Morgunblaðið - 20.01.1932, Qupperneq 3
MOBGUNBLAÐlf)
S
fl^í
gRotgttttMttfttft
Ötgref.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Rltstjörar: Jön KJartansaon.
Valtýr Stef&naaon.
Rltstjörn og afgreltJala:
Austurstrœtl 8. — Slaal 800.
Auglýslngastjöri: EJ. Hafberor.
Aug-lýeinKaskrlfstofa:
Austurstrætl 17. — Slaal 700.
Helmaalmar:
Jön KJartansaon nr. 741.
Valtýr Stefánsson nr. 1810.
E. Hafberg nr. 770.
Áskrlftagjald:
Innanlands kr. 8.00 á mánuCl.
Utanlands kr. 1.60 * mánuOL
t lausasölu 10 aura elntaklO.
20 aura meO Lesbök.
íkueikjan
l uið Skolastrœti.
Tveir menn játa að
hafa kveikt í.
Lögreglufulltrúi Jónatan Hall-
varðsson, skýrði Morgunblaðinu
svo frá í gærkvöldi, að upplýst
væri að fullu um íkveikjuna í
papphúsinu við Skólastræti.
Tveir menn voru teknir fastir,
skömmu eftir að íkveikjan var
gerð, grunaðir um að vera valdir
að henni. En nokkur dráttur hefir
urðið á, að þeir játuðu þetta til-
tæki sitt.
Merm þessir voru: Halldór Ste-
fánsson, bakari, og Hjálmgeir Júl-
íusson.
Astæðurnar, sem þeir færa fyrir
þessu tdtæki sínu, eru harla ein-
kennilegar, að því er lögreglu-
fúllt'rúinn sagði.
Forsprakkinn var Halldór Ste-
fánsson. Hann er nýskilinn við
konu sína. ITún er bvísett hjá bróð-
ur sínum. Bróðir hehnar hefir at-
vinnu við bakstur ríkisins í hinu
fyrra Bernhöftsbakaríi.
Halldóri var uppsigað við þenna
fyrverandj mág sinn. Til þess að
ná sjer niðri á honum, ætlaðist
hann til þess að bakaríið brynni,
svo' þeir, stun þar. vjnna, yrðu at-
vinnulausir.
Halldór hefir undanfarið verið
atvinnulaus. En fyrir nokkuru
hafði hann atvinnu við brauðgerð.
Þá hafði húsbóndi hans nokkur
viðslúfti við ríkissjóð. Ef brauð-
gerðahúsin við Skólastræti brynnu,
táldi hann líklegt, að hann fengi
hina fyrri atvinnu sína.
Hann fekk Hjálmgeir Júlíusson
í lið með sjer. Kvaðst Hjálmgeir
eiga 150 krónur hjá Halldóri, en
Halldór hefði haldið því fram, að
leiðin til þess að fá þessa skuld,
væri sú, að brauðgerðarlnísin
brynnu. svo hann fengi atvinnu,
og gæti þann vég greitt Hjálmgeir
skuldina.
í
Afnám bannlaganna í binn-
landi.
Frumvarp lagt fyrir þingið.
Helsingfors, 18. jan.
TJnited Press. FB.
Ríkisstjórnin hefir látið undir-
búa frumvarp til laga um afnám
bannlaganna. Er það lagabálkur
•xnikill í eitt hundrað greinum. f
frumvarpinu eru ýmis ákvæði til
þess að takmai’ka framleiðslu og
neytslu áfengra drykkja.
Frumvarpið verður að öllum lík-
indum iagt fyri-r þingið í dag.
U.b. „5uanur“
strandar við Lóndranga.
Mannbjörg.
Arnarstapi, FB. 19. jan.
Vjelbáturinn „Svanur“, á leið
frá Akureyri til Vestmannaeyja
með beitusíld, strandaði fyrir norð-
an Lóndranga í fjurakvöld um kl.
9. Bylur var og rok, en brimlítið,
og má þakka það hve brim-
lítið var, að mennirnir, sjö álls,
komust klakklaust af. Staðurinn
er afar slæmur, sker við land,
grjót og urð á ströndinni. Bátur-
inn eyðilagðist alveg. — Komust
mennirnir á land í öðrum bátnum,
en fengu engu bjargað af eignum
sínum, nema því, sem þeir stóðu í.
Annar skipsbáturinn fórst með
skipinu. Mennirnir eru allir lijer
og líður þeim vel. Skipstjóri er
Kristján Kristjánsson, sem var
skipstjóri á Gottu í Grænlands-
leiðangrinum.
