Morgunblaðið - 18.03.1931, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 18.03.1931, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 18. mars 1931. Verkin tala ii Alþingi 1926 afgreiddi lög um útsvör, og gerði þá breytingu á áfrýjunar-rjetti gjaldenda, að í stað þess að sýslunefndir og bæj- arstjórnir feldu fullnaðar-úrskurð um ltærur yfir útsvörum, ganga kærur nú alls ekki til sýslunefnda og bæjarstjórna, heldur til yfir- skattanefnda, en úrskurði þeirra má enn áfrýja til stjórnarráðsins, er þá fellir fullnaðarúrskurð um málið. Margir litu svo á, að í breytingu þessári fælist aukið öryggi fyrir gjaldendur. í bæjarstjórnum að minsta kosti, var þá orðin harð- snúin pólitík flokkaskifting. Þess- ar bæjarstjórnir kusu pólitískar niðurjöfnunarnefndir, og báru ó- beinlínis ábyrgð á gjörðum þeirra. En ákvörðun niðurjöfnunarnefnda varð ekki áfrýjað til annara en þeirra sömu bæjarstjórna, sem kosið höfðu niðurjöfnunaraefnd- irnar. 1 sveitafjelögum mun pólitísk niðurjöfnun síður hafa átt sjer stað, og minnist jeg ekki að hafa heyrt neinu slíku haidið fram um úrskurði sýslunefnda í útsvars- málum- ,. En Alþingi hefir sýnilega ekki athugað, er breyting þessi var gerð, að ríkisstjórnir eru líka póli- ískar, eða þá að minsta kosti geng- ið út frá því, að staðan legði bönd á hvatir þeirra. Var því víst vor- kunn. En nú liefir reynslan í þessu efni sannað það, að til er svo sterk ranglætishvöt að henni halda eng- in bönd, jafnvel ekki þau bönd, sem þó oft hefta gerspilta afbrota- menn, sem sje þau, er mönnum er sýnd mikil tiltrú. Ef þingmenn skyldu ekki hafa veitt þessu eftirtekt, þykir mjer rjett að birta tvö dæmi, er að mínu viti sýna, að áfrýjunarrjetti út- svarsgreiðenda verður að breyta frá því, sem nú er. Hjer, eins og annars staðar, þar sem kaupfjelög hafa risið upp, og eðlilega náð umdir sig talsverðu af þeirri verslun, sem iitsvör voru áður lögð á, hefir þó orðið að fara mjög vægilega í álagningu á kaup- fjelagið. Eigi að síður kærði kaup- fjelagið útsvar sitt, strax og nú- verandi stjórn kcrm til valda, og gekk svo tvö skifti. Var í annað skiftið krafist 1400 kr. lækkunar, en í liitt skiftið 1000 kr. lækkunar Hreppsnefnd áleit kærurnar á engum rjetti bygðar, og yfir- skattanefnd sá sjer ekki heldur fært að sinna þeim, svo neinu veru legu næmi. En Tryggvi Þórhalls- son lækkaði bæði útsvörin þegar, eins og um var beðþð. Þurfti kær- andi ekki annað en að nefna upp- hæðina, því úrskurðurinn var öll- um bersýnilega rangur, enda órök- studdur. Þessi úrskurður gat þó verið sprottinn af því, að Tr. Þórhalls- son h-efði ekki staðist þá freistingu að gera kaupfjelaginu greiða, þótt liann með því bakaði hreppnum ranglega 2400 kr. tjón og tekju- halla, tjón, sem auðvitað var hreppnum mjög tilfinnanlegt. En annað dæmi sýnir, að sú hvöt að gera öðrum ilt, er ekki óríkari hjá ráðherranum. Bera eftirfarandi úr- skurðir í útsvarskærumáli Tang & Riis verslunar á Sandi fullljós vitni um það. Til þess að fyrirbyggja allan misskilning skal það tekið fram, að báðir yfirskattanefndarmennirnir, sem