Morgunblaðið - 18.03.1931, Síða 3

Morgunblaðið - 18.03.1931, Síða 3
mmmiwmiiiiiimimiimwiiiimtnnniinmnminihmj MORGUNBLAÐIÐ 3 Útgeí.: H.f. Árvakur, Reykjavlk =| Ritstjórar: Jón Kjartansson. Valtýr Stefánsson. Ritstjórn og afgreitSsla: Austurstræti 8. — Simi 500. = Auglýsingastjóri: E. Hafberg. || Auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 17. — Simi 700. ^ Heimasimar: Jón Kjartansson nr. 742. Valtýr Stefánsson nr. 1220. = E. Hafberg nr. 770. Áskriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánutSi. = Utanlands kr. 2.50 á mánutii. = í lausasöiu 10 aura eintakltS. 20 aura metS Lesbók. = JllllllllllillllllllllilIIIIIIIllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllÍH Zeppelin greifi kemur til íslands 1. júlí. (Binkaskeyti). Kaupmannahöfn 17. mars 1931. •Zeppelinfjelagið þýska tilkynn- ir, að loftskipið Beppelin greifi komi til íslands 1. júlí næstkom- ;íandi. * • • • —•ornmtf- • * • * Skipstraaá. Majmbjörg. Höfðabrekku 17. mars PB. Um klukkan fjögur í morgun 'strandaði færeysk skonnorta á JVIeðallandi. Heitir hún Queen ViC- toria og er frá Vestmanhavn. — Skipsmenn, nítján að tölu, björg- ^úðust allir. Komust þeir í verslun- -arhús kaupfjelagsins þar á sand- iaum, en þar er sími, og gátu þeir því gert vart við sig, en annars iafði sjest til þeirra og höfðu toenn búist til að koma þeim til ’aðstoðar. Munu strandmennimir ®ú komnir til bygða. Mari í dag og gær. Eru komnir agœtir hagar. Heyskortur enginn ^•íer um slóðir. Þýski ríkiskanslarinn V veikur. Berlín 17. mars. Miiller ríkiskanslari er alvarlega Veikur eftir uppskurð við innvort- *smeihsemd. Fjárlög Dana. United Press. PB. -^Íárlaganefnd fólksþingsins hef- ,p borið fram 448 breytingartillög- við fjárlögin, sem nú koma til • umr. Breytingartillögumar eru estar frambornar til iitgjalda- ^kkunar. Nemnr lækkuD útgjald- sem till. fara fram á, yfir ^Jlj. kr. Þingtíðindi SíldareinokBUin. Neðri deild. Þrír Sjálfstæðismenn í Neðri deild, þeir Jóh. Þ. Jósefsson, Pjet- ur Ottesen og Ólafur Thors flytja frv. um breyting á lögum um einkasölu á síld. — Framvarp þetta fer fram á, að breyta til um yfirstjórn Síldareinka.sölunnar. — Samkvæmt uppástungu frum- varpsins, skulu fimm menn eiga sæfi í íitflutningsnefnd, og kosn- ir á aðalfundi einkasöiunnar. Að- alfund skulu sækja 24 fuiltrúar, 13 kosnir af síldarútgerðarmönnum, 8 af sjómannafjelögunum og 3 af skipstjóra- og stýrimannafjelög- unum, eftir reglum, er atviúnu- málaráðherra setur. Útflutnings- nefnd ræður framkvæmdarstjóra, einn eða fleiri. — Svo sem sjá má á þessu, fer frv. fram á, að tryggja eigendum síldarinnar, sjómönnum og útgerðarmönnum óskorinn rjett til að ráða því, hvernig einkasölunni skuli stjóra- að. Er breyting þessi í fullu sam- ræmi við háværar kröfur sjó- manna og útgerðarmanna um alt land. Jóh. Jós. mælti fyrir frv. með ítarlegri og skörulegri ræðu, þar sem hann rakti í stórum dráttúm Kneykslissögu einkasölunnar. Hef- ir margt af því, sem hann sagði, komið fram opinberlega áður, en síðar gefst e. t. v. tækifæri tii, að bæta ýmsu við það langa synda- registur, er ræðumaður dró fram í dagsljósið. Haraldur Guðmundsson and- mælti frv., vill hann auðsjáanlega halda óstjórninni áfram, svo að bitlingasjúkir flokksbræður missi ekki bita. Umræður urðu allmiklar um þetta mál, og tóku þátt í þeim, auk þeirra er nefndir voru, Jón Auðun, P. Ottesen, Sigurður Eggerz og Magnús Jónsson. Að lokum var frv. vísað til 2. umr. og sjútvn. . Efri deild. Á dagskrá voru þrjú mál, öll fyrirferðarlítil. 1. var frv. um breytingu á lögum u» tilbúinn ábnrð. Pjetur Magnússon og Páll Hermannsson báru fram þær breytingar við frv. að greiða skyldi úr ríkissjóði flutningskostn- að áburðar á landi, um veglengd er færi fram úr 30 km. Og að álagning á áburðinn skyldi vera 4% í stað 2%. Pyrri brtill. var feld en hin síðari þá tekin aftur. Frv. síðan samþykt og vísað til 3. umr. Næsta mál var frv. Erlings fyr- ir bæi og sveitafjel. og til að taka einkasölu á fiski, brauði, mjólk, salti .kolum, sementi og trjávið. Þetta frv. er afturganga frá í fyrra. Tók enginn til máls nema Erlingur. Prv. gekk til 2. umr. og allsherjarnefndar. Þriðja málið var frv. um bóka- söfn prestakalla. Pór það umræðu- laust til 2. umr. Snowden