Morgunblaðið - 29.05.1932, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.05.1932, Blaðsíða 4
M 0 R OTJNBLÁÐIÐ HuglHslngBdagbðk Mynda og rammaverslunin, Freyjugötu 11, Sig. Þorsteinsson, sími 2105, hefir fjölbreytt úrval af Veggmyndum, ísl. málverk bæði í olíu og vatnslitum, sporöskju- rammar af mörgum stærðum. Verð- ið sanngjarnt. Til sölu tennisspaði og sex bolt- ar. Einnig upphlutur með öllu til- heyrandi. Upplýsingar í Miðstræti 4, uppi, frá lfl. 11—12. Amatörar, framköllun og kopi- ering er móttekin fyrir okkur í Raftækjaverslunin „Norðurljósið1 ‘, Laugaveg 41. Líka fást Kodak- filmur og Ijósmyndavjelar. Ama- törverslun Þorl. Þorleifssonar, Austurstræti 6. Orgel til leigu. H'ljóðfærasalan, Laugaveg 19, 2 herbergi og eldhfis ásamt þæg- indum óskast í góðu húsi frá 1. október n.k. Hálfsárs fyrirfram greiðsla eða meira getur komið til greina. — Tilboð merkt „80“ leggist inn á A. S. í. Nýlenduvöruverslun óskast til kaups nú þegar, ti’lgreindar sjeu vörubirgðir og iitborgunarupphæð. Tilboð sendist A. S. í. fyrir 1. júní, merkt „Verslun“. Öll umferð um túnið við Ásvalla- götu er bönnuð. Eigendurnir. , Flóra, Vesturgötu 17, sími 2039. Höfum fengið trjáplöntur frá trjá- reit er liggur uppi í f jötllum í Nor- eg:i Skógbjörk, reyni, síberiskt lævirkjatrje og ertutrje og kornel- runna. Gefins eldspýtur. Með hverjum 20 stk. cigarettupakka, sem keypt- ur er hjá oss fyrst um sinn, fást jafnmargar eldspýtur, í sjerstöku hylki, gefins. Einnig handa þeim sem kaupa vindla. Tóbakshúsið, .Austurstræti 17. lEfintyra prinsinn. rakleitt að Gravenhofhöllinni, þar sem landstjórinn bjó og óskaði að ) á tali hans. 8. kapítuli. Karl hertogi var stjómsamur, hann var harður í horn að taka er því var að skifta og embættis- menn átti hann marga harðsnúna, mest orð fór þó af Iandstjóranum í Zeelandi, herra Claude de Rhyn.s- ault frá Lothringen. Hann var mjög strangur, svo menn þorðu ekki annað en Mýðnast honum í hvívetna. Þeir reittu sig inn að berii beini til að greiða honum skattana í tæka tíð, ef einhver ljet óánægju í Ijósi, var svipan á lofti — Iiann var sannkallaður harðstjóri. vitnaði hertoginn. til hans er hann talaði við aðra um- boðsmenn sína, de Rhynsault var sönn fyrirmynd að hans áliti. Aftur á móti voru þegnarnir ekki eins ánægðir, þeir hötuðu liaun margir, þó þeir ljetu það ekki uppi. Ósvífni da Rliynsaults gat verið takmarkalaus, einkum í kvennamálum. hann gat enga unga stúlku látið í friði, enda óttuðust þær hann eins og skollan sjálfann. Þennan mann vildi Stefán munk- ur hitta, hann átti að forða Jó- Dagbók. I. O. O. F. 3= 1145308 = 81 /21. Veðrið í gær: Hægviðri og góð- viðri um alt land. Hiti víðast hvar um 12 st. Yfir Norður-Grænlandi er grunn lægð,. sem veldur þj*kk- viðri og rigningu á Austur-Græn- landi. Önnur lægð alldjúp er yfir hafinu suður af Grænl. og hreyfist hún hægt norðaustur eftir. Má jafnvel búast við SA-átt og rign- ingu af hennar völdum upp úr helginni. Veðurútlit í Rvík í dag: Hæg- viðri. Ljettskýjað. Fimleikahópsýning telpna úr K. R. fer fram í dag kl. 2y2 á Aust- urvelli. Um 70—80 telpur sýna þar fimleika, auk þess sýna nokk- urar stúlkur úr 2. og 3. flokki K. R. þar einnig fimleika. Fyrsti flokkur sýnir ekki að þessu sinni. Fimleikasýningunni stjórnar kenn- ari fjelagsins ,ungfrú Unnur Jóns- dóttir. Munu margir bæjarbúar koma niður að Austurvelli í dag og sjá hinn fríða kvennahóp K.R. Kreppan verður seld á götunum í