Morgunblaðið - 28.08.1932, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.08.1932, Blaðsíða 6
6 MORG ÖNBLAÐIÐ Huernig er hdttað launagreiðslum ríkisins? I. Á síðasta þingi fluttu Framsóku- armenn í efri deild frv. um að breytt yrði reglum þeim, er gilt hafa um dýrtíðaruppbót embættis- manna og starfsmanna ríkisins. — Samkvæmt frv. þessu mátti dýr- tíðaruppbótin aldrei verða til þess, að hækka laun fjölskyldumanna upp úr 4000 kr. eða einhleypra upp úr 3000 kr. Frumvarpið fjell í deildinni. Tíminn, blað Jónasardeildar Framsóknarflokksins, hefir við og við verið að senda þingmönnum Sjálfstæðisflokksins í efri deild glósur fyrir það, að þeir snerust gegn þessu máli. Eigi hefir verið hirt um að svara þessum glósum hingað til. En þar sem Jónas Jóns- son frá Hriflu hefir fyrir skömmu skrifað um þetta mál í Tímann, þykir rjett að ræða það nokkuð. II. Lögin um laun embættismanna eru frá 1919. í þessum lögum eru ákvæði um launagreiSslur til ein- stakra embættismanna og starfs- manna ríkisins; þar eru einnig fyrirmæli um dýrtíðaruppbótina. Svo var til ætlast, þegar ,launa lögin voru lögfest, að þau skyldu endurskoðuð að 5 árum liðnum. Ur þessu hefir þó aldrei orðið, heldur hefir Alþingi látið sjer nægja, að framlengja dýrtíðaruppbótina frá ári til árs. Til eru þeir menn sem halda að laun embættismanna samkvæmt launalögum sjeu óhæfilega há. En þetta stafar af ókunnleik eða missltilningi. Hjer skulu nefnd nokkur dæmi: Dómsforseti Hæstarjettar hefir 10 þús. kr. og hæstarjettardómarar 8000 kr. Bæjarfógetar hafa byrj- unarlaun 4600 kr., sýslumenn 4200 kr., landlæknir 6000 kr., lijeraðs- læknar 2500, 3000 og 3500 kr., póstmálastjóri 6000 kr., landssíma- stjóri 5000 kr., vegamálastjóri 5000 lrr, biskup 6000 kr., prófessorar við Háskólann 4500 kr., dósentar 3500 kr., kennarar við Mentaskól- ann 3400 kr., landsbókavörður, rík- isskjalavörður og þjóðminjavörður 4500 kr. Dýrtíðaruppbót fá embættis- menn og er hún nú 17%%, en reiknast aldrei af hærri upphæð en 4500 kr. Dæmi þau, sem hjer eru tekin eru úr hæstu launaflokkunum. — Allur fjöldi starfsmanna hefir miklu lægri laun. Má t. d. minna á starfsmenn við póst og sxma, kennara, bókaverði, fulltrúa og aðstoðarmenn í stjórnarráðinu o. fl. o. fl. Laun ráðherra eru ákveðin í sjerstökum lögum! og eru þau 10 þús. kr. III. Kíkinu hefir, sem kunnugt er, bættst við fjöldi starfsmanna eft- ir að launalögin voru lögtekin. Einkum varð viðbótin mikil í tíð fyrverandi stjómar, og átti Jónas frá Hriflu drýgstan þátt í þeirri starfsmannafjölgun. Mörgum mun þykja fróðlegt að sjá, hvaða laun Jónas frá Hriflu og hans samverkamenn í stjórninni ákváðu handa þessu nýja starfs- mannaliði ríkisins. Ætla mætti, að þar liefði ekki verið farið fram úr fyrirmælum launalaga, ekki síst þar sem J. J. hefir verið að kasta hnútum til Sjálfstæðismanna fyrir afskifti þeirra af frv. því, sem getið var í upphafi þessarar greinar. Nú vill svo vel til, að fyrir liggja nýjar skýrslur um launa- greiðslur til ýmsra starfsmanna, sem fj'rv. stjóm hefir skipað. — Bíkisgjaldanefndin, sem skipuð ,var í efri deild á síðasta þingi hafði aflað skýrslna um þetta. Bit- stjóri þessa blaðs var nýlega að glugga í þessum skýrslum og þyk- ir rjett, að almenningur fái nokk- ur sýnishorn úr þeim. Skipaútgerðin. Samkvæmt skýrslu forstjórans, Pálma Loftssonar, hafa laun verið greidd þar 1931, sem hjer segir: \ Kr. Pálmi Loftsson, forstj. 