Morgunblaðið - 12.04.1931, Side 10
10
# V i H .
V'
5 , r'. •-f? • ••' ;/• ^ujv
i Vlyr^
' ■' ■’
MORGUNELAÐIÐ
Nýksmið:
Fy i; iakara:
Hveiti „Cream of Manitoba“.
Rúgmjöl ,,Blegdamsmöllen“.
Hálfsigtimjöl.
Sultutau blandað.
Svínafeiti.
ðfnm fennlð
Jjurkuð epli, apricosur, blandaða ávexti, gráfíkjur, rúsínur
og sveskjur. Sjerstaklega góðar tegundir.
Benediktsson 5 Go.
Sími 8 (4 línur).
íiíiið lier drekka aott 01.
POr,
sem er langbesta ölið, sem hjer er
fáanlegt.
Einn Þór (Pilsner) hlaut strax al-
menningslof fyrir hin óviðjafnan-
legu gæði og er víðfrægur fyrir
hinn ekta ljúffenga ölkeim. Einn
Þór slekkur best allan þorsta.
Bjór, þessi gamli íslenski drykkur,
er þegar orðinn landsfrægur, enda
líkist hann hvað mest „Gamla
Carlsberg* ‘ og „Múnehener-öli‘ ‘,
sem eru heimsfrægar öltegundir.
Hin sívaxandi sala á Þórsöli er
sönnun þess, hve ágætt það er.
Þegar Olgerðin Þór hóf starfsemi
sína, var notaður einn bíll til þess
að keyra út ölið til kaupenda, en
nú eru bílarnir orðnir tveir, og
hafa aðeins undan með að full-
nægja eftirspurnínni.
Guðmundur B ynjólfsson
bóndi á Kúludalsá
í Innra-Akraneshreppi.
Ilann var fyrir -kömmu flutt-
ur til Reykjavíkur, þungt hald-
inn af sjúkdómi, sem hann
hafði kent um nokkurt skéið,
og ljetst þar eftir stutta legu
13. mars s. 1.
Guðmundur Brynjólfsson var
fæddur 9. jan. 1869 í Gerði í
Innra-Akraneshreppi. — Faðir
hans var Brynjölfur Brynjólfs-
son bóndi þar. Var Brynjólfur
Útsalan
í Snllnm gnn$i.
Nýjum vörum bætt viö daglega.
Vðrnhúsið.
Pappír, ritiöng.
Bðkaverslna (safoldar.
Guðmundur Brynjólfsson.
Ijróðir Bjarna á Kjaransstöðum
og þeirra systkina. Móðir Guð-
mundar, en seinni kona Bryn-
jólfs, var Halldóra Sveinsdóttir.
— Guðmundur ólst upp í Gerði
hjá foreldrum sínum. — Árið
1892 kvongaðist hann Valgerði
Jónsdóttur, og byrjaði hann bú-
skap í Gerði á því ári. Bjó hann
þar í sjö ár. Árið 1899 keypti
hann Kúludalsá og fluttist þang
að um vorið. Þar bjó hann búi
•sínu þar til á síðastliðnu vori,
að hann fjekk það í hendur
Brynjólfi syni sínum.
Þeim hjónum varð 6 barna
auðið, og af þeim lifa 5: Þórð-
ur skipstjóri, búsettur á Reyð-
arfirði, Brynjólfur, bóndi á
Kúludalsá, Guðjón og Sveinn,
sjómenn á Akranesi, og Ár-
mann, trjesmiður í Reykjavík.
En dóttur sína, fullorðna, Hall-
dóru a5 nafni, hina mestu mynd
arstúlku, misti Guðmundur á
síðastliðnu ári. Hafði hún haft
á hendi hin síðari árin bústjórn
með föður sínum.
Konu sína misti Guðmundur
12. nóv. 1923.
Meðan Guðmundur bjó í
Gerði, stundaði hann jöfnum
höndum landbúnað og sjósókn.
Var hann formaður á skipi sínu
á vertíðum, aflasæll vel og ötull
sjósóknari. Á þeim árum var
stundað heimanræði frá flestum
bæjum í Innra-Akraneshreþpi,
en það lagðist niður, er óx ör-
tröð botnvörpunga á fiskimið
unum í Faxaflóa og fiskur hætti
að ganga til grunnmiða.
Eftir að Guðmundur fluttist
búferlum að Kúludalsá, lagði
hann einvörðungu stund á land-
búnað. Það kom þegar í ljós á
fyrstu búskaparárum Guðmund-
ar, að hann hafði mikinn áhuga
á auknum jarðræktarfram-
kvæmdum.
Þegar hann tók við jörðinni,
voru hús þar öll mjög fallin,
túnið kargaþýft og ógirt. Tók
hann þegar til óspiltra mál-
anna með að bæta jörðina,
hýsa hana, sljetta túnið og
koma upp girðingum, og jöfn- |
um höndum jók hann áhoí'n á
jörðinni.
