Morgunblaðið - 29.05.1932, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.05.1932, Blaðsíða 8
s M 0 R G U N B L A Ð I Ð BMMW>KMW*BBBWItTrrrn*riBBGMM5lga^lOJBlBgMBMWBa!aag sagði HINN FÁFEÓÐI Hann kendi bifreiðinni um, því hann vissi ekki betur. — Hann leit sem s;je að eins á verð olíunnar en ekki gæðin. HAJíN HAFÐI EKKI GERT SJER GREIN FYRIR, að bulluhólkarnir verða fyrir ó- eðlilegu sliti, af því að ódýra olían þynnist við hita vjelarinnar. Hann vissi heldur ekki að ódýru olíurnar mynda sót og leðju, sem festa bulluhringana og stöðva olíutilrenslið. HANN VISSI EKKI, að bullur (stimplar) vjelarinnar fara 3000 sinnum upp og niður á mínútu, og að einungis þunn olíuhimna, þynnri en þynnsti pappír, ver núningsflet- ina gegn sliti. — HANN GERÐI SJER HELDUR EKKI GREIN FYRIR, að það er mikill munur á vjelum, hvað viðvíkur hitaútþensiu, sam- þjöppun, hraða, ,efni og smurningskerfi, að sú olíutegund, sem á á- gætlega við eina vjel, á ekki við aðra. — HANN VISSI EKKI, að framleiðendur Gargoyie Mobiloil, eftir nákvæma prófun á alls konar vjelategundum, framleiða sjer- stakar olíur fyrir hverja tegund til sumar- og vetrar-notkunar. — Enginn liafði sagt honum að ca. 75% af ö'llum bifreiðafram- leiðendum ráðleggja Gargoyle Mobiloil. HANN HAFÐI ALDREI HUGSAÐ UM, að útgjöldin til olíukaupa eru að eins 3% af reksturskostnaði bifreiðarinnar. Hann hafði aldrei hugsað um hvaða áhrif smumings- olían hefir á viðgerðarkostnaðinn, en hann hafði sparað peninga við að kaupa ódýra olíu. — Þess vegna var hann óánægður með bifreiðina sína og sagði: „Hvað, þarf að bora út bulluhólkana nú þegar.“ HANN VISSI SEM SJE EKKI BETUR. En þeir, sem betur vita, kaupa ekki að eins bestu olíuna, heldur biðja um þá teg. Gar- goyle Mobiloil, sem er framleidd fyrir viðkom- andi. bifreiðategundir. Biðjið um hina rjettu tegund Gargoyle Mobiloil. Athugið Gargoyleskrána hjá útsölumanninum. — GARGOYL VACUDn 01L COnPANY. Ðmboðsmenn: H. Benediktsson & Co. Hann fekk náðun til handa Gísla mjög til þess áð auka á vinsældir íuðmundssvni Tímaritst.ióra fyrir iians meðal alþýðu marmu rýmir burtu tortryggni þeirri, sem ryður sjer til rúms, meðan alt er á huldu um störf nefndarinnar. Onnur hlið á því máli er það, hvort reglurnar í heild sinni eru rjettlátar og heppilegar, hvort út- svarsálagningin er bæjarfjelaginu yfirleitt holl og til frambúðar. — Um það geta menn nú dæmt, þá reglurnar eru birtar; enda lítil sanngirni í því, að fáeinir menn geti ráðið því á laun, hvernig bæj- armenn eru skattlagðir. Heilsufarið. A það hefir verið bent nokkrum sinnum h.jer í blaðinu, að engin sannprófun væri fengin á því, hve heilsubætandi áhrif innibyrgt sund laugavatn hefði á nemendur hinna „heitu“ skó'la. Ríkisútvarpið flutti nýlega fregn ir af Reykholtsskóla, þar sem vik- ið var að heilsufari skólafólksins, •g það gefið ótvíræðlega í skyn, að sundþró skólans hefði bætt heilsu fólksins þar. Nemendur skólans eru eigi jafn- sannfærðir um nytsemi þessarar innilokuðu „heilsulindar“ eins og fregnritari útvarpsins, og hafa jafnve1! gerst svo óvarkárir að setja ígerðarkvilla þá, sem gengu í skólanum í vetur í sambandi við sundbuslið í skólanum. Sumir fóru þaðan með graftrarútferð úr skiln- ingarvitura. f ””i Litið um öxl. cr Landsstjórin, sem ætlaði að bæta hag sveitanna, skilar þeim í hinum mestu