Morgunblaðið - 14.06.1932, Blaðsíða 4
M O R G U N B L A Ð I f)
Hugltslngadagbók
Þýskukensla. Kenni byrjenclum
og þeim sem lengra eru komnir.
Einnig verslunarbrjefaskriftir á
þýsku. Tilly Schneider, Túngötu 2.
Sími 1014,
Glænýtt fiskfars og kjötfars. Og
nýreykt ýsa. Fiskmetisgerðin,
Hverfisgötu 57. Sími 2212.
Margs konar blómaplöntur til
sölu í Gróðrarstöðinni (Gróðurhús
Ragnars Ásgeirssonar) meðal ann-
ars: Nemesia, Suttoni strumost,
Chrysanthemum, Carinatum, Seget-
um Gloria, Inodorum, Coronarium,
Mimulustigrinus, Cynoglossum, An
tirrhinum, Nigelle, Linaria, Bellis,
Helechrysum, seldar frá 1—3. —
Ragnheiður Loftsdóttir.
Dömukápu-tölur af öllum litum.
Andersen & Lauth, Austurstræti 6.
Símanúmer mitt er 1726. Frú
G. Norðfjörð.
Ýsa og þorskur fæst daglega í
síma 1127.
Flóra, Vesturgötu 17, sími 2039.
Agúrkur ,salat, radísur, karse o. fl.
Til útplöntunar alls konar blóma-
plöntur, begóníur og afskorin
blóm.
Pappadiska, pappírsservíettur og
annað þess konar verður ávalt
best að kaupa í Bókaverslun Snæ-
bjarnar Jónssonar.
Nuddlækningur. Geng heim til
sjúklinga. Ingunn Thorstensen,
Baldursgötu 7 (Garðshorn). Sími
átómat 14.
Mótorhjól, nýtt, D. K. W., 8
hesta, luxus 300, er til sölu. Þetta
merki er heimsfrægt. Upplýsingar
í Hljóðfærasölunni á Laugaveg 19
Nýjar kartfiflur,
nýjar gnlrætnr,
blómbál, gnrknr,
og trOUasóra.
Eslenskar
gnlrófnr.
Hvítkál,
Norskar kartöflur
í heilum sekkjum og
lausri vigt.
Tiffirawai
Lauvavej? 63. Sími 2393
Færeyska skútan sem strandaði í
Selvogi í vor, var boðin upp á
strandstaðnum. Keyptu búendur í
Selvogi skipsskrokkinn, en Hjörtur
Fjeldsted í Reykjavík keypti vjel-
ina, akkeri, festar og siglur. Skip-
ið rak síðan upp á þurt, rjett fyrir
framan Strandarkirkju. Vjelinni
tókst að bjarga óskemdri úr því,
og var hún flutt hingað til Reykja-
víkur með vitaskipinu Hermóði. En
þeir í Selvogi eru langt komnir
að rífa skipið og munu ná úr því
hverhi spýtu.
Frost var á laugardagsnóttina
fyrir austan fjall. Gerði það tals
verðar skemdir á kartöflugörðum
á Eyrarbakka, því að kartöflu-
grösin, sem nýlega voru komin
upp, sölnuðu talsvert. Sömu sögu
er að frjetta ofan úr Borgarfirði.
Vatnsþurð í Vestmanneyjum. - -
Vegna hinna miklu þurka, sem
gengið hafa að undanfömu, var
orðinn tilfinnanlegur vatnsskortur
í Vestmanneyjum. Bílar sóttu vatn
í lindina í Herjólfsdal, en svo var
lítið vatn í henni, að 4—6 klukku-
tíma tók það að fá á bílinn.
Sóknamefndin hefir beðið blaðið
að minna þá á, sem kunna að eiga
gömul vanhirt leiði í kirkjugarð-
inum að láta endurbæta brotnar
girðingar og fallna steina. — Að
öðram kosti verður þess háttar
sem enginn hirðir um, og sömu-
leiðis fúnir kassar, flutt brott
næstu daga.
Brúðkaup sitt hjeldu á laugar-
daginn var ungfrú Anna Tómas-
dóttir kaupmanns Jónssonar og
Geir H. Zoega kaupm. í fríkirkj-
unni. Fjölmenn veisla í Hótel Borg.
