Morgunblaðið - 10.06.1931, Side 2

Morgunblaðið - 10.06.1931, Side 2
2 MORGUNBLAÐIf) Fólkið, læknarnir og stjórnin Eftir Guðm. Hannesson. Danskt bakarasnltntan , í 15 kg. dnnknm, hil góða, gamla, er komið aitnr. Blandað ávaxtasnltntan i 7 lbs. dðsnm, hið óviðjafnanlega, nýja og ðdýra, kemnr með „Gnllfoss". V S r ð n r - fjelag Sjálfstæðismanna, heldnr tnnd I kveld kl. 87* i Varðarhdslnu. Hatt verðar nm kosningarnar. Allir Sjálfstæðlsmenn velkomnir meðan hdsrdm leyfir. STJÚRNIN. Það vita allir, sem búið 'hafa á hjeruðum, þar sem ekki er um •annan lækni að gera en hjeraðs- lækninn, hve miklu það skiftir, uð hann sje bæði duglegur læknir og góður drengur, sem hjeraðs- i>úar get-i borið fult traust til. — Stundum veltur heilsa konu manns ■og barna á þessu, og þó menn vildu leita utanhjeraðslæknis, þá getur sú lijálp komið um 'seinan. Þess eru jafnvel dæmi, að menn ihafa flutt úr sveitum til að vera nær lækni, sem þeir treysta-. í öllum 'siðuðum löndum — nema íslandi síðustu árin — er sama einfalda aðferðin notuð til þess «,ð reyna að tryggja 'fólkinu sem best lækna. Hún er sú, að auglýsa >einbættm, láta læknana keppa um þau og velja þann, sem að dómi heilbrigðisstjórnar (landlæknis, heilbrigðisráðs) er talinn færastur og best til starfans fallinn af um- ‘sqekjendum. Ef heilbrígðisstjórnin er sam- viskusöm og starfi sínu vaxin, þá •gefst ]>essi aðferð vel, svo fram- ■■arlega sem úr fleirum umsækjend- nm er að velja. Þó þeir hafi oft xerið fáir hjá oss undanfarið þá ær nú að komast breyting á það, síðan læknum fjölgaði að miklum JHun. Það hefir lengst af verið venj- •an hjá oss að senda yngstu lækn- «na, til þess að byrja með, í lak- iari, strjálbygðu hjeruðin, meðal •annars af þyí, að þeim veitir ljett- ara uin ferðalögi göngur og skíða- lerðir en gömlu læknunum. Jafn íframt héfir þeim verið gefin góð Ton um áð fá betra lijerað áður mörg ár liðu, — ef þeir stæðu sig vel og reyndust dugandi læknar. Þó þeir hefðu dregist eitthvað aft- ur úr í fámenninu, ]>á mátti bæta úr því með því að veita þeim ut- anfararstyrk, áður en þeir tóku ■við stærra- hjeraði. Þó ungi læknirinn í afskekta hjeraðinu hafi nóg að hugsa um fyrstu árin og setji sjaldnast- fyrir sig erfiðleikana og löngu ferðim- ar, þá fer sjaldan hjá því, að hann fari, áður mörg ár líða, að telja ú.rin þangað til hann fái betra hjerað, — eins og lofað va-r. Það má og vera að konu dians langi burtu eða elstu börnin sjeu komin á skólaaldur, og betri horfur á mentun þeirra í stærra og fjöl- mennara. hjeraði. Við þetta- bætist svo, að þar er stærri verkahringur og tekjurnar meiri. Stundum er það svo, að læknir- inn hefir lengi haft augastað á úkveðnu hjeraði, ef til vill svo mörgum árum skiftir. Hann kann nð eiga þar ættingja eða vini og tangar að flj'tjast til, þeirra, eða það eru önnur gæði sem freista hans. Eftir því sem h^nn hefir lengur biiið yfir þessu, og rætt um það við konu sína, verður hon- um það að lokum að brennandi éhugamáli. Loksins losnar embættið. Lækn- irinn gerir sjer góðar vonir um að nú uppfyllist þessir framtíð- ardraumar og að hann fái