Morgunblaðið - 22.06.1932, Qupperneq 2
2
'mBU
MORCUKMAB!!
Nýkomið I
Appelsínur ,,Bra/il“ 100—176—200 stk.
Epli „Nevr Zealaud' ‘, 180 stk.
Kartöflur, ítalskar, ný uppskera,
Kartöflur, Hollenskar, gamlar.
Sítrónur — 300 stk.
Nýr smálax. Uerðið lækkað.
Matarverslun Tómasar Jóussouar,
Laugaveg 2.
Sími 212.
Laugaeg 32. Bræðraborgarstíg 16.
Sími 2112. Sími 2125.
Liísmæiraskíili Islands.
Námskeið hefst 1. október næstkomandi. Nemendur
skulu ekki vera vngri en 20 ára og ekki eldri en 30 ára,
heilsuhraustar (heilbrigðisástand verður nánar athugað
á Landspítalanum). Konur, sem lokið hafa hjeraðsskóla-
prófi eða gagnfræðaprófi ganga fyrir öðrum. Eiginhand-
arumsókn sendist stjórn skólans á Landsspítalanum fyrir
15. ágúst. Umsókninni fylgi aldursvottorð, heilbrigðisvott-
orð og prófvottorð frá skóla, ef fyrir hendi er.
Umsækjendur, sem hafa skuldbundið sig til að gegna
ljósmóðurumdæmi að námi loknu, skulu senda vottorð um
það frá viðkomandi oddvita.
Landsspítalinn, 20. júní 1932.
Guðm. Thoroddsen.
StýrimaiRsskólinn.
Þeir nýsveinar, sem vilja fá inntöku í Stýrimanna-
skólann næsta vetur, sendi forstöðumanni skólans beiðni
um það fyrir 1. september, ásamt áskildum vottorðum.
(Sjá B-deild Stjórnartíðindanna 1924, bls. 113—114, 7,
—9. grein).
Reykjavík, 21. júní 1932.
Páll Halldórsson.
Til Ðúðardals, Hvammstanga
og Blönduóss
fara bílar alla þriðjudaga og föstudaga.
Lengra norður, ef farþegar bjóðast þá.
Bifreiðastöðm Hekla.
Sími 970. Lækjargötu 4. Sími 970.
Hðtorbðtnr.
Lftlll mðtorbátnr til sðin, semjið vifl
Maguns Bergsson,
* Bókhlöðustíg 6C, kl. 19—20.
ULLARBALLAR
7 ]bs. fyrirliggjandi.
Sími 642. L. Andersen, Austurstræti 7.
Rtuinnuleysi sjómanna uegna
ósanngirni siglfirskra
uerkamanna.
Þegar klípa á af 200 króna mánaðarkaupi sjó-
manna, er verkamönnum boðið 438 kr. mán-
aðarkaup, en þeir heimta sex hundruð, en með
því er sjómönnum varnað að bjarga sjer við
síldveiðar í sumar.
Álit Jóhanns Jósefssonar alþingismanns.
1 gær átti MorgunblaSið tal við
Jóhann Jósefsson alþm. í Vest-
mannaeyjuni. Barst í tal skýrslan
frá stjórn síldarverksmiðju ríkis-
ins á Siglufirði, sem lesin var upp
i irtvarpinu í fyrra kvöld, og birt-
ist á öðrum stað hjer í blaðinu.
En Jóhann hefir sem kunnugt
er um mörg undanfarin ár verið
í sjávarútvegsnefnd á Alþingi, og
hefir því fylgst með verksmiðju-
málinu frá byrjun, enda þótt. till.
hans í því máli. sem annara Sjálf-
stæðismanna, hafi jafnan ekki átt
upp á pallborðið hjá þingmeiri-
hlutanum.
Hann sagði m. a. að hann furð-
aði sig á því, að stjórn verksmiðj-
unnar skyldi leyfa sjer að ganga
svo langt, að bjóða verkamönnum
sem vinna að framleiðslu síldar-
mjöls og olíu í landi, mánaðar-
kaup, sem næmi kr. 438.00, þar
sem reynslan í fyrra sýndi, að
sjómennirnir, sem við síldveiðar
unnu þá, fengu ekki nema þetta
207 krónur á máaiuði yfir síld-
veiðitímann. Þetta kanp hugðist
verksmiðjustjórnin að lækka um
10%, en samt væri verkafólki í
landi boðið helmingi 'hærra kaup
og meira en það, við sömu fram-
leiðslu, og væri þó ekki sjáanlegt
á hvem hátt hægt væri að gera
sanngjarnar kröfnr til þess að
verkamenn í landi hefðu trygt
hærra kaup en sjómenn fengju að
jafnaði.
