Morgunblaðið - 25.06.1931, Side 3
I
■mmsummiiiiiiiiiiimiiiiiiiimHiiiuniHuiutiuuiiiiiiiie
ÍTtgaf.: H.Í. Árvakur, RajkJavIk
RltatjArar: Jön Kjartanaaon. =
Valtýr StafAnaaon. E
Rltatjörn og afgrelOala: |
Auaturatrœti S. — Blml 600. =
Augl^sinKaatjörl: B. HafberK. i
AuKlýalnKaekrifatofa: —
Austuratrœtl 17. — Blml 700. =
Helmaalmar: E
Jön Kjartansaon nr. 741. =
Valtýr StefAnason nr. 1220. =
B. Hafberg nr. 770. E
ÁakrlftaKjald: É
Innanlands kr. 2.00 A mAnuBl. =
Utanlands kr. 2.60 A mAnuOl. =
f lausasölu 10 aura elntaklB.
20 aura meB Leabök.
nsmiiimmimmimmimmmimmimmiimimmuuma
Frá Vestmannaeyium.
Símtal 24. júhí.
Mikið mannvirki.
Vestmannaeyjar hafa nú ráð-
ist í það að gera voldugan sjó-
geymi úti hjá „Skansinum“. A
hann að taka 400 smál. af sjó,
óg verða hafðar rafdælur til þess
að dæla sjónum í hann. Geta ])ær
fylt hann á 2 tímum. Sjórinn er
tekinn utan hafnargarða og er því
hreinn.
Síðan verða lagðar pípur frá
geyminúm til allra fiskþvotta-
liúsa í hænum, því að sjóinn á
aðallega að nota til fiskþvotta.
Er „Skansinn“ svo hár, að nógur
kraftur verður á sjónum þega'r
inn, í "bæinn kemur.
Sjóleiðsia þessi er þó ekki ein-
göngu ætluð fiskhúsunum, held-
ur einnig slökkviliðinu, ef elds-
voða ber að höndum, og eins til
þrifnaðar innanbæjar (til að þvo
tfiskkrærnar og pallana).
Það er nú um vika síðan að
þyrjað var á verkinu.
i
Olíugeymar.
Olíuverslun íslands er nú að
láta gera uppfyllingu hjá Báta-
skersbiyggjunni og ætlar síðan
-að reisa þar mikla olíugeyma.
Verður olían leidd í pípum niður
ibryggjnna ,í báfa og skip.
Vatnsból.
er bæjarstjórnin að láta gera inn
1 Herjólfsdal. Er þar lind, sem
aklrei þrytur og kemur hún fram
úr gömln'holræsi, hlöðnu úr steini.
Verður ækkert raskað við vatns-
leið.slunni, heldnr gert stórt vatns
rból fyrir framan lindina, sem á
að verða til vara ef önnur eins
vatínþvandræðfl ber að höndum
<®ins <og verið hafa- í sumar.
Fiskiskapnr.
Tíu bátar róa nú úr Eyjum,
ýmist með „snurrevaad“, eða á
lúðu. Belja þeir aflann í enska
togara, sem komnir eru hingað
;til kaupa.
Reynt að bjarga báti.
í vetur strandaði á Söndunum
stór vjelbátur frá Danmörku.
Var h ann s*vo 'boðinn upp og
keyptu þéir hann Sighvatur
Bjamason skipstjóri og Gunnar
Jónsson hátaslhiður. í fyrradag
lögðu þeir á stað hjeðan á stórum
ibáti, með 8 menn, til þess að reyna
að ná bátnum út. Vita menn
<ekki enn hverhig ]>að gengnr, en
hætt er við að slæmt sje orðið við
Sandana núna.
Ungbamavernd Líknar Bára-
götu 2 (gengið inn frá Garða-
stræti). Læknir til viðtals kl. 3—
4 á föstudögum.
Zeppelíaspóstnriim.
Einn af framtíðardraumum okk
ar íslendinga nú á tímum er það,
að flugpóstferðir komist á milli
íslands og annara landa.
