Morgunblaðið - 10.01.1932, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.01.1932, Blaðsíða 7
M 0 R G C 'J BLAÐIÐ 7 Til kaupenda íifigrjettu. Lögrjetta kemur iit sem tímarit nú frá áramótunum, verður stærsta timarit landsins og reynt að vanda til þess sem best má verða. Fyrsta hefti kemur út um næ&tu mán- -aðamót. Yerð sama og áður. Þorst. Gíslason. að raska rjettu hlutfalli milli fíokka í þinginu. Kröfunni um.jafnan rjett kjós- enda til áhrifa á þingkosning- una, hvar sem kjósandinn er bú- settur á landinu, hafa menn leit- ast sjerstaklega við að fullnægja í ýmsum löndum, með mismun- andi heppilegum árangri. Sem ■dæmi skai jeg nefna Svíþjóð og Bretland. í Svíþjóð eru hlut- fallskosningar í 28 kjördæmum, sem flest hafa 6 til 10 þing- Wenn. Þingmannatala hvers kjör- dæmis er ekki lögákveðin, heldur -ákveðin fyrir hverjar kosningar beinlínis eftir fólksfjölda kjör- dæmanna við næsta manntal á undan, svo að sem jöfnust verði íbúatala á hvern þingmann hvar ■sem er í landinu. Samt sýnir reynslan, að niðurstaða kosn- inga í Svíþjóð verður ekki alveg flokkslega rjettlát, af því að upp bótarsæti vantar ofan á hlutfalls- kosninguna í fleirmenningskjör- dæmunum. I sjerhverju kjör- •dæmi fá einn eða fleiri flokkar afgangsatkvæði, sem fara til ó- nýtis, og fámennu flokkana mun- ar mest um missi þessara af- ftangsatkvæða, og bera því venjul. heldur skarðan hlut frá borði. f Bretlandi er meirihlutakosn- ing í einmenningskjördæmum, með örfáum undantekningum. En lögin um kjördæmaskiftinguna æru nú orðið endurskoðuð mjög •oft með það fyrir augum, að gjöra mannfjölda kjördæmanna sem jafnastan, og fór síðasta ■endurskoðun af því tægi fram 1928. En kosningarnar í lok nóv. síðastl. fóru þannig, að bak við hvern stjórnarandstæðing standa yfir 130 þús. greidd atkvæði, en bak við hvern stuðningsmann stjórnarinnar neðan við 30 þús. atkvæði. Um þriðjungur kjós- endanna var í andstöðu við „þjóð- stjórnina", en þeir fengu ekki Vio hluta þingsætanna. Slíkri tilhögun er naumast bót mæl- andi, og þó verður ekki annað sagt, en að rjettur kjósanda var jafn, hvar sem þeir voru bú- settir í landinu. Krafan um flokkslegt jafn- rjetti kjósenda er miklu þýðing- armeiri en krafan um staSarlegt jafnrjetti, og á því að ganga fyr- ir, að svo miklu leyti sem þær fara ekki saman. Þeirri stefnu er fylgt í tillögum okkar. IV. Viðvikjandi tillögunum um kjördæmaskipun og kosningatil- högun eru menn fyrst beðnir að hafa það í huga, að til þess að gera þær ekki of óglöggar til yf- irlits, höfum við sleppt úr þeim ýmsum minni háttar ákvæðum til útfyllingar, sem óhjákvæmi- legt verður að taka upp í kosn- íngalögin, en ættu ekki að geta valdið neinum verulegum ágrein- ingi, ef menn annars fallast á grundvallartilhögun þá, sem kem ur fram í tillögunum. Fyrst er þá að gera grein fyr- ir, hvers konar kosningatilhögun þetta er. Er það hlutfallskosn- .ng eða eitthvað annað. Er þetta nokkur þeirra þriggja aðferða, sem orðaðar voru á þinginu 1930 og getið er í I. kafla þessara greina? Svarið verður: Þetta er hlutfallskosning í sam bandi við einmenningskjördæmi. í tilhögunina eru tekin upp og samræmd nokkur atriði úr öllum þremur áðurnefndum að- ferðum, svo sem nú skal sýnt. Fyrst eru kosnir 30 þingmenn á mjög svipaðan hátt og nú, í 26 einmenningskjördæmum og 4 í Reykjavík. í þessum hluta kosn- ingarinnar eru þó þau nýmæli, að um leið og hver kjósandi