Morgunblaðið - 08.06.1932, Blaðsíða 3
M (' R n V S B í, A Ð 1 F»
8
■MHjMMgBIOTBIMWIPM
* JpftorgmiMaMd
•
J Ötsref.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
• Rltstjör&r: Jön Kj&rtanaaon.
• Valtjr StefAnaaon.
• Rltatjörn og afgrelBala:
Auaturatrœtl 8. — Slaal 100.
• Augrlýsingaatjórl: B. Hafber*.
• AuKlýalngraakrlfatofa:
• Auaturatrœtl 17. — Slaal 700.
J Helmaslmar:
• Jön Kjartanaaon nr. 742.
• Valtýr Stefánaaon nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
• A&kriftagjald:
• Innanlanda kr. 2.00 & mánuBi.
2 Utanlanda kr. 2.50 á. mAnuBi.
2 I lausaaölu 10 aura alntaklB.
20 aura meB Leabök.
Kalöar kueðjur.
Aldrei hefir ])að komið skýrar í
Ijós en einmitt nó, eftir að Ásgeir
Asgeirsson myndaði samsteypu-
ráouneytið, hve. náið samband er
milli Tímans og Alþýðublaðsins.
Alþýðublaðið tók þegar af skar-
iö og lýsti yfir skýrt og afdrátt-,
arlaust, að ])að bæri ekkert traust
til hinnar nýju stjórnar. Og það
þreytti að engu viðhorfi blaðsins
gagnvart stjórninni, þótt Ásg. Ásg.
lýsti yfir ])ví á Alþingi, að stjórn-
in teldi sjer skylt að beita sjer
fyrir úrlausn kjördæmamálsins á
næsta þingi, þess máls, sem Alþbl.
hefir að undanförnu talið vera að-
•almálið, sem nú biði úrlausnar.
Tíminn hefir farið nokkuð væg-
ar af stað, en bersýniiegt er, að
blaðið ber lítið traust til ráðu-
neytis Ásg. Ásg. Afstaða blaðsins
«r svipuð þeirri afstöðu, sem Jón-
as frá Hriflu og hans samherjar
tóku á þinginu á dögunum, þegar
greidd voru atkv. um vantrausts-
tillögu sósíalista. Þessir menn lof-
uðu stjórninni stuðningi eða hlut-
leysi ef hún fylgdi „framsóknar-
pólitík“. Bn ef þar yrði nokkur
breyting á, myudi tekin upp full-
komin andstaða gegn stjórninni.
Þessir Jónasar-liðar innan Pram-
sólmar hafa ekki skýrt það nánar,
hvað þeir ætt.u við með orðinu
„framsóknarpólitík**. Þetta var nú
reyndar óþarfi, því menn vita ó-
sköp vel við hvað er átt. Það er
átt við pólitík Jónasar frá Hriflu.
En jafnvel þótt tveir af ráðherr-
unum, nýju tilheyri Pramsóknar-
f'okknum, er hitt víst., að stjórnin
mun ekki halda áfram að reka
pólitík Jónasar frá Hriflu. Ur hinu
verður aftur reynslan að skera,
ihvort stjórnin hefir dug í sjer til
þess, að kippa í lag mörgu því, sein
pólitík Jónasar frá Hriflu hefir
illu til leiðar komið í okkar þjóð-
fjelagi.
Bæði þessi blöð, Alþýðubl. og
Tíminn virðast vera óánægð yfir
því, að Jónas frá Hriflu skuli vera
farinn úr stjórn landsins. Þau sjá
fram á, að þar með er lokið í bili
þeirri „framsóknarpólitík“, sem
hann hefir markað að undanförnu.
Stefna hans liefir verið mjög í
anda sósíalistastefnunnar. Sjálf-
stæðismenn, utan þings og innan,
bafa jafnan barist fast gegn þess-
ari stefnu. Þeir munu því fagna
því, ef Jónasar-stefnan fær nú að
hvíla sig. Hinir gætnari menn inn-
an Pramsóknarflokksins höfðu og
fengið nóg af þessari grímuklæddu
stefnu sósíalista. Þess vegna fólu
þeir Ásg. Ásg. að mynda stjóm í
samvinnu við Sjálfstæðismenn .
Nýja st.jórnin var ekki fyr sest
á laggirnar en þingflokkur Pram-
sóknar sendi út yfirlýsingu um
það, að flokkurinn liefði engu lof-
að viðvíkjandi lausn kjördæma-
málsins. Þar stæði alt við sama og
áður var.
