Morgunblaðið - 07.06.1932, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
1
5amBteypu5tiórnin.
Eftir lón Porláfcsson,
v
Niðurlag.
: ^ovsnnbhAtb
•
• Útgef. i H.f. Arvakur, Reykjaylk.
• Rltatjörar: Jön KJartansson.
• Valtýr Stefánsson.
• Rltstjörn og afgrelOsla:
• Austurstrætl 8. — Slssl IÓO.
• AuKlýslngastJörl: H. Hafber*.
'• Auelýslngraskrlfstofa:
9 Austurstrætt 17. — Slssl 700.
• Helmaslmar:
Jön KJartansson nr. 741.
• Valtýr Stef&nsson nr. 1110.
E3. Hafbere nr. 770.
• AskrlftaeJalö:
9 Innanlands kr. 1.00 & m&nuBl.
Utanlands kr. 1.E0 & ss&nuBL
• 1 lausasölu 10 aura slntaklB.
• 10 aura meB Lasbök.
OttQUJQ.
Við og við í vetur hafa gtjórn-
málamenn vorir niinst á Ottawa
■og Ottawaráð.stefnuna. Br rjett að
gera dálitla grein fyrir því hvers
konar ráðstefna það er, sem svo
mjög getur liaft áhrif á viðskifta-
líf okkar íslendinga, sem annara
þjóða er við Englendinga skifta.
Ottawaráðstefnuna á að lialda í
jólímánuði. Þar koma saman full-
trúar frá Bretlandi og öilum helstu
nýlendum Breta, frá Canadá, Suð-
lir-Afríku, Astralíu og Nýja-Sjá-
landi. Viðskiftaráðstefnur hafa
fleiri veiúð haldnar, þar sem full-
trúar hafa setið og ráðið ráðum
.sínuni, frá Englandi og nýlendun-
um ,og sem liafa haft sams konar
verkefni og Ottawaráðstefnan. En
allir hafa þessir fundir verið haldn
ír í höfuðborg alríkisins í London.
Verkefni fundanna hefir verið,
uð finna þær viðskiftaleiðir og
reglur, sem veita alríkisheildinni
mestan stuðning, án þess að sjálf-
stjórn og ákvörðunarrjettur ný-
lendanna sje skertur að nokkru
xáði.
En á síðasta fundinum í London
var það ákveðið, að framvegis
skyldi slíka ráðstefnu halda til
skiftis í nýlendunum. Og fyrsti
fundurinn ákveðinn í eanadisku
borginni Ottawa.
En þó tilgangur þessara funda
Itafi ávalt verið einn og hinn sami,
■er þess að gæta ,að kringumstæð-
urnar í viðskiftaheimmum hafa
breyst«»mjög síðan síðasti fundur
var haldinn. Móðurland tollfrjálsr-
ur verslimar, England, er orðið að
miðstöð tollverndarstefnu, og for-
vígismaður tollverndarinnar, Beaw-
erbrook blaðalávarður lieldur
því fram, að nú sje einmitt hægt
að styrkja 'samband og samhéldni
hins breska alríkis, með því að
víggirða það alt með tollmiirum.
Þetta lætur vel í eyrum margra.
En í reyndinni munu margir agnú-
ar koma í ljós. T. d. munu nýlend-
urnar ekki kæra sig nm að skerða
íjárforræði sitt. Og allar vilja
þær hlynna að vaxandi iðnaði sín-
um. Má því bíiast við, að nýlendu-
menn renni ekki hýru auga til
þess, ef veita skal iðnaði og iðn-
vörum Englands sjerstaka vernd.
Með því má búast við að kipt
verði úr framförum í iðnaði ný-.
lendanna. Þá er og þess að gæta,'
nð aðeins 2/5 af utanlandsverslun
Englands er við nýlendurnar, en
Wr, viðskiftanna eru við aðrar
þjóðir.
Öllum þessum viðskiftura verður
gert erfitt fyrir, með alríkistoll-
múrum Beaverbrooís. Viil enska
þjóðin fella sig við öll þau við-
skiftahifft ?
Á næsta þingi.
Hvernig verður þá afstaðan til
þessa höfuðmáls, kjördæmamálsins
og horfurnar fyrir afgreiðslu þess,
á næsta þingi?
