Morgunblaðið - 09.07.1931, Page 3
UORGUNBLAÐIÐ
w
i
Öts«í,; M.f. Árvaknr, KarkjnTik =
Rltatjörar: Jön KJnrtanMon.
ValtSr titufkuaaon, =
Stltítjörn og afgrelt!*!*: =
Austuratræti 3. — Bíml 600. =
AUKlýaingaatjöri: K. Kafberg. =
knglýalngaakrifatofa: =
Auaturatrsstl 17. — Simi 700. =
Kelmaalmar: =
Jön KJartanaaon nr. 74».
Valtýr Stefánaaon nr. 1»Í0. =
H. Hafberg nr. 770. =
Áakrlftagjald: =
Innanlands kr. 2.00 & má.nuSl. =
IJtanlanða Kr. 2.50 á ooAnuöt. =
1! lauaaaölu 10 aura elntakiO. =
20 aura B>eO Uesbök. =
'llllllliniillllllllllllllllllllllllllllllllllllllilillilllllllilllllllllrn
Framsóba
ósamHindanna.
Tíminn setur nýtt met.
Sagt var frá því hjer í blaðinu
um daginn, að landstjórnin hafi
nýlega veitt Þorkatli Jóliannes-
syni magister kennaraembætti við
kennaraskólann nú í vor. Jafn-
framt var frá því skýrt, að skóla-
stjóri Kennaraskólans vissi ekki
hverskonar veiting þetta væri, því
engin staða væri laus við þann
skóla,
Sömu sögu var að segja frá
fræðslumálastjóra. Hann vissi ekk-
ert, um embættisveitingu þessa,
hafði ekki verig spurður til ráða.
Ásgeir Ásgeirsson fræðslumála-
stjóri er víst sjaldan spurður til
ráða.
Nú leið nokkur tími og ekkert
hljóð kom úr stjórnarhorninu.
En á laugardaginn var birtist
grein í Tímanum á þriðju síðu í
5 dálki, með undirskriftinni B.
P., þar sopn sagt er að „Mbl. ætti
að kynna sjer það, að við kenn-
araskólann voru í vetur þrjár laus-
ar stöður“.
Morgunblaðið hefir „kynnt,
sjer“ málið, á þann einfalda hátt
-að spyrja skólastjórann um hverj-
ar væru þessar „þrjár lausu stöð-
ur“, og svaraði hann því, að þær
liefðu engar verið.
Þessum B. P. í Tímanum, (sem
■sennilega er einskonar misritun
fyrir J. J.) hefir þótt, viðfeldnara,
að skrökva því ekki blátt áfram
að aðeins hefði verið ein laus
staða við skólann, iheldur þrefald-
ar hann ósannindin, og telur lausu
stöðurnar þrjár.
Við skólamn kendu í vetur auk
skólastjórans og S. Arasonar, þeir
Guðgeir Jóhannsson og sr. Sig.
Einarsson, og voru þeir settir í
kennarastöðurnar. En engum heil-
vita manni getur dottið í hug að
kalla þær stöður lausar, meðan
þessir menn gegna embættunum
og taka laun sín. Og hvaðan B.
P. Tímans hefir heyrt um þriðju
„lausu stöðuna“ er fullkomlega
hulið. — Hitt er það, að eftir
undirtektir kjósenda 12. júní und-
ír Eramsóknaróstjórnina, er ekki
nema eðlilegt, að þeir, sem í Tím-
ann rita, stælist í meðvitundinni
um það, að landsmenn þeir, sem
Eramsókn fylgja, geri a-lls engan
greinarmun á sönnu og lognu.
Á sviði blaðalyga má því bú-
ast við mikilli framsókn meðal
stjórnarliðsins.
Aflinn var talinn 370.968 þur
skpd. hinn fyrsta júlí.Er það held-
ur minna en í fyrra, en talsvert
mikið meira heldur en árin þar á
undan.
Samtaá stofnað
miUi fisksölnsamlaga á Aust-
fjörðum.
Norðfirði, 8. júlí.
í gær og dag hefir staðið yfir
hjer fulltrúafundur fisksölusam-
laga á Austfjörðum. Fundurinn
samþykti að stofna samband milli
samlaganna og samþykti lög fyrir
sambandið, Tilgangur samlagsins
er aðallega sá, að annast útflutn-
ing o.g sölu ísvarins fisks og sölu
saltfisks fyrir samlögin. Stjórn-
ina skipa Páll Þormar kaupmaður
á Norðfirði, formaður, Ólafur
Sveinsson kaupm. á Eskifirði, vara
form., og meðstjómendur Sigurð-
ur Guðmundsson framkvstjóri á
Seyðisfirði, Gísli Kristjánsson út-
vegsbóndi á Norðfirði. Þorgils
Ingvarsson útbússtjóri á Eskifirði
og Marteinn Þorsteinsson kaupm.