úrskurðinn feldu, með sýslumanninum eru skipaðir af Tryggva Þórhallssyni, og því auðvitað framsóknarmenn ,svo að hlutdrægni Tang &Riis í vil af pólitískum ástæðum, kemur ekki til mála: Útskrift úr gerðabók jdirskatta- nefndar í Snæfellsness- og Hnappa- dalssýslu. Ár 1930, laugardaginn 20. sept- ember, var yfirskattanefndarfund- ur Snæfellsness og Hnappadalss. settur á skrifstofu sýslunnar í Stykkishólmi. A fundinum voru allir þrír aðal- menn í yfirskattanefndinni, Páll V. Bjarnason sýslumaður, Sigurð- ur Steinþórsson kaupfjelagsstjóri og Hallur sýslunefndarmaður Kristjánsson á Gríshóli. Verkefni fundarins er að úr- skurða kærur þær, er yfirskatta- tiefndinni hafa borist yfir útsvör- um álögðum í vor. Utsvarskærurnar með fylgiskjöl- um þeirra voru framlagðar. Var fyrst tekin til meðferðar kærn verslunar Tang & Riis á Sandi og úrskurðuð þannig af yfir skattanefndinni 1. Kæra verslunar Tang & Riis, Sandi: Árið 1929 var niðurjafnað í Nes hreppi utan Ennis útsvörum að upphæð samtals 14.650 kr. Það ár lagði hreppsnefnd tjeðs hrepps á kæranda, verslun Tang & Riis, Sandi 4200 kr, útsvar, sem fýrst var lækkað af lireppsnefnd um 200 kr. niður í 4000 kr. og svo af yfirskattanefnd sýslunnar með úr- skurði uppkveðnum 26. sept. f. á. niður í 3600 kr. Árið 1930 hefir verið niðurjafnað í hreppnum út- svörum á 166 gjaldendur samtals 15740 kr. og þar af á verslun Tang & Riis 5.200 kr., en er verslunin kærði íitsvarið, hækkaði hrepps- nefndin útsvarið frá sinni fyrri álagningu, án nánari rökstuðnings, að því er sjeð verður, upp í 6000 kr. Útsvaraliæð hreppsins í ár verður því alls 16540 krónur og útsvar kæranda rúm 36% af öllum útsvörum hreppsins í ár. Kærandi skýrir frá í kæruskjöl- unum, að hagur verslunarinnar hafi þrengst að miklum mun í ár, því að bæði hafi verslunin orðið fyrir miklu tapi á saltfiski frá því að innkaup fiskjarins fór fram á síðastliðinni vetrarvertíð, og einn ig hafi vöruvelta verslunarinnar með útlendar vörur verið miklu minni í ár en undanfarið; enn- fremur hafi útistandandi skuldir hækkað að mun. Yfirskattanefnd- ipni er kunnugt um að þeitta er rjett hermt hjá kæranda. Útsvörin á Sandi samkvæmt nið- urjöfnunarskrá 1930 hafa hækkað um ca. 10% frá niðurjöfnunar skrá 1929, en útsvar kæranda hefir hreppsnefndin hækkað úr 3600 kr, upp í 6000 kr. eða um 66%% þrátt fyrir það þótt verslunin hafi gengið allmikið saman og hagur hennar versnað frá í fyrra. Þessa miklu hækkun á útsvari kæranda verður yfirskattanefnd að telja órjettmæta, Með tilliti til hækkunar útsvara alment í Neshreppi utan Ennis í ár, um ca. 10% frá í fyrra, þykir útsvar kæranda, sem var í fyrra 3600 kr. hæfilega ákveðið í ár 4000 kr., og þykir útsvarið ekki mega hærra vera með tilliti til versnandi hags verslunarinnar. — Yfirskattanefndin úrskurðar því hjer með, að útsvar kæranda skuli lækka úr 6000 kr. niður í 4000 kr. Gerðabók lesin upp og samþykt. Fundi slitið. P. V. Bjarnason. Sigurður Steinþórsson. Hallur Kristjánsson. Til Tang & Riis verslunar á Sandi. Rjetta útskrift staðfestir. Skrifstofu Snæfellsness- og