Nú í fyrsta skifti er . von á
póstferð lijeðan loftveg til út-
landa, er lcftfarið mikla Graf
Zeppelin kemur hingað eftir
nokkra daga. Færi mjög vel á því,
að Reykvíkingar sýndu hug sinn
til loftpóstferðanna, með því að
nota þessa fyrstu loftpóstferð, þó
ekki væri nema til þess að senda
kunningjum sínum og vinum sem
í fjarlægð bria orðsendingu með
Zeppelin greifa. Slíkar brjefa-
sendingar munu lengi geymast til
endurminningar um þessa fljót-
ustu póstferð milli íslands og
meginlandsins.
Burðargjald undir álmenn brjef
er 2 krónur, en undir brjefspjöld
1 króna. Sjerstök frímerki verða-
notuð' í þessa férð, sem alls ekki
verða notuð við annað tækifæri.
Auka þau a<S sjálfsögðu mjög
verðgildi þeirra póstsendinga, sem
með loftfarinu verða sendar.
Knattspyrnnkeppni
Reykjaviknr.
Knattspyrnuráð Reyk j avíkur
hefir í ár breytt tilhögun liins svo-
kallaða „Reykjavíkur-móts“ á
þann veg að á mótinu keppa f je-
lögin nú tvisvar hver við annað, í
stað einu sinni áður. Kappleikum.
fjölgar því um helming á þessu
liaustmóti, en leilcunum verður
þannig niður raðað, að í hverri
viku verður aðeins liáður einn
kappleikur, svo að mótið hefst nú
að mun fyr en venja er til.
Vinningar verða eins og við önn
ur mót reikna-ðir í stigum, en fyrir
hvern unninn leik fá fjelögin 2
stig, en 1 stig fyrir jafntefli. Það
fjelag, er hæsta fær stigatöluna,
vinnur mótið.
Þessi tilhögun, sem tíðkast víð-
ast. hvar erlendis er líkleg til að
glæða áliuga knattspyrnumanna
og almennings fyrir þessari góðu
og skemtilegu íþrótt, því með
þessari tilhögun standa fjelögin
jafnara að vígi, tilviljunin má sín
minna og knattspymumennirnir
haldast í þjálfun alt sumarið.
Keppt er um „Skotabikarinn"
og nafnbótina „Besta knattspyrnu
fjelag Reykjavíkur“.
Þjóðverjar fá lán í U. S. A.
* United Press. FB.
Washington, 23. júní.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum íhugar stjóm Federal Re-
serve bankans lánveitingu til
handa þýska ríkinu, en þess er
ekki getið hve lánsupphæðin sje
stór. Engar fullnaðarákvarðanir
hafa enn verið teknar.
V erksmiðjusprenging.
Poole, Doreet, Engl.
United Press. FB.
Tíu raenn hiðu bana, en nítján
meiddust, er sprenging varð í
sprengiefnajverksmibju á Holton
Heath, í sex mílna fjarlægð frá
Poole.
MORGUNBLAÐIÐ
Belnagrind fnndin
í Vestmannaeyjum.
Þegar verið var að grafa fyrir
grunni hins mikla sjógeymis í
\restmannaeyjum, sem sagt er frá
á öðrum stað í blaðinu, kómu
menn niður á beinagrind af kari-
manni, . Var hún feitthvað 1 y2
rnetra undii* yfirborði og lárjett
austur og vestur. En sýnilegt var,
að ékki hafði maðurinn verið graf-
inn í kistu, heldur grjóti hlaðið
utan að honum og helst- sú hleðsla
enn greinilega. Beinin hafa verið
flutt í kirkju og verða þar grafin.
Beinagrind þessi fanst nyrst í
svonefndu Miðhúsatúni. En fyrir
tveim árum var verið að grafa
fyrir húsgrunni syðst í því túni
(og eru um 150 rnetrar á milli).
Þar fundust þá margar beinagrind
ur og lágu sumar óreglulega, eins
líkin liefði verið dysjuð þar í einni
lirúgu.
Ekki er gott að segja hvað bein
þessi muni gömul, en róstiisamt
var oft í Eyjum hjer fyrram og
bardagar við útlendinga. Mun þá
ekki hafa verið hugsað um að fá
kirkjuleg, þeim útlendingum er
fellu.
'••• ••••
Tillögnr Hoovers.
Rómaborg 24. júní.
United Press. FB.
ítalska stjórnin liefir fallist á
tiRögii Hoovers í grundlvallar-
atriðum.