Farsóttir og manndauði í Reykja
vík. Vikan 29. maí til 4. júní. (1
svigum tölur næstu viku á undan).
Hálsbólga 32 (37). Kvefsótt 60
(61). Kveflungnabólga 2 (5). Gigt-
sótt 1 (1). Iðrakvef 3 (2). Influ-
ensa 4 (18). Lungnabólga 0 (1).
Mænusótt 0 (1). Hlaupabóla 0 (1).
Reimakoma 1 (2). Munnangur 0
(3). Mannslát 4 (4).
Landlæknisskrifstofan.
Sextugsafmæli. Ekkjan Sigríður
Magnúsdóttir, Laugaveg 41, á sex-
tugsafmæli í dag.
Trúlofun. Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína hjer, ungfrú Aðal-
björg Guðmundsdóttir frá Gilsár-
stekk í Breiðdal og Óli Kr. Guð-
brandsson, kennari á Hornafirði.
Leikhúsið. Leikfjelagið sýndi
.Karlinn í kassanum“ í Grindavík
og Keflavík núna um helgina við
alveg fádæma aðsókn, mun vera í
ráði að sýna leikinn víðar lijer
nærsveitis þar sem skilyrði eru
fyrir hencli, en annað kvölcl gefst
bæjarbúum enn einu sinni tækifæri
tii að sjá „Karlinn“ hjer á leik-
sviðinu.
Ung þýsk stúlka, Tilly Schneider
á Túngötu 2, auglýsir þýskukenslu
hjer í blaðinu í dag. Hún er út-
skrifuð af verslunarskóla í Þýska-
landi, en hcjfir dvalist hjer á þriðja
ár og talar íslensku. Kennir hún
byrjendum og þeim, sem lengra eru
komnir, þýska málfræði og að tala
þýsku. Enn fremur kennir hún
þeim sem vilja, að rita verslunar-
trjef á þýsku.
Síldarbræðsla ríkisins. Stjórn
hennar hefir látið það boð út
ganga, að endanleg ákvörðun hafi
eigi enn verið tekin um það hvort
síldarbræðslustöðin í Siglufirði
verði starfrækt í sumar, eða ekki.
Horfur eru slæmar um sölu á af-
Lrðum verksmiðjunnar og verð á
þeim fer stöðugt fallandi. En inn-
an 20. þ. mán. verður ákvörðun
tekin um það. hvort verksmiðjan á
að starfa í sumar.
— Ráðgjafamefndin dansk-ís-
lenska ætlar að halda fund sinn
hjer í Reykjavík í júlímánuði í
sumar. Er búist við því að dönsku
fulltrúarnir leggi á stað frá Kaup-
mannahöfn hinn 9. júlí.
Útvarpið í dag: 10.00 Veður
fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00
Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir.
19.40 Tónleikar: Cellósóló. (Þór-
hallur Árnason). 20.00 Klukkuslátt
ur. Grammófón. Kórsöngur: Úral
Kósakkakórinn syngur: Der rote
Sarafan og Stenka Rasin (rússn.
þjóðlag). Don Kósakkakórinn
syngur: Kvöldklukkurnar, eftir
Gretchaninoff. William Murdock
leikur Sonate Appassionata, eftir
Beethoven. 20.30 Frjettir. Músík.
Hjónaband. Sídastl. laugardag
voru gefin saman í hjónaband af
síra Friðrik Hallgrímssyni ungfrú
Guðný Guðjónsdóttir matreiðslu-
kona og Karl Vilhjálmsson loft-
skeytamaður. Heimili ungu hjón-
anna er á Lokastíg 28 A.
Athugasemd. 1 Mbl. 28. maí s.l.
segir, að Ólafur Ketilsson hrepp-
stjóri á Óslandi í Höfnum hafi átt
fffintýra prinsinn.