dag og á afgr. Morgunblaðsins. Arthur Gook trúboði hefir vakn ingarsamkomu í Bethaniu í kvöld 8J/2- Allir velkomnir. Knattspyrnumót 2. flokks. — Á föstudagskvöldið fór fram úrslita- kappleikur mótsins. Fóru svo leik- ar K.R. vann Val með 2:1 og hlaut þennan bikar til fullrar eignar. Var kappleikurinn mjög fjörugur, og var K.R. vel að sigr- inum kominn. Margt áhorfenda ;var á vellinum. Málverkasýningin í Stokkhólmi. Auglýst er hjer í blaðinu í dag, um íslensku málverkasýninguna í Stokkhólmi, sem haldin verður í haust. Er þess að vænta, að ís- lenskir Iistamenn gefi sýningu lessari gaum, og sendi bestu mynd- ir sínar eldri sem yngri, svo sýn- ingin geti orðið, sem allra best, íslenskri Iíst og íslenskri þjóð, til varanlegs sóma. Kreuger-fyrirlestur Steindórs Sigurðssonar er í Gamla Bíó í dag kl. 3. Þetta mun einasta færi sem almenningur hjer hefir til ]>ess að fræðast um þessi stór- liönnu frá voða. Munknum var vísað inn í stofu þar sem land- stjórinn sat. De Rhynsault var fremur img- legur maður, rauður í andliti og hörkulegur, honum var Iítið um andlegu stjettina gefið. — Nú, munkur, hvaða frjettir flytur þú mjer, er jeg á að gleðj- ast yfirf — Á litlu skammeli við borðs- endann þar sem landstjórinn sat, húkti svolítill krypplingur, föt hans voru tvílit, annar helmingur- inn rauður, hinn svartur, hengu smábjöllur í hornunum á kragan- um, og það sem hann hafði á höfð- inu var líkast hanakamb. Þetta var fífl landstjórans. Það fór hroll ur um munkinn þegar hann kom auga á fíflið, svo il'lmannlegt augnaráð hafði hann ekki sjeð í nokkrum manni. — Munkurinn reyndi að jafna sig og leit á landstjórann: — Yðar hátign kannast við hvarf Antoníusar greifa af Geld- em, er ekki svof — Hvað eiga slíkar asnaspum- ingar að þýða? Stefán munkur Ijet ekki slá sig ut af laginu: — Eins og de Van- clern tilk.ynti hertoganum þá var nefndur greifi á ferð í Ghent í marsmánuði síðastliðnum. Frelsaði hann þar mannaumingja frá dauða kostlegu svik. Fyrirlesarinn er allra manna' fróðastur um þetta, þar sem afstaða hans hjá ýmsum norskum blöðum- er 'sKk, áð liann liefir haft greiðan aðgang. að pliiggum, sem málið snerta. Stóra vitleysan, eða svar dóms- málaráðlierrans fráfarandi við at- hugasemd eins yfirskoðunarmanns landsreikningsins viðvíkjandi fjár- reiðum Laugarvatnsskólans, sem birt er í landsreikningnum 1930, hefir nú verið gefið út sjersprent- að á ríkissjóðs kostnað og sent út með Tímanum. Jafnvel þó óheimilt sje, að nota fje ríkissjóðs til þess- ara hluta, er þó vel farið, að þetta heilbrigðisvottorð hins fráfarandi | ráðlierra komist í hendur sem flestra landsmanna. Vafalaust eiga n.enn þó, við fyrsta yfirlestur, erfitt með að finna út, hvernig fjárreiður Laugarvatnsskólans eru í raun og veru. En eftir því sem vjer höfum komist næst, mun út- koman vera þessi: Hálf jörðin Laugarvatn hefir verið keypt fyrir 16 þús. kr., en jarðhitinn er metinn á 311 þús. kr. og mun ríkissjóði ætlað að leggja fram fje á móti þeirri upphæð. Utkoman verður því sú hjá dómsmálaráðh., að rík- issjóður skuldar Laugarvatnsskóla stórfje!! Þannig lítur heilbrigðis- vottorðið út. ,Kreppan‘. Mbl. hefir verið beð- ið að geta þess, að vegna misgán- ings hafi fallið úr blaðinu ,Krepp- an‘, er út kom í gær, nafn útgef- anda og ábyrgðarmanns blaðsins, sem er Bjarni Guðmundsson stúd., Óðinsgötu 8. Togararnir. Ver kom af veiðum í gær með ágætan afla; hann liættir nú veiðum. Útvarpið í dag: 10,40 Veður- fregnir. 