Morgunblaðið - 06.07.1932, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 06.07.1932, Qupperneq 3
MORGUNBLA8IÐ a • JHorgunHaM^ •• Útget.: H.f. Árvakur, RaykjaTlk. • Hltktjðrar: Jön Kjartanikon. '« Valtýr Stefánuon. • Rltatjörn og afgrrelBala: J Aueturetrœtl 8. — Slml 100. • Auglýalneaatjörl: B. Hafberc. • AUKlýalngraekrlfetofa: • Auaturatrœtl 17. — Slaal 700. • Helaaaatmar: • Jön KJartanaaon nr. 741. • Valtýr Stef&naaon nr. 1110. B. Hafbers nr. 770. • ÁekrlftagrJald: • Innanlanda kr. 2.00 á mánuOl. • Utanlanda kr. 2.50 á aaánuöl. • 1 lanaaaölu 10 aura elntaklB. • 20 aura meö Laabök. • Horðurhuels- rannsóknimar Hvernig þeim verður hagað hjer á landi. Þorkell Þorkelsson veðurstofu stjóri er nýkominn heim frá út- löndum. Þangað fór hann til ,þess að búa sig undir að taka þátt í norðurhvels-rannsóknun- um (pólárinu). Morgunbl. hitti Þorkel allra snöggvast að máli og spurði hann, hvernig rann- sóknunum yrði hagað hjer á landi. Honum sagðist svo frá: — Islendingar taka ekki neinn þátt í rannsóknastöð þeirri, sem á að vera á Snæ- fellsjökli. Hana kosta Sviss og Danmörk. Húsið, sem þar á að reisa, er fullsmíðað í Kaupm,- höfn, og leit jeg á það þegar jeg var ytra. — Það er lít- ið, enda eiga ekki nema tveir menn að búa í því, Dani og íSvissari. Húsið mun verða sent hingað í þessum mánuði, en efasamt er, hvort það verður komið á sinn stað fyrir 1. ágúst, en þá áttu rannsóknimar á Snæ- fellsjökli að byrja. — Hvaða þátt taka íslending ar þá í rannsóknunum? — Við ætlum að annast seg- nlmagnsmælingar hjer í Rvík eða í grend við bæinn. Verða þær rannsóknir að fara fram þar sem ekki eru segultruflanir, vegna bílaumferðar, rafmagns- strauma o. s. frv. — Áhöld til rannsóknanna eigum við ekki, en við fáum þau ljeð hjá fram- kvæmdanefnd norðurhvelsrann- sóknanna. Ríkissjóðs styrkur mun ekki fást, en Menningar- sjóður mun leggja. fram fje til segullmælinganna. Lausanneráðstefnan. Lausanne 5. júlí. United Press. FB. Menn bíða með mikilli eftirvænt- ingu eftir að fá vitneskju um ár- angurinn af viðtali, sem fram á að fara í dag miffii Herriots og MacDonalds, en þá fæst væntanl. vitneskja um, hvort Frakkland vill fallast á að breyta fimmveldasam- komulaginu eða fallast á tillögur þær til málamiðlunar, sem fram hafa komið. Frakkneska stjómin hefir gefið í skyn, að tffiboð Þjóð- verja um greiðslu einnar miljónar sterlingspunda, sje ekki fullnægj- andi. Mac Donald er staðráðinn í því að hraða málum svo, að lausn fáist á deilumálunum á fimtudag og slíta ráðstefnunni samdægurs. Takist þefcta ekki verða stórveldin að kannast við, að ráðstefnan hafi <kki getað leyst vandamálin, Heimtið uinnu segir Alþýðublaðið. Heimtið vinnu! Hjer þarf ekki að heimta vinnu. Það er nóg vinna til fyrir fjölda fólks, fyrir alla þá, sem vilja vinna. En vinnan gefur ekki eins mikið af sjer eins og meðan alt var hjer „á toppi“. Vinnukraftur- inn er verslunarvara, sem hækkar og lækkar í verði, eftir því hver verðmæti jum getur fratnleitt. Þetta skilur Alþýðublaðið aldrei, og þetta skilja ekki þeir angur- gapar, sem hneppa verkalýðinn í fjötra og banna vinnufúsum mönn- um að starfa, nema þeir fái svo og svo hátt kaup. En kaup það, sem þessir menn heimta, er svo hátt, að enginn atvinnurekstur, hvorki á sjó nje landi, getur greitt það. Þegar framleiðsla vinnunnar hrekk ur ekki fyrir