Jóhann sagði sem svo:
Hjer í Vestmannaeyjum eru nú
margir atvinnulausir, og hefir
fjöldi manna beðið eftiii því að
fá atvinnu við síldveiðarnar í súm-
ar. Menn hafa ekki gert sjer háar
hugmyndir um afrakstur af þeirri
vinnu. Til eru þeir menn, er segja
sem svo, að heldur vilji þeir fara
á síldveiðar, þó þeir byggjust við
að bera lítið fir býtum, en ganga
aðgerðarlausir heima fyrir.
Jeg tel eftir atvikum óhugsandi
annað en hægt sje að fá fólk hjer
sunnanlands t.il að vinna við verk-
smiðju ríkisins á Siglufirði fyrir
kaup, sem .væri aðeins helmingur
á við það, sem liinir siglfirsku
verkamenn heimta.
Okkur hjer í Ýestmannaeyjum
er spurn, segir Jóhann:
— Er nú nokkurt vit í því, að
útiloka þetta fólk t. d. hjer í Vest-
mannaeyjum frá allri atvinnu við
síldveiðar í sumar, blátt áfram
loka bjargræðisvegi þess, fyrir
þá sök eina, að nokkrir sósíalistar
á Siglufirði hafa æst verkafólk
þar upp í það að gera þær kaup-
kröfur, sem engri átt ná, sem ekki
eru í hinu minsta samræmi hvorki
við afurðaverð eða við það sem
aðrir sætta sig við, er stunda vilja
síldveiðarnar.
Það er skylda ríkisstjórnar, að
mínu áliti, ségir Jóhann að lokum,
að hún blátt áfram útvegi sjer
fclk til að vinna við verksmiðj-
una, sem vinna vill fyrir sann-
gjamt, kaup, svo verksmiðjan geti
orðið starfrækt og sjómenn þeir,
sem bíða eft.ir síldveiðum, en hafa
ekki í önnur hús að venda, fái
þessa atvinnu.
Það væri hlálegt, ef nokkurir
vcrkamenn eða verkamannafor-
kólfar norður á Siglufirði, ættu að
geta lokað bjargræðisvegum sunn-
lenskra sjómanna á þessum tím-
um, þegar okkur sannarlega veitir
ekki af að sú atvinna og þeir at-
vinnumöguleikar notist, sem fyrir
hendi eru.
Foralelf aranns ðknlr
dr. Poul Norluuds i
Grænlandi.
Hinn 1. júní lagði dr. Poul Nor-
lund á stað frá Kaupmannahöfn
á gufuskipinu „Disko“ í fjórðu og
seinustu för sína til Grænlands til
þess að rannsaka þar fornm'injar
frá þeim tíma, er íslendingar
bjuggu þar. Var förinni fyrst heit-
ið til Julianehaab, og eru með
honum í rannsóknaferðinni pró-
fessor Gudmund Hatt, sænski jarð-
fræðingurinn dr. Sternberger,
Milthers stúdent og Erik Holtved
fornfræðingnr.
Sumarið 1926 byrjaði dr. Nor-
lund rannsóknir sínar á biskups-
setrinu Görðum og fann þar meðal
annars í kirkjugarðinum líkkistu
Jóns biskups Sverrisfóstra, og
hafði liún látið furðu lítið á sjá
þau 700 ár, seim hún hafði legið í
mold. Biskupsskrúðinn og biskups-
stafurinn var hvort tveggja lítið
skemt, og eru nú í þjóðminjasafni
Dana. Jarðneskar leifar biskups
voru látnar í trjekistu og fóru
þeir nú með hana vestur með sjer
og ætla að setja hana niður í
gröfina aftur. Jafnframt var farið
með veglegt minnismerki vestur og
a að resia það á gröf biskups. Var
send þriggja manna nefnd til þess
að annast um hina nýju útför
biskupsins og reisa steininn á ieiði
hans. Einn af þessum þremur er
fornfræðingurinn Eigil Knuth.
greifi, og ætlar hann í sumar að
rannsaka fornmannabústaði hjá
Godthaab, og er það einn þáttur-
inn í hinum víðtæku rannsóknum
dr. Norlunds. Sjálfur ætlar hann
að vera í Eystri bygð 1 sumar og
á þar að mæla vandlega alt það
s\æði, er sú bygð náði yfir og öll
þau m&nnvirki frá fornöld er þar
finnast.
