Morgunblaðið - 06.07.1932, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ
í ferðalög- á sjó eða landi, ættu
konur og karlar að kaupa sælgæt-
ið og tóbaksvörurnar í Tóbaks-
húsinu, Austurstræti 17.
DömiLhattar gerðir upp sem ný-
ir. Lágt verð. Ránargötu 13,
Matur og kaffi mest, best og
ódýrast í Heitt & Kalt. Engin ó-
mabslaun.
Verslunin París hefir fengið
margar fallegar draggardínur.
A'lskonar grænmeti, útlent
og innlent Flóra, Vesturgötu 17.
Sími 2039.
Verslunin París hefír bamasápu,
barnapúður, barnapéla, barnatútt-
ur o. s. frv.
Glænýr hasx og silungur fæst í
Nordalsíshúsi, sími 7.
Indælar blúndur á nærfatnað
fást i París._______________
Dilkarúllupylsumar alþektu —
fást enn þá í Nordalsíshúsi, sími 7.
Nýjar birgðir af dönsku postu-
línj eru komnar í París.
•uoa J nrgnqiot^
jijfifos 09 sura gy -jEjýpu
— jujjoíjjbii jeCifu ‘jnjisfeu
Kræðin og dansinn í Vien, eru
komin út á íslensku. Lauslega þýdd
af Freysteini Gunnarssyni. Útgef-
andi Hljóðfærahús Reykjavíkur,
Stiika
16 til 18 ára getur fengið
* atvinnu fyrst um sinn í
* vefnaðarvöruverslun við af-
* greiðslu og innheimtu.
*
• Umsókn sendist A. S. 1.
• merkt: 1001
fyrir fimtudag.
AmatðrðeilA
Lofts í Nýja Bíó.
j Sterlingspund hækkar. Um sein-
justu helgi hækkaði gengi á Ster-
lingspundi á pósthúsinu upp í 24
krónur.
Framköllun og kopíering | yenus er ^ ísfiskveiðum. Það er
fljótt og vel a hendi leyst., e-n- t0garjnn or öllum flotanum,
sem enn stundar veiðar og eru
ekki líkur til að aðrir togarar
verði hreyfðir í bráð.
Síldveiðin. Mörg útlend skip eru
komin hingað til lands til síld-
veiða, og enn fleiri eru á ileiðinni.
Er ólíklegt að skip þessi liggi hjer
aðgerðarlaus / fram til 25. júlí, en
af síld, sem veidd er fyrir þann
tíma, ætla Svíar ekki að kaupa
neitt. Munu því útgerðarmenn þess
ara skipa hugsa sjer að ná í annan
markað.
Svíþjóð, IMgía, Holland og Lux-
emborg. Fulltrúar þessara ríkja
hittust í Oslo fyrir hálfu öðru ári
og bundust þar samtökum um að
vinna að lækkun tollmúranna. En
þrátt fyrir þetta er ennþá óvíst,
hvort Danir, Norðmenn eða Svíar
vilja taka þátt í hollensk belgíska
tollabandalaginu. Belgiskir stjórn-
málamenn gera sjer þó vonir um
þátttöku Norðmanna innan skams.
En Svíar virðast vera ófúsir til
toHlalækkana að svo stöddu. Og
Danir vilja hafa frjálsar hendur í
tollamálunum vegna væntanlegra
samningatilrauna milli Dana og
Englendinga eftir Ott.awafundinn.
Danir geta því ekki tekið endan-
lega afstöðu til hollensk-belgiska
bandalagsins að. svo stöddu.
Ennþá verður ekkert um það
sagt, hvort önnur ríki en Holand,
Belgía og Luxemborg muni ganga
í hið nýja tollbandalag. En banda-
lag þetta er þó gleðilegur vottur
um vaxandi skilning á því, að
einangrunarstefnan leiðir til stöð-
ugt vaxandi vandræða í heiminum.
Smáríkin hafa í þessu tilfelli eins
og svo oft áður riðið á vaðið og vís
að stærri ríkjum leið út úr ógöng-
unum.
