Morgunblaðið - 14.05.1931, Qupperneq 5
Fimtudag 14. maí 1931.
5
Handsápn franska
hefi jeg fyrirliggjandi í keildsölu. Umboðsmaður á
Islandi fyrir Cociété Cadum, Courbevoie-Paris. —
Hefi einnig ýmsar vefnaðarvörur fyrirliggjandi.
Þóroðdnr Jðnsson,
Sími 2036. Hafnarstræti 15.
Ingibjðrg H. Bjarnason
og K?ennaskóliim i Reykjavík.
1 dag, hinn 14. maí, er þess að
minnast í sögu Kvennaskólans í
Beykjavík, að fröken Ingibjörg H.
Bjarnason hefir verið forstöðu-
kona skólans í aldarf jórðung, síð-
an árið 1906. Þar áður liafði hún
verið kenslukona í skólanum í 12
ár, svo að samtals eru árin orðin
37, sem hún hefir starfað við
skólann.
Bftir að frú Thora Melsteð, að-
alstofnandi og fyrsta forstöðukona
skólans, hafði látið af stjórn hans,
ritaði liún ári síðar grein um skól-
ann og ljet þar svo um mælt:
„Árið 1906, þá er jeg hafði stýrt
Kvennaskóla Reykjavíkur í 32 ár,
þorði jeg eigi sökum aldurs míns
o^ heilsu að halda áfram lengur
við það starf, er var mjer svo
kært. Jeg ljet því skólastjórn af
hendi við aðra konu, Ingibjörgu
fröken Bjarnason, er jeg ber traust
til. Mjer er kunnugt þrek hennar
þekking og dugnaður. Him hefir
kennt bæði lijer í kvennaskólanum
og víðar og áunnið sjer almanna-
lof. Jeg vona því að Kvennaskól-
inn. sje kominn í góðar hendur
og að hann nái miklum vexti og
viðgangi undir stjórn hennar.“
í rauninni þarf nú í þessum fáu
minningarorðum ekki að hæta við
ofanrituð ummæli frú Thoru Mel-
steð öðru en því, að þegar litið
er yfir þessa 25 ára skólastjórn
fröken Bjarnason, frá byrjun til
þessa dags, þá sýnir hún að traust
friiarinnar hefir í engu brugðist,
að skólinn var kominn í góðar
hendur.
Hefir forstöðukonan með þeirri
þekking og dugnaði, sem hún var
þegar kunn að, með frábærri
stjórnsemi og reglusemi stýrt skól-
anum og málefnum hans og áunn-
ið sjer almannalof og skólanum
vinsældir og mikið álit, svo að
hann hefir verið mjög sóttur úr
öllum hjeruðum landsins og jafnan
Ingibjörg II. Bjaimason.
verið fullskipaður. Á þeim 32 ár-
um sem frú Melsteð hafði skóla-
stjórn taldi hún að tíu til ellefu
hundruð stúlkur hefðu gengið í
skólann, „flestar að vísu einungis
einn vetur.“ Síðan má fullyrða
,að mikið á annað þúsund stúlkur
hafa gengið í skólann, flestar 2
—3 vetur. Eru þær því ekki orðn-
ar fáar, konurnar íslensku, sem
notið hafa kennslu undir stjórn
fröken Ingibjargar, og gefur að
skilja hve skólinn þannig hefir
aukið staðgóða mentun íslenskra
kvenna, út um alt land. Á Alþingi,
þar sem forstöðukonan hefir átt
sæti sem landkjörin síðasta kjör-
tímabil, hefir hún af áhuga og
einurð talað máli skólans og skýrt
þarfir hans og með því eins og
með annari umhyggju sinni fyrir
skólanum, unnið honum hið mesta
gagn.
Hún hefir'gert sjer far um, að
afla skólanum góðra kennslukrafta
jafnframt því að vera skólanefnd-
inni samhent í að gæta hags skól-
ans, sem ekki hefir verið svo góð-
ur að hægt. væri að halda og launa
fasta kennara. Má því segja að
Kvennaskóliim í Reykjavík.
einnig sú von frií Th. Melsteð hafi
ræst, að skólinn undir stjórn hinn-
,ar nýju forstöðulconu, er tók við
henni, mætti ná miklum vexti og
viðgangi.