sjúkur. London 17. mars. United Press. PB. Frá Grensham í Surrey er sím- að, að Sir John Thomson "Walker hafi gert uppskurð á Snowden fjármálaráðherra, sem líður eftir atvikum vel eftir uppskurðinn. Slys 20 menn farast. St. Johns 17. mars. United Press. FB. Ketilsprenging varð á laugar- dagskvöld í selsveiðaskipinu „Vik- ing“ skamt frá Horse Island, Ný- fundalandi. Sprengingin orsakaði þegar svo miklar skemdir á skip- inu, að það tók þegar að sökkva vegna leka. Ætlað er, að helming- ur skipshafnar hafi f'arist. Er víst, að margir drukknuðu, er menn reyndu að bjargast upp á ísjaka sem flutu fram lijá skipinu, er það var að sökkva. Síðar: Samkvæmt seinustu fregn- um fórust tuttugu menn, er „Vik- ing“ sökk. 16 skipsmenn liafa bjargast á land, samkvæmt skeyti til eigenda skipsins í Newyork. Frá I. S. I. PB. 14. mars. 17. júní 1931. Eins og undan- farin ár verður háð hjer í Reykja- vík íþróttamót, sem hefst 17. júní. ÖUum fjelögum innan 1. S. 1. er heimil þátttaka. Sambandsstjórn- in hefir falið glímufjel. Ármann, Iþróttafjelagi Reykjavíkur og Knattspyrnufjelagi Reykjavíkur að standa fyrir þessu landsmóti í sameiningu. Verður mótið nánar auglýst síðar. Íslandsglíman verðnr háð í júní- mánuði n.k. Sambandsfjelögin eru beðin að senda nöfn væntanlegra keppenda fyrir 1. júní til glímu- fjel. Ármann, Rvík, sem hefir ver- ið falið að standa fyrir glímumót- inu. Keppt er um glímubelti í. S. í. Handhafi þess er nú Sigurður Gr. Thorarensen. Einnig verður keppt um Stefnuhornið. Handhafi þess er nú Þorsteinn Kristjánsson. Báð- ir í Ármann. Einmenningsfimleikakeppni verð ur háð hjer eins og undanfarin ár, samkvæmt reglugerðinni um fim- leikabikar 1. S. í. — Handhafi T^yggvi Magníisson (í. R.). í- þróttafjelagi Reykjavíkur hefir verið falið að halda mótið og slculu væntanlegir keppendur tilkynna fjelaginu þátttöku sína. Plokkskeppni í fimleikum fyrir öll fjelög innan 1. S. í. verður háð samkvæmt reglugerðinni um far- andbikar Oslo Turnforening. Hand hafi bikarsins er glímufjelagið Ár- mann, Rvík, sem falið hefir verið að standa fyrir mótinu. SkíðaJjelag Siglufjairðar hefir, eins og getið hefir verið í skeyt- um til PB„ ráðið til sín norskan skíðakennara, Helge Tomö að nafni. Hann er 24 ára að aldri og hefir stokkið 63 metra í „Bærum“ hengjunni í Oslo. Er hann talinn mjög fær skíðakennari. í. S. I. vill alvarlega skora á alla skíðamenn að nota þessa kenslu, sem Skíða- fjelag Siglufjarðar veitir ókeypis. En ferðir og fæði verða nemendur að greiða. Allar upplýsingar um skíðanámsskeiðið fá menn hjá for- se.ta í. S. 1. og hr. Guðmundi Skarphjeðinssyni, skólastjóra á Siglufirði. Skíðaganga er ein af hinum nytsömustu íþróttum og því er þess að vænta, að menn láti þe’tta góða tækifæri ekki ganga úr greipum sjer. Alþingishátíðin. Allir þeir, sem ’Sjómenn og verkamenn! Leðuraxlabönd o. m. fl. Maskínuskór Hrosshárstátiljur Trjeskóstígvjel Klossar Sjóvetlingar Kuldahúfur Ullartreflar Nærfatnaður fjölda teg. Olíustakkar fjölda teg. Olíufatnaður alskonar Trawldoppur Trawlbuxur Peysur alskonar Sjósokkar Kuldajakkar fóðraðir með loðskinni Skinnvesti Skinnjakkar Vinnuvetlingar fjölda teg. Gúmmístígvjel, V. A. C„ allar stærðir Vattteppi fjölda teg. Ullarteppi Baðmullarteppi, madressur Nankinsfatnaður allar stærðir Fatapokar Patapokalásar Vasahnífar Strigaskyrtur Enskar húfur Sjóhattar Samfestingar Við höfum stærst og f j ölbreyttast úrval af öllum þessum vörum. Verðið ávait þið lægsta. Komið því lyrst til okkar. Veiðarfæraverslunin „Geysir". Orfmooansleikor glímuf jelagsins Ármann verður haklinn í Iðnú laugardag- inn 28. mars kl. 9 síðd . Tvær hljómsveitir. Aðgöngumiða fá fjelagsmenn fyrir sig og gesti sina hjá Áslaugu Þorsteinsdóttur í Efnalaug Reykjavikur, Laugaveg 84. Sala hefst fimtudag 19. mars. STJÓRN ÁRMANNS. Mifiikurhtt fliveslnoa hefir útsölu fyrir vesturbæinn, á Vestnrgötu 29, S í M 1 2 3 4 2 Fæst þar Nýmjólk, rjómi, skyr, smjör og hin viðurkenda Heilsumjólk. — Einnig brauð og Kökur frá Björnsbakaríi. Sent heim til kaupenda. Kemur daglega nýtt á markaðinn. 1 FISKBURST AR 1 • • • besta tegund fyrirliggjandi, í heildsölu, ódýrast S • • • VeiðarfæraverslBBiBBt „Geysi“. : • •

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.