K.höfn í júní 1932.
P.
Utsala
á Pick-uick-
kttrlnm og
ferttatttsknm.
Selt á lyrsta gólfí I
Brannsbáð.
Dagbók.
Veðrið í gær (kl. 5 síðd.): Hæg-
viðri um alt land, en áttin breyti-
leg. Rigning og þokuloft um alt
land nema vestan lands er úr-
komulaust og hefir verið bjart-
viðri inestan hluta dagsins. Hiti
er 12—15 stig á SV-landi en 8—
10 stig í öðrum landshlutum.
Grunt Iægðarsvæði er hjer yfir
ianjdinu.
Veðurútlit í dag: Hægviðri, ým-
ist N- eða SA-gola. Skúraleið-
ingar.
Farsóttir og manndauði í Rvík.
Vikan 19.—25. júní. (í svigum
tölur næstu vfeu á undan). Háls-
bólga 14 (16). Kvefsótt 14 (18).
Kveflungnabólga 0 (2). Iðrakvef
3 (7). Influenza 1 (0). Taksótt
0 (1). Hlaupabóla 3 (1). Þrimlla-
sótt 1(0). Mannslát: 6 (6). Land-
læknisskrifstofan.
Knattspyrnufjel. Víkingur. Til
Vestmannaeyja í kvöld með Detti-
foss fara 13 knattspymumenn úr
2. fl. fjelagsins til þess að þreyta
knattspyrnu við þá Eyjarskeggja.
S.I. ár fór 1. fl. Víkings til Eyja
og var sú för öllum þátttakendum
til gagns og ánægju, því að þeir
Eyjarskeggjar eru góðir heim að
sækja. Um íþróttahæfileika þeirra
er óþarfi að fjölyrða. Þeir eru
þegar orðnir landskunnir. 2. fl. K.
R. fór til Eyja s.l. sumar til þess
að þreyta knattspyrnu við 2. fl.
þar. K. R. bar sigur úr býtum.
A 2. fl. mótinu í vor sigraði K. R.
Víking með 1:0, og er nú spenn-
andi að vita hvernig þeim Víking-
ur reiðir af við þá Eyjarskeggja.
Keppendur Víkings eru þessir:
Sighvatur Jónsson, Gunnar Hann-
ésson, Baldur Möller, Hjörtur Haf-
liðason, Sigurður Þorkelsson, Ósk-
ar Ólafsson, Kjartan Guðmunds-
son, Haukur Óskarsson, Thor Guð-
mundsson, Arnór Halldórsson,
Ævar Kvaran. Birgir Einarson og
Aðalst. Norberg. Fararstj. er form.
fjel., Tómas Pjetursson. — Einnig
verður með í förinni æfingastjóri
fjelagsins. Guðjón Einarsson. Góða
ferð, Víkingur! Þráinn.
Enginn íslendingur. Stjórnin í
Kanada hefir gefið út skýrslu
um hve margir innflytjendur hafi
Guðmundur Pálsson steinsmiður j komið þangað fyrstu þrjá mánuði
andaðist 4. þ. m. að heimili sínu, þessa árs. Eru þeir alls 3544, þar
Bergstaðastræti 38. Hann var 81 af 2833 frá Bretlandi og Banda-
Notið
Hreins
Skó-
REINN ábnrð.
Hann er bestnr
og þar að ankl
innlendnr.
árs að aldri. Systir hans Guðrún
Pálsdóttir lljest í s.l. mánuði 89'
ára að aldri, og vantaði hana einn
mánuð til þess að vera níræð.
Faust, í kvöld og annað kvöld
ætla þau Anna Borg og Poul
Beumert að lesa og leika ,Faust‘
í Iðnó. Er nú hver seinastur fyr-
ir Reykvíkinga að sjá frægustu
Iconu íslands leika það hlutverk,
sem hún hefir orðið frægust fyrir.
ísfirsku skólabörnin, sem hjer
hafa verið á ferð, fóru heimleiðis
í gærkvöldi með Gullfossi.