Svanur var vátrygður fyrir
40.000 krónur í Sjóvátryggingar-
fjelagi Tslands.
Hernaðarskaðabæturnar.
Washington 19. jan.
TJnited Press. FB.
Samkvæmt upplýsingum frá á-
reiðanlegum heimildum, sem Uni-
ted Press hefir aflað sjer, hefir
mótstaða þjóðþingsmanna gegn
framlengingu skuldagreiðslufrests-
ins ekki haft áhrif á stefnu og
álit ríkisstjórnarinnar í þessum
efnum. Er ríkisstjórnin, sem kunn-
ugt er, þeirrar skoðunar, að óhjá-
kvæmilegt, verði að veita frekari
tilslakanir á afborgunum og vaxta
greiðslum á ófriðarskuldum. Enn
fremur er stjórnin þeirrar skoð-
nnar, að skoðanir þjóðþingsmanna,
sem andvígir eru frekari tilslökun-
um, gefi ekki rjetta hugmynd um
álit almennings í landinu í þessum
málum. Telur stjórnin loks, að
noklrrar líkur sjeu til, að Lau-
sanneráðstefnan og það, sem á
henni komi í Ijós, muni færa mót-
stöðumönnum tilslakana þeim sann
inn um það, að eigi tjáj annað en
að slaka til eftir því sem þörf
krefur vegna ástandsins í löndum
skuldunautanna.
Frá Siglnfirti.
Siglufirði, 19. jan. FB.
A fundi í Verkamannafjelagi
Siglufjarðar var samþykt þann 16.
þessa mánaðar:
1) Að skora á ríkisstjórnina að
setja hjer sömu reglur um sölu
Spánarvína og nú gilda á Isa-
firði. Fáist þessu ekki fram-
gengt telur fjelagið sig neytt
til að grípa. til annara úrræða.
2) Stöðva vinnu hjá h.f. Bakki,
ef áfallin vinnulaun væri ekki
greidd þegar.
3) Mótmmæli gegn þrottrekstri
þriggja manna úr Verkalýðs-
fjelagi Norðfjarðar.
4) Mótmæli gegn neitun Verka-
mannafjelagsins Dagsbrún, að
Einar Olgeirsson fengi að inn-
ritast í það fjelag.
Ljrra kom til Bergan á mánu-
daginn er var, kl. 12 síðcL
Verðlagið í Reykiavlk.
FB. 19. jan.
í desembermánuði hækkaði smá-
söluverð á matvörum í Reykjavík
um tæplega 2% að meðaltali. —
Munar þar mest um verðhækkun
á brauðum (11%), sem varð ann-
ars snemma í desember hjá öllum
bökurum nema Alþýðubrauðgerð- (
inni. Var hækkunin 5 aurar á
hálfu rúgbrauði og 5 aurar á hálfu
fransbrauði og súrbrauði, og er það
helmingurinn af þeirri verðlækk-
un, sem varð á brauðunum í s-ept-
embermánuði. A öðrum vörum hef-
ir verðhækkun orðið mest á sveskj-
um (8%) og rúsínum (5%) og
nokkur á kaffi og kaffibæti. Hins
vegar hafa nokkrar vörur heldur
lækkað í verði, aðallega innlendar
vörur, svo sem fiskur og smjör.
Aðalvísitalan fyrir matvörur var
181 í janúarbyrjun, én 178 í des-
emberbyrjun. 1 byrjun nóvember-
mánaðar var hún aftur á móti
heldur liærri, 183, en 180 í byrjun
októbermánaðar. — Yfirleitt hefir
þannig ekki orðið mikil hækkun á
matvöruverði í Reykjavík síðan
gengi íslensku krónunnar lækkaði
í haust,
Reildsöluverð á matvælum i
Reykjavík hefir hækkað í desem-
ber, en yfirleitt ekki mikið, nema
á kaffi (um 10%), kaffi bæti (tæp
lega 5%) og sykri (3—-4%). A
kornvörum hefir veiðhækkun verið
mjög lítil í þessum mánuði, og á
sumum engin. Á öðrum vörum en
matvörum hefir yfirleitt lítil breyt-
ing orðið á heildsöluverði lijer síð-
astliðinn mánuð.