Þessi yfirlýsing var óþörf. Allir
vissu. að þingflokkur Framsóknar
sem heild, hafði ekki nálgast svo
skoðanir andstæðinganna í rjettlæt-
ismálinu, að vænta mætti frá hon-
um viðunandi yfi^lýsingar í mál-
inu. En liitt er alkunnugt, að menn
eru innan flokksins, sem færst liafa
svo nálægt. rjettlætiskröfunni, að
sterkar líkur eru t-il, að takast
megi að brúa þar á milli. Og það
var einmitt með þetta fyrir aug-
um, að Sj álfstæðismenn hófu nú
samvinnu við þessa menn.
Ásgeir Ásgeirsson fór ekki dult
íneð það á Alþingi, þegar nýja
stjórnin tók við, að hann teldi
það skyldu stjórnarinnar að finna
viðunandi lausn á kjördæmamál-
inu. Hann kvaðst liafa trú á, að
þetta mætti takast, og þess vegna
myndi stjórnin bera fram stjórn-
arskrárfrumvarp á næsta þingi.
Yfirlýsing þingflokks Pramsókn-
ar ber því nánast að skoða sem
einmana rödd hins svaiúasta aft-
urlialds, sem enn er á vegvillum í
rjettlætismálinu.
Clrslit þingmála.
Lög frá Alþingi.
Laun embættismaima (breyting
á I. 71, 1919). Eru þar tekin upp
í launalögin læknislaun í Olafs-
f jarðarhjeraði.
Um raforkuvirki. Eru þar gerð-
ar ýmsar breytingar á raforku-
virkjalögunum frá 1926.
Um kirkjugarða. Mál þetta kom
frá kirkjumálanefnd. — Lögin
stefna að því, að hirt verði sem
best um kirkjugarða. Niðurlágðir
kirkjugarðar skulu vera friðhelgir
og teljast til fornleifa.
Útflutningur á nýjum fiski. Eru
gerðar nokkrar breytingar á 1. nr.
37, 1931. 1 ár og næsta ár má
verja úr ríkissjóði alt af 100 þús.
kr. samtals til undirbúnings fram-
kvæmda fisksölufjelaga sjómanna
og bátaútvegsmanna, um útflutn-
ing á nýjum fiski og lánveitinga
til fjelaganna, til kaupa á fiskum-
búðum og öðrum tækjum, er nota
þarf.
Heimildarlög fyrir ríkisstjórnina
til að leyfa erlendum manni eða
fjelagi að reisa og starfrækja síld-
arbræðsluverksmáðju á Austur-
landi. Áður en slíkt leyfi yrði
veitt, skal þó fá meðmæli bæjar-
eða sveitarstjórnar. Enginn er-
lendur maður eða fjelag hefir farið
frarn á leyfi til þessa.
Um lántöku fyrir ríkissjóð. Er
stjórninni þar heimilað að taka
alt að 12 milj. kr. lán, og er tekið
fram í greinargerð frv., að heimild
þessi verði að eins notuð til
greiðslu eldri lána.
Breyting á fátækralögum. Sveit-
vinslutíminn verði tvö ár í stað
fjögurra nú. Þar sem fát.ækraút-
gjöld sveitarfjelags, yfir árið, fara
meira. en 15% fram úr meðalt.ali
fátækraútgjalda á öllu landinu,
miðað að % hluta við töln þeirra
karla og kvenna, er ellistyrktar-
sjóðsgjald greiða, að % hluta við
skattskyldar tekjur, að Va hluta
við fasteignamat, þá greiðist %
!hlutar af því, sem fram yfir er,
lúr ríkirsjóði. Lægri greiðsla úr
ríkissjóði en 100 kr. fellur niður.
Eigi er ætlast til, að þetta baki
ríkissjóði teljandi útgjöld frá því
sem nú er, því niður fellur sá
styrkur, sem ríkið greiðir nú
vegna sjúkrahússdvalar þeirra,
sem á fátækraframfæri eru, svo
og framfærslustyrkur, sem veittur
er íslendingum erlendis eða vegna
heimflutnings þeirra. Hinn síðar-
talda styrk greiðir ríkið í bili, en
hann te'lst sveitarstyrkur, ef st.yrk
þegi eigi endurgreiðir hann innan
mánaðar. — Þá er svo ákveðið í
lögum þessum, að ráðuneytið rann-
saki hag og meti gjaldþol þeirra
sveitarfjelaga, sem skulda öðrum
sveitarfjelögum verulega fjárhæð
vegna fátækrast.yrkst, sem veittur
hefir verið fyrri en á þessu ári.