Esja mun hafá farið frá Kaup-
mannahöfn í morgun, að lokinni
viðgerð. Hún kemur beinustu leið
til Reykjavíkur.
Dalamenn eru ekki sjerlega
hrifnir af Jónasi Þorbergssyni,
þingmanni sínum. Hann fór vest-
ur um daginn til að halda fundi
með kjósendum og hafði boðað til
þeirra í gegn um útvarpið svo
vendilega, að hvert orð í fundar-
boðunum var tvítekið. En fund-
irnir voru þannig sóttir, áð í
Búðardal komu 4 menn á fund
og iá Öðrum stáð komu 3 mexm.
ríkjunum. Frá Danmörku komu
aðeins 2 innflytjendur, 15 frá
Noregi, 19 frá Svíþjóð, en enginn
frá íslandi.
Háskólahverfi. Út af brjefi frá
dóms og kirkjumálaráðuneytinu
viðvíkjandi lóð undir háskóla-
hverfi, hiefir fasteignanefnd bæj-
arins lagt það til við bæjaretjórn,
að háskóllanum verði lagt til ó-
keypis land fyrir austan Suður-
götu, milli Hringbrautar og veg-
ar yfir Yatnsmýrina, gegnt loft-
skeytastöðinni, og jafnframt að
jbærinn afsali til háskólans rjetti
sínum til erfðafestulanda á þessum
slóðum, eftir þörfum. — Ætlast
nefndin tíl þess, að stúdentagarð-
! ur verði einnig reistur á þessu
landi.
íslensku sjómennirnir, sem Yoru
á spánska togaranum „Mistral",
símuðu í gær frá Bergen að þeir
kæmi heim með Lyru. Báðu þeir
að bera kveðjur og segja að sjer
liði vel.
Farþejgar með GuHlfossi í gær-
kvöldi voru fjölda margir, þar á
meðaí Hugo Proppé, Gunnar
Proppé, Jón Brandsson og frú,
Tómasiha Skúladóttir, Þórður
Þórðar.son og frú, ungfrúrnar
Hjördís, Steingerður og Droþlaug
Guðmundardætur, frú Olína Þor-
steinsdóttir, Carl Proppé og frú,
Emil Nielsen og frú.
Kungsholm sænska ferðamanna-
skipið kom hingað í fyrrinótt og
fór aftur í gærkvöldi. Um 60
farþegar fóru til Þingvalla, en
hinir inn í Laugar og suður í Hafn
arfjörð.
fþróttavöllurinn. Sótt hefir verið
um til bæjarstjórnar að hún veiti
800 kr. styrk til þess að koma
upp aftur áhorfendastúkunni á
vellinum, og vill fjárhagsnefnd
verða við þessari beiðni.
Skipafrjettir. Gullfoss fór hjeð-
an í gærkvöOdi vestur og norður.
Goðafoss fór frá Hull í gær áleiðis
til Reykjavíkur. Brúarfoss kom til
Leith í gærmorgun á útleið. Lagar-
foss var á Sauðárkróki í gærmorg-
un. Dettifoss fer hjeðan í kvöld
kl. 10 til Hull og Hamborgar. —
Selfoss fór á laugardag frá Leith
áleiðis til Rvíkur.
Sundskálinn r Örfirisey var opn-
aður til afnota fyrir almenning
eins og undanfarin sumur, með
Stakkasundsmótinu 23. f.m. Mikil
viðgerð héfir farið fram á skál-
anum og sundbryggjan og mörk-
in eru í ágætu lagi. í gærkvöldi
fór jeg út í eyju til að baða mig
og hitti skálavörð, Sigurjón Jóns-
son, og kvað hann fjölda manns
hafa synt í gær í sjónum út við
skálann, enda var sjávarhiti 14
stig. Ætti fólk að nota sjer að
synda út við skála og leyfa börn-
um sínum að baða sig þar, þareð
sundskálavörður er þar stöðugt ef-
ir hádegi og veitir þeim, sem þess
óska leiðbeiningar í sundi. Notið
s.ióinn og sólskinið!
