Morgunblaðið - 18.03.1931, Blaðsíða 2
2
MORGITNBLAÐÍÍ)
c
fr H*
EðMSKIPAFJELAGfll
ÍSLANDS Y
REYKJAVÍK
Dettifoss11
n
fer hjeðan á föstudagskvöld
(20. mars) klukkan 8 til Hull
opf Hamborgar.
Farseðlar óskast sóttir fyr-
ir hádegi sama dag.
Hýkomið:
Sagomjöl
•i
Toppasyknr
olitwrfxxif^
I
Málverkasýning
Kristjáns Magnússonar
í Goodtemplarahúsinu.
Opin daglega frá kl 1—9.
k
i
2025 m.
mitar
á góðn standi, óskast keyptur. Til-
boð merkt „101“ afhendist A .S.
í. fyrir 20. þ. m.
Bæiarins bestu
larðarber
kg. &tB á 2,75
SNARA-SNiBRLIKI
Það er áreiðanlega eagin tilviljnn
,Smári“ bregst yður aldrei.
að einmitt nú biðja húsmæður um „SMÁRA“-smjörIíki. Það er löngu
öllum ljóst, að „Smári“ hefir alt af verið fremstur í sinni grein og’
ekkert verður sparað til þess að tryggja það einnig í framtíðinnl —
Nemendasýning ..igrnor Hanson
Nærfötin ágætu eru kom-
in aftur, allar stærðir.
Verðið lækkað.
Á sunnudaginn var hjelt ungfrú
Rigmor Hanson nemendasýningu í
Nýja Bíó. Var þar hvert sæti skip-
að og voru áhorfendur stórhrifnir.
Var hjer og uiti stærri danssýningu
að ræða en nokkurn tíma hefir
sjest hjer áður. Þarna voru sýndir
um 30 listdansar og samkvæmis-
dansar og tóku þátt í þeim um 120
nemendur ungfrúarinuar. — Auk
þessa sýndi hún einkadansa, scm
hún er hreinn og beinn snillingur
í. Bæði er það að hún hefir notið
góðra kenuara,. og hefir sjálf sjer-
staka hæfiíeika um að gera dans-
inn unaðsþrunginn og heillandí.
Þess vegna verður henni svo vel
ágengt um kenslu nemenda sinna,
og gerir þá að listamönnum áður
en nokkur veit af.
En svo að við snúum ökkur aft-
ur að sýningunni á sunnudaginn:
Hún Ása litla systir hennar
Rigmors dansaði þar yndislega.
Þá var sýnd- baraaleikfimi,
skemtileg og listræn. Og fyrir þá,
sem íþróttum unna, er það gleði-
legt að sjá hve stýlkveðnar, falleg-
ar og liprar hreyfingar. Og það
er gaman að sjá, bæði frá íþrótta
og listrænu sjónarmiði, hver tök
ungfrú Rigmor hefir á neméndum
sínum, körlum jafnt sem konum.
TTm það báru vitni fimdansar
(Plastik-Seria) hennar og 10
'stádkna. Það var eins og hinar
hugfögtu og héillátidi álfameyjar
þjóðsagnanna fyltu þá leiksviðið.
Ekki voru heidur síðri datisarnir,
sem 14 ungir menn sýndu. Þarna
sýndu enn fremur 60 börn nýja og
gamla samkvæmisdansa; voru þau
öll svo vel samæfð að aðdáun á-
horfénda vakti. Mirtnast má og á
nýtískudansinn „Les Jockeys",
sem 12 ungar stúlkur sýndu, alveg
prýðilega. Og ekki má gleyma
„Baby BalletÁ, sem 8 litlar stúlk--
ur dönsuðu á tánum, og var sú
yngsta aðeins 4 ára. Er það gull-
fallegt að sjá hreyfingar þessara
smábarna og hve vel þeim hefir
verið kent.
í stuttu máli: Sýningin fór
prýðilega fram og bar vott um
hve þjálfaður kennari ungfrú Han
son er. Og svo hefir hún margt til
að bera þar að auki, sem vert er
að taka fram: fegurð og yndis-
þokka, og „mimik“, samfara ljett-
um og unaðslegum hreyfingum,
og hæfileika til þess að kenna öðr-
um að ná þeim stýl, sem hún sjálf
hefir náð.
Þess skal að endingu getið að
nemendasýningin verður endurtek
in á sunnudaginn kemur í Nýja
Bíó, og hefst kl. 2. Efalaust verður
þar fult hús og er mönnum ráð-
lagt að ná sjer í aðgönguiniða tím-
'anlega. Á.
t
Andrjes ðlafsson
hreppstjóri
andaðist hjer í bæ 3. þ. m. Er
þar mætur maður í valinn hniginn.
Segir æfisaga hans frá kjarki,
áræði og karlmensku. Er að vonum
sár harmur kveðinn að ástvinum
hans, og sæti hans autt í fögru
sveitabýíi, og mjög nýtum manni
á bak að sjá í bygðarlagi hans, því
að það ber öllum saman um, að
hreppstjórinn á Neðra Hálsi í
Kjós'hafi verið sveit sinni betri en
enginn.
