta nýjar kosningar fara fram. 7 Uin sama leyti og Trevelyan sagði af sjer, sagði Sir Oswald Mosley að ýmsir aðrir merkir menn sig úr jafna^ðarmannaflokkn- um. Sir Oswald var í fyrra ráðu- neyti Mac Donalds. Jafnframt stofnaði hann sjerstakan flokk og æt.lar sá flokkur að berjast með hnúum og hnefum á móti stjórninni. Hygst hann að hafa að minsta kosti 400 frambjóðend- ur við næstu kosningar. Hefir Sir Nýkomið mikið ai Blóma- og Jurtafræ. Valfl PoBÍseu. Sími 24. fiiænii egg, 18 anra. Á. i Allir sem gera vilja g'óð kaup, eiga erindi í ilaiGhester. Dilkakjöt. KLEIN, SÍmi 73. Slyriuhrogn (kaviar) í g'lerkrukkum, nýkomin. — Sjerstakle^a Ijúffeng. Mjðlkurfielag Reykjaalkur Kolasalan u. Sími 1514. Oswald skorað á þjóðina að styrkja flokkinn bæði með ý'jár- framlögum og við kosningar. Samgöngumál Rússa Stalin hefir beðið Charles Hill,, einn af kxmnustu járnbrautarfor- stjói’um í Ameríku og miljóna- mæi’ing, urn það að koma til Rússlands og hafa umsjón með framkvæmd þeirra samgöngubóta sem gert er ráð fyrir í fimm ára áætluninni. Var gert ráð fyrir að Hill legði af stað frá Ameríku í febrúarmánaðarlok. Honum verð- ur fengið fullkomið einveldi í öll- xxm samgöngumálum Rússlands meðan hann er þar. Kai p'ö bók dr. Ð C.t>. Mataræði og þjóöþrif

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.