Morgunblaðið - 08.05.1932, Blaðsíða 4
Munið aS ,,Flóra“ liefir fjölda
af trjáplöntum: Skógbjörk, silf-
urreyni, reyni, gulvíði, rauðber,
-öólber, spirea, hyídetrje, rósir,
«yrefi, dvergbeifivið, geitblað og
fíeira. Sími 2138.
Ribs- og Sólberjaplöntnr til söiu.
Síroi 426.
Jtgætt herbergi, með Ijósi og
bita, eT tií leigu á Sólvallagötu 4.
Jcket á meðalmann til sölu, ó-
dýrt, á Bjarnarstíg 12. Enn frem-
ur barnarúm og kommóða.
defins eldspýtur. Með hverjum
20 stk. eigarettupakka, setti keypt-
nr er hjá oss fyrst um sinn. fást
jafnmargar eldspýtur, í sjerstöku
Íiýtki, gefins. Einnig handa þeim
s^m kaupa vindla. Tóbakshnsið,
Austurstræti 17.
Mynda o g rammaverslunin,
Freyjugötu 11, Sig. Þorsteinsson,
s'mi 2105. hefir fjölhrevtt úrval
aí Veggmyndum. ísl. málverk bæði
í olíu og vatnslitum, sporöskju-
rimmar af mörgum stærðum. Verð-
ið sanngjarnt.
Rallaonlr.
Viðgerðir, breytingar og
nýjar lagnir.
Unhið fljótt, vel og ódýrt.
Jniíns Bjðrnsson.
Austurstræti 12.
SnnorkðDur.
Nokkur „Model“ nýkomin.
Kjólar sloppar, kjólatau og
margs konar aðrar metra-
vöfur eru enn í miklu úrvali
*
Versl. vik
Laugavegf 52. Sími 1485.
fiarðyrkiustfirf.
/eg undirrituð tek að mjer alls
fcoaar vinnu í görðum yfir vorið.
Opplýsingar í síma 2193 it& 12—1
og 7—9. — Eimiig í sima 1349
frá 3—6.
Maria Hansen.
fgarCyrkjukona. Haðarstíg 6.
snnnkensia.
Jeg kenni söng. Get bætt við
mig nokkrum nemendum.
táltanna lóhannsdóttir.
Sóieyjargötu 7. Sími 1297.
1 Fimleikar á Austurvelli. í dag
1 k:. 3% sýna tveir barnaflokkar á
Austurvelli, telpur undir stjórn
Ingibjargar Stefánsdóttur og
drengir undir stjórn Vignis An-
Jrjessonar. Samtímis verðnr út-
trpað þar hljómleikum frá út-
varpsstöðinni.
N-emendamót. Námsmeyjar þær,
sem vorið 1922 útskrifuðust úr 4.
bt-kk Kvennaskólans í Reykjavík,
mæltu sjer mót við uppsögn skól-
ans að 10 árum liðnnm, skyldu
'jær liittast hjer í Kevkjavík vorið
932. Þessari heitstrengingu fylgdu
þær svo vel eftir, að af þeim 25
r.ámsmeyjum, sem lífs eru, tvær
eru látnar, komu bjer saman 18, og
roru sumar þeirra komnar alllangt
að. Síðastliðinn fimtudag, upp-
úigningardag, heimsóttu náms-
rneyjar skólann, og færðu honum
að gjöf allstóra peningaupphæð,
sem ganga skal til bókasafns nem-
enda. Dvöldu hinar fyrri náms-
meyjar langa stund í skólanum, og
var þeim þar tekið af ransn og
-skörungsskap af hálfu forstöðu-
’roatt skólans. Um leið og þær fóru
mðan árnuðu þær skólanum allra
lieilla og hrópuðu ferfalt húrra
"vrir honum. Að kvöldi þessa sama
dags hjeldu stallsysturnar sjer
fjömgt samsæti.