París, 24. júní.
United Press. FB.
Frakkneska stjórnin hefir fall-
ist á ráðagerð Hoovers með þeini
fyrirvara, að Youngsamþyktin
verði ekki feld úr gildi.
Lissabon, 24. júní.
United Press. FB.
Stjórnin í Lissabon fhefir fall-
ist á tilboð Hoovers forseta.
Rómaborg, 23. júní.
United Press. FB.
Stjórnin í Italíu hefir fallist á
tilboð Hovers forseta, að því ti’lr
skildu að Þýskaland og Austur-
ríki hætti við tollhandalagsáform
sín.
Washington, 23. júuí.
United Press. FB.
Sendiherra Austurríkis liefir til-
kynt utanríkismálaráðuneytinu, að
stjórnin i Austurríki hafi fallist á
tilboð Hoovers.
Talið er, að ameríska stjómiu
búist við gagn-tillögu frá frakk-
nesku stjóminni, en Hoover sje
reiðubúinn til þess að hafna henni,
.eii kurteislega. Embættismenn
Bandaríkjanna hjer leggja áherslu
á. að innan viku verði að vera hú-
ið að koma þessu í kring, svo til-
legan verði framkvæmd frá 1. júlí
n.k. eða byrjun fjárhagsársins.
Ogden Mills, undir-utanríkis-
málaráðherrann, hefir sent frakk-
nesku stjórninni tilkynningu fyrir
liöud amerísku stjórnarinnar, til
þess að leggja að Frökkum að
fallast á áform Hoovers. í tilkynn-
ingu þessari er leitast við að sýna
frani á, að Frakklandi sje það
cinnig í hag, að fallast á tillögur
Hoovers.
i '
(þrðttafðrin.
ísafirði, 24. júní.
K. R. kom liingað í morgun kl.
10 eftir skemtilega ferð. Var
flokknum boðið í bílum inn í
skóg og stóð skátafjelagið Ein-
lierjar fyrir risnu þar.
Vegna sýningar flokkanna sem
hófust kl. SVá á Iþróttavellinum,
var öllum Búðum í kaupstaðnum
lokað kl. 5 svo að se»i flestir gæti
fengið að horfa á, enda var fjöldi
áhorfenda á vellinum.
Fyrst var sýnd fegurðarglíma-
og þá bændaglíma. Þegar á eftir
var fimíeikasýning kvenna og
þótti hvort tveggja takast ágæt-
lega.
Kl. 8V2 í kvöld verður knatt-
spyrnu ka-ppleikur við ,,Hörð“.
Lagt á stað til Siglufjarðar
kl. 11.
HandMæði
í mjðg fjðlbreyttn
úrvali.
Verslunin Egiil lacobsen.
vinna bug á erfiðleikum og arui-
streymi.
B. G.
HaimsflHgtð.
Ilarbour Graee. 23. júní.
United Press. FB.
Flugmennirnir Gatty pg Post
léntu hjer kl. 11.45 árd. (Eastem
Standard tími).
Síðai': Gatty og Post lögðu af
stað lijéðan í áfangann yfir At-
lantshaf kl. 2.27 síðd. (E. S. tírni).
Stormur ð Mont Blanc
heitir myndin, sem Nýja Bíó sýn-
ir þessa dagana. Mynd þessi er
alveg einstök í sinni röð, tekin
af Aafa-fjelaginu í Berlín nieð
aðstoð frægasta fluggarps þjóðr
verja, Erns Udet, og eins frækn-
asta fjallgöngumanns þeirra, Sepp
Rist. Ank þeirra leikur hin
heimsfræga- leikkona Leni Riefen-
sthal, sem kunn er frá fyrri mynd
um þýskum, er sýndar hafa ver-
ið lijer. Óhætt er að fullyrða, að
pngin mynd liefir vakið meiri at-
hygli, af þeim, sem gerðar em
þennan vetur. Var jeg viðstadd-
ur frumsýningu liennar í Berlín
og hefi jeg aldrei sjeð eða heyrt
jafn-ótvíræðan fögnuð hjá bíó-
gestum. Dómar hlajðanna vora
líka á einn veg — að þetta< væri
besta. talmynd, sem Þjóðverjar
enn hefði tekið og jafnaðist hún
fyllilega viú hinar bestu þöglu
myndir Þjóðverja, sem heinsfræg
ar voru orðnar, áður en talmynd-
ir komu til. — Er það eftirtekt-
arvert, þar sem fæst þýsk blöð
hafa enn. viðurkent, að talmynd-
ir ættu sjer annað eins listgildi
og þöglu myndirnar vom búnar
að ná á sínum tíma.
