Morgunblaðið - 20.05.1932, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ
f
r~\
BLÓM & ÁVEXTIR,
Hafnarstræti 5.
Plöntur, margar tegundir til út-
plöntunar, verða seldar í dag og
___________næstu dag.___________
Blóm & Ávextir, Hafnarstræti 5.
íslenskar agúrkur og salat. Sömu-
leiðis daglega allar fáanlegar teg-
undir afskorinna blóma. Ennfrem-
ur skógargreinar í vasa.
Húsmæður! Munið að bestu fisk-
símar. bæjarins eru 1456, 2098 og
1402.
Rúskinn, ýmsir litir og svört
flauel í jakka, gott og ódýrt. Nýi
Bazarinn. Sími 1523.
Sundbolir og sundhettur ódýr-
ast í bænum. Nýi Bazarinn, Hafn-
arstræti 11. Sími 1523.
ísaumsvörur alls konar, mjög ó-
dýrar. Nýi Bazarinn, Hafnarstræti
11. —
Kjólaefni og morgunkjólaefni,
gott og ódýrt úrval. Nýi Bazar-
inn, Hafnarstræti 11.
Fyrsta flokks saltkjöt fæst í
Versluninni Helgafell, Bergstaða-
etræti 55.
Verðlisti: Kaffistell frá 13.50,
Matarstell 15.50, Borðbnífar 0.35,
Skeiðar og Gafflar 0.25, Eldhús-
linífar 0.75, Vatnsglös 0.45, Eld-
húsvogír 5.25, Eldhúsklukkur 7.50.
iSilfurplettborðbúnaður og margt
fíeira, sem þjer kaupið yður hag-
kvæmast í Verslun Jóns B. Helga-
sonar, Laugaveg 14.
Drengir! Mánaðarblaðið „List-
Jriðir" á að sejast í dag og næstu
daga. Komið kl. 10 í Austurstræti
12, „Ninon“.
Sumarbústaður, ekki mjög langt
frá Reykjavík. óskast til leigu í
sumar. Kaup á sumarbústað gæti
komið til greina, ef um semdist.
Tilboð merkt: „Sumarbústaður“ ;
sendist A.S.Í. fyrir 24. þ. m.
Birki og reyniviðarplöntur til
sölu í Tjarnargarðinum kl. 1—6
við Skothúsveg. Skógræktarstjór-
inn. Sími 426.
Til sölu 2 bílhlöss af grænni
töðu. Kaupfjel. Ámesinga, Sig-
túnum.
Til sölu annar Fargo bíllinn
okkar. Mjólkurbú Flóamanna.
Munið Fisksöluna á Nýlendu-
götu 14, sími 1443. — Kristinn
Magnússon.
Flóra, Vesturgötu 17, sími 2039.
Höfum fengið trjáplöntur frá trjá-
reit er liggur uppi í f jöllum í Nor-
eg:i Skógbjörk, reyni, síberiskt
lævirkjatrje og ertutrje og kornel-
runna.
Gefins eldspýtur. Með hverjum
20 stk. cigarettupakka, sem keypt-
ur er hjá oss fyrst um sínn, fást
jafnmargar eldspýtur, í sjerstöku
hylki, gefins. Einnig handa þeim
sem kaupa vindla. Tóbakshúsið,
Austurstræti 17.
Nýr bátafiskur daglega. Fisk-
salan á Bergstaðastræti 2. Sími
1381.
Nýr silungur fæst í Nordalsís-
hús^ sími 7.
Viðsjár á Spáni.
Madrid, 19. maí.
United Press. FB.
Sjö hundruð sprengikúlur hafa
fundist í nánd við dómkirkjuna
frægu í Sevilla. Skotfærabirgðir
hafa fundist í Santa Cruz hjeraði.
Innanríkisráðherrann hefir til-
kynt, að tekist hafi að koma í veg
fyrir að ráðagerðir syndikalista og
stjórnleysingja heppnuðust, en
áform þeirra voru að koma af
stað stjórnarbyltingu á meðal
bænda í Andalúsíu.