17.00 Messa í Fríkirkjunni (sr. Árni Sigurðsson). 19,30 Veð- úrfregnir. 19.40 Barnatímí sr. Frið- rik Hallgrímsson). 20.00 Klukku- sláttvtr. Erindi: Elsta guðspjallið (Ásm. Guðmundsson docent). 20,30 Frjettir. 21,00 Grammófóntónleik- ar: Kvartett í C-moll, Op. 18. nr. 4, eftir Beethoven. Einsöngur (Einar Sigurðsson). Fiðlusóló: —- Iíexentanz, eftir Paganini, leikinn af Vasa Prihoda. Danslög til kl. 24. — Ekkert rnsl má skilja eftir á götum kirkjugarðsins. Þéiþ, s'em það gera, m'ega búast við reikningi fyrir flutning þess. Eigendur hirði eða bæti brotna kassa á leiðum og brotnar grindur um leiði, ella verður það flutt brott úr garðinum. Sóknaiaefndin. Á morgun: 10.00 Veðurfregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00 Veður- fregnir. 19,30 Veðurfregnir. 19.40 Tónleikar: Alþýðulög (útvarps- kvartettinn). 20.00 Klukkusláttur Grammónfóntónleikar: Einsöngur: Tenna Frederiksen syngur: Bæn Tosca og lag úr 1. þætti óp. Tosca eftir Puccini. Ippolito Lazaro syngur: La Bruja, eftir Carrión y Chapi og La partida, eftir Al- varez. Pianosóló: Valsar eftir Irahms. 20.30 Frjettir. Áttræð er á þriðjudaginn, 31. þ. m., Sigríður Sigurðardóttir. Er hún hjá syni sínum og tengdadótt- ur, Jakobínu Helgadóttur strau- konu og Sigurði Þórðarsyni trje- smið, Vesturgötu 21. Mót verslunar- og bankamanna, sem Norræna fjelagið gengst ár- lega fyrir, verður að þessu sinni haldið í DanmÖrku, dagana 8.—16. júní. Hjeðan fara fulltrúar frá Verslunarmannafjel. Reykjavíkur og Merkíir, á mót þetta. Frá Verslunarmannafjel. Rvíkur fara þeir Brynjólfur Þorsteinsson, bankafulltrúi, og Guðmundur Jónsson í ,Brynju‘. Fóru þeir í gær með Drotningunni. En full- trúar frá Merkúr, þeir Valgarður Stefánsson, Konráð Gíslason og Kristinn Guðjónsson, fóru með „Goðafossi“ síðast. — Þátttak- endum í móti þessu er boðið í ferðalag um Danmörku, til að sjá þar ýms stórvirki og atvinnu- fyrirtæki. Hjálpræðisherinn. Samkomur í dag: Helgunarsamkoma kl. 10J4 árd. Sunnudagaskóli, kl. 2 síðd. (Verðlauna sunnudagur); útisam- koma. á Lækjartorgi kl. 4 0g við Lindargötu kl. 7%. Kveðjusam- koma fyrir stabskapt. Árna M. Jóhannesson og fjölskyldu kl. 8y2. Lúðrafl. og strengjasveitin að- stoða. Allir velkomnir! Heimila* sambandið hefir kveðjufund fyrir frii Jóhannesson stábskapt. á mánu daginn kl. 8Yo sd. Meðal farþega á Dettifossi í gær voru: Frú María Sveinsson. Frk. A. Hallgrímsson. Kristján Bergs- son. Þorsteinn Þorsteinsson skip- stjóri. Sigurður Pálsson. Farþegar voru alls 12. Eimskip: Gullfoss er í Kaup- mannahöfn. Goðafoss er á leið út. Lagarfoss er á Siglufirði. Brúar- foss fór frá Reykjavík í fyrra- kvöld vestur. Dettifoss er í Rvík. Selfoss fór frá Nordenham í fyrra kvöld. K.F.U.M. 0g K.F.U.K. í Hafnar- firði. Almenn samkoma í kvöld kl. 8 y2. Steinn Sigurðsson rith. talar. Voraldarsamkoma verður haldin í Góðtemplarahúsinu uppi í kvöld kl. 8y>. Allir velkomnir. Frá Alþingi. Frv. um gjald- þrot bænda var til 3. umr. í Ed. í gær. Enn komu fram nokkurar brtt. við frv., en voru feldar. — Einnig var feld rökstudd dagskrá frá P. M. en frv. samþ. með 8:5 atkv. og endursent Nd. f Nd. var á dagskrá frv. um breyting á vega- lögum, ásamt sæg breytingartil- lagna. Frv. þessu var vísað til stjórnarinnar með rökstuddri dag- skrá og er þar með úr sögunní að þessu sinni. Dagskrár Alþingis á morgun. Ed.: Fjárlög (atkvgr.), fimtar- dómur og byggingasamvinnufjel- lög. í Nd. er eitt smámál á dag- skrá. Knattspyrnunámskeiðinu lýkur f dag, með fyrirlestri sem forseti f.S.