*f» AHt með Islenskum Skipnm!
anga í lið með honum, alt bar
Upp á sömu stundu. Hugur minn
var skiftur milli yðar og skyldunn-
ar við mína nánustu. Frá þeirri
stundu hefi jeg átt í stöðugri bar-
áttu, en nú er þeirri baráttu lokið
og það gat ekki farið á annan veg,
uú hefi jeg aftur náð fundi þínum
Jóhanna og fell að fótum þjer sem
auðmjúkur þjónn þinn. Þetta varð
Jóhönnu um megn hún fjell aftur
í stólinn og höfuðlín hennar fjell
niður á öxl Antoníusar.
— Jóhanna, þú ert veik!
Hún reyndi að harka af sjer.
—Mjer er svo heitt.
Skamt frá þeim voru dyr út í
garðinn. Antoníus stóð upp rjetti
f henni hendina og sagði: — Komdu
út í garðinn, hreina loftið hressir
þig-
Jóhanna hlýddi orðum hans, tók
í hönd hans og hann leiddi hana út
í garðinn. Enginn varð var við
það að þau gengu út nema hirðfífl
landsstjórans, Knoni von Stocken.
Svo stóð á þegar de Rhynsault
kynti Jóhönnu landstjóranum,
þótti honum mikið til hennar
koma hvað fegurð snerti, og bað
gætur. Fíflið hafði ekki svikist um
það og nú elti það þau út í garð-
>n, ef vera kynni að það kæmist
að einhverju, er húsbóndanum
kæmi vel að vita.
Jóhanna og Antonius tóku ekki
eftir neinu sem í kring um þau
var, þau gengu út á svalirnar og
niður í garðinn. Hægur andblær
bærði trjákrónumar, veðrið var un
aðslega blítt. Jóhanna studdist við
arm mannsins sem hún elskaði
heitar en alla aðra, mannsins
sem vildi fórna tign og auðæfum
henar vegna. Lífið er stundum
svo miskunarlaust — aldrei hafði
Jóhanna fundið það eins átakan-
lega og nú.
Vegna þess að hún trúði betur
tmanninum en eigin hugboði, munk-
unum er þóttust þekkja heiminn
betur en hún og vöruðu hana við
hættunum. Og svo hafði hún gifst
Danvelt, einungis til þess að þókn-
ast honum og föður sínum og til
þess að storka manninum sem hún
elskaði, og sem hún hjelt að hefði
brugðist sjer af asettu ráði.
Hún fann nú fyrst hve brotleg
hún var, við sjálfa sig og hann
og jafnvel við Danvelt líka. Henni
var það ljóst, að hún gat aldrei
elskað Danvelt. Hann var ekki
40 ára hjúskaparafmæli og um leið
40 ára hreppstjóraafmæli. Þetta
mun ekki alls kostar rjett, því að
árið 1895 var hann fyrst skipaður
hreppstjóri, en ljet af því starfi
árið 1916, og var þá maðurinn
minn sál., Magnús Pálsson Waago,
skipaður hreppstjóri; gegndi hann
því starfi til dauðaclags, seint á ár-
inu 1923. Síðan hefir Ó. K. verið
hreppstjóri og mun hann þannig
vera búinn að gegna hreppstjóra-
störfum í 30 ár.
Staðarhóli í Höfnum.
Kristín Jósefsdóttir.
Frá Valsmönnum.
Akureyri, FB. 12. júní.
Keptum við Knattspyrnufjelagið
Þór. Unnum með 6:0. Boðnir af
Knattspymufjelagi Akureyrar í
Vaglaskóg á morgun. Kærar kveðj-
Fararstjórinn.
NINON
Snmarfrils-
KJÚLAH
5, 7, 9, 10, 12, 15,
18, 20, 22, 25 kr.
Kaupið strax!
Amatörar.
Höfum eftirleiðis allar filmustærð-
ir, einnig fyrir 8 myndatökur. Mót-
tökum framköllun og kopieringu.
Fljót afgreiðsla.
Jón Gestur Vigfússon,
Hafnarfirði.
ur.
Hausner bjargað úti í regin-
hafi.
London, 13. júní.
United Press. FB.
Wilson, skipstjóri á breska tank-
skipinu Circeshe1!!, hefir sent
United Press hraðskeyti um það,
að hann hafi bjargað flugmann-
inum Hausner kl. 10 síðd. á laUg-
prdag (á 42.41 nbr. og 20.04 vl.).
