Morgunblaðið - 17.04.1931, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.04.1931, Blaðsíða 2
T ** OROÍJNBLAÐÍ í) Dðmur llíiurlRuar. Fundur Sjálfstæðismanna í Borgarnesi mótmælir gerræðisvaldinu. Á fundi Sjálfstæðismanna í Borgarnesi á miðvikudagskvöld var samþykt svohljóðandi tillaga: Fundurinn mótmœlir harðlega Jiví gerræði ríkisstjórnarinnar .ið rjjúfa Alþingi í skjóli fjarlægs líonungsvalds, og gera með því störf þingsins að engu. Telur fundurinn slíka framkomu hj'd stjórn sem er komin í minni hluta í þinginu, tvímælalaust þing- ræðisbrol Áiyktun þessi var samþykt með atkv. Framsóknarmenn höfðu viðbún- að til þess að hleypa fundinum iipp, en þeim var bægt frá. Skagfiroingar mótmæla. Haarðcró íundarályktun á almenn- um fundi samþykt í eánu hljóði. Fundur alþingiskjósenda á Sauð- árkróki samþ. svohlj. mótmæli gægn þingrofinu í gær: Fundur- ipn mótmælir harðlega því ger- ræði, að ríkisstjórnin sem er í minni þluta, og studd af miklum minni tiluta kjósenda, hefir í skjóli fjar- lægs konungsvalds, eyðilagt störf Júngsins í miðjum klíðum nú á þessum krepputíma. Hefir stjórn- in þar með, að nauðsyujalausu, sóað stórlega fje ríkisins, svift st^miklum meiri hluta þjóðarinn- af'Áj’etti sínúm. til þinglegrar á- kvorðunar um stjórn ríkisins, og að engu haft anda þess lýðræðis, sem er dýrmætasta eign þjóðarinn- ar. Skoðar fundurinn þessa ger- ræðisfullu árás á þjóðarviljann, augljóst vitni þess, að ríkisst.jórn- in þorir ekki að horfast í augu við óhlutdræga og rækilega rannsókn á því, hvernig hún hefir misbeitt 'di sínu, og sjerstaklega á því, hvernig meðferð hennar á ríkisfje hefir verið í flokks hagsmuna- skyni. Því skorar fundurinn al- varlega á alla íslendinga, karla jafnt sem konur, að fylkja sjer nú t •’ett um frelsi sitt, og sjálfstæði og verjast ofbeldinu. Ofanrituð tiilaga var samþykt á fundi hjer í gærkvöldi. Á fund" inum voru mættir 112 alþingis- Itjósendur og greiddu allir atkv. með tillögunni. Sjálfstæðisf jelagið á Flateyri mótmæl'r þingræðisbrotinii. Frá Flateyri er símað : Sjálfstæðisfjelkgið „Óðinn“ á Flateyri lýsir hjermeð fundarsam- .J?ykt megnri óánægju yfir því, ,-ð Alþingi skuli vera rofið, af ]>eirri ástæðu að vantraust hafi verið borið fram, á núverandi stjórn. Telur fjelagið þessa stjóm- arathöfn skýlaust brot á þingræði varu, þar sem algerlega var óreynt hvort unt var að mynd^ meirihl. ■stjórn, ef vantraustið héfði verið vamþ. Auk ]>ess sem þingrofið traðkar þingræði voru, hlýtur það oinnig að baka ríkissjóði stórt.jón, J*«r sém mest alt starf þessa síð- íikta Alþingis verður að engu, en J.ihgrofið framkvæmt, að oss virð- ist, eingöngu til þess að núver- ardi stjóra geti lafað nokkrum mánuðum lengur við völd. Tíwsvíkmgar mótmæla ger- ræÓi landsstj órnarinnar. Fjelag Sjálfstæðismanna var stofnað í Húsavík í Þingeyjarsýslu í fyrradag og var á stofnfundin- 'im harðlega mótmælt í einu hljóði gc rr æð i 1 