Sjómannastofan. Samkoma í dag
VI. 6. Seinasta nlmenna samkoman
Tryggvagötu 39. Allir velkomnir.
Samsæti frú Ingunnar Blöndal.
Þeir, sem taka vilja þátt í samsæti
þessu, vitji aðgöngumiða á Vífil
eða í hljóðfæraterslun frú K. Við-
ai fvrir kl. 6 annað kvöld.
Tenniskensla K. R. er auglýst í
blaðinu í dag.
Brjefdúfur á fiskiskipum. Skv. til
kynningu frá sendiherra Dana
ætía dönsk fiskiskip, sem stunda
veiðar í Norðursjó. að hafa innan
borðs brjefdúfur, til þess að koma
boðum heim, eða jafnvel til björg-
unárskipa. Ef tilraun þessi heppn-
ast vel, á að hafa brjefdúfur á
öllum dönskum fiskiskipum.
Háskólafyrirlestrarnir. Annað
kvöld kl. 6 flytur próf. Nörregaard
næsta fyrirlestur sinn í Háskólan-
um. Efni fyrirlestursins: Aftur-
livarf Ágústínusar, framhald af
fyrsta fyrirlestri. Ollnm heimill
ðgangur.
Útvarpið í dag: 10.40 Veður-
fregnir. 11.00 Messa í dómskirkj-
unni. (Síra Friðrik Hallgrímsson).
15.30 Eftírmfðdagsútvarp (úr
gjallarhorni yfir Áusturvöll, ef
gott er veður). 19,30 Veðurfregnir.
19.40 Barnatími. (Gunnar Magnús-
son. kennari). 20.00 Klukkuslátt-
ur. Erindi: Jesúsögnin. (Magnús
•Tónsson, prófessor). 20.30 Frjettir.
21.00 Grammófón tónleikar: Kvar-
tett, óp. 18 nr. 2, eftír Beethoven.
2 dúettar úr „La Traviata“, eftir
Verdi, sungnir af Tenna Frederik-
sen og Herold; dúett úr „Vald
örlaganna“, eftir Verdi og dúett
úr „Perlufiskimönnum“ eftir
Bizet, sungnir af Herold og Helga
Nissen.
Útvarpið á morgnn: 10.00 Veð-
urfregnir. 12.15 Hádegisútvarp.
12.30 Þíngfrjettir. 16.00 Veður-
fregnir. 19.30 Veðurfregnir. 19.40
Grammófón: Celló-sóló. 20.00
Klukkusláttur. Erindi: Um fjör-
efni. (Dr. Björg Þorláksson). 20.30
Frjettir. 21.00 Orgelsóló: Páll fs-
ólfsson. Tónleikar: Alþýðulög. (Út
varpskvartettinn). — Einsöngur:
(Einar Markan).
Bruggnm á Akureyri. Komist
hefir upp áfengisbruggun um tvo
menn á Akureyri, Þór. Guðjóns-
son málara og Sigurgeir frá Hóli
í Kaupangssveit. Fundust hjá þeim
allmiklar birgðir af bmggi.
Belgamn er hættur veiðum og
hafa skipverjar verið afskráðir.
\
morofnblaðið
Togaramir. Af veiðum hafa kom
ið Skallagrímur, Gulltoppur,
Andri, Max Pemberton, Gyllir og
Draupnir. Gyllir var með 103 lifr-
arföt, Draupnir með 62, en hinir
80—90.
Skipafrjettir. Gullfoss kom hing
að í nótt. — Goðafoss fór frá
Hamborg í gær og Lagarfoss frá
Kaupmannahöfn. — Brúarfoss fór
li jeðan í gærkvöldi á leið til Kaup-
imiahafnar. — Dettifoss var á
Akureyri í gær. — Selfoss kom
til Leith í gær og fer þaðan í dag.
Farþegar með Brúarfossi í gær-
kvöldi voru um 20, þar á meðal til
Kaupmannahafnar P. Petersen
bíóstjóri og frú, ungfrú Jófríður
Zoega. Til Vestmanneyja Viggo
Björnsson bankastjóri og frú, ung
frú Mjal'lhvít Linnet.