sann- gjöpn laun fyrir margvíslegt stríð i. undanfömum árum. Svo frjettir hann er minnst von- um varir, að hjeraðið sje veitt öðmm, máske lítt reyndum manni, sem ekkert hafði til brunns að bera fra-m yfir hann! Það var ekki haft fyrir því, að auglýsa embættið og gefa honum kost á að sækja um það, eða máske tillögur landlæknis hafðar að engu. Það verður dauflegt á heimili læknisins þann daginn sem þessar freghir berast. Læknirinn og kona hans verða ekki aðeins fyrir sár- um vonbrigðum. Þeim svíður það engu minna að hafa verið beitt svívirðilegu ranglæti. Og ekki bætir það úr skák, þó upplýst sje, að ekkert annað en sálnaveiði og pólitík rjeð veit- ingunni! Að sjálfsögðu brýst líka gremj- an fram í herbúðum læknastjett- arinnar. Allir finna ranglíétið og ganga ekki að því gruflandi, að það getur komið fram við livern sem er. Alt þetta fæðir af sjer andstygð á flokkafargauinum og kosningun- um og óvild til yfirvaldanna, sem láta það siíja fyrir öllu öðru að hanga við völdin og efla flokkinn. Hagur almennings og sanngirni ga-gnvart læknum vegur lítið móti þessu tvennu. Sjálfsagt liefir mörgum komið það til hugar, að hagur almenn- ings yrði best trygður og fólkið ánægðast, ef það fengi aJð kjósa lækna sína eins og prestana. Það .er eðlilegt að raönnum detti slíkt i hug á þessari kosningaöld. Hvað læknana snertir væri þetta sök sjer, ef ganga'mætti að því visu að duglegasti læknirinn hlyti oft- ast kosningu. Læknarnir líta öðru vísi á þetta mál. Þeir ha.lda, að kosning lækna yrði báðum til ills, bæði almenn- ingi og læknunum. Víst er um það, að þess eru engin dæmi, að embættislæknar sjeu kosnir. Aft- ur er það augljóst, að þessi aðferð væri hálfu skynsamari en áskor- anir ]>ær, sem stjómin hefir tekið UPP, °g farið hafa fra-m áður en nokkur veit hverjir eru í boði. Mjer er sem jeg sjái hversu alt myndi ganga til við slíka lækn- i.skosningu: Að sjálfsögðu sæju sumir hve miklu það skifti fyrir hjeraðið að fá góðan lækni, öðr- urn yrði það mest í munni að ná í þann lækni, sem væri vinur þeirra eðe. ættiugi, en langmest myndu þó stjórnmálaflokkamíir láta kosn- ÍDguna til sín taka. Og þeir spyrðu fyrst og fremst um það, hverjum megin læknarnir væri í „pólitík- innn‘ ‘ Úr því þéss er nú vandlega gætt, að velja barnaskólakennara af því rjetta sauðahúsi, þá má geta nærri hvort ekki ])ætti nokk- uru varða um lækninn, ekki síst ef hann væri að öðra leyti mikil- hæfur maður. Þe-ð ]>arf ekki að ganga að því gruflendi, að lækniskosning yrði nýtt deilumál og keppikefli milli flokkanna. Og livernig yrði svo læknarnir settir við slíkar kosningar? Sennilega færu margir, sem ljeki hugur á hjeraðinu, í leið- angur til þess að sýna sig og tala við fólkið. Níi myndi þeim erfitt að sína list sína sem læknar, nema hvað þeir kj-nnu að geta grobbað af einhverjum afrekum sínum, svo sennilega yrði ekki um mikið ann- að, að gera en ræðuhöld og makk við þá flokksleiðtoga, sem þeir ættu helst samleið með. Með þess- um hætti gerði læknirinn sig að skruma-ra, ræðumanni, betlikind eða pólitískum æsinga- og undir- róðursmanni, alt eftir því, sem