andsst j ómarinnar. ->*t- Miiið eftir elBirettuvlkiuii i Tóöaksversluiinii „Loidon «ft Seyðfirðingor mótmæla því oimim rómi hvernig stjórnin hefir notað konungsvaldið. Á borgarafundinum hjer í gær- kvöldi var samþykt í einu hljóði svohlj. tillaga: Fundurinn mót- mælir þeirri óhæfu að ríkisstjórnin notar konungsvaldið tilefnislaust til þess að taka löglegt umboð af fulltrúum þjóðarinnar, sem sæti eiga á Alþingi, meðan fjárlög og nálega öll mál, sem fram hafa komið í ]>inginu, eru óafgreidd. 'rundárboðendur buðu formanni nfhaðarmaunaf jelagsins þáttöku í undirbúingi fundarins, en hann 'ildi sig óviðbiíinn. Fáir jafnað- armenn mættir. Formaður Fram- "óknarfjelagsins Karl Finnboga- son var á fundinum, en hreyfði kki mótmælum gegn tillögunni. Eskfirðingar mótmæla. Á Bskifirði var í gærkvöldi al- mennur mótmælafundur gegn þingrofinu einróma. Sjálfstæðisfjelagið Skjöldur í Stykkishólmi mótmælir þingrofinu. Fjö.lmennur fundur alþingiskjós- enda í Sjálfstæði^fjelaginu Skildi í Stykkishólmi 15. þ,; ‘m. samþ. í einu hljóði svohlj. tillögu: — Fundurinn mótmælir eindregið gerræði ]>ví gagnvart þingræðinu í landinu, sem núverandi ríkis- "tjórn hefir framið með þingrofi í gær og lýsir megnaSta vantrausti á ríkisstjórninni. Sextíu kjósendur í Hróf- bergshreppi í Strandasýslu mótmæla og heimta starfs- frið Alþingis. Á fundi Sjálfstæðismanna á Hólmavík í dag, var eftirfarandi tillaga samþykt með undirskrift 60 alþingiskjósenda í Hrófbergs- lireppi: Fundurinn mótmælir ein- dregið því gerræði stjómarinnar að rjúfa þing að ástæðuJausu og að óafgreddum fjárlögum og meina á þann hátt meiri hluta alþingis, að leita rjeltar sfns sam- kvæmt þingræðisreglum. Enn- fremur krefst fundurinn þess að Alþingi verði kvatt saman þegar í stað. (Undirskrift 60 kjósenda) Álmennur kjósendafundur í Þingeyrarhreppi telur verkn- að stjórnarinnar hliðstæðan atferli Trampe. Á almennum kjósendafundi í Þingeyrarhreppi í dag, var eftir- farandi tillaga samþykt: Þar sem fundurinn verður að telja aðfarir ríkisstjórnarinnar með upp- lausn Alþingis nú hliðstæður við slit konungsfulltrúa á þjóðfund- inum 1851, þá mótmælir fundúr- inn harðlega aðferð þeirri, sem hjer er beitt gagnvart stórum meiri hluta kjósenda í landinu og krefst ]>ess stranglega að stjórn 'n leggi niður umboð sitt. Fylkir fjelag ungra Sjálf- stæðismanrta á ísafirði mót- mælir stjórnarskrárbrotinu. Mýkomið: Svohljóðandi ályktun samþykt með öllum atkvæðum á fnndi í gærkvöldi: Fylkir, f jelag ungra Sjálfstæðismanna á ísafirði, læt.ur í ljós megna óánægju yfir því, að Alþingi hafi verið rofið aðeins af þeirri ástæðu, að vantraust hafi verið borið fram á núverandi stjórn. Telur fjelagið þessa stjórn- arathöfn ótvírætt brot á þingræð-* inu. Auk þess sem þingrofið lítils- Virðir stórkostlega þingræði vort, bakar það ríkissjóði vitanlega stór tjón, þar sem mest alt starf þessa síðasta þings ónýtist. Er þetta enn