Sundæfingar K. R. verða í sumar
i mánudags- og miðvikudagskvöld-
um kl. 8—10 í sundlaugunum.
Þeir fjelagar, sem æt-Ia að læra og
æfa sundknattleik, mæti í sund-
’augunum annað kvöld kl. 8.
Hjúskapur. í gær voru gefin
aman í hjónaband af síra Bjarna
Jónssyni ungfrú Camilla Sandholt
og Guðlaugur Þorláksson gjald-
keri. Heimili ungu hjónanna er á
Sjafnargötu 10.
Flokkaglímu heldur K. R. næst-
komandi fimtudag í K. R.-húsinu.
Eiga þátttakendur að tilkynna
stjórn fjelagsins fyrir mánndags-
kvöld þátttöku sína. Ollum glímu-
mönnum innan í. S. í. heimilt að
keppa.
Knattspyrnukappleikur fer fram
í dag á Iþróttavellinum milli stúd-
enta og Mentaskó'lanemenda. Þetta
er í fjórða skifti að Háskóla- og
Mentaskólapiltar beppa í knatt-
spymu og hafa vinningar fallið á
víxl, þannig, að fyrst unnu Menta-
skólanemendur, næst Háskólanem-
endur og í fyrra Mentaskólanem-
endur aftur. Keppt er um fagran
bikar og er nafn þess skóla, er
vinnnr, Ietrað á hann í hvert sinn.
Hvor flokkurinn sigrar í dag? Það
er vandsjeð, en mikið kapp mun
verða í leiknum.
Flutningar. Athygli skal vakin á
aúglýsingu frá lögreglustjóranum
í blaðinu í dag. í mörg undanfar-
in ár hafa verið allmikil brögð að
bví að fólk hafi vanrækt að til-
kynna til lögregluvarSstofunnar
revtingar á heimilisfangi ðíttu.
Þetta hefir haft stór óþægindi í
för með sjer fyrir lögregluna, póst-
og símamenn, innheimtumenn ríkis
og bæjar og fyrir alla þá sem
’uirft hafa að ná til þeirra manna
sem breytt hafa nm heimilisfang,
án þess að það væri tilkynt. Verð-
ur nú- ekki lengur komist hjá því
að skerpa eftirlitið með þessu. Það
er því áríðandi að húseigendur eða
hmboðsmenn þeirra forðist hjer
vftir alla vanrækslu í þessu efni
svo beita þurfi sem minst sektar-
'kvæði þar að lútandi laga.
Frú G. Norðfjörð hefir flutt
hárgreiðslustofu sína í Austur-
stræti 17. »
Getraun „Smára“. Talið var í
'ilasinu á föstudagskvöld í viður-
vist tveggja stjórnarmeðlima Fjel.
matvörukaupmanna. í glasinu
reyndust að vera 2992 tíeyringar
(kr. 299.20). Langflestar tilgátur
bárust um tölurnar 1500 til 2500,
»n að eins einn gat rjett: Sigur-
björn Björnsson, Njálsgötu 56, og
fær hann því glasið með því sem
í því er. Aðrir vinningar fjellu
þannig: 2. verðíaun kr. 100.00:
Margrjet Halldórsdóttir, Freyju-
'jötu 30; 3. verlaun, kr. 50.00: Jón
E. Guðmundsson, Hverfisgötu 93.
Fjögur verðlaun á 25 kr.: Bragi
Brynjólfsson, Skólavörðustíg 44.
Ragnheiður Einarsdóttir, Iðno,
Kristín Sigurðardóttir, Þórsgötu
Kol! Kol!
Uppskipun stendur yfir á hinum frægu „BEST
SOUTH YORKSHIRE HARD STEAM-KOLUM.
Kolaverslnn
Ólafs Ólafssonar.
Sími: 596.
Útsala á karlmannsfötnm.