Myndin lýsir á eftirminnileg-
an hátt fegurð, Iirikaleik og
grimd Alpafjallanna. Á smekk-
legan hátt hefir höfundi liand-
ritsins tekist, að fljetta inn í hin-
ar hugnæmu náttúmlýsingar
fögru ástaræfiutýri — milli
stúlkunnar í stjömutuminum
(Leni Riefensthal) glg vísinda-
mannsins í rannsóknarkofanum
uppi á Mont Blanc (Sepp Rist).
— Steypt, er í fullkomna lieild,
slysum vísindamannsins, tilra-un-
um fjallgöngumanna til að bjarga
honum, hinu aðdáanlega þrekvirki
fluggarpsins og fórnfýsi stúlk-
uqnar.
iMyndin er snildarleg lýsing á
bardaga mannsins við höfuðskepn
úrnar og hún á mikið erindi til
íslendinga — sem oft og tíðum
eiga í samskonar baráttu. Sam-
fara liinuni hrikalegu hamförum
storrnsins sjest hin harðgerða
hreysti og óbilandi hugrekki
fjallagarpanna. Er það lærdóms-
ríkt fyrir íslenska ferðamenn og
íjiróttamenn. En niest er um vert
liinn dásamlega lofsöng um karl-
mensku, hugprýði og drengileik
— sem gerir hana hugnæma öll-
um, sem sækja fram og • þrá að
London 24. júní kl. 14.10.
TJnitéd Press. FB.
Frjettst hefir, að Post og G atty
liafi lent kl. 1. (breskur sumar-
tími) nálægt Chester.
Liverpool, 24. júní.
United Press. FB.
Fregnin um lendingu flug-
mannanna Gatty og Post hefir
verið staðfest. Eftir stutta við-
dvöl hjeldu þeir áfram til niegin-
landsins og bjuggust við að lenda
annaðhvort í Berlín eða Moskwa.
Liverpool 24. júní.
United Press. FB.
Post og Gatty ljetu ágætlega
yfir sjer, e,r þeir höfðu lent,’en.
kváðust ekki geta neitað því afi
þeir væri dálítið þreyttir. Kváð-
ust þeir hafa haft mikla ánægju
af fluginu, nema 3—4 klukku-
stundir, en þá var rigning. Afi
þeim tíma liðnum glaðnaði tíl
aft.ur. Þeir vom seytján stundir
yfir hafið. Þeir kváðust gera sjer
vonir um að ljúka. heimsfluginu
á skemri tíma en ráðgert er. Þeg-
ar þeir höfðu hvílt sig dálitla
stund, neytt matar, og fengið
bensínforða, hjeldu þeir áí'ram
fluginu.
London, kl. 19,55.
Post og Gatty lentu í Hannovcr?
kl. 6.20 og lijeldu áfram til Berlín
kl. 7.10.
London kl. 20.57.
Post, og Gatty lentu á Tempelfc-
lioferplatz í Berlín kl. 8.30.
Síðar:
Post, og Gatty leggja af stað á
fiintudagsmorgun áleiðis til
Moskwa. Eru þeir vongóðir um,
að hika linattfluginu á skemra
tíma en Graf Zeppelin.
Nýtt Atlantshafsflug með
viðkomu á íslandi?
Harþour Grace 24. júní.
United Press. FB.
Flugmennirnir Hillig og Ho-
iriis(?) lögðu af stað hjeðan í
Atlantshafsflug kl. 3.24 f. h. (Ea-
stern Standard tími). Þeir ráð-
gerðu að lenda í Danmörku.
Útvarpið í dag: Kl. 19.30 Veð-
urfregnir. Kl. 20.30 Grammófón-
hljómleikar Mosart: Quintett í
Es-dúr. Kl. 21 Veðurspá. Frjettir.
Kl. 21.25 Grammófónhljómleikar_
I (tvísöngur).