Morgunblaðið - 07.06.1932, Side 2
2
M0RGUN6IAÐIÐ
lippsögn uerslunar- og
siglingasamninga uið Doreg.
Ályktun Sam einaðs þings.
I gær var fundur í Sameinuðu
þingi kl. 1. Þar var samþykt með
30 samhljóða atkvæðum svohljóð-
andi tillaga frá utanríkismála-
nefnd:
Álþingi skorar á ríkisstjórnina
að athuga, hvort ekki sje ástæða
til að segja upp gildandi verslun-
ar- og siglingasamningum við
Noreg.
Viðskiftin við Norðmenn.
Formaður utanríkismálanefndar,
Bjarni Ásgeirsson, gerði grein fyr-
ir þessari tillögu nefndarinnar, er
slafaði af viðskiftum stjórnarinnar
við Noreg síðan kjöttollssamningn-
um var sagt upp í vetur.
. Sagði hann, að afstaða norsku
' stjórnarinnar væri orðin skýr, að
því leyti, að Norðmenn vildu ekki
framlengja kjöttollssamninginn
nema því að eins að þeir fengju
einhverjar ívilnanir á móti.
Þegar um þær yrði samið, myndi
hentugast að hafa frjálsar hendur,
cg hafa sagt upp þeim verslunar-
og siglingasamningum við Nbreg
sem n,ú gilda. Viðskifti okkar við
Noreg eru þannig að þau eru sýni-
iega Norðmönnum meira í vil, en
okkur Islendingum, þar eð inn-
flutningur frá Noregi undanfarin
ár er um 9 miljónir, en útflutt
hjeðan þangað að eins um 4 milj.
kr. Auk þess er® ósýnilegar tekjur
Norðmanna hjerr, svo sem af sigl-
ingum, en siglingar Norðmanna
hjer við land byggjast m. a. á
samningi frá 1856 um jafnrjetti
þjóðanna í tollamálum, og í sigl-
ingum hver hjá annari. En jafn-
rjettisákvæðið um siglingar koma
vitanlega okkur að engu haldi, þar
sem við höfum ekki aðstöðu til að
halda uppi strandferðum við
Noreg.
Kjöttollurinn og útflutningurinn
til Noregs.
í haust sem leið, sagði Bjarni
Ásgeirsson, að saltaðar hefðu verið
um 20 þús. tn. af saltkjöti til út-
flutnings. Af því seldist um 12
þús. tunnur til Noregs. Um 2/5
af útflutningskjötinu er nú hægt
að senda fryst. Þó bætt verði við
frystihúsum í sumar, má búast við,
að um 12 þús. tunnur verði að
fara á norska markaði næsta ár.
Tollurinn á saltkjótinu íslenska
er nú 27 aura á kg., hækkaði ný-
lega vegna 25% gengisviðauka.
En er samningurinn rennur út,-
verður tollurinn 54 aurar á kg.,
Nú gefa smásalar í Noregi 70—90
aura fyrir kg. af nýju nauta-
kjöti. Verður af því sjeð, hver
útilokun 54 aura tollur verður á
saltkjötinu.
Er Bj. Ásg. hafði gert grein
fyrir þessum og nokkurum fleir-
um atriðum málsins, gat Jón Þor-
láksson þess. að ríkisstjórnin gæti
leitt þetta mál til lykta án af-
skifta frá Alþingi. Tillagan væri
fram komin til þess að Alþingi
sýndi hug sinn til málsins.
Þegar til samninga kemur er
þess að gæta, að það eru toll-
ívilnanir á einum 12 þús. tunnum
af salltkjöti, sem um er að ræða,
og samið er um þær við þjóð, sem
flytur hingað helmingi meira en
við seljum þar, og hefir auk þess
ýms önnur viðskifti við Island.
Sangleri.
„Gangleri* ‘, tímarit Guðspeki-
fjelagsins, er nýkominn út. Er
hann vandaður að öllum frágangi
og fjölbreyttur að efni. Eigi verð-
ur hjer greint frá innihaldinu,
nema að nokkru leyti. Helstu rit-
gerðirnar eru: „Guðspekilegt líf“
cftir A. Besant, mjög þörf og eft-
irtektarverð hugvekja. „Spámaður
í heimi nútímavísinda" eftir Al-
esander Horne. „Svör C. Jinaraja-
•dasa við spurningum Þórbergs
Þórðarsonar“. „Er óhætt að hafna
kjöti og fiski f ‘, eftir Steingrím
Matthíasson. „Dulræna“, eftir Vil-
lielm Grönbech (þýtt af J. Smára).
„Lögmál athafna, eftir ritstjórann.