heimtuðu kaupi, þá stöðvast vinnan af sjálfu sjer. Oll þau fyrirtæki, sem hafa meiri rekstrarkostnað heldur en tekjur, hljóta að fara á höfuðið. Og þessi regla gffidir jafnt um bóndann, sjómanninn og iðnaðarmanninn. Einyrkinn ber úr býtum það, sem hann getur aflað, og þarf ekki að metast við neinn. Hver getur skyldað hann til þess að taka kaupafólk og borga því svo hátt kaup að hann hljóti að flosna upp á fyrsta ári? Og hver getur skyldað atvinnurekendur til að taka menn í vinnu og borga þeim hærra kaup heldur en þeir vinna f yrir ? Ónei, það verður að miða við af- rakstur vinnunnar. Og hjer í landi er fjöldi verkamanna og sjómanna, Sem skilur þetta og vill vinna fyrir lægra kaup, heldur en forsprakk- arnir heimta, forsprakkamir, sem halda að þeir sje ábyrgðarlausir. En það eru þeir ekki. Þeir einir bera ábyrgð á atvinnuleysinu í landinu .Hjer væri nóg vinna, og befði altaf verið, ef hin þjóð- hættulega starfsemi þeirra ekki væri. í. gær segir „Alþýðublaðið", að 270 menn hafi látið skrá sig sem atvinnulausa, og margir þeirra hafi ekki fengið meiri vinnulaun s.l. 6 mánuði en aðeins fyrir hiisa- leigu. Er ekki hræðilegt, að hugsa sjer þetta, þegar maður veit, að alllir þessir menn hefði getað haft stöðuga atvinnu, ef þeir hefði mátt vinna fyrir lægra kaupi, en kraf- ist er, og er það ekki jafn hræði- legt, að þeir hinir sömn skuli nú vera látnir hafna sumaratvinnu af sömu ástæðum! Kveldúlfur hefir boðið 2-300 manns atvinnu í sum- ar, eða álíka mÖrgum og Alþýðu- flokkurinn skráði, sem atvinnuleys ingja í fyrradag. Þeir menn hafa um 1000 manns á framfæri sínu, segir Alþýðublaðið. En samt banna sosíalistabroddarnir þeim að taka vinnu, sem býðst! Þótt Alþýðuflokkurinn haldi á- fram að skrásetja svona, þá fær hann ekki fleiri atvinnuleysingja en þá, sem nóg vinna bíður — ef þeir fá að vinna og bjarga sjer og sínum. Það er vitað, að ríkisverk- smiðjan í Slglufirði tekur til starfa, ef kaupið kemst eitthvað í námunda við afrakstur vinnunnar. Og þá fá 4—500 manns atvinnu. Það stendur aðeins á verkamönn- um í landi. Sjómenn sættu sig þeg- ar í fyrra við það, að taka kaup eftir því, sem arður væri af vinnu þeirra. Og þeir vilja allir hlíta hinu sama í sumar. En svo eiga aðrir eins angurgapar og óhappa- menn, og Ólafur Friðriksson og hans nótar að fá að varna þeim að vinna, með því að kúga verkamenn í landi til þess að heimta svo hátt kaup, að verksmiðjan sjái sjer ekki fært að starfa. Hvaða vit er í þessu? Siglufjarðaiskeytið. Sveinn Benediktsson hef- ir svarað skattanefnd. Sjerstakur rannsóknar- dómari verður sennilega skipaður í Siglufirði. Hinu fáránlega skeyti skatta- nefndar iSiglufjarðar til Sveins Benediktssonar, er -birt var hjer í blaðinu í gær, hefir hann svarað brjeflega. Lætur hann þess getið í svari sínu, að þar sem skeytið sje óstaðfest og ekki undirritað af neinum sjerstökum manni, og þar sem hann í kæru sinni til Stjórnarráðsins hafi ákært skatta- nefndir Siglufjarðar og bæjarfó- geta fyrir vanrækslu í embættis- færsílu, þá detti sjer ekki í hug að afhenda þeim málsaðilum í hendur þau gögn, er hann hafi fyrir vanrækslu þeirra. Hann muni á sínum tíma afhenda þau væntanlegum setudómará í málinu, eða rjetti í'Reykjavík, og þá færa fram rök fyrir kæru sinni í þessu skattsvikamáli. Það kemur ekki til neinna mála að bæjarfógeta