á Fáskrúðsfirði. Formaður hefir
prókúruumboð fyrir sambandið. —
Fundurinn samþykti svohljóðandi
áskorun: „Stofnfundur sambands
fiskisamlaga Austfjarða skorar á
Alþingi að heimila Skipaútgerð I
ríkisins að taka á leigu alt að
4 skip til útflutnings á ísvörðum
fiski frá Austfjörðum á næsta
hausti, ekki síðar en frá 1. sept-
ember.“
Sfldveíðar Dana
\
hjá íslandi.
Seint, í júní lagði af stað frá
Danmörku síldarleiðangurinn, sem
Andreas Godtfredsen hefir komið
npp og stjórnar. Godtfredsen
hafði hjer eitt skip til síldveiða
í fyrrasumar, „FuIton“, sællar
minningar, en það mun hafa ver-
ið tap á þeirri útgerð. Nú hefir
Godtfredsen fengið ýmissa danska
stórlaxa í lið með sjer, svo sem
sjálfan Stauning, Halfdan Henrik-
sen þjóðþingmann, Lykkeberg
stórkaupmann, Thygesen konsúl,
Stahlschmidt skrifstofustjóra fisk-
veiðastjórnarinnar o. fl.
Skipin í leiðangrinum eru 14
alls. Aðalskipið (móðurskipið) heit
ir „Hans Tausen“ og á því er
Godtfredsen sjálfur. Veiðiskipin
eru gufuskipið „Fulton“, nýsmíð-
uð, fiskiskúta, sem heitir „Tih.
Stauning“ og 11 færeyskir kútt-
erar.
Afvopnun.
Bandaríkjastjórn ætlar að beitast
fyrir því, að dregið verði stórum
úr vígbúnaði.
Washington, 8. júlí.
United Press. FB.
United Press liefir fregnað það
frá áreiðanlegum heimildum, að
vegna þess hve vel gekk með
framgang gjaldfreststillögu Hoo-
vers forseta, áformi ameríska
stjórnin að sækja það af ekki
minna kappi á afvopnunarstefn-
unni í Genf í febrúar, að dregið
verði úr vígbúnaði til stórmikilla
muna.
Mikil laxveiði í Noregi.
NRP. 8. júlí. FB.
Laxveiði í sumar hefir verið
með mesta móti víða í Noregi.
Þannig er nýfrjett, að tveir enskir
sportveiðimenn hafi á tveim dög-
um veitt laxa, sem vógu alls 700
pund.
ReiaMið
á Bjarmalandi.
Á þinginu 1929 flutti Gunnar
Sigurðsson frá Selalælc þingsálykt-
unartillögu þar sem stjóminni var
lieimilað að flytja inn nokkrar arð-
berandi dýrategundir, þ. á. m.
silfurrefi. Tillagan var samþykt.
Strax sama ár fekk Emil Rokstad
á Bjarmalandi heimild til að flytja
inn fjóra silfurrefi, tvö karldýr
og tvö kvendýr. Keypti hann dýr-
in í Noregi og komu þau hingað
haustið 1929. Næsta vor fekk hann
11 yrðlinga og hafði þá 15 refi
alls í búi sínu. Haustið eftir seldi
Rokstad nokkra ýrðlinga hjer
lieima, en keypti nokkur ný pör
í staðinn. Eru nú alls 10 pör í
refabúinu á Bjarmalandi og á
Rokstad meiri hlutann sjálfur.
í vor var stofnað hjer í bæn-
um ,Veiði- og loðdýrafjelag ís,-
la.nds“, og var Gunnar Sigurðs-
son aðal forgöngumaður þeirrar
fjelagsstofnunar. Er tilgangur
þessa fjelags m. a. sá, að stuðla
að fjölgun dýrategunda á íslandi
og stofnun hagsmunafjelaga til
grávöruframleiðslu. Bráðabirgða-
stjórn þessa fjelags bauð blaða-
mönnum í gær að skoða refabúið
á Bjanmalandi. Rokstad sýndi
komumönnum búið. Fer þarna
einkar vel um dýrin. Hvert par
er -í sjergirðingu og hefir bústað
út af fyrir sig; í girðingunum
eru grenkassar og hefst grenlægj-
an þar við með yrðlingunum. —
Eigi líður langur tími þar til yrð-
lingamir eru orðnir svo sprækir,
að þeir fara út úr „greninu“. í
gær voru flestir yrðlingamir 2—
3 mánaða gamlir og ljeku þeir sjer
í girðingunni og klifruðu upp um
vírnetið. 1 einni girðingunni var
íslenskt refa-par (blárefir); eru
það ársgamlir refir; voru þeir
lang styggastir og hafa ekki tímg-
ast enn. Sumir silfurrefimir eru
svo spakir, að þeir átu iir lófa
Rokstad, þótt margir ókunnugir
væru þarna viðstaddir.