Fyrst er rjett að geta þess, að
fullvíst er um óbreytta afstöðu
forvígisflokkanna í. málinu, Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðuflokks-
ins. Áður en Sjláfstæðisflokkur-
inn ljeði máls á því að leggja til
mann í samsteypustjórn, trygði
hann sjer það, með viðtali við for-
ustumenn Alþýðuflokksins á þingi,
að afstaða þess flokks til málsins
yrði óbreytt á næsta þingi. Einnig
voru þessir forustumenn Alþýðu-
flokksins okkur samdóma um það,
að nýjar kosningar, eins og nú
stendur, mundu ekki skera iir um
þetta mál, þar sem ekki væri von
til að þær sviptu Framsókn stöðv-
unarvaldi í neðri deild.
Þar næst er að minna á það, sem
áður var fram tekið, að stjórn,
málinu vinsamleg, hefir nú yfir-
lýst að hún muni ieggja það fram
sem stjórnarfrumvarp og beita sjer
fýrir úrlausn þess.
í þriðja lagi skal bent á það,
að fyrir Framsóknarflokkinn er
sjerstök ástæða til að afgreiða
stjórnarskrárfrumvarp á næsta
þingi, sem ekki var fyrir hendi nú.
Þessu víkur þannig við, að nýtt
landskjör á fram að fara í júlí
1934, ef ekki er áður lögtekin til
fullnustu breyting á stjórnar-
skránni. Eftir afstöðu flokkanna
við síðustu kosningu verður að
gera ráð fyrir, að við það lands-
kjör muni Sjálfstæðisflokkurinn
vinna eitt sæti frá Alþýðuflokkn-
um (sæti Jóns Baldvinssonar) og
þar með ná einn i\t af fyrir sig
helmingi atkvæða í efri deild. Þar
með fengi þá Sjálfstæðisflokkur-
inn einn það stöðvunarvald í Ed.,
sem liann og Alþfl. hafa nú til
samans. Það eru að minsta kosti
miklar líkur til að þannig færi
þetta við landskjör 1934. Þar með
er útilokað að Framsókn gæti
lengur haldið völdum upp á samn-
inga við Jóm Baldvinsson um fram-
gang mála. Til þess að komast hjá
þessu verður Framsókn að leyfa
framgang stjórnarskrármálsins á
næsta þingi, og fullnaðarsamþykt
þess á þinginu 1934. Þess vegna
er ekki líklegt að þingmenn Fram-
sóknar verði eins frestunarfúsir á
næsta þingi og þeir nú hafa verið.
Og loks er þess að geta, að
á næsta þingi hafa stuðningsmenn
rjettlætiskröfunnar. í efri deild hið
sama stöðvunarvald gegn fjárlög-
um og skattalögum, sem á þessu
þingi. Ný fjárlög þarf að setja á
næsta þingi, og skattalögin hafa
aðeins verið framlengd eða sett til
eins árs. En sá verður munur
aðstöðunnar, að ef svo ólíklega
skyldi fara, að grípa þyrfti til
þessa stöðvunarvalds á nassta þingi
þá liggjum við ekki undir neinu
áímæli fyrir að hafa áður hafnað
samkomulagstilraunum þeim í mál-
inu, sem felast í tilboði Framsókn-
ar um myndum samsteypustjórn-
ar, og loforðum þeirrar stjórnar
um að beita sjer fyrir lausn máls-
ins.
Jeg er þess vegna alveg viss
um að stuðningsmenn rjettlætis-
kröfunnar munu verða sammála
um það, að úr því að málið eftir
ákvörðun núverandi þingmeiri-
hluta Framsóknar hlaut að bíða
næsta þings, þá hefir verið tekinn
sá kosturinn, sem skapar málinu
besta aðstöðu á næsta þingi, eins
og sjálfsagt var.
Niðurlagsorð.
Þegar málum var svo komið, að
frestun til næsta þings reyndist
óhjákvæmileg, hafði þingflokkur
Sjálfstæðismanna tækifæri til þess
að ræða og athuga í nokkra daga,
hver leið mundi heppilegust til
þess að tryggja framgang málsins
á næsta þingi. Skoðanir flokks-
manna voru nokkuð skiftar um
þetta í upphafi, en við umræður
og athuganir á málinu festist sú
skoðun, að heppilegast væri að
fara þá leið, sem farin var, og
stendur þingflokkurinn síðan ein-
huga um þá ákvörðun.