Siglufjarðar verði falin rannsókn í málinu, því að liann er formaður yfirskattanefnd- ar þar. Þar sem segir í skeytinu frá skattanefnd Siglufjarðar að það sje sent „samkvæmt áskorun frá bæjarfógeta um ýtarlega rannsókn á skattaframtali Guðmundar Skarp hjeðinssonar“, þá á það ekki við nein rök að styðjast, því að bæj- arfógeta hefir ekki verið falin nein rannsókn í því málli. Hefir blaðið og frjett, að bráð- lega muni verða skipaður sjer- stakur setudómari til þess að rannsaka kæru Sveins Benedikts- sonar og hvarf Guðmundar Skarp- hjeðinssonar og alt sem er í sam- bandi við það. Deilur Breta og íra. London 5. júlí. United Press. FB. Thomas nýlendumálaráðh. lýsti yfir því í neðri málstofunni í gær, að með því að neita að halda á- fram ársgreiðslunum, hefði frírík- isstjómin í rauninni gert tilraun til þess að ónýta fjárhagssamkomu lagið, sem staðfest var af ríkis- stjórnum beggja landanna. Breta- stjórn eigi ekki annars kost en að grípa til þess úrræðis að leggja háa innflutningstolla á vörur frá fríríkinu. Útvarpið í dag: 10.00 Veður- fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00 19.30 Veðurfregnir. 19.40 Tónleik- ar (útvarpskvartettinn). 20.00 Klukkusláttur. Grammófóntónleik- ar: Coriolan-Ouverture eftir Beet- hoven. Einsöngur: Elisabeth Schu- mann svngmi: Batti, batti, o bel Masetto úr „Don‘.Tuan“ eftir Mo- zart; Voi che sapete úr „Brúð- kaup Figaros“ eftir Mozart, Stándchen og Morgen, eftir Rich. ' Strauss. 20,30 Frjettir. Músík. Ofsóknir gegn þjóönýtum mönnum. Nú elta menn og ofsækja alla þá, sem vilja spara og eignast eitthvað, mennina, sem þrá sjálf- stæði og vilja með engu móti falla öðrum til byrði. Og þó er það víst að ekkert þjóðfjelag getur þrifist án þessara manna, sem heimskir menn, af öfund og fáfræði, kalla snýkjudýr á þjóðfjelaginu og vilja helst útrýma. Sumir segja að einstaklingar megi ekki spara og safna fje, það eigi ríkið að gera, heildin. Hugsa má þetta, en reynslan sýnir að ríkj- um lætur betur að skulda en græða. Ekkert lýðstjórnarríki hefir safnað f je. Hvernig stendur á þessu? Blátt áfram þannig, að utan um ríkis- sjóðinn safnast alt ljelegasta og ónýtasta fólkið, til þess að reyna að krækja í eitthvað af rjettunum, sem eru á borði þjóðarinnar. Það þykist eiga þá alla, þó einskis eða lítils hafi það aflað. Og lystin vex við hvern hita. Svo stendur borðið bráðlega tæmt, og þar er ekkert eftir skilið. Meðan efnamennirnir, sem eitt- hvað höfðu sparað og dregið sam- an, gátu borgað alla þá þungu skatta, sem sífelt voru lagðir á þá, — þá var auðvelt að syngja ríkfnu lof og dýrð fyrir alt það, sem einstaMingarnir, auðvaldið svo nefnda, höfðu borið á borð. Þó þeir sjeu rægðir og lastaðir þykir ágætt að þeir borgi skatta. Það hefði því verið ástæða til þess að lilynna að þeim, og hvetja sem flesta til þess að eignast eitthvað, en skamma heldur ríkið, óvættina, sem eyddi öllu því sem sparsamir ráðdeildarmenn drógu saman. (Alfred Horvitz í Tilskueren. — Maí.) Hver kostar Reykiavíkurliigreglu 0 Laugarvatni? Fyrirspurn til lögreglustjóra. Sunnudaginn 12. f. m. var hald- in mikil útisamkoma á Laugar- vatni. Gat þar að líta 4 einkennis- búna lögregluþjóna hjeðan úr bænum. Tvent er við þetta að at- huga. Það fyrra er það, að mjög er óviðfeldið að sjá lögregluþjónum Reykjavíkurbæjar flækt út um sveitir