Porvextir lækka í Noregi.
Osló, 19. maí.
United Press. FB.
Forvext'ir lækka um í
4frá og með föstudegi að
telja.
Dagbók.
i.o.o.F. 11452081/2 = m.
Veðrið (fimtudagskvöld kl. 5):
f Vestmannaeyjum er vindurhvass
A, en á öðrum stöðum er yfirliett
hæg A- eða NA-átt. Við Faxaflóa
hefir þó verið hafgola eða útræna
í dag af SV eða V. Austan lands
er þykkt loft og sums staðar þoku-
slæðingur en bjart veður í öðrum
landshlutum. Lægðin vestan við
Bretlandseyjar þokast norður eftir
og mun valda regni austan lands
á morgun, en vestan lands mun
vfirleitt verða bjartviðri, þó er
nokkur hætta á skúraleiðingum á
SV-landi og við Faxaflóa.
Veðurútlit í Rvík í dag: Breyti-
leg átt, mest NA-gola. Ef til vill
síðdegisskúrir.
Heimdallarmenn! Munið eftir
þkemtifundinum á Hótel Borg í
kvöld. Fundurinn verður haldinn
inn af Gylta salnum. Til skemtun-
ar verður: Söngur, ræðuhöld, upp-
Iestur, dans o. fl. Fundarmenn
geta auðvitað fengið sjer snúning
frammi í Gylta salnum ef þeir
óslca. Stjórnin.
Silfurbrúðkaup áttu þ. 18. þ. m.
frú, Anna Kristófersdóttir og Loft-
ur Bjarnason, járnsmiður, Mið-
stræti 8 B.
K. R. biður alla „frjálsa“ íþrótta
menn og Maupara að mæta. á 1-
þróttavellinum annað kvöld kl.
8V2 stundvíslega.
Trúlofun. Nýlega hafa opinber-
að trvilofun sína ungfrú Anna
Ámadóttir, Keflavík og Sigurjón
Óskar Gíslason, járnsmiður. Fálka-
götu 14, Reykjavík.
Bjarni Björnsson Ieikari er ný-
kominn frá Vestmannaeyjum, en
þar skemti hann eyjarskeggjum
nokkur kvöld við ágæta aðsókn og
viðtökur. í kvöld fer Bjarni norð-
ur og hugsar sjer að láta Akur-
eyringa fá nokkur hláturskvöld.
Bergsætt, ættartölubók mikil
eftir Guðna Jónsson ihagister er ný
ítomin út. Verður nánar getið síð-
ar. —
Þeir, sem eiga óskilað bókum á
Landsbókasafnið, ern beðnir að
skila þeim tafarlaust, ella verða
þær sóttar á kostnað þeirra.
Eimskip. Gullfoss fór frá Vest-
mannaeyjum í gær áleiðis út. —
Goðafoss kom til Siglufjarðar á
hádegi í gær. — Brúarfoss kom
til Leith á hádegi í gær, fer þaðan
í dag. — Dettifoss kom til Ham-
borgar í gærkvöldi. — Lagarfoss
var á Seyðisfirði. — Selfoss fór
frá Reykjavík í gær til Þýska-
lands, Antwerpen, Hull 0g Leith.
Fimtardómsfrumvarp stjórnar-
innar var meðal mála þeirra, sem
- voru á dagskrá í Ed. í gær. -—
Skyldi það vera ein umræða, því
að Nd. hafði sem kunnugt er gert
breytingar á frumvarpinu. En frv.
kom ekki til umræðu; var tekið
út af dagskrá og er ekki tekið á
dagskrána í dag.
Skallagrímur kom af veiðum í
gær með mikinn afla, 93 föt
lifrar. Fór aftur á veiðar í gær-
kvöldi.
Skattamálin hafa sem kunnugt
er legið í Ed. nú um langt skeið
án þess að vera tekin þar á dag-
krá. í dag eru nokkur þessara
mála á dagskrá, svo sem verðtall-
urinn, gengisviðaukinn, bílaskatt-
urínn 0. fl. og má því vænta ein-
hverra tíðinda þegar sjeð verður,
livaða afgreiðslu þessi mál fá.
Útvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 12.30
Þingfrjettir. 16.00 Veðurfregnir.
19.30 Veðurfregnir. 19.40 Grammó-
fónsöngur: Chaliapine syngur: Su,
Bojardi og Klukkusenuna iir
„Boris Godounoiv" eftir Moussorg-
sky, og Alma Gluck syngur: Aloha
oe, eftir Liliopkalani og My old
Kentucky home, eftir Foster. 20.00
Klukkusláttur. Grammófóntónleik-
ar: Kvartett í D-moll, eftir Mo-
zart. 20.30 Frjettir. — Lesin dag-
skrá næstu viku.
Hótel Skjaldbreið. Systurnar
Steinunn og Margrjet Valdimars-
dætur opna í dag veitingasölu á
Hótel Skjaldbreið.
Myndlistafjelag íslands. Svo
nefni.st fjelagsskapur einn, sem
nýlega er stofnaður, og eru stofn-
endur ýmsar konur hjer í bænum,
er ætla að gangast fyrir því, að
hjer verði reist hús fyrir sýningar
á íslenskri myndlist. Er búist við,
að hús þetta kosti um 80 þúsund
krónur. Mikil þörf er á slíkri
byggingu, og hafa konur þessar
tekið sjer fyrir liendur þarft og
gott málefni. Þær ætla sjer með
ýmsum ráðum að safna fjár til
byggingarinnar, og byrja á því
með skemtun, sem haldin verður í
kvöld í Iðnó og auglýst er hjer í
blaðinu.
Bók handa ferðamönnum. Þegar
sumarið er komið, fer ferðahugur
að koma í marga. Menn fara að
bollaleggja um það, hvert skuli
fara í sumarfríinu, svo að sem
mest gagn og gaman verði af
ferðinni og þó um leið lagt sem
minst í kostnað. Jeg vildi með
þessum línum leyfa mjer að benda
mönnum á góða og ódýra bók,
sem getur orðið til ileiðbeiningar
í þessu efni: Minnisbók ferða-
manna, sem Oskar Gunnarsson gaf
út í fyrra og Sigurður mag. Sluila-
son setti saman. Bæði getur hún
orðið mönnum til styrktar við að
velja sjer hentugt ferðalag í sum-
arfríinu og auðvitað sjerstaklega
til þess að fræða menn um ýmsa
staði, vegalengdir, hæðir fjalla,
hvað markverðast sje að sjá á
hverri leið 0. s. frv. Eins og allir
vita nýtur maður ferðalagsins
margfalt betur, ef maður þekkir
eða veit eitthvað um þá staði, sem
ferðast er um, og er því ómissandi
að hafa einhvern ileiðarvísi með
sjer. Minnisbókinni fylgir kort yf-
ir bílvegi um landið og margur
fróðleikur er þar saman tíndur,
svo sem um allar helstu leiðir um
landið, þar á meðal fjallvegir, um
útilegu, hjálp í viðilögum, Ijós-
myndun á ferðalagi veiðiár 0 g
veiðivötn, hæð fjalla og jökla, ár-
töl úr sögu íslands 0. m. fl. — Jeg
veit af eigin reynslu, hversu allur
slíkur fróðleikur er manni kær-
kominn á ferðalagi og viíldi því
minna menn á bókina með línum
þessum. Ferðalangur.
Listviðir. Maíheftið, hið annað í
röðinni, er komið út. Efnið er al-
þýðlegt og fjölbreytt. Nefna skal
BOsteðaskiíti.
Þeir, sem hafa brunatrygða hjá oss innanstokksmuni, og
hafa flutt búferlum, eru hjer með ámintir um að tilkynna
oss það hið allra fyrsta,.
SiáTátrygglngarfjelag Islands h.f.
Brunadeild.
Eimskip 2. hæð. Símar 254, 309, 542..