Hausner neyddist til að lenda á
sjónum kl. 9 síðd. (Greenwichtími)
þ. 3. júní. Flugmaðurinn ómeiddur
en örmagna. Skipið fer til New
Orleans og kemur þangað 27. júní.
Wilson símaði United Press einn-
ág á sunnudag og kvað Hausner
fara vel fram, en eigi væri hann
orðinn svo hress að hann gæti lýst
ferð sinni nánara.
Frá Chile.
Santiago, 13. júní.
United Press. FB.
Davila hefir beðist lausnar vegna
deilu við róttækari hluta ráð-
stjórnarinnar. Blöðin í Chile hafa
að undanförnu gert harða hríð að
Davila.
því fífl sitt að gefa henni nánar þannig gerður að hún; gæti virt
hann sem skyldi. Lífið hlaut að
vera gleðisnautt við hlið hans,
hún iðraðist þess að hafa ekki
heldur tekið þann kostinn að
ganga í klaustur; þar hefSi hún
vafalaust getaS orðiS einhverjum
til góðs. Nú var hún eins og þræll
að henni fanst, alt sjálfstæði brot-
'ið á bak aftur og hún varð að
láta stjómast af manni sínum. —
Þetta hafði Jóhanna brátt sjeð
eftir að hún komst í hjónabandið.
Hún iðraðist sáran trúgirni sinnar,
hún gat eltki hugsað sjer, að svo
tiginn maður sem Antonius var
hugsaði til sambúðar við hana,
eftir að hún komst að raun um
hver hann var.
— Fylgið mjer aftur inn í höll-
ina, mælti hún hljóðlega. Mjer
líður nú betur, jeg hefði ekki átt
að fara hingað út.
— Ó, góða Jóhanna, bíðið augna
blik, jeg þarf svo margt við yður
að segja.
Hún reyndi að hlæja: Hún
margt eða fátt, við höfum þegar
sagt alt sem hægt er að segja. Jeg
er ekki lengur frjáls; jeg er kona
Philips Danvelts.
— Þú — Philips — kona Philips
Danvelts? Hann endurtók það
hvað eftir annað, eins og hann
tryði því ekki.
Litlð eitt
af þurkuðum ávöxtnm
eftir enn þá
Hjörtnr Hjartarson.
Bræðraborgarstíg 1.
Sími 1256.
CHIC
Bankastræti 4.
Peysur, mikið úrval.
Svart Georgette með
flosrósum.
Crépe de Chine.
Kjólaefni o. fl.
Náttföt, mjög falleg.
Allir K. R.-fjelagar eru vinsam-
lcgast beðnir, að skila andvirði
seldra happdrættismiða og greiða
fyrir sölu allra þeirra, sem eftir
eru. —
Hann greip um handlegg henn-
ar, en ‘slepti honum óðara aftnr,
löng þögn kom á eftir, svo and-
varpaði hann.
— Guð miskunni mjer! Hvenær
skeði það, Jóhanna?
— Fyrir þrem vikum.
— Fyrir þrem vikum. — Tveim:
mánuðum eftir að jeg skildi við
þig, af því að þú hjelst----------
Hann þagnaði — alt var kyrt og
hljótt; það glitraði á vatnið í gos-
brunninum í tunglsljósinú, ekkert
heyrðist nema ómurinn lir veislu-
sölunum, sem barst út um opna
gluggana; ilmur rósanna barst um
garðinn með kvöldblænum. Þessi
stund var þeim sár og eftirminni-
leg.
Antonius áttaði sig brátt. Jeg
bið yður að fyrirgefa frú mín góð
alla mína breytni við yður. Og
þó — — sál hans var lirygg og
röddin skalf — og þó er það svo að
jeg get afsakað dirfsku mína gagn
vart yður.
— Frá því við sáumst fyrst hefi
jeg ekki dulið tilfinningar mínar,
hvers virði þú varst mjer. Þú
hlustaðir á mig og mjer fanst þú
skilja mig, enda var auðskilið
hvað jeg fór, og þú hafðir ekkert
á móti því, að jeg segði þjer hug
minn. Hvemig stóð á því? Hefðir