landsins. Lögreglustjórar hjeraðanna (sýslumennirnir) geta sjeð um, og eiga að sjá um lög- reglluvald hver í sinni sýslu, sje þess þörf, með innanhjeraðslög- reglu. í öðru lagi vaknar sú spurn- ing: Hver kostar Reykjavíkurlög- reglu út í sveitunum ? Er það t. d. þessu tilfelli Reykjavíkurbær, eða er það Laugarvatnsskóli, eða Ár- nessýsla? Ferð þessara fjögra lögreglu- þjóna að Laugarvatni hefir ekki getað kostað minna en 120—150 krónur. Hver borgar þann kostn- að? Vegna okkar Reykvíkinga, er kostum Reykjavíkurlögregluna að öllu leyti, er nauðsynOegt að fá þetta upplýst, og því er þessari fyrirspum beint til yðar, hr. lög- reglustjóri . Reykvíkingur. Hýtt heimsflug. Neiv York 5. júlí. United Press. FB. James Mattern og Bennett Grif- fin, póstflugmenn. lögðu af stað í heimsflug frá Flovd Bennet flug- velliirum í Brooklvn, klst. eftir miðnætti. Fyrsti viðkomustaðúr þeirra er Harbour Grace, Nevr- foundland. Tilgangur þeirra er aS setja nýtt met á sömu leið og Post og Gatty settu met. Flugu þeir kringum hnöttinn á átta dögum og 15 klst. Mattern og Griffim gera sjer vonir um að ljúka flug- inii á 6 dögum. Mattern á flug- vjelina og heitir hún „Century of Progress“ (Framfaraöld). GRÆNLANDSDEILAN. Oslo 5. júlí. NRP. FB. Norska íshafsskipið .Polarbjöm' fer innan nokkurra daga frá Ála- sundi áleiðis til Austur-Grænlands með norska leiðangursmenn. Höf- uðmaður leiðangursmanna er Orvitt verkfræðingur. Skipstjóm hefir Marö skipstjóri á hendi. Braadland utanríkismálaráðh. tilkynnir, að utanríkismálaráðu- neytið hafi fengið orðsendingu fri Danmörku viðvíkjandi fram- kvæmd lögregluvalcte í Grænlandi í sambandi við tiltekna Grænlands- leiðangra. Efni orðsendingarinnar í einstökum atriðum er haldií lejmdu enn sem komið er. Hollansk-belgiska tollabanðalagið. > Albert Belgíukonungur sendi ný- lega Renkin stjpmarforseta Belgíu brjef viðvíkjandi heimskreppunni. Renkin var staddur í Lausanne, þegar liann fjekk brjefið. í þessu brjefi minnist Belgíúkon- ungur á hinn marg endurtekna sannleika, að velmegun þjóðanna og friðsamlegt ástand í heiminum er undir því komið, að viðskifti milli þjóðanna sjeu frjáls. En því œiður hafa þjóðirnar brotið þetta boðorð, segir konungurinn. Og nú sjá menn afleiðingarnar: Utanrík- isverslunin minkar stöðugt og at- vinnuleysið hefir tvöfaldast á þrem ur árum. Konungurinn segir í lok brjefsins, að ekkert ríki geti af eigin ramleik bjargað sjer úr þeim voða, sem vofir yfir. Aðeins sam- vinna milli þjóðanna geti læknað þann sjúlrdóm, sem heimurinn þjá- ist af. Nú sje tími til þess kominn, að samvinna milli þjóðanna komi fram á annan hátt en í ræðum. Daginn eftir að þetta brjef var birt skrifuðu fulltrúar ríkisstjórn- anna í Belglu, Hollandi og Lux- emborg undir samning um toála- bandalag milli þessara ríkja. Þessi 3 ríki skuldbinda sig til þess, að lækka alla tolla sín á milli smátt og smátt, um 10% árlega, eða ura helming á 5 érum. Sjerhverju öðru ríki en þessum þremur er heimilt að taka þátt í þessu tollabandálagi á grundvelli gagnkvæmra tolla- lækkana. — Tollabandalag þetta er einn þátt ur í þeirri viðleitni, sem miðar að því, að rífa niður tollamúrana og skapa st.ærri og stærri viðskifta- svæði. Þetta er einmitt markmið hinna svokölluðu ,.Oslo-ríkja“. Oslo-ríkin eru: Danmörk. Noregur,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.