Morgunblaðið - 01.09.1932, Page 3
8
vr n T? C 7T- V H T 4 4 -. f
5amgöngumálin.
«
» JRorgmiHato^
-1
* Stc«f.: H.f. Árvakur, KitWitIIl
* SiUtjðrar: Jön Kjartanaaon.
Valtýr Staf&naaoa.
m Rltatjörn og afsrelBala:
Auaturstrstl S. — Slmi (01.
« Áuelýslnarastjörl: H. Hafbers.
1 Auclýslnfraakrifatofa:
* Austuratrætl 17. — Msei 19*.
* SCslssasImar:
2 Jön KJartansson nr. 741.
s Valtýr Stefinsson nr. llt*.
* B. Hafbers nr. 770.
s Aakrtftasjald:
* Innanlands kr. 1.00 * saAnuBl.
* IJtanlands kr. 1.(0 A utAnuBl.
* t lausasölu 10 aura elntaklB.
2 10 aura meO Losbök,
ItVi kirkjugarðurinn
I fossvugi
verður vigður í dag.
f dag eru tímamót í kirkju-
garðsmálum Reyk javíkurb æ j ar,
með því að hinn nýi kirkjugarð-
ur í Fossvogi verður vígður, um
leið og þar verða í fyrsta sínn
jarðsungnir tveir menn, hinn aldr-
aði, landskunni vefari, Gunnar
Hinriksson, og Ólafur Þorkelsson,
pilturinn ungi, er fórst af bílslys-
inu norðan í Öskjuhlíðinni á dög-
unum.
Kirkjugarðslandið í Fossvogi
hefir, sem kunnugt er, verið ræst
■og ræktað, og er fullgerð girðing
úr steinsteypu og vírneti um hinn
nýja kirkjugarð. Tvö hlið eru á
garðinum, annað á norðurhlið, en
bitt á austurhlið. Hefir verið bygt
lítið hús þarna fyrir kirkjugarðs-
vörðinn. Þar eru og klukkur til
líkhringingar.
I þetta sinn er gert ráð fyrir,
að söfnuðurinn, sem verður í dóm-
kirkjunni fari suður í garð, í til-
•efni af vígslunni. Bn annars er
■gert ráð fyrir, að kirkjugarðs-
göngur frá kirkjunum falli niður
upp frá þessu, en sjeð verði við
út.farir fyrir bílfari suður í kirkju-
garð lianda presti, líkmönnum og
nánustu ættingjum hinna fram-
liðnu.
í gamla kirkjugarðinum verður
ekki jarðað framvegis nema í reiti
þá, sem þegar hafa verið útmældir
þar.
Samningarnir N
i/ið Horðmenn
hófust í Ósló á
þriðjudag.
Norskir bændur
mótmæla lækkun
kjöttollsins.
Osló 31. ág. NRP—FB.
Samningaumléitanir Islendinga
■og Norðmanna hófust á ný í gær
í Ósló. Taka þátt í þeim sömu
menn og áður.
Fundir nefndarihnar eru haldn-
ir í ráðherraherbergi Stórþingsins
•og standa sennilega yfir út þessa
viku.
Mótmæli frá norsktun bændum.
Oeild norska bændasambandsins
(Norsk Bondelag) í Setesdal hef-
'ir sent samninganefndinni mót-
mæli gegn læKkun á tolli á ís-
lensku saltkjöti.
„Charmaine“ klúbburinn lieldur
haustfagnað með dansleik í Iðnó
.á laugardaginn.
I.
Deilau um strandferðaskipið
Meðan Sjálfstæðismenn sátu við
völd á kjörtímabilinu 1924—1927,
klifaði Framsókn stöðugt á því, að
sjálfsagt væri áð kaupa skip til
strandferða í viðbót við það, sem
fyrir var.