Þessa viku verður gefinn 20—30% afsláttur af okkar
góðu hálf- og altilbúnu fötum. Komið meðan úrvalið er
mest. Að eins verulega góð og falleg föt.
H. Anderseu & Sön.
Aðalstræti 16.
Útvarpsnotendnr.
Fjelag útvarpsnotenda heldur fund í K. R.-húsinu,
uppi, í dag (sunnudaginn 8. maí) kl. 2 síðd.
Fundarefni: Tilnefning fulltrúa í útvarpsráðið.
Spurningar útvarpsráðsins.
Allir útvarpsnotendur eru velkomnir á fundinn.
FJELAGSSTJÓRNIN.
'rnmmmmmmmmammmmmmtmmmmmmmmmmmmtmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmaaimmmmm '■
Ddos að SelfiallssRðlo.
Vitið þið hvar hann er? Þar er skjól fyrir öllum áttum-
í dag verður dansað þar allan daginn. Ferðir frá Aðal-
stöðinni eftir kl. 2.
Til sölu.
Tractor, plógur með grind, diskherfi, vagn, heygrind o. fL.
Upplýsingar gefur Jón Ólafsson lögfræðingur, Lækjar-
torgi 1. Sími 1250, eða heima, Suðurgötu 27. Sími 2167.
f>8 og Guðjón B. Guðlaugssott,
Framnesveg 38. 10 verðlauu á 10
kr.: Haraldur Ámundínusson, Vita
stíg 14, Guðmunda Guðmundsdótt-
ir, Barónsstíg 23, Einar Eggertss.,
Ásvallargötu 25, Marteinn Ólafs-
son, Haðarstíg 2, Halldór Pjeturs-
son, Bergstaðastræti 21B, Guðný
Jóhannesdóttir Bankastræti 7,
Þórarinn Guðjónsson, Lokastíg 26,
Gróa Bjarnadóttir, Skothúsveg 7,
Tón Sólmundarson, Framnesveg
6B og Reynir Eyjólfsson, Vísisút-
ftn'i. 5 verðlaun 5 kr.: Guðbjörn
Halldórsson, Grettisgötu 10, Guð-
bj. Egilsson, Bergþórugötu 27,
Bjarni Guðbjörnsson, Grett. 63,
Inga Marteinsdóttir, Klapp. 38 og
Soffía Ólafsdóttir, Vest. 26. Verð-
launanna má vitja á skrifstofu
H.f. Smjörlíkisg.,’ Vegamóitastíg 5.
Karvel Jónsson útgerðarstjóri
á Isafirði er staddur hjer í bæn-
um.
Egill Vilhjálmsson hefir reist
stórhýsi við Laugaveg og Rauð-
arárstíg fyrir bílaverslun sína.
Er grunnflötur byggingarinnar
írúmlega 900 fermetrar. í álm-
j unni meðfram Laugavegi er stór •
afgreiðslusalur í stofuhæðinni,
fyrir bílasölu og varahluta. 1
kjallara er varahlutageymsla,
en íbúð húsvarðar og viðgerðar
pláss uppi. í suðurálmunni með-
fram Rauðarárstíg eru viðgerða-
salir bíla í stofuhæð og á 1.
lofti, og er akbraut fyrir bíla
upp í loftið.
Hæðir þær sem reistar eru
þegar eru með þeim traustleika,
að hægt er að bæta tveim bæð-
uitt ofan á. Sú nýlunda er m. a.
við bygging þessa, að glugga-
grindur eru úr steinsteypu, en
rúður festar við steypuna með
stálbeygjum. Eru slíkir gluggar
vafalaust hinir traustustu. —
Glugga þessa hefir Ragnar
Bárðarson gert. ÞorleifurEyjólfs
son hefír gert uppdrátt hússins
og annast um smíðina.
Kosningar í Frakklandi. Seinni
hluti kosninganna tíl fulltrúa-
deildar franska þingsins á að
fara fram í dag.