Morgunblaðið - 21.05.1932, Side 2
2
M 0 R G ir N B LAÐIÐ
Vefnaðarvörudðildtn:
Alklæðnaðir, Sportföt, Hattar, Húfur, Pokabuxur (Plus
Fours), Reiðbuxur.
Gólfteppi, hentug fyrir framan rúm. Stærðir: 76x160,
61x122, 71x145 cm.
---- Látið eigi hjá líða að athuga verð og gæði. ---------
í. S. í. í. S. í.
misherlarnfii I. s. I.
verður háð á íþróttavellinum í Reykjavík dagana 17., 18. og 20. júní
n.k., og er öllum fjelögum innan l. S. í. heimil þátttaka.
Keppt verður í þessum íþróttum:
Hlaup: 100—200—4þ0—800—1500—5000—10000 stikur. Sund:
100 st. frjáls aðferð, 100 st. bringusund, 2Ó0 st. baksund og 4X50 st.
fJokkasund. Boðhlaup: 400—1500 stikur. Grindahlaup: 110 stikur.
Kappganga: 5000 stikur.Hástökk með atrennu. Langstökk með at-
rennu. Þrístökk með atrennu. Stangarstökk. Kringlukast báðar hend-
ur samanlagt. Kúluvarp báðar hendur samanlagt. Spjótkast báðar
hendur samanlagt. Pimtarþraut grísk. Reiptog, 8 manna sveitir. Glíma,
2 þyngdarflokkar, undir 70 lrg. og 70 kg. og þar yfir.
Þau fjelög, sem ætla að taka þátt í mótinu, gefi sig fram í síðasta
lagi fyrir 7. jóiní n.k., við framkvæmdanefnd mótsins. Box 802, Rvík.
Meistaramót 1. S.’ I. fer fram í byrjun ágústmánaðar og verður
fcáð samkvæmt leikreglum í. S. í. um íslensk meistaramót.
í framkvæmdarnefnd Allsherjarmótsins 1932.
JÓN KALDAL. KARL SCHRAM.
ÓLAFUR ÞORSTEINSSON.
Fornsala indir nafnlnu
Nýtt og gamalt
verður opnuð í dag í Kirkjustræti 10, þar sem áður var
Amatörverslun Þorleifs Þorleifssonar. Keyptir verða þar
og seldir notaðir fatnaðir og notaðir munir. Þar verða enn-
fremur bólstruð ný húsgögn til sölu. — Munir verða teknir
í umboðssölu.
Veitingar
á í þróitavellinnm
Þeir, sem kynnu að vilja taka að sjer veitingar á
Iþróttavellinum, dagana 17., 18. og 20. júní, sendi tilboð
í box 802 fyrir 1. júní.
150 tegundlr
af alls konar veggfóðri tókum við upp í gær. Selst
fyrir gjafverð. — Gerð og litir fullnægja kröfum
hinna allra smekkvísustu. Viðstöðulaus afgreiðsla.
Málning & Verkfæri.
(í stórhýsi Mjólkurfjelagsins).
lómnn á Kleppi.
í dag á Jórunn á Kleppi fimt-
ug.safmæli. Og starfsárin hennar
eru líka orðin 25. í öll þessi ár
hefir hún verið Jiúsmóðir og yf-
irhjúkrunarkona á Kleppi.
Engum, sem nokkuð hefir kynst
Jórunni, getur dulist, að liún er
gædd afburðahæfileikum til þess
áð gegna einmitt þessu starfi. —
Hún er gædd einmitt þeim kostum,
sem góðri lijúkrunarkonu eru.dýr-
mætastir, góðvild, nálivæmni og ró
og styrk í skapferli. Það skal síst
sagt til rýrðar læknunum, sem
starfað liafa á Kleppi með Jór-
unni, en það er enginn vafi á því,
að margir þeir, er þar hafa hlotið
lækningu meina sinna, eiga það
engu síður liinni rólegu umönnun
hennar að þakka en sjálfum
læknisdómunum. Læknirinn er oft
eins og húsgerðarmeistarinn. —
Hann rannsakar sjúklinginn og
segir fyrir um það hversir með
hann skuli fara til þess að bvggja
upp heilsu hans á ný. En hjúkr-
unarkonan er oft eins og smiður-
inn. sem framkvæmir það, sem
gera skal og sjer um og skapar
skilyrðin sem til þess þarf, að
sjúklingnum geti batnað. Og Jór-
unn er góður smiður.