Síðari hluta nóvembermánaðar
og fyrri liluta desembermánaðar
varð mjög mikd verðhækkun er-
lendis á Brasilíukaffi (um 20%)
ofan á þá verðhækkun sem þegar
var orðin í shillings og krónum
vegna gengisfallsins. Þar sem síð-
asta nþpskera var góð, er talið að
hækkun þesái stafi einkum af
bættu skipulagi á framboðinu. —
Einnig varð enn á sama tímabili
(öluverð verðhækkun á sykri í
shill. (um 4—5%). Hins vegar
lækkuðu komvörurnar aftur dálít-
ið, einkum rúgmjöl, en á því var
yerðhækkunin orðin lang mest.
(Frá fjármálaráðuneytinu).
Afengismálin.
Afnám „bannsins“ án at-
kvæðagreiðslu.
Þó undarlegt sje, telja ýmsir að
núgildandi áfengislöggjöf verði
ekki afnumin nema með almennri
atkvæðagreiðslu. Aðrir telja hana
ástæðulausa með öllu og færa fyrir
því þessar ástæður:
„ 1. Bannið er fyrir ‘löngu af-
numið og það án almennrar at-
kvæðagreiðslu. Það var gert með
Spánarsamningnum. Það nær engri
átt að tala um áfengisbann í landi,
)>ar sem ríkisstjórnin rekur stúrefl-
is áfengisverslun. Alþiivgi hefir og
sjeð þetta og breytt nafni laganna,
sem heita nú „áfengislög". Hjer
er því ekki um annað að tala en
breytingu á einföldum lögum, sem
reynst hafa óvenjulega ílla.
2. Með bannlögunum 1909 var
persónulegt frelsi manna tilfinnan-
lega skert og alvarleg skuldbind-
ing lögð á almenning. Það var því
sjálfsagt að spjn-ja hann hvort
hann væri fús til þess að leggja á
sig þennan fjötur, gangast undir
slíka skuldbindingu. Með afnámi
bannlaganna er fólkið leyst til
fnlls og alls úr þes„um fjötri, sem
reynst hefir hreinn gleypnir, og
skuldbindingum Ijett af því.
Það er engin ástæða til þess að
spyrja fólkið um það. ,
3. Það er ósiður, að þingmenn
klíni þeirri ábyrgð sem löggjafar-
starfi fylgir, á almenning og það
að ástæðulausu.
4. Það stendur hvergi í áfengis-
lögunum að þjóðaratkvæði þurfi
til að afnema þau eða breyta þeim.
‘ %
Áfengismálið í Bretlandi.
Síðustu hagskýrslur Breta skýra
frá þessu:
1. Veitingastaðir með leyfi til
vínsölu út úr húsinu voru :
1920 83.432.
1924 80.987
1928 78.803
Þeim hefir þá fækkað að mun
og mest síðai’i árin.
2. Veitingastaðir, sem ekki seldu
vín út úr hvisinu voru:
19>20 22.198
1924 22.135
1928 22.189
Þessir veitingastaðir standa þá í
stað, þó vitanlegt sje að drykkju-
skapur hafi minkað stórum. Hins
vegar má ganga að því vísu, að
þeim fari fækkandi áður langt um
líður.
3. Dæmdir fyrir drykkjuskap
voru: Karlar Konur
1920 80.417 15.246
1924 66.139 12.943
1925 46.798 8.844
Hjer hefir orðið mikil breyting
á. Afbrotunum hefir fækkað ná-
lega um helming. Kemur þetta vel
heim við samróma dóm flestra, að
áfengisnautn og drykkjuskapur
hafi þverrað stórkostlega þar í
landi.
Það er eftirtektarvert að Bretar
hafa verið allra manna harðsnún-
astir gegn banni. Þetta hafa þeir
komist áleiðis, þó sála og nautn
áfengis sje öllum frjáls.
Dagbok.
Veðrið (í gærkvöldi kl. 5 síðd.):
Grunn lægð skamt út af Vest-
fjörðum, veldur SV-átt hjer á
landi með snjójeljum vestan lands.
Norðan lands og austan er stilt
og bjart veður.
Suður af Grænlandi er djúp lægð
sem mun vera á hreyfingu norð-
austur eftir. Er sennilegt að hún
fari norður fyrir vestan ísland og
valdi klákuveðri af SA.
Veðurútlit í Reyltjavík í dag:
Vaxandi SA-átt, sennilega hvass-
viðri og lilákuveður síðdegis.
JarðaJför Baldurs Sveinssönar
ritstjóra fór fram í gær, að við-
stöddu miklu fjölmenui. — S;ra
Bjarni Jóns. on dómkirkjuprestur
flutti húskveðju, en Magnús Jóns-
son prófessor talaði í kirkjunni.