læt- ur í ljós, hvaða frambjóðanda hann vilji kjósa, sýnir hann einnig hvaða flokk hann vilji styðja með atkvæði sínu. Fram- boðin sjálf verða miklu frjáls- legri en nú. Nú má það varla koma fyrir, að tveir frambjóð- endur af sama flokki keppi um þingsæti við kosningu. Það verð- ur að afgjöra bak viðtjöldinfyrir kosningu, hver eigi að veraíkjöri, þar sem um fleiri er að velja, og kjósendur alment ráða oft litlu um þetta. Eftir uppástung- unum verða venjulega fleiri en einn maður af sama flokki í fram boði í hverju kjördæmi, án þess að það skaði flokkinn neitt. Ef þeir til samans fá nógu mörg at- kvæði, þá hreppir flokkurinn þingsætið. Sá af frambjóðendum flokksins, sem fær flest atkvæð- in, hlýtur þingmennskuna, sá næsthæsti verður vara-þingmað- ur, ef hann þá ekki hreppir upp- bótarþingsæti, sem einnig getur komið fyrir. Næst er nú þessi atkvæða- greiðsla í kjördæmunum notuð sem undirstaða undir útreikningi um það, hve marga þingmenn hver flokkur skuli fá alls, og við þann útreikning er Ixmdið alt skoðað sem eitt kjördæmi. At- kvæði allra kjósenda vega þar jafn-mikið, hvar sem þeir eru búsettir í landinu, hvort sem þeir eru í fámennu eða fjöl- mennu kjördæmi. Flokkarnir fá þingmannatölu svo nákvæmlega nærri rjettu hlutfalli við greidda atkvæðatölu sem samrýmanlegt er því, að þingmannatala hvers flokks verður að standa á heil- um, brot úr þingmanni er ekki unt að nota. Þeir flokkar, sem hafa borið skarðan hlut frá borði við kjördæmakosninguna, fá þarna uppbótarsæti. Stungið er upp á, að þingmenn verði aldrei færri en 42, og getur þetta leitt til þess, að allir flokkar fái uppbótarsæti, ef ekki hefir kom- ið fram mjög mikið misræmi milli flokkanna við kjördæma- kosninguna. Loks er landinu til úthlutunar á uppbótarsætunum skift í 6 hlutfallskjördæmi (landshlutana, eins og nú er orðin venja að að- greina þá í Hagskýrslunum). Með þessu vinnst það, að at- kvæði hvers þess kjósanda, sem verður gagnslaust við sjálfa kjör dæmakosninguna, af því að kjós- andinn lendir í minni hluta í sínu kjördæmi, það sameinast at- kvæðum annara kjósenda úr sama flokki og sama landshluta og fellur eða færist yfir á ein- hvern af frambjóðendum flokks- ins í þeim landshluta. Með þessu er það trygt, að einnig uppbót- arsætin dreifist meðal frambjóð- enda um alt land. Einhverjum kynni að detta í hug, að með þessari tilhögun væri sjerstaklega hallað á nú- verandi tvímenningskjördæmi, þar sem þau eru gjörð að ein- menningskjördæmum í fyrstu umferð. Svo er þó ekki. Að nokk- uru leyti er núverandi sldfting í einmennings- og tvímennings- kjördæmi orðin úrelt, svo sem sjá má af eftirfarandi yfirliti um mannfjölda kjördæmanna samkvæmt aðal-manntalinu 2. des. 1930: íbúar Reykjavík................. 28182 Eyjafjarðarkjördæmi . . 7188 Suðurmúlakjördæmi . . . 5642 Cullbr. og Kjósarsýsla .. 5179 Árnessýsla................. 4910 Akureyri................... 4133 Skagafjarðarsýsla .. .. 4008 Suður-Þingeyjarsýsla . . 3976 Snæfellsnessýsla........... 3646 Hafnarfjörður.............. 3552 Rangárvallasýsla . . .. 3511 Vestmannaeyjar............. 3380 N.-ísafjarðarsýsla .. .. 3220 Barðastrandarsýsla .... 3115 Norðurmúlasýsla .. . . 2777 Borgarfjarðarsýsla . . . . 2688 ísafjörður................. 2511 V.-Isafjarðarsýsla . . . . 2358 A.-Húnavatnssýsla . . . . 2241 Strandasýsla............... 1840 Mýrasýsla.................. 1797 N.-Þingeyjarsýsla . . .. 