Þegar hann ljet af búskap á
síðastliðnu vori, hafði jörðin
tekið miklum stakkaskiftum. —
Var hann þá búinn að sljetta
alt túnið, stækka það um meix’a
en helming, og var þó útgræðsla
óvenjulega erfið vegna þess.
hve jarðvegur er þar grýttur.
Jörðina hafði hann hýst af-
burðavel. — Bygt íveruhús úí
timbri, peningshús öll og hlöð-
ur úr steinsteypu, og veitt vátni
í fjós og bæ. Enn fremur háfði
hann girt tún og engjar grip-
heldum girðingum og mikinn
hluta beitilands.
Þá hafði hann látið athuga
möguleika til rafvirkjunar til
heimilisnota á bæ sínum, og
hafði hann mikinn áhuga fyrir
slíkum framkvæmdum. Þá nýj-
ung hafði hann einnig tekið
upp, að veiða lax úr sjó, o^
stundaði það með nokkrum á-
rangri.
Guðm. var mjög áhugasam-
ur um öll fjelagsmál, enda var
hann lengst af í hreppsnefnd í
sveit sinni, skattanefnd og sókn
árnefnd. Varasýslunefndarmað-
ur var hann í fjölda mörg ár,
og tók á síðari árum oft sæti
aðalmanns á sýslufundum. öll
störf hans, jafnt í þarfir al-
mennings, sem í búsýslu hans
allri, báru vott um nákvæma
íhugun og glöggan skilning á
hverju viðfangsefni. Var hann í
hvívetna úrræðagóður og ráð-
hollur og kom það jafnan í ljós,
að hverju máli var vel skipað
þann veg, sem hann hafði lagt
á ráð um. Það var yfirleitt ekki
háttur hans að vera margmáll
á fundum eða mannamótum, en
áhrifum sínum og tillögum um
meðferð og úrslit mála, kom
hann þó fram eigi að síður með
hóglegri festu samfara lipurð,
enda var svo farið allri fram-
komu hans, að hún vakti á hon-
um traust og virðingu allra
samverkamanna hans og þeirra,
er til hans leituðu. Skólament-
unar naut hann engrar, en við
bóklestur og á annan hátt hafð"
hann aflað sjer staðgóðrar þekk
ingar í þeim efnum, sem mönn-
um í hans stöðu má best koma
að haldi.
Valgerður, kona Guðmundar,
var ágætiskona og til fyrirmynd
ar um alt dagfar og heimilis-
prýði. Var hún manni sínum
mjög samhent um alt, er heim-
ilinu mátti til gagns verða. —
Gestrisni þeirra var við brugð-
ið og í öllu var sambúð þeirra
svo, að öðrum mætti vera hið
besta fordæmi.
Guðmundur byrjaði búskap
með öllu eignaláus, en var orð-
inn efnaður maður, á bænda
vísu, hin síðari ár, og komu hon
um þó ekki tekjur svo teljándi
væri af öðru en búskapnum. —
öllum húsabyggingum og um-
bótum á jörð sinni gat hann
komið fram, án þess að taka
eyri að láni til allra þeirra
miklu framkvæmda. Taldi hann
öruggast, að hver byggi sem
mest að sínu og ætti hlut sinn
á þurru landi.
Guðmundur var gott dæmi
þess, hvað íslensk gróðurmold
hefir að bjóða þeim, sem atorku
Húban
Kósakkarnir
syngja i dag kl. 2*/a
í Gamla Bió.
Aðgöngumiðar í Gamla
frá kl. 1.
Bió
Húsmæður!
Látið RENOL
hjálpa ykkur með hreingern-
inguna. Fæst hjá flestöllum
kaupmönnum borgarinnar-.
Heildsölubirgðir.
H Úiafsson &
Bernhöff.
Símar 2090 & 1609.
G.s. island
fer þriðjuda£inn 14, þ. m.
kl. 6 síðd. til ísafjarðaiy
Sig-lufjarðar og Akureyrar.
Þaðan sömu leið til baká.
Farþegar sæki farseðla á
morgun. Fylgibrjef yfir vör-‘
ur komi á moro-un.
C. Zimsen.
Sumarbústaður
til sölu á kyrlátum og sólríkmn
stað. Tilboð sendist A. S. í. fyrir
15. þ. m. merkt „Sumar“.
Orengir og stúlkur
óskast til þess að selja 3. tölublað
af Vikublaðinu, sem kemur út í
dag. Komi á afgreiðslu Morgun-
blaðsins kl. 9. Sölulaun 10 anrar
af hverju blaði.
hafa, ráðdeild og hagsým, tif
þess að færa sjer gæði hennar
í nyt. —
P. O.