Skal ráðlierra leita samninga um
greiðsluna, og ef hann telur sveit-
arfjelag ekki fært um að endur-
greiða slíkar skuldir að fullu, má
greiða nokkurn hluta skuldarinnar
úr ríkissjóði „þó aldrei frekar en
það, sem vanta kann á að sveitar-
fjelag það, sem skuldina á að lúka,
geti greitt helming hennar“.
Um skipúlag kauptúna og sjáv-
aiþorpa. Skipulagsuppdráttur, sem
ekki hefir hlotið staðfestingu
stjórnarráðsins áður en tvö ár
eru liðin frá því að hann var lagð-
ur fram, skal ekki vera bindandi
lengur. Sama gildir, ef skipulags-
uppdráttur hefir verið lagður fram
áður en lög þessi eru staðfest, en
hann hefir ekki verið staðfestur
áður en ár er liðið frá þeim tíma.
Gjaldfrestur bænda. Úrskurða
má gjaldfrest á skuldum bænda,
sem stofnaðar eru fyrir 1. jan. þ.
á. Fresturinn nær að eins til höf-
uðstóls, en ekki til vaxta. Hann
nær og ekki til opinberra skatta
eðg gjalda. Skilanefnd úrskurðar
um gjaldfresti og skal ein slík
nefnd vera í hverju sýslufjelagi
og kaupstað. Tilnefnir atvinnu-
málaráðherra formann, en sýslu-
nefnd eða bæjarstjórn hina svo.
Skilanefnd er óheimilt að úrskurða
skuldunauti frest, ef hún telur: 1.
Að hann geti int þær af hendi eft-
ir samningum eða kröfum án veru-
legs hnekkis atvinnu hans. 2. Að
hann sje líklegur til að nota
frestinn til að rýra tryggingar
skuldunauta sinna. 3. Að ástæður
hans sjeu svo erfiðar, að ekki sjeu
líkur til, að hann geti uppfylt
skuldbindinaar sínar í venjulegu
árferði. 4. Að hann eigi fyrir
skuldum, þegar lagt er til grund-
vallar: a) Á fasteignum gildandi
fasteignamat. b) Á bústofni, bús-
hlutum, bátum, veiðarfærum, og
öðrum eignum meðaltal þess verðs,
sem lagt er til grundvallar mati
Við framtal til tekju- og eignar-
skatts 3 síðustu árin. c) Um á-
byrgðir, hverjar líkur sjeu til, að
þær falli á hann. — Skilanefnd
má ekki úrskurða lengri gjaldfrest
en 1 ár, talið frá úrskurðardegi. —
Valdi gjaldfrestir stofnunum, sem
gefið hafa út vaxtabrjef, erfiðleik-
um um innheimtu þeirra brjefa,
sem út eru dregin til greiðslu, má
fjármálaráðherra verja alt að 200
þús. kr. til greiðslu á brjefunum
og má taka lán til þessa. Aðrar
stofnanir, svo sem verslunarfyrir-
tæki, sem lenda í greiðsluörðug-
leikum vegna gjaldfrests-úrskurð-
ar, má ekki taka til gjaldþrota-
skifta að eigendum nauðugum með-
an lögin eru í gildi. Kostnaður af
framkvæmd laganna greiðist að
B
Guðbrandur Jónsson:
Moldin kallar
og aðrar sögur.
Þjer getið ekki fengið ákjós-
anlegri bók með yður i sumar-
fríiö. Sögurnar eru hver annari
skemtilegri - eins og ritdóm-
ar blaðanna bera með sjer.
hálfu úr ríkissjóði, en að hálfu úr
sýslu- eða bæjarsjóði. Lögin öðlast
þegar gildi og gilda til 1. júlí 1933.
Framh.
•••» <§> 1» *•••
Mosfellshreppur
lokað land.
Ný lögreglusamþykt.
Nýlega hefir gengið í gildi lög-!
reglusamþykt fyrir Mosfellsshrepp |
i Kjósarsýslu. 1. kafli samþyktar-
innar fjallar um friðun eigna, og
er 1. grein svo hljóðandi:
Bönnuð er öll umferð óviðkom-
andi manna að nauðsynjalausu um
lönd í sveitinni annars staðar en
þar, sem vegir liggja, nema með
leyfi landráðanda. Án leyfis
landráðanda má og eigi tjalda, nje
setjast að til verslunar í sveit-
inni. Girðingum má eigi spilla, nje
skilja eftir opin hlið, sem lokað
verður.