En það eru til aðrir menn, sem
þetta endurbyggingarstarf heils-
unnar nær ekki til, ólánssamir
menn, sem dveljast verða á sjiikra
liúsi æfilangt. Ef til vill er engum
góð hjúkrun eins mikils virði og
þeim. Hjfikrunarkonan sepi á að
vera húsmóðir á hæli, þar sem
tlveljast menn, sem þjást af lang-
varandi sáJsýki, þarf ekki einungis
að kunna starf sitt ágætlega held-
ur verður hún einnig að eiga í
‘fórum sínum óbilandi þolinmæði
og andlega rausn. Þetta eru líka
höfuðkostir Jórunnar. Oft hefir
hún verið öJlum alt, bæði starfs-
fólki og sjúklingum, að ógleymdu
'því hve drengilega hún einatt
hefir reynst aðstandendum sjúk-
Jinga,
Jórunn er óvanalega vinsæl hús-
móðir. Sá sem kunnur er sjúkra-
húsum, vérður þess skjótt var,
að það er sjerstakur andi, sjer-
stakt þokka snið ríkjandi, í starfs-
háttum og heimilsbrag á Kleppi.
Það er persónuleiki Jórunnar og
tök á störfum sem þetta hefir
skapað, og er það að vissu leyti
sjerkenni Klepps, meðal íslenskra
sjúkrahúsa.
Guðný Jónsdóttir.
Allsherjarmót í. S. í.
Allsherjarmót í. S. í. verður
haldið dagana 17., 18. og 20. júní
n.k., samkvæmt reglugerð mótsins
á íþróttavellinum í Reykjavíli.
Keppt verður í íslenskri glímu,
hlaupum, stökkum, köstum, kapp-
göngu, fimtarþraut, reipdrætti og
sundi.
Sundið verður þreytt við sund-
skálann í Reykjavík. Ollum sam-
bandsfjelögum í. S. I. er heimil
þátttaka. Umsóknir sendist til for-
stöðunefndar Allsherjarmótsins,
pósthólf nr. 802, Rvík.
Meistaramót í. S. í. verður hakl-
ið í byrjun ágústmánaðar. Aðal-
fundur í. S. í. verður haldinn 26.
júní í KaupþingssaJnum kl. IV2
síðd. Fulltrúar eiga að mæta með
kjörbrjef. (FB.).
Fyrirlestrar Fr. Weis
prófessors.
Kveðja hans til íslands.
í gær frá kl. 5—7 flutti Fr.
Weis prófessor fyrstu tvo fyrir-
lestra sína.
Aður en hann hóf mál sitt bauð
Háskólarektor, Ól. Lárusson, hann
velkominn.
Því næst vjek prófessor Weis
nokkrum orðum að ferð sinni hing-
að, og hverra áhrifa hann hefði
orðið var hjeðan.
Sveinn Björnsson sendiherra átti
að nokkru leyti upptökin að því
að Jiann kom hingað nú.
Hann mælti m. a, á þessa leið:
Aður en jeg byrja á fyrirlestra-
efni mínu, vil jeg færa þeim þakk-
ir, sem jeg þegar hefi kynst hjer
fyrir alúðlegar viðtökur. En jafn-
framt vil jeg færa hinni íslensku
þjóð þakkir fyrir þau andlegu
verðmæti, sem íslendingar, að
fornu og nýju liafa fært þjóð
minní’.
Jeg býst við, að rnargir þeir,
sem hjer hafa komið á undan mjer,
hafi mælt á sömu leið. Jeg vil því
sjerstaklega taka það fram, að
þetta eru eigi innantóm orð frá
minni hálfu. Alt frá ungdæmi
mínu liafa Islendingasögur t. d.
verið eftirlætisbækur mínar.
En íslensk menning hefir alið
margs konar verðmæti, á sviði vís-
inda og lista, svo sem nú á sviði
mynd-, tón- og leiklistar. AJt þetta
er talandi vottur þess, að gildi
þjóða fyrir umheiminn sje ekki
eftir fólksfjölda þeirra. Öðru nær.
Það hefir sýnt sig livað eftir ann-
að, það sýnir og saga íslands.