9600 Gnðjón J. Teitsson, skrifst.stj. 6000 Sig. Sveinsson, bókh. 4200 Bjarni Magnússon, afgrm. 4200 Hjörtur Ingþórsson, innhm. 4200 Helgi Sveinsson, gjaldk. 3600 Sigurjón Olafsson, verkstj. 5000 Hjörtur Elíasson, verkstj. 4200 Ennfremur eru nokkrir menn rneð lægri launum. Útvarpið. Þar tíundar útvarpsstjórinn, Jónas Þorbergsson, á þessa leið: Kr. Jónas Þorbergsson 11300 Sig. Þórðarson, ftr. 7200 G. Briem verkfr. (% laun) 3000 G. Beykholt, skrifari 4800 Ásg. Magnússon, frjettar. 4800 Aðalbjörg Johnson, frjettar. 4800 Sig. Einarsson, frjettar. 3000 V. Þ. Gíslason, frjettar. 3000 Sigr. Ogmundsd., þulur 3600 D. Sveinbjörnss., magnarav. 4800 Davíð Árnason, magnarav. 4800 Emil Thoroddsen, pianol. 7200 Þór. Guðmundss. fiðlul. 7200 Jón AJexanderson forstm. Viðgerðarstofunnar 7000 Gunnar Snorrason, rafv.sv. 4800 Auk þess nokkrir starfsmenn við stöðina á Vatnsenda og aðrir, er hafa lægri laun. Yiðtækj a verslunin, Forstjórinn, Sveinn Ingvarsson, tíundar þannig: Kr. Sveinn Ingvarsson 9000 Jóh. Ólafsson, gjaldk. 4800 Th. Lilliendahl. lagerm. 5300 Filippus Gunnlaugss., afgrm. 3900 Sv. Ólafsson, afgrm. 3000 Joh. Höyer 4200 Áf engis verslunin. Guðbrandur Magnússon forstj. tíundar þannig 1931: Kr. Guðbr. Magnússon 10312 Ól. Thorlacius, lyfsölustj. 6600 Helgi Lárusson, skrifst.stj. 7200 Árni Benediktss., bók 9 mán. 4950 Helgi Þórarinss., brjefr. 5400 Tr. Guðmundsson, gjaldk. 7200 Valdim. Helgas., skrif. 7% m. 3625 M. Stefánsson, birgðav. 6400 Guðm. Halldórss., afgrm. 6000 Alfred Búason, aftappari 4800 Skx'xli Magnússon bílstj. 4200 Auk þess margir á lægri launum Landssmiðjan. Forstjórinn þar, Ásgeir urðsson tíundar þannig: Ásgeir Sigurðsson Kj. Gíslason, skrifst.stj. Gísli Gíslason, bókari Sig- Kr. 9000 7200 3000 Tóbakseinkasalan. Forstjórinn, Sigurður Jónasson, tíxmdar þannig: Kr. 10000 6420 4920 4800 4800 4620 4380 4500 Sig. Jónasson Gestur Pálsson, bókari Sig. HjálmsSon, afgrm. Jónas Ólafsson, sölum. Ari Guðm.ss. aðst.bókh. .01. Þorateinsson, gjaldk. Örn Matthíass., afgrm. Sigurbj. Sigurðss. pakkhm. Auk þess fjöldi af fólki með lægri launum. Forstjóri ríkisprentsmiðjunnar tíundar laun sín 8000 kr. og upp- bót 2000 kr., samtals 10 þús. kr.; skrifstofumaður þar hefir 6000 kr., bókari um 4000 kr„ og gjaldkeri yfir 5000 kr. IV. Hjer að framan hafa verið birt nokkur sýnishorn af launagreiðsl- um til ýmsra starfsmanna, sem Jónas frá Hriflu og hans samherj- ar liafa komið upp. Skýrsla þessi ber með sjer, að allir forstjórar nefndra ríkisfyrir- tækja hafæ mikið hærri laun en dómarar í Hæstarjetti. Skýrslan sýnir enn fremur, að þeir Jónas Þorbergsson, Sigurður Jónasson og Guðbrandur Magn- ússon hafa ýmist jafnhá eða hærri laun en ráðherrar og dómsforseti í Hæstarjetti. Þessir herrar eru því hæstlaunuðu embættismenn lands- ins. Þó koma hjer ekki öll kurl til ^rafar. Kumpánar þessir eru, sem kujinugt er, hlaðnir bitlingum bak og fyrir; en bitlingarnir eru ekki með taldir í skýrslum þeirra. Loks sýnir skýrslan, að fjöldi óbreyttra skrifstofumanna hefir hærri laun en prófessorar við lxáskólann, og