„Hugleiðsla fyrir byrjendur“, eft-
ir J. J. Vedgewood. í ritinu er
ýmislegt fleira smávegis, sem hjer
er ekki nefnt. Sjerstaklega vil jeg
vekja athygli á ritgerð Steingríms
Matthíassonar læknis. Er hún fróð-
leg og þörf, og ekki ólíklegt að
hún verði til þess að hnekkja eitt-
hvað hinni gömlu hjátrú: Að kjöt
og fiskur sje nauðsynleg fæða. Rit-
gerð Vilh. Grönbechs (Dulræna)
tel jeg einnig mjög merkilega. Er
þar vel lýst, og sjálfsagt eins vel
og kostur er á, sálarástandi þess-
ara manna, sem nefna mætti djúp-
liyggju- eða dulhyggjumenn. Ef til
vill væri heppilegra að þýða orðið
,.Mystik“ með dulhyggja heldur
en með „dulræna“, en um það má
deila. Jakob Smári á þakkir skild-
ar fyrir að hafa snarað grein þess-
ari á íslensku. Fjallar hún um
merkilegt efni, sem liggur á landa-
mærum trúar og heimspeki, og á
hlutdeild í eðli beggja. í svörum
C, Jinarajadasa við spurningum
Þórbergs Þórðarsonar eru ýmsar
spaklegar athuganir, sem mjög
fara í sömu átt og kenningar
Krishnamurtis. Yfirleitt má segja
um þetta hefti „Ganglera", að það
sje mjög vel úr garði gert: Fjöl-
breytt og skemtilegt aflestrar án
þess þó að vera ljettmeti. Ætti rit-
ið að vera kærkomið öllum þeim,
sem andlegum málum unna. Virðist
nijer ritstjórinn fara þannig að
ráði sínu, að líklegt sje að hann
vilji veita mönnum staðgóða þekk-
ingu á grundvallaratriðum Guð-
spekinnar og yfirlit yfir helstu
strauma og stefnur nútímans á
sviði andlegra mála, en forðast
leiðinlegt pex um aukaatriði. Er
það mjög í anda Guðspekinnar,
því hún er hátt hafin yfir þröng-
sýni alt og þvergirðingsskap. —
Sannur Guðspekingur getur því
aldrei samið sig að siðum neins
sj ertrúarklíkuskapar (Sekterisma),
sem einblínir á eitthvað eitt sem
hið eina sáluhjálplega, en bann-
færir alt annað. Hefi jeg góðar
vonir um. að „Gangleri“ haldi
áfram að vera boðberi hins göf-
uga frjálslyndis, sem fer sína leið
án óþarfra ýfinga og olnbogaskota
til þeirra, sem aðrar götur ganga.
Málfarið á ritinu er yfirleitt gott,
lipurt og laust við tilgerð. í stuttu
máli: „Gangleri“ er góður gest-
ur, sem óhætt er að mæla með við
hvern sem er, og ættu sem flestir
að kynnast honum, sjer til sálu-
bóta.
Grjetar Fells.
Eggert Finnsson.
Vinarkveðja.
Frá Jóannesi Paturssyni kóngs-
bónda í Kirkjubæ í Færeyjum, hef-
ir Morgunblaðið fengið eftirfar-
andi grein til birtingar:
1 heiðruðu blaði yðar þ. 25. apríl
las jeg grein um Eggert á Meðal-
felli, sem átti áttræðisafmæli þann
dag. —
„Lengi skal við góðan kannast“,
segir færeyskt máltæki, og ó-
gleymanlegt er mjer það vináttu-
bragð er Eggert skólabróðir minn
sýndi mjer fyrir 50 árum síðan. Vil
jeg þess vegna biðja yður, hr. rit-
stjóri, að Ijá þessum línum rúm í
blaði yðar:
Jeg var tæplega 16 ára gamall
er faðir minn sendi mig á búnaðar-
skólann á Stend í Noregi. Fór
hann í því að ráði Hannesar Fin-
sen, er þá var amtmaður í Fær-
eyjum. í þann tíð voru íslendingar
að jafnaði við nám á Stend.
Erfitt var í þá daga, að komast
frá Færeyjum til Noregs. Varð jeg
fyrst að fara til Skotlands, þaðan
til Kaupmannahafnar og síðan var
farið sjóleiðis til Björgvin, með
mörgum viðkomustöðum. Ferðin
tók 14 daga.
Á Stend hitti jeg þrjá íslend-
ínga. Voru það þeir Páll Eyjólfs-
son frá Stuðlum í Reyðarfirði,
Gísli Gíslason frá Bitru í Árnes-
sýslu og Eggert Finnsson. Páll
ltom hingað síðar til Kirkjubæjar.
Gerði hann uppdrátt að Kirkju-
bæjarlandi. Hann var fyrsti maður
sem lagði akveg hjer í Færeyjum,
í Kirkjubæ. Hann gerði og fyrsta
uppdrátt af Þórshöfn. Hann fór
síðan til Ameríku, og er dáinn
fyrir nokkrum árum. Ekkju hans,
Jónínu frá Svínaskála, hitti jeg
á Alþingishátíðinni. Gísli var besti
fjelagi. En nú er að segja frá
Eggert Finnssyni.
Fáeinum dögum eftir að jeg kom
til Stend veiktist jeg af illkynjuð-
um mislingum. Var jeg þegar ein-
angraður í afskektu herbergi. Bann
aði skólastjóri nemendum harðlega
ailan aðgang að sjúkraherberginu.