Einkum varð það mögulegt eft-
ir að nýtt skólahús var reist handa
skólanum árið 1909, fám árum
eftir að frökén Bjarnason tók við
stjórninni. Hafði skólinn það jafn-
,an á leigu af Steingrími trjesmið
Guðmundssyni, þangað til hann
festi kaup á því síðastliðið ár með
góðri aðstoð Alþingis og bæjar-
stjórnar Reykjavíkur. Stendur
húsið á fögrum stað í bænum við
Fríkirkjuveg og er hin prýðileg-
asta bygging og hagkvæmlega fyr-
ir komið. Og ekki dylst það nein-
um er inn kemur í húsið og.litast
um, að þar ríkir fyrirmyndar um-
gengni, hirðusemi og reglusemi
hvar sem litið er.
Fröken I. H. Bjarnason hefir
áunniðsjer velvild og virðingu allra
.námsmeyja sinna, og munu þær,
dreifðar víðsvegar um landið, kon-
iirnar sem þar hlutu mentun sína
og góða undirstöðu fyrir lífsstarf
sitt, senda henni á þessum tíma-
mótum hlýjar óskir. Enda mun
hún geta tekið undir orð frú Th.
Melsteð, í ofannefndri ritgerð:
„Jeg vildi ávalt vera þeim móð-
urleg vinkona. Jeg var kölluð
vandlát og sumar sögðu að jeg
væri ströng, en allar hinar góðu
ungu stvdkurnar mínar skildu, að
jeg var vandlát sökum velferðar
þeirra. — — Sá, sem ann liinum
ungu og vill þeim vel, verður að
gera töluverðar kröfur til þeirra
og setja takmarkið hátt, eigi síst
að því er siðferðið snertir.“
En einnig allir aðrir aðstand-
endur skólans, sem í raun og veru
er þjóðin öll og þá sjer í lagi
forstöðunefnd skólans og vanda-
menn námsmeyjanna, sem þar hafa
íiotið kenslu,, vilja á þessum degi
þakka fröken Ingibjörgu fyrir hið
]i,jóðnýta starf, sem hún hefir
unnið um liðinn aldarfjórðung,
árna henni allra heilla framvegis
og óska að hennar megi enn lengi
við njóta, því að enn hefir him
fulla starfskrafta og ber með
áhuga fyrir brjósti heill og hag
slcólans, þessa elsta kvennaskóla
landsins, sem unnið hefir þjóðinni
með stóraukinni mentun kvenna
það gagn, sem ekki verður metið.
Getur forstöðukonan í dag litið
með ánægju yfir starf það, er hún
hefir unnið.
Bændasliórnin í Rúmeníu
Þýsk blöð segja ljótt, af henni
.eftir fregnum frá Búkarest. Yið
stjórnarskiftin hafa fylkjastjórar
og borgastjórar verið reknir frá
embættum í hundraðatali vegna
alls konar spillingar og afglapa.
Hafði fyrverandi flokksforingi og
forsætisráðherra Maniu skipað
.embætti þessi með „sínum mönn-
um“, og fylgdi þessu alls konar
glundroði og spilling út um alt
land. Þá á og að reka alla járn-
brautaembættismenn burtu vegna
megns ólags á samgöngunum. —
Maniu kveðst ætla að hætta öllu
stjórnmálastarfi.
Það er víða pottur brotinn í
þingræðislöndunum.
Fyriríigp jaEdi:
Kandís, dökkrauður.
Crema-mjólk.
Libbys-mjólk.
Nafnið N E S T L É sannar
Dósamjólkin
Every Day
frá Nestlé & Anglo Swiss
Condensed Milk Co. Yevey
er viðurkend sjerstaklega bragð-
góð, næringarmikil og drjúg.
Húsmæður ættu að nota
þessa dósamjólk, þar sem allir
viðurkenna að betri dósamjólk sje
>ekki fáanleg.
Reynið eina dós í dag.
Rakstur með ROTBART-rakvjela-
blaði fullnægir kröfum hinna
kröfuhörðustu. Það er heimsins
besta rakvjelablaðið.
• Notið við það slípivjelina
• „OPTATUS TANK“
O I heildsölu 'hjá Vald. Thaulow, Kaupmannahöfn. Biðjið
2 kaupmann yðar um Rotbart-blöð og Optatus Tank.
*••••••••?•••••••••••••••<
Tvær stAlknr
vantar á Heilsnhælið á Reykjnm
ná þegar eða 1. Jnní.
Dpplýsiaiar f síma 230.