örðugleikum, bændur áttu að verða skuldlausir og frjálsir, urðu skuldaþrælar sem á svörtum einokunartímum. Fjárhag þjóðar ætlaði Afturhaldsstjórnin að bæta, en hefir teymt þjóðina út í skulda- f en. Svona mætti lengi telja. En dæmin eru deginum iljósari. Lands- stjórnin sem veitti fegurst og best loforðin, hefir bókstaflega ekkert þeirra efnt, ekkert einasta. Hvert verk sem hún vinnur, eða hefir látið vinna er meingallað eða ó- nýtt, smátt sem stórt. Jafnvel svo einfalt verk, sem hverjum einum bónda tekst með þröngum efnahag, tekst landsstjórninni ekki að fram- kvæma með miljónaaustri. Ein- falda, fjárhelda túngirðingu getur hún ekki sett upp austur í Þing- vallasveit, þó áhuginn sje svo mikill fyrir girðinugnni, að um hann sje haldinn heill iitvarps- fyrirlestur. Lambánum fjölgar í þjóðgarð- inum. Tóur eru þar líka friðaðar. Mun þjóðgarðsvörðurinn geta gert a því athugun nokkra hvort hin ferfættu friðhelgu dýr skifta lit,- um eftir árstíðum, eins og getið er um í náttúrufræði Jónasar Jóns- sonar. Frá Alþingi. Andstöðuflokkar stjórnarinnar voru frá öndverðu ákveðnir í því að neita Afturhaldinu um fjárlög, nema viðunandi lausn fengist á stjórnarskrár- og kjördæmamálinu. En Afturhaldið trúði því blátt áfram ekki, neitaði sjer alveg um það, að líta nokkra vitund fram í tímann, í þeirri von að „alt slark- aði það einhvern veginn“, eins og fyrri daginn. Og þessi hugsunarháttur er hið allsherjar sjerkenni á stjórnmála- starfsemi Afturhaldsins. Tveir valdamestu menn landsins, og nán- asta fylgilið þeirra, hafa gert sjer það að algildri reglu, að líta aldrei lengra en til líðandi stundar, kæra sig aldrei hót um hvert stefndi, um afleiðingar óstjórnar, fjár- sukk, rangsleitni og hvers konar svívirðu, sem þeim hefir hug- kvæmst, sjer og málaliði sínu til stundarhagnaðar eða garnans. Og þó þessir menn, sem notað hafa völd sín, á þann skaðlegasta og svívirðilegasta hátt, sem kunn- ugt er, og þeir e. t. v. við og við hafi fundið með sjálfum sjer, hví- líkir skaðræðismenn þeir í raun og veru væru, þá má búast við, að huggun þeirra og hálmstrá, gegn- um hið þaulsætna aðgerðaleysi „100 daga þingsins“, hafi verið, að — þeir væru þó að minsta kosti nægilega góðir, fullboðlegir vald- hafar, handa Jóni Baldvinssyni. Hörmuleg iðrun Sama daginn og Tryggvi Þór- hallsson gafst upp við stjórnar- störfin, lagðist þessi lán'leysingi í rúmið. Hefði hann verið í ritstjóra- stól, hefði hann átt það til að tala um „taumhald forsjónarinnar“. Vonandi teymir forsjónin hann á fætur innan skamms. En þinginu sendi hann eins konar boðskap, sem birtur hefir verið hjer í blað- inu, og geymast mun lengi í ann- álum Aftnrhaldsins, Þar skorar hann m. a. á gæfu sína(!) að hún megi í framtíðinni vinna að alþjóðarlieill. Mátti ekki seinna vera, að honum dytti alþjóðarheil'l í hug, í ráðherrastól, því fram á þessa viðskilnaðarstund hefir hann alt af stjórnað með eigin flokkshagsmuni fyrir augum og gleymt öðru. En nú, einmitt í sömu andránni og hann uppgafst, þá kom iðrunin, þá mundi hann eftir þjóðinni, þá mátti sundrung- in, segir hann, ekki spilla trausti og áliti þjóðarinnar út á við, þess- arar „brynjuklæddu“ þjóðar. Annar viðskilnaður. En stallbróðirinn í dómsmála- ráðuneytinu var ekki sama sinnis. Iíann uppgafst ekki með neina iðrun á vörunum. Hann virtist ekki hugsa