En Eggert vorkendi hinum unga
Færeyingi, sem lá einangraður og
þungt haldinn. — Hann gekk tii
skólastjóra og fór þess á leit að
hann fengi að flytja sig í sóttkvína
svo hann gæti hjúkrað sjúklingn-
um í einverunni. Skólastjórinn
varð við ósk Eggerts.
Færejdngurinn lá lengi þungt.
haldinn. En Eggert lijúkraði hon-
v.m dag og nótt, með stakri kost-
gæfni, þangað til hann varð al-
bata. Enginn bróðir hefði getað
gert. það betur, sýnt meiri natni og
umhyggjusemi en hann, meðan á
veikindunum stóð.
íslendingarnir og Færeyingurinn
í Stend bundust í fóstbræðralag,
og urðu vinir alla æfi. Þegar jeg
kom til Reykjavíkur í fyrsta sinn
kom Eggert að finna mig. Margt
hafði þá á dagana drifið síðan
leiðir okkar skildu á Stend. En
vináttan var hin sama. Og þakk-
látan hug ber jeg til Eggerts á
Meðalfelli til dauðadags.
Kirkjubæ í Færeyjum,
í maí 1932.
Jóannes Patursson. ~
Haraldur Sigutðsson
píanósnillingur lætur til sín heyra
í Gamla Bíó í kvöld kl. 7*4. Er
nn orðið æði langt síðan Reykvík-
ingar hafa átt kost á að heyra
til ]>essa gáfaða og vinsæla lista-
manns. Að þessu sinni ætlar Har-
a’dur að hafa hjer aðeins skamma
viðdvöl. Ættu menn því eigi að
setja sig úr færi nú í kvöld, að
hlusta á hann.
Stjómarbylting í Chile.
United Press. FB.
Santiago 5. júní.
Monterostjórninni hefir verið
hrundið frá völdum, Herstjórn
liefir verið sett á stofn í landinu.
Yfirmaður hennar heitir Davila.
Santiago 6. júní.
United Press. FB.
Socialistastjórn hefir verið sett
á stofn í Chile og hefir það aldrei
komið fyrir áður í sögu landsins.
Stjórnarbyltingin í Chile fylgja
vanalega blóðsútliellingar miltlar,
er að þessu sinni var það eigi svo,
því að eins þrír menn biðu bana,
en sextíu og þrír særðust. Stofnað
hefir verið ráð (junta) til þess að
stjórna landinu og Puga hershöfð-
ingi forseti ráðsins. í því eiga
einnig sæti Enrique Matte og Carl-
os Davilla, fyrv. sendiherra í
Washington. Mun hann liafa átt
mestan þátt í að undirbúa stjórn-
arbyltinguna. Kvað hann svo að
orði, að ríkisstjórnin áformaði að
framkvæma liugsjónir jafnaðar-
manna en ekki kommúnista. —
Hvorki eignir innlendra nje er-
lendra manna kvað hann verða
gerðar upptækar. Samningar við
erlend fjelög og ríkisstjórnir verða
haldnir. Fyrsta hlutverk hinnar
nýju ríkisstjórnar verður að láta
lausa alla pólitíska fanga og
greiða fyrir öllum, sem geta eigi
greitt húsaleigu. Loks hefir ríkis-
stjórnin fyrirskipað, að" taka skuli
til íbúðar öll óleigð hús.
Síðar: Ráðstjórnin hefir rofið
þingið. -— Alt með kyrrum kjörum
í landinu.
Stúdentar andstæðir
stjórriinni.
Santiago 6. júní.
United Press. FB.
Stúdentafjelögin í landinu hafa
lýst yfir verkfalli og með því lýst
yfir andstöðu sinni við ráðstjórn-
ina, sem mynduð hefir verið í
landinu. Annars alt með kyrrum
kjörum.
Nazistar vinna á.
Berlin 6. júní.
United Press. FB.
Þingkosningar hafa farið fram
í Mecklenburg-Schwerin og fengu
Nazistar nærri því 50% greiddra
atkvæða. Þeir fengu meiri hluta
þingsæta.
Árni Jóhannesson stabs-
kapteinn i Hjálpræðishernum
hefir verið yfirmaður hers-
ins hjer á landi síðan 1927.
Hann lætur nú af því starfi
og fer til aðalstöðvar Hjálp-
ræðishersins í London. Síðan
Árni Jóhannesson tók við
yfirstjórn Hjálpræðishersins
hjer, hefir starfsemin eflst
með ýmsu móti, nýjar
starfsgreinar bætast við, svo
sem heimilasamband, æsku-
lýðsfjelög, hljóðfærasveit o.
fl. Gistihúsreksturinn hefir og
aukist mikið hjer í Reykja-
vík.
Árni Jóhannesson hefir
starfað i Hjálpræðishernum
í 21 ár alls, af þeim 8 ár
hjer á landi, en 13 í Dan-
mörku. Er það venjaí Hjálp-
ræðishern«m, að stjórnendur flytji jafnan, eftir nokkurra ára starf á sama stað. Kona Árna er af dönskum ættum. —
Þau hjónin fara með Dettifoss hjeðan á miðvikudag. Enskur forstöðumaður kemur hingað i stáð Árna. — Hjer er
mynd af Árna og fjölskyldu hans.