1744 V.-Skaftafellssýsla . . . . 1725 Dalasýsla.................. 1639 V.-Húnavatnssýsla .. .. 1615 A.-Skaftafellssýsla .. ,. 1136 Seyðisfjörður............... 931 Landið alt 108644 Vjer sjáum af þessu, að tvö af núverandi tvímenningskjör- dæmum (Norðurmúlasýsla og Rangárvallasýsla) eru að fólks- f jölda orðin neðan við mörg ein- menningskjördæmi. Af 30 kjör- dæmakosnum þingmönnum koma rúml. 3600 íbúar á hvern að með altali. Af kjördæmunum utan Reykjavíkur eru sem stendur að eins tvö, sem hafa íbúatölu fyrir fullan l1/^ þingmenn, eða yfir 5400 íbúa, og ættu því frem ur öðrum rjett á að fá fleiri en einn þingmann. Eftir því ætti Reykjavík líka að hafa 8 þing- menn í kjördæmakosningunni, í stað fjögurra. En þessum fjöl- mennustu kjördæmum er samt enginn órjettur ger með uppá- stungunum, því að úthlutun upp- bótarsætanna er þannig háttað, að þau tilfalla fyrst og fremst fjölmennustu kjördæmunum, af því að mannfjöldi þeirra get- ur lagt til atkvæðamagn það, sem til þarf, ef menn sækja ekki kjörfund þar miklu ver en í öðrum kjördæmum. Til skýr- ingar þessu skal þess getið, að samkvæmt útreikningi á kosn- ingunni 1931 eftir þessum regl-. um, hefði Reykjavík fengið alls 10 þingmenn (af 43), Eyjaíjarð- arkjördæmi 3 og Suðurmúla 2. Hins vegar sýnir yfirlitið, að 7 fólkfæstu kjördæmin vantar nokkuð til þess að eiga eftir fólksfjölda !/2 þingsæti af 30. En nú verða þingmenn eftir til- lögunum 42 fæst, og verða lík- Iega venjulega einhversstaðar milli 42 og 45. Miðað við þann þingm.fjölda eru það að eins tvö lolksfæstu kjördæmin, sem eiga ekki tilkall til meira en hálfs þingsætis. En hlutfallskosningin jafnar þetta allt, svo að misræmi milli flokka hlítst ekki af. Takmörk núverandi kjördæma falla saman við ummörk sveitar- stjórnarumdæmanna (sýslna og kaupstaða), en þó er grundvöll- ur skiftingarinnar ekki hreinn. Ef hvert sýslufjelag og hver kaupstaður ætti að vera kjör- dæmi fyrir sig, þá mundi þeim fjölga um 4 frá því, sem nú er: Gullbr.- og Kjósarsýsla og Barða- strandarsýsla eru hvor um sig tvö sýslufjelög, og kaupstaðirn- ir Siglufjörður og Norðfjörður eru ekki kjördæmi út af fyrir sig. Væri þessum fjórum kjör- dæmum bætt í hópinn, mundi af því leiða meiri fjölgun þing- manna eftir tillögum okkar ó- breyttum að öðru leyti, en við viljum stinga upp á, ekki að eins fjölgun um 4 þingmenn, heldur getur líka þar af leitt fjölgun uppbótarsæta. Og svo eru sífelt uppi óskir um skift- ingu sýslna og stofnun nýrra kaupstaða, sem ætti þá að leiða til sjálfkrafa fjölgunar á kjör- dæmum og þingmönnum, ef menn vildu halda þessum grund- velli fyrir kjördæmaskiftingu hreinum. Við teljum því ekki fært að setja skiftinguna i sveit- arstjórnarumdæmi sem fastan grundvöll fyrir kjördæmaskift- ingunni. Með því að í raun og veru er ekki þörf á fjölgun þingmanna nema að því leyti sem leiðir beint af kröfunni, um að þingið verði rjett mynd af skoð- unum kjósendanna, þá lægi má- ske alveg eins nærri að stinga upp á að fækka kjördæmunum með því t. d. að sameina fámenn sýslufjelög, sem lúta sömu lög- sögn. En við höfum talið rjett- ast að draga engar deilur um þetta inn í málið, og stingum því upp á núverandi skiftingu í kjördæmi óbreyttri. V. Þá kem jeg að því höfuðatriði í tillögum okkar, sem menn frá upphafi verða að gera sjer ljóst til fulls, og það er að taia upp- bótarsætanna má ekki vera tak- mörkuð upp á við eða fyrirfram