En svo verður þessi ákvörðun
alt í einu kunn almenningi, án þess
áð menn hafi haft nokkurn tíma til
að átta sig á nauðsyn hennar og
rjettmæti. Mig furðar ekkert á því
þótt ýmsir liafi þóst þurfa að
heyra rökin áður en þeir vildu við-
urkenni að rjett væri stýrt. Rökin
liafa nú verið borin fram á fund-
um í Reykjavík, og menn hafa
fallist á þau. Jeg veit að eins muni
fara hvarvetná um land.
Af liálfu Alþýðuflokksins er þó
enn verið að reyna að ala á því,
að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
brugðist eða sýnt undanhald í-mál-
inu, með því að knýja ekki fram
afgreiðslu má’lsins á þessu þingi.
En alt það tal er framborið gegn
betri vitund. Þeir vita, að á þessu
þingi, sem nú er að enda, var að
eins með einu mióti mögulegt að
fá stjórnarskrárfrumvarp samþykt.
Það var með því að slá af rjett-
lætiskröfunni. Ámæli Alþýðu-
flokksmanna í garð Sjálfstæðis-
flokksmanna fyrir þetta, að háfa
ekki Iátið málið ganga fram á
þingi því, sem nú er að enda,-verða
því ekki skoðuð öðru vísi en sem
krafa frá Alþfl. um afslátt frá
rjettlætiskröfunni, málinu til
hraðari framgangs. Ef ekki má
skilja þau þannig, þá eru þau al-
vörulaust tal, sem ekki er rjett að
taka neitt tillit til.
Ef Alþýðuflokkurinn hefði talið
rjettara að knýja fram nýjar
kosningar, áður málið kæmi til
meðferðar á næsta þingi, þá væri
eðlilegt að hann deildi á Sjálf-
stæðismenn fyrir að hafa ekki val-
ið þann kostinn, því að þetta var
á okkar valdi. En út af þessu
mun Alþýðuflokkurinn ekki deila
á okkur, því að forvígismenn hans
óskuðu ekki eftir kosningum eins
og málið stóð, töldu þær gagns-
laust spor fyrir málið, eins og við.
Óánægja Alþýðuflokksins stafar
af öðru máli. Hann er frá flokks-
legu sjónarmiði óánægður með
stjórnarskiftin, sjerstaklega með
að hafa mist Jónas Jónsson úr
stjórninni, tengilið sósíalistastefn-
unnar við Framsókn. Úr þessari
óánægju getum við Sjálfstæðis-
menn ekki bætt, og kærum okkur
ekkert um það. Okkur er jafn
ijúft að losna við Jónas Jónsson
úr stjórn og Alþýðuflokknum er
það óljúft.
Pingslit.
113 daga þing.
Klukkan 6 síðdegis í gær, var
fundur settur í sameinuðu þingi
og fóru þar fram þingslit.
Forseti Sþ. Einar Árnason skýrði
frá störfum þingsins. Það hafði
setið 113 daga. 99 fundir voru
haldnir í Nd., 98 í Ed., 17 í Sþ.,
alls 214 þingfundir.
Alls voru afgreidd 74 lög, þar
af 23 stjórnarfrumvörp. Feld voru
14 frv., fjögur afgreidd með rök-
studdri dagskrá, fimm vísað til
stjórnarinnar, en 64 döguðu uppi,
þar af fimm stjórnarfrumvörp. —
Fram voru bornar 27 þingályktun-
artillögur og voru 9 samþyktar.
Ein fyrirspurn var borin fram í
Nd., en var ekki svarað. Alls
fekk þingið 189 mál til meðferðar.
Þá las forsætisráðherra upp boð-
skap konungs, um að Alþingi væri
að þessu sinni slitið. Bað hann
því næst þingmenn að minnast
ættjarðarinnar og konungs með
ferföldu lnirra, og var það gert.
Þar með var þessu 113 daga
þingi — lengsta sem háð hefir
verið — slitið.
BŒjarbmni.
* FB. 6. júní.
I morgun brann bærinn Iða
(austurbærinn) í Biskupstungum
á skömmum tíma til kaldra kola.
Um upptök eldsins er ófrjett. —-
Einhverju af fatnaði og rúmföt-
um var bjargað. Bærinn var mjög
lágt vátrygður.
Bóndinn í austurbænum heitir
Einar Sigurfinsson.
(Eftir símtali.
Venizelos myndar stjórn.
Aþenuborg, 6. júní.
% * United Press. FB.
Venizelos hefir myndað stjórn.
Hann er sjálfur forsætisráðherra,
Michalaco Poulop utanríkismála-
ráðherra, Barbaressos fjármálaráð-
herra.
Mussolini í hættu?
Rómaborg, 5. júní.