Hnappadalssýslu. Stykkishólmi 11. nóv. 1930. Jón Steingrímsson- Atvinnu- og samgöngumálaráðu- neytið. Reykjavík, 23. desember 1930. Ráðuneytið hefir í dag ritað hreppsnefnd Neshrepps utan Ennis „Ráðuneytið hefir athugað kæru hreppsnefndarinnar ,dags. 15 októ ber þ. á., yfir útsvari Tang & Riis verslunar á Sandi fyrir árið 1930 og virðist því rjett að útsvarið skuli vera 6000 krónur, svo sem upphaflega var ákveðið. Úrskurðast því samkvæmt 24. gr. útsvarslaga 15. júní 1926, að útsvar verslunar Tang & Riis á Sandi skuli fyrir árið 1930 vera 6000 krónur' *. Þetta tilkynnist versluninni hjer með. F. h. r. E. u- (Sign.) Páll Pálmason. Til verslunar Tang & Riis, Sandi. (Allar leturbr. mínar Á. Þ.). Eftirtektarvert er það, að ráð- herranum liggur svo mikið á að fella rangan úrskurð, að hann les ekki einu sinni skjöl málsins, og fer því með rakalaus ósannindi í úrskurðinum, sbr. orðin: „svo sem upphaflega var ákveðið“, því út- svarið var alls ekki upphaflega 6000 kr., heldur 5200 kr., eins og skýrt er framtekið í úrskurði yfir- skattanefndar. Varla mun þó rjett að kalla þessa úrskurði ráðherrans „rjett- armorð“. Vantar sýnilega eitt^eða tvö stáfgólf í hið andlega lireysti mannsins, sem sje þau, er ætluð voru rjettarvitund og blygðunar- semi, eða þá að saltvíkurtýra skyn- seminnar hefir ekki náð að lýsa þar upp. En Alþingi hlýtur að sjá, að ef áður var þörf að tryggja gjald- endur fyrir hlutdrægni sýslu nefnda og bæjarstjórna, sem jeg að sönnu ekki veit til að þurft hafi, þá hefir þó verið skift um til hins verra. Sýna þau dæmi, sem jeg hefi til fært, að hjá núverandi stjórn og hennar líkum, sem von andi eru fáir, geta flokksmenn pantað ranga úrskurði eftir vild sinni. Slíkt ástand er óþolandi. Ágúst Þórarinsson Nýbomlð: Rngmiðl „Biegdamsmölleu“ HáUsigtimifil Hrísmiðl Tirestone Footwear f Company Birgðir í Kaupmannahöin hjá Bernhard Kjær Gothersgade 49. Möntergaarden. Köbenhavn. K. Simnetni Hoimstrom. Ekta gráir og hvítir Strigaskór með hrágnmmisóla. Aðalumboðsmaður á íslandi Th. Benjaminsson Garðastræti 8. — Reykjavík. HvBlkoktrl tiisalos. Moderne utstyret hvalkokeri, kapasitet 25000 fat, og tre hvalbaater tilsalgs paa rimelige vilkaar. Nærmere under bill. mrk. „7818“ til Heroldens Annoncebureau A.S. Oslo, Norge. Stai-íanprkendt med Barneplejeafdeling. Grundig praktisk og teoretisk Undervisning i alle Husmoderarbejðer. Skolen udv'det bl. a. med elektrisk Kekken. Nyt Kursus begynder 4. Koveinker og 4. Maj. Pris llð Kr. mdL Program sendes. statsunderstettelse kan seges. Telf. Sora 102 og 442. E. Vestergaard, Forstanderlnde. L U D 0. Taflmenn. — Taflborð. — Spil. — Spilapeningar o. fl. Bákaverslnn ísafoldar. Fyrirliggf andi: Hve'iti: Seuta í 50 kg. pokum. Hveiti Clinaux i 50 kg. pokum. Hveiti Snowbal í 5 kg. pk. Hrísgrjón pól. Eggert Kristjánsson & Co. Silvo silfurfægilögur er óviðjafnan- legur á silfur, plet, nickel og alumineum Fæst i öllum helstu verslun^ um. Til Heftavíkur, Sandgerðis og Grinda- víkur daglegar ferðir frá Steindóri, Sími 581.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.