í annari grein er það tekið fram,
en enginn megi „hagnýta eða til-
einka sjer neinar nytjar í löndum
nje í landhelgi í sveitinni, svo sem
beit, berjatöku, egg, veiðifugla eða
fiska nje annað, án leyfis land-
ráðanda.“
Mörg ströng ákvæði eru enn í
samþykt þessari, og virðist höf-
undúr hafa ætlað að reisa ramm-
ar skorður við að Mosfellssveit-
armenn mistn af nokkru sem
þeirra er.
Fyrst er bannað að fara um
sveitina, nema eftir vegum, og
síðan er bönnuð öll „hagnýting“
a jarðargróða. En úr því menn
mega á ekkert strá stíga, mun
erfitt að ná til neinnar „hagnýt-
ingar“ á því, sem á landinu vex.
Þá vilja þeir Mosfellssveitar-
menn, sem eðlilegt er, hafa frið
og spekt í ríki sínu. Má eigi sam-
kvæmt 3. grein, „að nauðsynja-
lausu raska næturró manna, með
háreysti, hvellum, vjelagauli,
höggum á bæjarhús nje öðru slíku,
á tímabilinu milli kl. 23 að kvöldi
og' 6 að morgni.“ Sjö tíma á sól-
arhring á næturfriður að ríkja í
sveitinni, og má það ekki styttra
vera.
Langur bálkur er í samþyktinni
um veitingastaði, gistihús og sam-
komur. Yafalaust er samþyktin
miðuð við nábýlið við Reykjavík
og átroðning þann. sem Mosfells-
sveitarmenni hafa orðið fyrir frá
bæjarbúum. Er nú eftir að vita
hvernig þeim gefast hinar ströngu
reglur um umferðabann og bann
gegn berjatöku og þess háttar.
Virðist. hjer koma fram sami
kaldranahátturinn og meinbægnin
gagnvart Reykvíkingum, sem sum-
ir menn hafa tamið sjer á síðari
árum.
Deilumál Breta og íra.
* London, 7. júní.
United Press. FB.
Ráðherrarnir J. H. Thomas og
Hailsham lávarður lögðu af stað
til Dublin á mánudag, að boði
De Va'lera, til þess að ræða um
erfiðleika þá, sem komnir eru í
ljós og standa í sambandi við
væntanlega þátttöku íra á alríkis-
ráðstefnunni í Ottawa. Vafalaust
verður hollustueiðurinn einnig
ræddur. Ráðherrarnir koma aftur
tii London í dag. en de Valera fer
til London á föstudag til þess að
lialda viðræðunum áfram.
Dublin 7. júní.
United Press. FB.
Opinberlega tilkmit að Thomas
og Hailsham lávarður hafi rætt
eina klukkustund við De Valera
og dómsmálaráðherra fríríkisins,
um deilumál Irlands og Bretlands,
og lagt grundvöll að framhalds-
umræðum um þessi mál í London
á föstudaginn.
Stefna Herriots.
París, 7. júní.
United Press. FB.
Herriot hefir haldið stefnuskrár-
ræðu sína í fulltrúadeildinni. Um
hernaðarskaðabæturnar kvað hann
svo að orði, að Frakkland mundi
ekki sætta sig við að samnings-
bundin rjettindi yrði að vettugi
virt.
Dagbók.
Veðrið í gær (kl. 5 síðd.) —
Vindur er yfirleitt mjög hægur
V eða N hjer á landi. Sums staðar
suðvestan lands er þykt loft., en á
öllu N- og A-landi má heita bjart-
viðri. Hiti er 6—7 stig á NA-landi
en 10—12 stig í öðrum lands-
hlutum.
Grunn lægð fyrir norðan og
vestan landið virðist vera á hreyf-
ingu austur eftir. Er því búist við
vestanátt á morgun og þykkviðri'
vestan lands, en ekki teljandi úr-
komu.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Vestan-gola. Skýjað loft en úr-
komulaust að mestu.
Utanríkismálajiefnd — Hjeðinn
Valdimarsson hefir tekið sæti í
ut.anríkismálanefnd í stað Ásgeirs
Ásgeirssonar, forsætisráðherra. —
Eiga nú allir stjórnamálaflokkar
fulltrúa í nefndinni og fer best
á því.
Eimskip: Gullfoss fór frá Rvik
í kvöld kl. 8, vestur og norður.
— Goðafoss fór frá Hull í gær-
kvöldi. — Brúarfoss kom til Leith
í fyrrinótt. — Dettifoss fer frá
Reykjavík í kvöld. áleiðis út. —
Lagarfoss fór frá Leith í fyrra-
dag. — Selfoss kom hingað í gær-
kvöldi.