Starfsmenn Fjelagsprentsmiðjunn-
a.r báru kistima inn í kirkju, skóla
bræður hins látna út úr kirkju og
ritstjórar og blaðamenn inn í
kirkjugarði
Maður bráðkvaddur á götu. Um
klultkan 7 í gærkvöldi hneíg aldr-
aður maður, Björn Eiríkss.on frá
Karlsskála, niður á götu, móts
við verslunina „Áfram“ á Lauga-
vegi. Læknir var þegar sóttur og
kom í ljós, að Björn liafði orðið
bráðkvaddur. Hann hafði kerit
hjartabilunar undanfarið. Hann
var 67 ára að aldri.
Leikhúsið. Leikið verður annað
kvöld klukkan 8þ<> „Lagleg stúlka
gefins“. Leikfjelagið æfir nú nýtt
leikrit, sem farið verður að sýna
á næstunni, er það eftir enska
leikritaskáldið Galsworthy- og er
talið meðal bestu leikrita hans.
ísfisksalan. Maí seldi afla' sinn
í Englandi í fyrradag, 2300 körfur,
fyrir 1947 sterlingspund. — Ný-
lega var skýrt frá því hjer í blað-
inu, að Sviði hefði selt afla sinn
fyrir 1959 sterlingspund; þetta er
eltki rjett, haun seldi fyrir 1259
sterlingspund.
Verslunarmannafjelag Reykja-
víkur. Bókaútlán og spilakvöld
í dag.
Bannið í Bandaríkjum.
Ameríkumenn eru nú að gefa út
fræðibók mikla um þjóðfjelagsmál
(Encyclopædia of social Sciences)
og vanda mjög til Jiennar. Einn
Tslendingur vinnur að henni: Leif-
ur Magnússon í Washington. Þar
er þessa getið:
„Herra Dever, fyi’verandi borg-
arstjóri í Ohieago heýir skýrt frá
því, að árið 1926 hafi áfengi verið
selt opinberlega á ekki færri en
15000—20000 stöðum í Chicago, og
að um 60% af lögregluþjónum
borgarinnar hafi þegið mútur af
veitingamönnum.
í Philadelphiu upplýstist, það
fyrir kviðdómi 1928, að lögreglu-
menn og leynilögregla safnaði ó-
trúlegum auðæfum með því að
vernda ólöglega veitingastaði. Eft-
ir því sem menn komust, næs.t,
græddi lögregluliðið í borginni
2.000.000 dollara á áari á. þennan
hátt“.
Þannig gengur það í Bandaríkj-
unum, þó enginn Spánarsamftingur
sje þar, og ærnu fje varið til þess
að hafa hendur í hári smyglara og
veitingamanna.
Spilling og glæpir fylgja bann-
inu hvarvetna eins og skugginn.
G. H.
Sundfjelagið Ægir hjelt aðal-
fund sinn síðastliðinn sunnudag
að Laufásvegi 2. Var fjölment,
þrátt fyrir vont veður. Stjórnin
var endurkosin og skipa hana þeir
Eiríkur Magnússon formaður, Jón
Pálsson varaform., Úlfar Þórðar_
son ritari, Þórður Guðmundsson
gjaldkeri, og Jón I. Guðmundsson.
Farfuglafundur verður í kvöld
kl. 9 á Laugavegi 1 (bakhúsið).
Þar verður til skemtunar ræður,
upplestur, kaffidrykkja o. fl. Allir
Úngmennafjelagar velkomnir.
í Bethaníu. Samkoma kl. 8y2 í
kvöld'. Lesinn upp kafli úr bók
eftir Sadhu Sudar Sing. Allir hjart
anlega velkomnir.
Háskólafyrirlestrar. Próf. dr. Á.
H. Bjarnason byrjar í dag kl. 6
háskólafyrirlestra sína fyrir al-
menning um vísindalegar nýungar
(í líffræði og sálarfræði), þar sem
frá var horfið síðastliðinn vetur.
Fyrirlestrarnir verða framvegis á
miðvikudögum á sama tíma, í 1.
kenslustofu Háskólans. QJhnn
heimill aðgangur.
Orla N. E. Juul hefir sótt. tim
til bæjarstjórnar að mega hafa
■'’tingasölu hjer I bænum. Fjár-
hagsnefnd hefir ekki sjeð sjer fært
að mæla með því, að slíkt leyfi
verði veitt.