United Press. FB.
Seinni hluta dags í gær kom lög-
reglan í veg fyrir, að framkvæmt
væri áform um að drepa Mussolini.
Lögreglan handtók mann nokkurn
í nánd við embættisbústað Musso-
lini. Maður þessi hafði skamm-
byssu og tvær sprengjur í fórum
sínum. Hann hefir játað, að hann
hafi ætlað að drepa Mussolini. —
Maðurinn var með falsað vega-
brjef. Hann kveðst heita Angelo S.
Bardeletto og hafa komið frá
Svisslandi.
Þýsku kosningarnar.
Berlin 6. júní.
United Press. FB.
Hindenburg hefir ákveðið að
kosningar til rikisþingsins skuli
fram fara þ. 31. júlí.
5
Watkins fer aftur til
Grænlands.
Kaupmannahöfn 6. júní.
United Press. FB.
Watkins landkönnuður er hing-
að kominn. Starfar hann að und-
irbúningi leiðangurs til Austur-
Crænlands. Leiðangursmennirnir
verða fjórir og allir breskir. Ætla
þeir að hafa vetursetu í Græn-
landi.
Dagbók.
I. O. O. F. Rb. st. 1. Bþ. 81678V2
— III.
Veðrið í gær: Fyrir austan
landið er grunn lægð er veldur
NV eða N-átt hjer á landi og er
allhvast í Vestmannaeyjum og
Hveradölum á Hellisheiði. Ann-
ars er gola. eða kaldi. Veður er
bjart alls staðar Vestanlands nema
við sunnanverðan Faxaflóa. Norð-
an lands og austan er víðast heið-
ríkt en þokubakki til hafsins, sem
niun leggja inn á firði í nótt. Hiti
er 4—5 stig í útsv.eitum norð-
austan lands en annars um 10 st.
með ströndum fram. Á Hæli í
Gnúpverjahreppi er 17 stiga hiti
og 18 stig á Kirkjubæjarklaustri,
enda er heiðríkt á báðum stöðum.
Veðurútlit í dag: N-kaldi. Senni-
íega ljettskýjað.
Frk. Jóhanna Jóhannsdóttir og
Sigurður Birkis hjeldu hljómleiba
í K. R. húsinu í fyrrakvöld, við
góða aðsókn.
Hólaskóli. Þeir nemendur Hóla-
skóla, sem eigi hefir náðst til, en
er vildu taka þátt í samskotunum
í tilefni af 50 ára hátíðinni, eru
beðnir að gefa sig fram við Gunn-
ar Árnason, Biínaðarfjelagi íslands
fjuúr 11. júní.
Ný bílaviðgerðastofa hefir verið
opnuð á Skólavörðustíg 8. (Sjá
nánar í augl. í blaðinu.)
Ráðleggingarstöð fyrir barnshaf-
andi konur, Bárugötu 2, er opin
fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði
frá 3—4.
Ungbarnavernd Líknar, Báru-
götu 2, er opin hvern fimtudag og
föstudag frá 3—4.
Leikhúsið. ,Karlinn í kassanum*
var sýndur tvívegis á sunnudag-
inn var, í hvort tveggja skiftið
fyrir alveg útseldu húsi. Tveir
aðalleikendurnir, Har. Á. Sigurðs-
son og frk. Arndís Björnsdóttir,
hafa að undanförnu verið lasin, og
hafa ekki getað leikið fyr. T.ók-
ust sýningarnar slysalaust, þó
Haraldur yrði að styðja sig við
staf vegna hnjemeins — bar ekki
á öðru en að ,.karlinn“ vekti
sama hláturinn og áður, hjá á-
horfendum þó haltur væri. Ur því
leikendurnir treystu sjer til að
leika og úr því undirtektir áhorf-
enda urðu svo góðar, sem raun
varð á, ætlar Leikfjelagið að sýna
„Karlinn í kassanum" enn einu
sinni og verður sú sýning annað
kvöld, en aðgöngumiðaverð er þá
lækkað.
EimskiP: Gullfoss fer frá Rvík
í kvöld, kl. 8, vestur og norður.
— Goðafoss kom til Hull í gær-
morgun; fer þaðan í kvöld. —
Brúarfoss er á útleið, — Lagar-
foss fór frá Leith í gær. — Detti-
foss er í Reykjavík; fer hjeðan
þ. 8. þ. m. til Hull og Hamborgar.
-- SeVfoss fór frá Leith 3. þ. m.
til Reykjavík