atvik lægju til. Þetta væri þokkalegur grundvöll- ur fyrir samviskusaman lækni! Og hvernig væri svo læknirinn settur, ef honum tækist að ná kosningu? Hann yrði frá fyrstu talinn pólitískur flokksmaður, er ætti kosningu sína að þakka stuðn- ingi einhvers af flokkunum. Öll- um andstæðingum flokksins yrði í nöp við hann og hætti til að treysta honum lítt. Er það marg- reynt, að það er víðast affara- sælast fyrir lækna, að láta ekki mikið til sín taka um stjórnmál. Þó þeir konii eins fram við alla, hættir andstæðingum þeirra til að tortryggja þá og leggja þeim alt út á verri veg. Og hver er svo tryggingin fyrir því, að sá læknir verði kosinn, sem færastur væri og mest hefði til þess unnið að fá hjeraðið? Ef pólitík eða ættingjafylgi rjeði mestu, þá er hún auðvitað engin, og jafnvel líklegast að óvandað- asti maðurinn hefði orðið hlut- skarpastur, sá sem skrumaði af sjálfum sjer og lastaði keppinauta sína. Þó kyuni ]iað og að koma til greina, hvert orð færi af lækninum. Betri grundvöllur er þetta en þó fer því fjarri, að hon- um sje ætíð að treysta. Stefna læknapna er sii, að em- bætti sjeu veitt efitir verðleikum, án þess nokkuð tillit sje tekið til afstöðu þeirra til stjórnmálanna. Arerðleikana vilja ])eir láta. þá meta, sem best, hafa vit á ])eim hlutum, hvort sem það er land- læknir eða heilbrigðisráð. Hins- vegar telja þeir sjálfsagt, að ]>eim einum sje embætti veitt, sem ætla má að sje fullfær til þess að leysa störf sín vel af hendi. Þó þessi aðferð tryggi það ekki fyllilega, að embættin sjeu veitt svo vel sem vera skyldi, þá þarf milda trú til þess að ætla, að kosningar lækna gæfust betur. Þá dyttu menn fyrst úr ösk- unni í eldinn. Niðurl. Y oung-samþyktin. Berlín, 7. júní. United Press. FB. I þjóðarboðskap stjórnarinnar, sem áður var um símað, er kom- ist svo að orði, að forsendur Youngsamþyktarinnar unr hernað- arskaðabætur hafi reynst skakkar. Ennfremur, að Þjóðverjar hafi gert alt, sem í þeirra valdi stóð til þess að standa við skuldbind- ingar sínar. Nú liafi þær byrðar þegar verið lagðar á þjóðina, sem bún sje að sligast undir, og stjórn- inni sje það Ijóst., að viðskifta og fjárhagsaðstaða þýska ríkisins sje í rauninni sú, að hin bráðasta og mesta nauðsyn sje á því fyrir ríkið, að dregið verði til muna úr þessum byrðum. Hnattspyrnumðt fslands. Annar leikur. K. R. vinnur Val mpð 2:0. 1. hájfleikur. Áhorfendur höfðu gert sjer giikl- ar vonir um góðau leik að þessu sinni og mun enginn hafa- fyrir vonbrigðum orðið — hvað það snertir — því vel og drengilega var leikið af beggja hálfu. Kapp inikið var í báðum flokk- uin þegar frá upphafi leiksins. Þó var meiri sókn af liendi K. R. Jiannan hálfleib; enda áttu þeir undan vindi að sækja. Fyrsta skot á mark kom frá Gísla, en Jón greip knöttinn vel. Attu báðir flokkar mörg falleg áhlaup, og voru áhlaup Vals fult eins hættuleg, en verðú’ beggja flokka voru starfi sínu vaxnir og hrundu öllum áhlaupum. Þegar tæpar 3 mín. vora eftir af hálfleik gerði K.R. hættulegt áhlaup eins og svo oft áður og nú tókst þeim að skora. Kom knött- urínn frá Jóni Sveinssyni fyrir