flestir þeirra hafa miklu hærri laun en dósentar við háskólann og kennarar við Menta- skólann. Birgðavörður og afgreiðslumað- ui við áfengisverslunina hafa miklu hærri laun en prófessorar! Ójöfnuður sá, sem nú ríkir í launagreiðslum til starfsmanna ríkisins, er gersamlega óþolandi. Og það er fyrst og fremst Jónas Sparsemi. Hjnn góðkunni sómamaður, Vig- fús Guðmundsson, skrifar góðar hugvpkjur um sparnað og ráð til þess að fá fólkið til að spara f je og leggja það í sparisjóði eða banka, og er sú hugmynd gömul og í margra augum nytsöm og sjálfsögð, enda hefir sú kend lif- að lengi með íslensku þjóðinni, það sýna sparisjóðir þeir sem nú eru til í landinu, en sem hafa orð ið hjer, eins og í öðrum löndumx til þess að ljetta þá örðugleika sem steðjað hafa að og ávalt má búast við að komið geti aftur fyrir ein- staklinga og þjóðfjelagsheildina. En nú er verið að drepa þessa þjóðlegu sparnaðarlöngun fólks- ins, því að hver sá sem hefir spar- að saman aura til geymslu í banka eða sparisjóði er eltur og ataður illyrðum, svo og rúinn eftir því sem hægt er og tekinn af honum arður af slíku fje og jafnvel skert- ur stofninn, og því kastað oft í hendur iðjuleysingja og óhófs- manna, svo og í eyðsluhít þeirra seih fara með völdin í landinu. Með slíku háttalagi er allur sparn aðaráhugi og löngun ungra og eldri manna gersamlega drepinn, enda liggur næst að segja, eins og rui er í pottinn búið, að besta ráðið sje að njóta lífsins og fá styrk úr ríkissjóði, bæjarsjóði eða frá sveitafjelögum, til framfærslu sj'er og sínum — en hve lengi slík fá- sinna getur lialdist, verður síðar svarað með sulti — og hungri. — Það verður, þegar enginn hefir lengur löngun til að spara og 'eng- inn er orðinn aflögufær. Ef menn vilja hvetja þjóðina til að spara og leggja skildinga í sparisjóði, og ætlast er til að það geti borið raunverulegan ár- angur, verður að veita fólkinu ívilnanir, en ekki einskonar rækt- unarsjóðsstyrk eða gjafir, lieldur rjettlát hlunnindi. Ef skattaálög- unum. yrði breytt þannig að spari- fjáreigendur skyldu ekki telja fram til skatt eða til útsvarsálagn- ingar spariskildinga sína, og að engan eignaskatt bæri að greiða af því, ])á væri nokkuð fyrir fólkið til að keppa að, og þá gæti sjerhver sparnaðarmaðurinn sofið áhyggjulaust fyrir því, að „þessir aurar mínir, sem jeg liefi nurlað saman, verða ekki hjer eft- ir sýndir óreiðumönnum og eyðslu seggjum, sem úthrópuðu inneign mína um allar trissur áður.“ — Væri fyrirkomulagið þannig, gætu slíkir þjóðþrifamenn rólega lagt ti) lxliðar og „nurlað“ saman, en AmatfirdeUd Lofts í Nýja Bíó. Framköllun og kopíeríng fljótt og vel af hendi leyet. frá Hriflu, sem hefir skapað þénna jverið óhræddir um að það kæmist ójöfnuð. Hann hefir verið að hlaðajút í almenning, og einmitt með undir pólitíska flokksbræður. -—iþessu fyrirkomulagi ætti hver að Honum ferst því illa að vera að kasta hnútum til Sjálfstæðismanna fyrir það, að þeir komu í veg fyr- ir, að ójöfnuðurinn yrði gerður enn þá meiri, en hann nú er. Þess verður að krefjast, að stjórn og þing taki föstum tökum á þessu máli. Það verður þegar í stað að lækka svo laun forstjóra ríkisfyrirtækjanna, að þau verði fyrir neðan lægstu launaflokka fá það sem honum bæri. En