Æfi alla dvaldi Andrjes í Kjós-
inni. Þar fæddist hann 26. jtiní
1869, og ólst upp á fæðingarstað
sínum, Bæ í Kjós. Það var lán
þessa manns, að vera alinn upp
-á góðu sveitaheimili, og það er
æfisaga hans og starfssaga, að
! hann stjórnaði með dugnaði og
' sæmd rausnarheimili, og var þar
j-studdur í góðu verki af ágætri
; konu sinni, Ólöfu Gestsdóttur, en
| þau giftust 18. okt. 1902, eignuð-
i ust þau 14 börn, og af þeim eru
13 á lífi, 3 dætur eru giftar, en
heima í foreldrahúsnm eru 7 synir
og 3 dætur. Það skýrir sig sjálft,
að hjer dugði ekki að sofa eða
! sitja auðum liöndum. Hjer varð
að vaka og vinna. Starfsgleðin
átti þá einnig heima hjá ötulum
| dugnaðarmanni, sem vann með
höndum sínum, en leitaði einnig
fróðleiks og þekkingar, og veittist
þess vegna auðveldara að greiða
úr vandamálum sjálfum sjer og
, öðrum til heilla. Þar sem Andrjes
var, mátti líta heimilisrækinn
mann, sem bjó fyrirmyndarbúi,
] fyrst í Bæ og síðar á Neðra Hálsi.
En hann var einnig kirkjrn ækinn,
og ljet sjer ekki nægja að koma
þangað sem áheyrandi, en kom
þangað, til þess að starfa. Um
fjölda mörg ár var Andrjes í
sóknamefnd, og söngstjóri var
hann í Reynivalla og Saurbæjar-
kirkju um 40 ára skeið.
Andrjes heit. leitaði af heilum
; huga hins helga og háa, hins
sanna og rjetta. Er ekki eðlilegt,
að slíkra manna verði leitað, að
eftir þeim verði spurt? Það var
spurt eftir Andrjesi. Það var
spurt eftir honum í sveitinni, og
mörg voru trúnaðarstörfin, sem
honum voru falin. í hreppsnefnd
var hann í fjölda mörg ár, og
hreppstjóri síðustu 10 árin. Hann
starfaði af alhug að velferðarmál-
um sveitarinnar. Sjálfur treysti
hann sigri góðs málefnis. En slík-
um mönnum er einmitt óhætt að
treysta. Menn fundu, að óhætt var
að treysta Andrjesi, hann brást
ekki traustinu.
Þess vegna er minningin blessuð
um nýtan sæmdarmann.
Geymd verður minning göfngs
stórhónda í blessun hjá hömum
j búenda lands. Þegar hið rjetta og
■ sanna fær að festa rætur á heim-
iíunum, þá streymir blessun til
bygðarlagsins, og þannig fer hið
rjetta eldi um landið. Það þarf
að leggja áherslu á slíkt landnám.
Því má ekki gleyma, að „bóndi er
hústólpi og bú er landstólpi". Því
skal þá heldur ekki gleýmt, að
Andrjes hreppstjóri elskaði þjóð
sína, og skoðanir hans vom ekki
í þokn, en ákveðinn var hann í
sannfæring sinni og það var* hon-
nm hjartans mál að fylgja rjettu
máli, vildi hann af alhug vinna
að því, að dagsbirta væri yfir
| liinni íslensku þjóð.
| Þegar vjer minnumst Andrjesar
j lireppstjóra Ólafssonar, þá veri sú
| minning oss hvöt til þess að biðja.
um sanna, heita menn, er vilja
heill fósturjarðarinnar.
Sigri sannindi og samheldi;
ást guðs öllum hlifi.
Blessun veitist heimili og ást-;
vinum Andrjesar, og bjart sje yfir
sveit hans og sveitungum.
Þá væri vel, ef margir líktust
Andrjesi Ólafssyni. Þá yrði bjart-
ara yfir landi voru.
Veit þá engí, að eyjan hvíta á
sjer enn vor, ef fólkið þorir guðí
að treysta, hlekki hrista, hlýða
rjettu, góðs að bíða?
Sje minning Andrjesar hrepp-
stjóra blessuð.
Frá Siglaflrði.
Siglufirði, 17. mars.
Skíðaæfingar halda áfram undir
stjórn Torvö með góðum árangri.
Ákveðið er, að kappmót fari frans
dagana 27. til 28 mars og verður
kept um verðlaun, en að þess«
sinni verður ekki hægt að keppa
um skíðabikar Sigluf jarðar. Keppa
karlar í 3 flokkum, í loftstökki og-
10 km. göngu. Konur keppa í ein-
um flokki. Mótið er ákveðið me5
hliðsjón af skipaferðum að sunn-
an. Torvö skíðakennari er 24 ára
gamall og hefir staðið lengst loft-
stökk 63 m. Var hann annar á
Hol menkoHenmótinu.
Tíð óstilt og snjóasöm. Fann-
fergi mikið. Ekki gefið á sjó síð-
ustu daga, en allgott veður í
landi í gær og í dag.
Inflúensu er farið að verða vart
í bænum. Tilfellin væg og frem-
ur fá.
Breska stjórnin verður undhr
í atkvæðagreiðslu.
London 16. mars.
United Press. FB.
Ríkisstjómin beið ósigur í neðri
málstofunni í dag er feld var
breytingartillaga við kosningalög-
in, þess efnis, að Lnndúnaháskólr
sendi eigi framv. fulltrúa á þingi.
Úrslit atkvæðagreiðslnnnar voru
246:242. Ólíklegt er talið, að af-
leiðing ósigursins verði sá, a5
stjómin fari frá.
Atvinnuleysi Dana.
Khöfn 17 .mars.
Tala atvinnuleysingja í Dan-
mörku var í febrúarlok 75.613.
J