Af reynslu þeirri, sem fengin
er hjer á landi með ræktun silfur-
refa, má telja fullvíst, að íslenskt
loftslag og staðhættir eiga mjög
vel við þessi dýr, enda liggur ís-
land á sömu breiddarstigumoglönd
þau, er best skilyrði hafa til loð-
dýraræktunar. Þess ber og að
geta, að í öðrum löndum hefir
orðið vart við sjúkdóma í dýrun-
um, en hjer hefir aldrei borið á
neinu slíku.
Islenskir bændur ættu vel að
kynna sjer ræktun þessara dýra
og loðdýra yfir höfuð. Hjer er
um að ræða mjög arðsama atvinnu
grein.
Hjer á Suðurlandi munu nú
þegar vera fjögur silfurrefabú að
meðtöldu Bjarmalandsbúinu; á
Ægissíðu, Gunnars'hólma (Gunnar
í Von) og hjá Steingrími Pálssyni
við Reykjavík; Bjarmalandsbúið
er lang stærst. Einnig munu vera
tvö bú á Austurlandi.
Morgunblaðið mun síðar skýra
ýtarlega frá þessu merkilega ínáli.
Kappsigling.
NRP. 8. júlí. FB.
í kappsiglingunni um gullbikar-
inn í Gautaborg í gær bára Ame-
ríkumenn sigur úr býtum. Ríkin
Notegur og Bandaríkin hafa nú
sinn sigurinn hvort.
GræHlaudsdeflan.
(Tilkynning frá sendiherra Dana)
Á fimtudaginn var Grænlands-
deilan lögð fyrir utanríkismála-
nefndina. Ritzaus frjettastofa
kom þá fram með fyrirspurn um
það, livort efni norsku orð-
sendingarinnar 30. júní hefði ver-
ið birt orðrjett. Því var svarað,
að norska stjórnin hefði farið
fram á það, að stjórnir beggja
ríkja lýstu yfir því, að fra-m til
1944 skyldi hvorlti stofnað norskt
nje danskt lögregluvald í Austur-
Grænlandi og hvorugt ríkið skyldi
helga sjer þar land,
Eftir frekari fyrirspurnir hef-
ir frjettastofan fengið það svar,
að danska stjómin hafi svarað á
þann hátt, að slíkur samningur
kæmi í bág við samning þa-nn er
danska löggjafarþingið hefði sam-
þykt 1924, að hann væri að vísu
í samræmi við það, sem Norðmenn
hafa haldið fram, að Austur-
Grænland væri einkis eign, en
kæmi í bág við það sem Danir
hefði allt af lialdið fram, að þeir
hefði þar yfirráðarjett.
Frjettastofan spurði þá hvort
danska stjórnin hefði bent á
nokkra leið til málamiðlunar og
fjekk það svar, að ef norska
stjórnin áliti að eigi gæti alt verið
við hið sama og verið hefir þá
liti danska stjórnin þannig á, að
rjettast væri að stjórnir beggja
ríkja vísuðu málinu til sátta-
nefndar, eða gerðardómstólsins í
Haag.
Frá Svíum.
120 ára fyrirætlnn kemst í fram-
kvæmd.
Fyrir nær 120 árum fór ríkis-
erfingi Svía, síðar Carl Johan
XIV. konungur, með 20 þús.
sænskra hermanna til Stralsund, á
móti her Napoleons, sem þá var
kominn að Saxelfi. Til þess að
tryggja undanhald 'hers síns, ef
til skyldi koma, ljet prinsinn gera
bátabrú frá meginlandinu og út
í eyna Rugen. Hann hafði einnig
í huga að gera þarna varanlega
brú, en úr því varð aldrei. En nú
er hugmynd hans tekin upp og
ætla Þjóðverjar nú með tilstyrk
Svía, að smíða jámbrautarbrú á
sundið, einmitt í sama stag og Carl
Johan hafði ætlað að hafa sína
brú. — Þegar þessi brú er fengin,
verða samgöngur milli Stokk-
hólms og Berlínar miklu hraðari
heldur en áður, og er líklegt að
viðskifti Svía og Þjóðverja auk-
ist að miklum mun þegar hún er
fengin.