vltaverðara, þar sem ekki er hægt áð sjá annað, en að þingrofið hafi eingöngu verið framkvæmt, til þess að núverandi stjórn geti laf- að nokkra mánuði lengur við völd. margar tegundir af nýtísku GARDÍNU- og STORISEFNI — Rúskinn í hlúsur, afar ódýrt Gangadreglar, ódýrir. „Þjóðarinnar dýrmætasta éign“. Fjelag Sjálfstæðis- manna í Fáskrúðsfirði mótmælir. Á fjölmeunum fúndi í gærkvöldi í landsmálafjelaginu Vjemundur, sem telur 126 meðlimi, Var ein- róma samþykt, svohljóðandi tillaga Þar sem það er þegar lcunnugt orðið, að alþingi það, sem nú hefir starfað í 2 mánuði, er rofið með óven.julegum hætti og öll störf þess þar með að engu orðin, þá lýsir fundurinn megnri óánægju yfir slíku gerræði og mótmælir eindregið að sú stjóm fari leng- ur með völd, sem sýnilega orðin er í, minni hluta í þinginu og misbeiti þannig valdi sínu til þess að þverbrjóta þingræðið, sem verð- ur að teljast þjóðarinnar dýr- mætasta eign. Borgarafundur í Hafnar- firði. „Ekki lengur lögleg stjórn landsins.“ A-liður. Fjölmennur fundur hafnfirskra borgára mótmælir algerlega því stjórnarskrárbroti Tryggva Þór- ballssonar, að slíta Alþingi áður en það hefir lokið afgreiðslu fjár- Viga, og telur að ráðuneyti hans "je ekki lengur lögleg stjórn 'andsins. Fundnrinn krefst því bess, að konungur setji stjórnina frá völdum þegar í stað og feli andstæðingum hennar á Alþingi að mynda nýja stjóm. B-liður. Verði þetta ekki gert, lýsir fund- urinn sig samþykkan því, að sagt verði upp sambandinu við Dani, og konunginn. A-liður tillögunnar var samþykt- ur í einu hljóði, en B-liður með öllum þorra atkvæða gegn 9. Mótmælafundur á Norðfirði í kvöld. i LINCOLN FORDSON Það er alment viðurkent að FOKD bílar sjeu þeir lang-bestu og lang-ódýrustu, sem völ er á.. Allir þeir kappakstrar, sem FOKD bílar hafa tekið þátt í nú síðustu árin og borið sigur-af hólmi, sanna ótvírætt, að þeir standa fremstir að efnisgæðum, styrkleika, spameytnl og öryggi. Að ytra útliti og öllum frágangi og þægindum hið innra standa FORD bílar engum bílum að baki. Notið í langferðir einungis FORD bíla, því þá er yður trygð góð líðan og örugg ferðalok. Út úr engum bíl öðrum kemur farþeginn jafn óþreyttur. Biðjið um myndaskrá og verð- ‘ lista. Fljót og örugg viðskifti. > P. STEFÁNSSON umboðsmaður FORDS á íslandi. Frá landvsímanum. Frá deginum í dag hættir loftskeytastöðin í Reykjavík að út- varpa talskeytum til útvarpsnotenda á afskektum stöðum. Reykjavík, 16. apríl 1931. Gisli J. ðiafson. Skrifstotikcrkergi til leigu við höfnina. Upplýsingar í síma 31. H.f. Sleipnir I dag aeíst fitsala bakvið Ingólfs Apótek, inngangur frá Vesturgötu. Á vörum mínum sem skemdust við hrunann í Hafnar^- stræti 18. A útsölunni er meðal annars, Vaskasilki, Georgette, Leggingar, og Kögur. Efnin má nota til kjóla, fóðurs o. fl. Alt mjög lítið skemt. Afar ódýrt Opið frá kl. 1—6. Rigmor Hansen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.