neitt sjerlega mikið um álit þjóðarinnar eða traustspjöll út á við. Daginn eftir að flokkur hans hafði sagt honum að fara, gaf hann út fyrirskipun um það, að höfða sakamálsrannsókn og jafn- vel sakamál, hvað sem rannsokn liði gegn þriggja manna fyrver- andi bankastjórn, gegn þrem mönn n m í miðstjórn fjölmennasta stjórn inálaflokks í landinu gegn stærsta atvinnufyrirtæki landsins og jafn- vel gegn borgarstjóra Reykjavík- nr. ef svo vildi verkast. Ef menn hugsa sjer, að þessi gófla væri tekin í alvöru, hvernig færi þá með álit og traust landsins ? Myndu ekki leifar lánstraustsins hverfa, gengi krónunnar falla, og yfirleitt verða hin mesta truflun, á fjármálum og viðskiftamálum þjóðarinnar? Skyldi það ekki hafa áhrif, ef menn alment tryðu á þá auglýsing þessa ráðherra, að ls- lan,d væri eins konar alls herjar nöfuðból fyrir glæpamenn á borð við A1 Capone? En. þetta tiltæki „hins heilsu- góða“ fær ekki áhrif vegna þess eins, að ekki er tekið mark á valds manninum, hvorki fjær eða nær, því hann lætur eins og brjálaður maðnr, hvað sem heilsunni líður. Náðun. Og til þess að gera skrípaleik- inn al-fullkominn, láta stjórnarat- hafnirnar tillíkjast viðburðarás í skopleikjahúsi, þá bætti þessi ráð- herra við enn einum þætti við við- skilnað sinn. sektir þær, sem fallið hafa á hann í nokkrum meiðyrðamálum. Er hjer ekki loks komið hámark vitleysunnar, brjálæðisins í stjórn landsins ? Jónas Jónsson skrifar nafnlausar sorpgreinar í Tímann. Ritstjórinn er dæmdur í sektir fyrir meiðyrðin. Jónas Jónsson náðar ritstjórann. af sektum þeim sem ritstjórinn er dæmdur til að greiða fyrir greinar Jónasar Jónssonar(!) Verður komist lengra? Erklbiskupinn meö þvottabalann. í nýútkominni bók um Söder- blom, eru margar frásagnir er sýna hve biskupinn var hjálpsam- ur við alla og alþýðlegur í við- móti. Urðu þessir eiginleikar hans Ein sagan er á þessa leið: , Söderblom átti að mæta á fundi i sálmabókarnefndar í Sigtúnum. — Iíann kom tveim tímum af seint á fundinn. Hafði hann verið í Söd- ermanland og prjedikað þar, en fengið bát yfir að Upplandaströnd. Frá ferjustaðnum ætlaði hann að fara fótgangandi á fundarstaðinn. Hann bar þuriga, handtösku. Skamt hafði hann farið uns hann mætti gamalli konu er bar stóran þvottabala með þvotti í. Biskupinn lagði frá s.jer handtöskuna, en tók í balann með konunni, og bar hann með henni heim til hennar. Heima í kotinu lá húsbóndinn í kör. En konan átti eftir að fara aðra ferð með þvott út að þvotta- staðnum. Meðan konan lauk við þvott sinn, sat biskupinn hjá gamla manninum, ræddi við hann og söng fyrir hann, og hjálpaði kon- unni síðan að bera. seinni balann heim. Að því búnu hjelt hann leið- ar sinnar á fundinn. Heilsusamleg brú. Fyrir nokkru var stóreflis brú bygð vfir fljótið hjá Buffalo-borg- inni í Bandaríkjunum, sem greinir luma frá Kanada. Við þetta brá svo að manndauði af völdum ár fengis minkaðium helming í borg- inni. 40—100 þús. menn fara yfir brúna á sunnudögum og hátíðum og fá sjer ósvikið öl eða áfengi í Kanada. í Providencehjeraði hafa fleiri dáið af óhollu áfengi undanfarið en af mislingum, skarlatssótt, kik- hósta og lömunarveiki til samans samkvæmt skýrklu borgarlæknis í Buffalo, og þó telur hann ástandið þar ekki lakara en víðast gerist í Bandaríkjunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.