. Að endingu ljet hann þá ósk í
ljós, að vinarhugur og bræðraþel
mætti verða sem best meðal Norð-
urlandaþjóða og þó einkum milli
Dana og íslendinga.
Því næst hóf Weis prófessor
máls á umræðuefni sínu um líf og
starfsemi gerlanna. Hann hefir
rnælsku og orðgnótt, hugmynda-
flug og líkingamál lrennarans, sem
byggir frásögn sína á víðfeðmum
fróðleik og fræðiiðkunum.
Útvarpii „hlutlausa".
Eftirfarandi grein hefir blaðinu
borist til birtingar:
Á sýslufundi Borgarf jarðar-
sýslu, sem haldinn var á Akranesi
10. þ. m. voru samþ. með öllum
atkvæðum eftirfarandi tillögur:
„Sýslunefndin samþykkir að
lcrefjast þess af þingi og stjórn,
að hreyfa ekkert við prestaskipun
landsins, nje að gera nokkurar
breytingar á hinum fornu prests-
setrum, án fulls samþykkis við-
komandi safnaða og kirkjuráðsins.
Sýslufundur Borgarfjarðarsýslu
ræður eindregið frá því að ráð-
inn sje sjerstakur prestur við út-
varpsstöðina í Reykjavík, sem
prjedikari fyrir þjóðina, en æskir
jafnframt að kennimenn — einlcum
liöfuðstaðarins — hafi frjálsan og
óbundinn aðgang að útvarpinu a.
n: k. á helgum dögum.“
Tillögur þessar voru samstundis
sendar útvarpinu til birtingar, en
lijer hefir enginn orðið var við
að þær væru lesnar upp, og voru
því sendur á ný, en lieyrðust ekki
að heldur. Frjettaritari útvarps-
Frosið dilkakjðt,
nautakjöt, liakkað kjöt, kjötfars
og vínarpylsur og einnig íslensk-
ar gulrófur.
Hlðt og fiskmetisgerðin,
Grettisgötu 64, eða Reykhúsið.
Sími 1467.
Borgarinnar besta
og ódýrasta kaffi fæst í
Irma.
Bragðbest og ilmmest.
Mikill afsláttur.
Gott árdegiskaffi 165 aura.
Hafnarstræti 22.
Niðurjöfunar-
skrá.
Skrá yfir aðalniðurjöfnun út-
svara í Reykjavík fyrir árið 1932
liggur frammi almenningi til sýnis
á skrifstofu borgarstjóra, Austur-
stræti 16, frá 21. þ. m. til 3. júní
næstkomandi, að báðum dögum ■
meðtöldum, lil. 10—12 og 13—17
(á laugardögum að eins kl. 10
-12).
Kærur yfir útsvörum skulu
komnar til niðurjöfnunarnefndar,
Hafnarstræði 10, áður en liðinn er
sá tími, er niðurjöfnunarskráin
Jiggur frammi, eða fyrir kl. 24
þann 3. júní.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
20. maí 1932.
K. Zimsen.
Mnnið
A8 trúlofunarhringar era happ-
uelastir og bestir tri
Slgnrþór JóassynL
Auaturstrmti 8. Rvfk.
ins tók npp ýmsar frjettir af
fundinum, meðal annars þessar
tillögur, óg var það alt birt nenia
tillögurnar.
Með margyfirlýstu hlutleysi út-
varpsins fáum vjer ekki skilið þá
meðferð sem tiUögurnar hafa sætt,
því hvað svo sem skoðnnum út-
varpsstjórnar líður, á þessum sam-
þyktum, þá er þetta aðeins staðfest
samþykt frá opinberum fundi sem
hver og einn á heimting á að sje
lesin upp frá útvarpsstöð ríkisins.
Þar sem vjer því sjáum tilgangs
laust að togast lengur á við iit- •
varpið ,,hlutlausa“ þá sendum
vjer yður, heiðraði ritst.jóri, þetta
til birtingar í blöðum yðar, Morg-
unblaðinu og Isafold, svo landslýð-
ur geti sjeð liug sýslunefndarinnar
hjer til þessa máls.
Virðingarfylst,
Akranesi, 19. maí 1932.
Páll Gnðmundsson,
Þorsteinn Jónsson.
sýslunefndarmenn.