Í flytur í Miðbæjarbarnaskól- anum, kl. 4 sd. Allir laiattspyrnu- menn velkomnir meðan liúsrúm leyfir. ér hafði talað ósæmilega um hans hátign, hertogann. Síðan hefir ekk- ert til lians spurst, en menn álíta, að greifinn .hafi fylgst með þessum rnanni frá Ghent. Nú, hvað varðar mig úm þetta ? — Hértðginn hefir óskað eftir að menn kæmust'á snoðir um hvar greifinn væri niður1 kominn — og yrði þakklátur fyrir, ef einliver kæmi Iionum heim aftur. — Hættu þessu masi, þettai er ekki annað en það sem jeg veit. — Yerið rólegur eitt augnablik, yðar hátign. Vitið þjer að þessi maður, sem greifinn bjargaði, var kaupmaður hjeðan frá Middelburg, Philip Danvelt að nafni. Þetta hreif. — Danvelt — hróp- aði hann. — sá maurapúki. — Guði sje lof, þarna gat jeg frætt yðar hátign um það sem þjer vissuð ekki áður. Nú ráðlegg jeg yður að spyrja Danvelt hvar vel- gerðamaður hans sje rtiður kom- inn. Þá er erindi mínu lokið. Frið- ur sje með yður. Hálfri stundu síðar kom sendi- maður frá Iandsstjóranum til Danveflt með skipun frá honum að mæta strax. Danvelt varð hálf skelkaður yfir þessari orðsendingu, og vildi fá að vita hvað hann ætti að gera þang- að, hann væri að leggja af stað tiIVlissingen, og sjer væri illa við að tefjast. — Hans hátign skýrir yður frá erindinu, sagði sendimaðurinn. Því fyr sem þjer komið því betra fyrir yður. Danvelt þorði ekki frekar að andmæla og fór nauðugur viljug- ur til landstjóra. — Jeg hefi frjett, að þú liafir lent í káandri síðast þegar þú varst í Ghent, þannig byrjaði land- stjórinrí óðara og hann sá Danvelt. — Já, herra, jeg vissi ekki hvað jeg gerði, jeg var ölvaður. — Hvaða náungi var það sem hjálpaði þjer úr klípunni. Jeg heyri sagt að þú hafir hlotið háa sekt fyrir brot þitt. Þú manst sennilega hver það var sem lánaði þjer fjeð? — Já, það man jeg vel. — Hvað hjet hann? — Egmont — Antoníus Egmont. — Dóninn þinn, kantu ekki að nefna hann? Danvelt glápti og vissi ekkert hvaðan á sig stóð veðrið. >— Veistu ekki hver hann var þessi Antoníus Egmont, sem þú nefnir svo? — Nei, ekkart ennað en það sem jeg hefi þegar sagt. — Veistu hvar hami er núna? — Hann er í Vlissingen. — Það er ágætt, þú getur farið þína leið, jeg hefi ekki meira við þig að tala, sagði de Rhynsaúlt, Danvelt ljet ekki segja sjer það tvisvar, hann flýtti sjer heimr söðlaði hest sinn og reið í snatri til Vlissingen. Þennan sama dag voru þau á reiðtúr Jóhanna og Antoníus ísamt þjónum sínum, Jan og Franz, er riðu jafnan spölkorn á eftir. Þau riðu með fram strönd- inni, svalur andblær bljes af hafi,. það var svo hressandi í sólarhit-- anum. Greifinn var í þungu skapi, hann átti í stríði við sjálfan sig. Hann var hrifinn af Jóhönnu. en eins o.g ástatt var, gat hann ekki gifst alþýðukonu. Hann varð að afsala sjer öfllu tilkalli til ríkiserfða áður- en hann gæt.i gengið að eiga hana,. Ekki vildi liann draga þessa sak- lausu stúlku á tálar, annað hvort varð hann að giftast henni og taka afleiðingunum af því eins og mað- ur. eða yfirgefa hana hið fyrsta fyrir fult og alt. — Visuð þjer ekki að jeg mundi koma aft.ur, Jóhanna? — Jeg var að vona það, hún sá eftir hvað hún hafði verið hrein- skilin og tók sig á: — Þjer vitið; livað jeg meina, það var svo sem auðvitað að þjer kæmuð til að^ innheimta skuldina og svo- sækjai liestana yðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.