Fárnu með e.s. BrúarSoss
Appelsínnr, Jafla og Brasil, — Epll Jonathans,
Lank aðeins litlð ðselt.
Eggert Krisliánsson & Ct.
Símar: 1317 og 1400.
grein um íslenska málaralist í 30
ár eftir Jón Þorleifsson málara,
frásögn um einkennilegt fyrir-
brigði, fuglalíf í Vestmanneyjum,
smágrein um tónlist, um Kódak-
kónginn, hinn merkilega miljón-
ara Eastman, sem skaut sig um
líkt leyti og Ivar Kreuger. Þá eru
myndir af tveimur kvikmyndahetj-
um og frásögn um aðra þeirra, ást
arsaga er nefnist „Hlaupár“ og
ýmislegt fleira. Myndir eru og
margar af innlendum mönnum og
málverkum, skopmyndir getraunir
o. fl. — 1 þessu hefti er pappír
fínni en í hinu fyrsta, og verða
því myndir og alt útlit blaðsins
betra. —- Verðið er ilækkað úr 75
aurum í 60 aura. Stærðin er 24
síður með kápu. D.
Vilhjiálmur fvrverandi Þýska-
landslceisari heldur enn kyrru fyr-
ir í Doorn. En nú hefir komið til
orða að bjóða keisaranum landvist
í Vestur-Indlandseyjum, er Banda
ríkjamenn keyptu af Dönum um
árið. Hafa eyjarskeggjar að sögn
gert Vilhjálmi þetta tilboð með
það fyrir augum, að þarvist hans
muni auka ferðamannastraum til
eyjanna. Skyldi Ferðafjelag ís-
lands ekki geta fundið einhvern
fyrv. þjóðhöfingja er oltið hefir
úr valdastóli á síðustu tímum, til
þess að setjast að hjer á íslandi
t. d. á heitum stað, þar sem hann
gæti liænt nð sjer ferðamenn.
Hafði Cook rjett fyrir sjer. Fyr-
ir 23 árum kom Norðurfarinn
Cook til Hafnar, og var tekið sem
|ijóðhöfðingja, því hann kom eftir
því sem hann sagði sjálfur frá,
uorðan af pól. En svo kom Peary
og eyðilagði alt fyrir Cook. Peary
hafði verið á pólnum. En alt sem
Cook sagði um pólveru sína var
stimplað sem lygasaga.. Nú hefir
Cook verið lengi í fangelsi fyrir
fjársvik. En nýlega kom út bók
■ftir amerískan prófessor, sem
heldur því fram, að Cook hafi
verið hafður fyrir rangri sök, hann
hafi verið á pólnum á undan Peary.
Berlín í fjárhagsvandræðum.
Borgarstjórinn í Berlín hefir
nýlega gengið frá fjárhagsáætlun-
inni fyrir fjárhagsárið 1932—33.
Útgjöldin eru áætluð 1.009.780.000
mörk, en tekjurnar ekki nema
896.313.000 mörk. TTt af þessn hef-
ir borgarstjórinn snúið sjer til
ríkisstjórnarinnar og Prússastjórn-
ar með beiðni um hjálp.
Ðann.
Bændur í Gnúpverjahreppi £
Árnessýslu, banna öllum óviðkom-
andi að skjóta fugla í löndum.
sínum, að viðlögðum sektum, nema*
sjerstakt leyfi komi til.
F. h. lireppsbúa.
Páll Stefánsson.
Engar cigarettur, sem
seldar eru hjer á landi
fá jafn alment lof og
„TEOFANr*
Því veldur hið ljósa,
ilmandi, egypska tó-
bak, sem í beim er. —
Aldrei hefir það borg-
að sig betur en nú, að
reykja
TEOFAN i.
TEOFANI & Co. Ltd.,
London.
Dívanar
og dýnur af öllum gerðum. —
Vandað efni vðnduð vinna
LÁGT VERÐ.
Húsgagnaversl. Reykjavíkur,
Vatnsstíg 3. Sími 1940.