ákveðin, og heildartala þing- mann getur því ekki verið lög- bundin eða fyrirfram ákveðin. Þetta kann að þykja galli, en það er ekki unt að bæta úr hon- um. — Jeg hefi reiknað úrslit tveggja síðustu Alþingiskosninga, 1927 og 1931, eftir þeirri tilhögun, sem við hjer stingum upp á, og eftir atkvæðatölunum, sem Hag- stofan hefir birt. I bæði skiftin hefði tala þingmanna orðið 43, ef þeir flokkar einir eru látnir njóta uppbótarsæta, sem hafa komið manni að einhversstaðar í kjördæmi. Það hefði þurft 13 uppbótarsæti. Ef menn nú hugs- uðu sjer að takmörkdn á tölu uppbótarsætanna, t. d. við 12. sæti, hefði ekki aðrar afleiðingar en þær, að einhver einn flokk- urinn fengi hálfu til heilu þing- sæti minna en honum ber eftir rjettasta hlutfalli, #þá mætti að minsta kosti taka uppástungu um slíka takmörkun til athugun- ar og umræðu. En takmörkunin hefir aðrar afleiðingar, miklu alvarlegri, sem gjöra hana alveg óhafandi við hlutfallskosningar í sambandi við einmenningskjör- dæmi. Til þess að gjöra grein fyrir þessu, verð jeg fyrst að rekja dálítið sögu þessarar kosn- ingatilhögunar. Hlutfallskosning í sambandi yið einmenningskjördæmi er hugsuð upp í Danmörku, og hef- ir hvergi komið til framkvæmda ennþá, svo vitað sé, nema þar. Hún var lögleidd þar 1915 og kosið var eftir henni 1918 til fólksþingsins. Einmenningskjör- dæmin voru þá 114 og uppbótar- sætin 26. Þessi kosning í Damnörku 1918 fór að öllu skaplega. Flokk- arnir fengu þíngfylgi í dágóðu samræmi við atkvæðamagn. En eftir kosninguna birti einn af vísindamönnum Dana, Fr. Zeuth en hagfræðingur, ritgerð í Nati- onalökonomisk Tidsskrift um kosninguna og kosningaraðferð- ina. Hann sýndi fram á að þol- anleg hlutfallsniðurstaða þess- ara kosninga hefði stafað fyrst og fremst af því, að tveir flokk- ar (sósíalistar og radikalir) höfðu verið í kosningabandalagi í mörgum kjördæmum. Ef sv« hefði %kki verið, þá hefðí tala uppbótarsætanna alls ekki nægt til þess að fá þolanlega rétt hlut- föll milli flokka í þinginu. Og þó fann hann annan galla ennþá verri á tilhöguninni, Hann sýndi fram á, að undir eins og menn væru búnir að átta sig á þessari tilhögun, þá biði hún flokkunum upp á að beita brögð- um við kosninguna — öldungis löglegum brögðum — til þess að sumir þeirra gætu náð upp- bótarsætum, án þess að eiga réttmætt tilkall til þeirra. Þetta sýnir hann að gjöra má aðallega á tvennan hátt, annaðhvort meS því að flokkur gengur til kosn- inga undir einu nafni í sumum kjördæmum, yfirleitt þar sem hann á víst sæti við kjördæma- kosninguna, og undir öðru nafni í sumum kjördæmum, yfirleitt þar sem hann veit sig í minni hluta, ellegar með samvinnu milli tveggja, sem beinist að því að ná sem flestum þingsætum handa þessum flokkum til sam- ans, á kostnað annara þingflokka („illoyal Alliance“ kallar Zeuth- er. þetta). Hann sýnir fram á, að eftir atkvæðatölum, sem flokkarnir í Danmörku höfðu fengið við nýlega afstaðnar landsþingskosningar, var sum- um þeirra innan handar að mis- nota kosningatilhögunina svo, að minni hluti kjósenda fengi töluverðan meiri hluta þingsæta, og að þingið gat orðið alveg skökk mynd af vilja kjósend- anna. Kosningin 1918, hafði ekki vakið neina óánægju. En rit- gerð Zeuthens hafði þau áhrif, að ríkisþingið feldi þessi kosn- ingalög þegar í stað úr gildi, og lögleiddi hreinar hlutfallskosn-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.