Sundmaður.
Skógrækt í Fossvogi. Skógrækt-
arfjel. íslands hefir sótt um að
fá ókeypis 5—10 hektara af landi
í Fossvogi til skógræktar. Borg-
arstjóra og bæjarverkfræðing hef-
ir verið falið af fasteignanefnd
að hafa tal af stjórn Skógræktar-
fjelagsins og gera tillögur um
land undir skógræktarstöð.
Sundskáli hjá Nauthólsvík. Í.S.Í.
hefir farið fram á það við bæj-
arstjórn að fá keypt land hjá
Nauthólsvík fyrir íþróttasvæði og
sundskála. Erindi þessu vísaði bæj-
arstjórn til veganefndar til um-
sagnar, en nefndin hefir faflið
borgarstjóra að rannsaka ýmis at-
riði í sambandi við þetta mál,
Sjómennimir í fsafirði. Frá því
um nýár og fram til 27. maí höfðu
sjómennirnir á s am vinnub átum
fsfirðinga fengið 800—1100 kr. í
kaup, en orðið að fæða sig af
því. Dragast þar því frá að minsta
kosti 300 kr. fyrir fæði. Verða þá
eftir um 500—800 kr. í kaup, eða
100—160 kr. á mánuði.
Kostnaður berklasjúklinga. —
Sjúkrahús Hjálpræðishersins í
Hafnarfirði hefir krafið Reykja-
víkurbæ um greiðslu á sjúkra-
hússkostnaði nokkurra berklasjúk-
linga úr Rvík, alls kr. 3,994.14.
Ennfremur hefir heílsuhælið á Víf-
flsstöðum krafið bæinn um greiðslu
á dvalarkostnaði nokkurra sjúk-
linga úr Rvík á árunum 1929—31,
að upphæð kr. 11.419.90. Þessar
upphæðir hafa ekki fengíst
greiddar úr ríkissjóði, en þar sém
fátækrastjóm Rvíkur hefir ekki
tekið ábyrgð á sjúkrahúsvist þess-
ara sjúklinga, tedur fátækranefnd
hessar kröfur bæjarsjóði Rvíkur
óviðkomandi.
Knattspyrnumótið. 1 kvöld ld.
8% keppa Valur og Fram.
firnggara
en lyf eg pillnr.
KELLOGG’S ALL-BRAN ræður
bót á þrálátu harðlífi, og er alger-
lega hættulaust, því All-Bran er
kornrjettur, sem er frábrugðinn,
annari fæðu aðeins að því leyti, að
í AIl-Bran er mikið af B-fjörefni
og járni. All-Bran er öruggast! Því
fylgir engin hætta af að venja sig
á llyfjatöku eða pillur, sem flestúm
ter ógeðfelt. Gerið tveggja vikna
tilraun með 3 matskeiðar af All-
Bran daglega. Etið eins otr það
kemur fyrir, með kaldri mjólk eða
rjóma eða bætið því í annan mat.
Engin eldamenska. Takið eftir, hv&
líðan yðar mun batna fljótt — hve
miklu unglegri þjer munuð verða
útlits innan skamms. Kaupið All-
Bran hjá matvörukaupmanni yðar.
Munið eftir að biðja um AHl-Bran
í rauðu og grænu pökkunum.
kemur í veg fyrir
harðlífi. ^
725.
Bláber þurkuð.
Kirsuber burkuð.
Púðursykur.
Salatolía.
Amatðrdeild
Langavegs
Apttteks
er innrjettuð með nýjum áhölduna
frá Kodak. — Öll vinna fram-
kvæmd af útlærðum mynda-
smið. — Filmur sem eru
afhentar fyrir kl. 10
að morgni, ©ru
jafnaðarlegæ til-
búnar kl. 6 að
kvöldi. ---------------
Framköllun.
Kopiering.
Stæklcun.
fflla nðnuð.
og fimtudag fastar ferðir til
Borgarness og Borgarfjarð-
ar frá
Blfreiðastðð Stelndðrs.
Sími 581.