til þess að ríkið fengi alt sem því væri ætlað að fá í skatt af inn- stæðuarði, ættu peningastofnanirn- ar að greiða skattinn af arðinum sem innstæðueigendur fá. Til þess að gera betri grein fyrir þessari hugmynd, þarf að breyta skatta- lögunum þannig, að alt sparifje í landinu sje eignaskattfrjá)st, sömu leiðis verðbrjef þau sem ríkið, samkv. launalögunum. Laun ann-jbankar og hlutafjelög gefa út. En ara starfsmanna verður einnig að' af ársarði þeirra ætti að greiða færa í samræmi við launaákvæði gjald í ríkissjóð, en það á að launalaganna. ákveðast svo lágt að það dragi ekki úr sparnaðaráhuga manna, og stofnanir þær sem greiða arðinn handhöfum, dragi frá skattinn og standi ríkissjóði skil á heildarupp- liæðinni í lok hvers almanaksárs. En bankar og sparisjóðir svari inn- stæðueigendum það lægri ársarði sem skattinum nemur, og afhendi svo ríkissjóði það sem til er ætlast 1 lok hvers árs. Bæjarfjelögum og sveitafjelögum, þar sem sparisjóðir eru fyrir, mætti ætla tekjur á sama hátt og haga innheimtunni eins, en ríkissjóður og þeir sem skatt eiga að fá á þann hátt, skifta þá gjaldinu á milli sín eftir á- kveðnum reglum. Slíkt gæti og orðið hvöt fyrir önnur sveitafjelög, að gera sparifje sitt arðberandi innan sinnar sveitar. Af sparifje manna gefa nú bank- ar hjer alment 4%% ársvexti, en ef taka bæri skattinn eftir því sem gert er ráð fyrir hjer, mundu peningastofnanir lækka innláns- vexti sem skattinum næmi. Þá yrði engin skattsvik, en hver fengi það sem honum væri ætlað, og al- menningur fyndi livöt hjá sjer til að safna fje, er hann vissi að hann fengi rjettláta ívilnun, og þyrfti ekki að tíunda spariskildinga sína. AS sá sem ætti smáa upphæð í sparisjóði, ætti að greiða jafnan hundraðshluta og hinn, sem sparað hefði saman stærri fúlgu, verður að telja sanngjarnt, því að stærri ppphæðin veitir atvinnuvegum landsmanna og þjóðinni stórum meiri stuðning. Atli. Lá uið slysi. Það er mjög sjaldan að óhöpp koma fyrir flugvjelarnar, sem eru í föstum ferðum á Norðurlöndum, en hjerna um daginn lá við slysi hjá flughöfninni í Kastrup hjá Kaupmannahöfn. Flugvjelin frá Hamborg var að koma þangað, en er hún átti skamt 'eftir ófarið til fiugvallarins; bilaði hreyfillinn. — Flugmaðurinn sá í hendi sjer að hann mundi ekki ná að fljúga í svifflugi inn á flugvöllinn og tók hann þá það fangaráð að renna flugvjelinni niður í sævarströnd- ina, því að mýrar eru þar á milli og flughafnarinnar, og þar hefði verið enn háskalegra að lenda. Flugvjelin kom niður örskamt frá ströndinni og af kastinu, sem á henni var, rendi hún upp í fjöru. Við þann árekstur skemdist húa dálítið og skrúfan brotnaði. En annars var enginn skaði skeður. Flugmaðurinn og þrír farþegar, sem með honum voru, sluppu ó- meiddir. En þessi nauðlending hefði þó getað valdið stórkostlegu slysi, því að á sjávarbakkanum, rjelrt fvrir ofan þar sem flugvjelin stöðv aðist, höfðu skátar tjaldbúðir sín- ar. Stóðu tjöldin þjett saman, og voru full af skátum, þegar þetta vildi til. Ef flugmaðurinn hefði ekki steypt flugvjelinni svo að segja beint á skrúfuna, svo «ð hún hefði runnið upp úr fjörunni, og á tjöldin, mundi hún óefað hafa slasað og drepið fjölda skáta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.