mitt mark Vals, til Þorsteins, en hann hljóp. fyrir knöttinn og ljet hann renna t.il Gísla, sem þagar skoraði mark. Var ógerningur fyr- ir markvörð Vals að verja það mark. Þorstéinn gerði alveg rjett í því að skjóta ekki sjálfur því Gísli tóð betur við til skots. Þær mínútur, sem eftir voru af hálfleik, hjelt K.R. sókninni og bggar, 30 sek. voru eftir af hálf- leik skoraði Gísli annað mark. 2. hálfleikur. Meiri hluta hálfleiks var mikil sókn Valsmanna, en ]>ó átti K.R. mörg hættuleg áhlaup, en varnir beggja ljetu engan bilbug á sjer fínna og endaði ])essi hálfleikur þannig að hvorugum tókst að skora. í heild sinni var þessi leikur hinn prýðilegasti eftir þeim mæli- kvarða sem hjer er hægt að leggja á knattspyrnu. Allir leikmenn ljeku drengilega og verð leikurinn ])ví áhorfendum til skemtunar, enda varð nú lítið vart, við óp og köll og er það vel farið. Markverðir stóðu báðir vel í stöðu sinni, og vörðu oft vel. En Eiríkur Þorsteinsson liefir þann galla- að sparka, stundum þegar Iiann á að nota hendurnar. Þó bar minna á þeim galla nú en oft áður. Jóni Kristbjömssyni verður eigi kept þau mörk sem skoruð voru. Þau var ekki hægt að verja. Bakverðir voru allir góðir. Þó bar Sigurjón Jónsson mjög af hin- um. Er hann án efa besti bak- vqrður hjer nú. Framvwðir: Þar var Björgvin Sehram bestur eins og svo oft áð- ur. Daníel Stefánsson hefir verið betri og enn hefir hann þann gallan að skalla knöttinn alt að því niður við jörð, það er altof hættujegt og á aldrei að sjást. Allir hinir fram- verið beggja. liða, spiluðu vel og drengilega frá byrjun til enda, og áttu mikinn þátt í því hve leik- urfnn varð skemtilegur áhorf- endum. Framherjar Vals náðu aldrei þeim tökum á samleik, sem sjest hefir svo oft áður hjá þeinr. Sjer- st.aklega tókst þeim ekki vel þegar upp undir mark var komið. Þeir höfðu það sem Englendingatjialla ,,off day“. Voru óheppnir, og vildi stunduni mistakast. Þeir eru allir góðir leikmenn, en í þetta sinn var „eitthvað“ að. Má'áreiðanlega búast við þeim í öðrum ham síðar í sumar, og hveraig fer þá ? Frainherjar K. R. Þar bar mest á Þorsteini Einarssyni fpringja liðsins. A hann ef til vill mestan iþáttinn í sigri K. R. í þetta sinn, þó sjálfur skoraði hann gkki mörkin. Það er altaf skemtilegt að sjá Steina. á vellinum (hann minn- ir undirritaðan altaf á Friðþjóf Thorsteinsson). Vil jeg nota tæki- færið og bjóða hann velkominn heim aftur og vona að hann verðn hjer sem lengst í knattspyrnu í- þróttinni til gagns og áhorfendum til ánægju. Hinir framlierjarnir voru allir eins og maður hefir sjeð þá besta áður, og þó Gísli skoraði tvisvar þá eiga hinir líka sinn mikla ])átt í sigrinum. Samanburður á leik og leik- mönnum beggja í lieild. Leikurinn var mjög jafn. Varnir og fram- verðir beggja ákaflega. líkar I heild tekið. Framherjar K. R. ákveðnari fyrir framan mörk og betri samleikur hjá þeim, og á því vann K.R. leikinn. K.R. er mjög vel að sigri þess- um kominn, en livort þeir sigra Val í næsta kappleik þeim í milli ]iað þori jeg ekkert a-ð fullyrða um. K.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.