Ný sútunaraðferð.
Tveir sænskir liugvitsmenn,
Wrange og Friberg ihafa um mörg
ár unnið að því að finna upp nýja
siitunaraðferð, og hafa nú fyrir
skemstu reist sútunarverksmiðju
skamt frá Stokkhólmi. Þar hafa
þeir þegar sútað 10.000 húðir, á
miklu skemri tíma en áður hefir
þekst, og auk þess er sútunin
miklu vandaðri en venja er. Húð-'
irnar eru fullsútaðar á einni viku,
og að gæðum og styrkleika gefa
þær ekkert eftir húðum, sem sút-
aðar voru með hinni elstu aðferð,
en ]iá tók sútunin 8—12 mánuði.
Sútunarsjerfræðingar frá ýmiss-
| •'
um löndum streyma nú til Sví-
þjóðar til þess að kynnast þessari
nýju aðferð, sem allir segja að
muni gjörbreyta allri sútun í
framtíðinni.
Nýr blendimálmur.
Kunnur sænskur málmafræðing-
ur, J. Hördén að nafni, hefir fund-
ið upp nýja aluminium blöndu,
sem hann nefnir „Cromal“. Er
liún ljett eins og aluminium, en
hörð og sterk eins og stál, en
bráðnar við 700 stiga liita. Vegna
þessara eiginleika er búist við því
áð „CromaT! verði notað afar mik-
ið til flugvjelasmíða, í skilvindur,
eldhúsáhöld, skipaskrúfur o. m. m.
fl. „Cromal“ er alúminíum, bland-
að með 2—4% af Chromium og
dálitlu af nikkel og manganese.
En blöndunin er leyndarmál hug-
t .
! vitsmannsms.
V erndartollarriir.
Wasliington 8. júlí.
United Press. FB.
Robinson, minnihlutaleiðtogi í
Oldungadeild þjóðþingsins, hefir
samið tilkynningu, sem birt hefir
verið af miðstjórn demokratiska
flokksins. í tilkynningunni kveður
Robinson nauðsyn á því að Hoo-
ver forseti leiti samvinnu við
demokrata um endurskoðun laga
um verndartolla og skorar á hann
að hefja samvinnu þegar. Forset-
anum sje nú gefið tækifæri að
falla frá fyrri skoðunum sínum
í verndartollamálunum, en sú
stefna sem hafi orðið ofan á í
þeim málum á síðari tímum, hafi
að áliti hagfræðinga, haft þau
áhrif, að kreppan liefir lagst langt
um þyngra á Bandaríkin en ella
myndi, utanríkisverslun þeirra
hafi minkað stórmikið vegna tolla-
stefnu stjórnarinnar og atvinnu-
leysi aukigt. • Viðskiftaerfiðleikar
og atvinnuleysi Ba-ndaríkjanna
hafi og, segir Robinson, átt sinn
mikla þátt í alheimS viðskiftaerf-
iðleikum og atvinnuleysi.
Digták.
Bettifoss kom frá útlöndum í
gær. Meðal farþega voru: Jón
Guðbrandsson. Sigríður Claessen,
Jean Claessen, Franz Siemsen,
Daníel Þorkelsson og frú, Marta
Björnsson, Björn Björnsson,
Haukur Þorleifsson, Guðrún
Skaftason, Pjetur Jónsson óperu-
söngvari, Árni Haraldsson, Gunn-
ar Hall, Sverrir Bernhöft, Sigurð-
ur Einarsson frá Ameríku og
margir útlendingar.
Gullfoss ltom fiá útlöndum í
gærmorgun. Meða.l farþega: Jakob
Lárusson, Lárus H. Bjarnason,
dómari, Gunnlaugur Briem verk-
fræðingur, ungfrú Ellingsen.
Brynjólfur Björnsson stúdent,
Björn Fransson stúdent, ungfrú
Anna Magnúsdóttir, Guðmundur
Pálsson, Chr. Fr. Nielsen, Hildur
Grímsdóttir, Jónas Thoroddsen
stúdent, Ingibjörg Briem, Helgi
Björnsson, Jón Björnsson, Gísli
Halldórsson stúdent, Böðvar Guð-
jónsson frá Hnífsdal, Agnar
Norðfjörð stúdent, Stefán S.
Franklin, Sigurður Pálsson og
nokkrir útlendingar.
Fljót ferð. í síðustu ferð Detti-
foss fór skipið á fimm sólarhring-
um, einum tíma og 25 mínútum frá