Afnám bannlaganna
í U.S.A.
Washington, 21. júní.
TJnited Press. FB.
Forseti fulltrúadeildar þjóð-
þingsins hefir lagt það til, að
bannlögin verði feld úr gildi.
Leikfarir
Leikfjelags Reykjavíkur.
Núna í vor hefir Leikfjelag
Reykjavíkur sent tvo leikflokka
til að sýna sjónleika út um land.
Annar flokkurinn undir stjórn
Haralds Björnssonar hefir nú sýnt
sjónleikinn ,Jósafat‘, þrisvar sinn-
um á Akureyri við góða aðsókn
og ágætar viðtöknr áhorfenda. Var
höfundur leiksins, Einar H. Kvar-
an, sjálfur viðstaddur frumsýn-
inguna á Akureyri og var honum
fagnað af áhorfendum að sýningu
lokinni. Hlutverkin Grím, sem hjer
var leikið af Friðfiimi Guðjóns-
syni og frú Fanndal, hjer leikið
af frú Arndísi Björnsdóttur, Ijeku
þau Jón Norðfjörð og frú Regína
Þórðardóttir, bæði Við mjög góðan
orðstír, nokkur smærri hlutverk
voru leikin af leikendum frá Leik-
fjelagi Akureyrar.
Hinn flokkurinn, unclir stjórn
Indriða Waage, hefir nú sýnt hinn
ágæta gamanleik „Karlinn í kass-
anum“ hjer suður með sjó þrisvar
sinnum og á Akranesi tvisvar. -
| Hefir leiknum alls staðar verið
itekið með afbrigðum vel og hafa
áhorfendur skemt sjer engu síður
en hjer í leikhúsinu. Er í ráði
að leikurinn verði sýndur í Borg
arfirði, sennilega að Reykholti,
í næsta mánnði, en þar sem sam-
komubann vegna skarlatsóttar er
á Eyrarbakka gat ekki orðið úr
því að leikurinn yrði sýndur þar.
Annað kvöld verður leiknrinn
sýndnr hjer í Iðnó, og er það 15
og allra síðasta sýning hjer í
bænum.
Ofursti George Holmes frá Að-
alstöðvum Hjálpræðishersins í
Lundúnum er kominn hingað til
íslancls fyrir nokkrum dögum í
eftirlitsferð og jafnframt til að
setja hina nýju forstjóra Majór
Hal Beckett og frú hans í embætti
þeirra, sem deildarstjóra yfir
Hjálpræðishernum á íslandi og
Færeyjum. Hann hefir stjórnað
Ársþingum Hersins í Noregi, Sviss,
Belgíu og Frakklandi. Og nú
stjórnar hann Ársþingi Hjálpræð-
ishersins hjer á landi sem haldið
er hjer í Reykjavík frá 20.—
28. þ. m.
Stjórn Afmælisfjelagsins óskar
þess getið að barnaheimilið Egilg-
staðir í Hveragerði í Olfusi, taki
til starfa upp úr næstu mánaða-
mótum. Nánari upplýsingar, sem
og eyðublöð undir dvalarbeiðni
fást í bókaverslun Ársæls Árna-
sonar í dag.
Dansleikur verðm- í K. R. hús-
iuu í kvöld og hefst kl. 10. Þar
verða afhent verðlaun frá alls-
herjarmótinu. Allir þátttakendur
i mótinu eru sjálfboðnir og mega
karlmenn bjóða með sjer stúlku
og stúlkur pilti. Annað íþróttafólk
getur fengið aðgöngumiða í versl.
Haraldar Árnasonar í dag.
Guðsþjónusta í dómkirkjunni í
clag kl. 1. Síra Brynjólfur Magn-
ússson prjedikar.
Nýtt met setti Karl Sigurhans-
son frá Vestmannaeyjnm í 10 km.
hlaupi á íþróttavellinum í gær.
Gamla metið átti Jón Kaldal og
hcfir það staðið óhaggað í mörg ár.
A