Sjálfstæðismenn voru þessu mót-
fallnir, ekki af því, að nauðsynja-
laust væri að bæta við öðru strand
ferðaskipi, heldur af því, að þeir
töldu enn meiri nauðsyn á að bæta
samgöngur á landi, með lagning
nýrra vega, bróa og síma. Þeir
bentu .ennfremur á, að þótt gott
og blessað væri að hafa tvö strand
ferðaskipin, væri hitt þó nauðsyn-
legra, að eignast kæliskip, er gæti
annast útflutning á frystu kjöti
bænda. Sjálfstæðismenn bentu
emnig á, að rekstur tveggja strand
ferðaskipa myndi verða ríkissjóði
óbærilega dýr og draga mjög úr
öðrum, nauðsynlegum framkvæmd-
um.
Deilu þessari lauk í fyrstu þann-
ig, að Sjálfstæðismenn sigurðu. —
Gerðar voru risavaxnar samgöngu-
bætur á landi og kæliskip keypt,
og var það landbúnaði vorum til
ómetanlegs gagns.
Svo komu stjórnarskiftin síðla
árs 1927. Framsóknarflokkurinn
koinst til valda og 1928 var sam-
þykt að kaupa annað strandferða-
skip. Síðar var keyptur 35 ára
gamall skipsskrokkur, en þó
kostaði hann með öllu um 300
þúsund krónur.
Bn spádómur Sjálfstæðismanna
var ekki lengi að rætast. Rekstur
tveggja strandferðaskipa varð rík-
issjóði óbærilega dýr. Á árinu
1931 nam beinn kostnaður nálægt
liálfri miljón króna, en var áætl-
aður 200 þús. kr. í fjárlögum. —
Eyðslan umfram áætlun nam um
280 þús. kr. Næsta skrefið var
svo vitanlega það, að stjórnin
neyddist til að leggja öðru strand
ferðaskipinu í höfn, enda hefir að
eins eitt skip að jafnaði verið í
ferðum á yfirstandandi ári.
n.
Eftir víxlsporið.
Nú er eftir að vita, hvað þjóðin
— og þó einkum ráðandi mennj
liennar — hafa lært af víxlspori
því, sem stigið var í samgöngu-
málunum. Enn hefir ekki verið
ráðin bót á ástandinu.
Hjer í blaðinu hefir marg oft
verið á það bent, að 'eina leiðin
út úr ógöngunum sje sú, að ríkið
feli Bimskip að annast strand-
ferðirnar og lögð verði niður hin
rándýra skrifstofa, er ríkið starf-
rækir nú í sambandi við iitgerð
þessa. Með þessu mætti spara stór-
fje árlega og samgöngurnar með
ströndum fram yrðu margfalt
betri og hagfeldari, ef þær væru
í beinu sambandi við millilanda-
ferðirnar. Þegar búið er að kippa
þessu í lag, má aftur snúa sjer
af alefli að því höfuðverkefni, sem
fyrir liggur, en það er: bættar
samgöngur á landi.
Þar er einkum þrent, sem þarfn-
ast skjótrar framkvæmdar:
1. Að fá akvegasamband við
Skaftafellssýslu, með því að brúa
stórárnar í Rangárvallasýslu og
nokkurar smá-ár.
2. Að tengja saman Norður-
og Austurland með því að gera
bílfært yfir Möðrudalsfjöll, austur
í Jökuldal.
3. Að leggja góðan veg yfir
Holtavörðuheiði, svo að samband-
ið milli Suður- og Norðurlands
verði örugt.
Rangæingar hafa nú unnið það
mikla. þrekvirki, að leggja fram
fje til brúa á Þverá og Affall.
Markarfljót verður því hjer eftir
eini erfiði þröskuldurinn á leiðinni
austur í Skaftafellssýslu, auk
smærri torfæra, sem auðvelt er að
yfirvinna.
íbúarnir austan Markarfljóts
)rá það eðlilega mjög, að fá brú
á fljótið. Og það er lifsskilyrði
fyrir þá, að brúin komi strax. Sá,
sem þetta ritar var staddur aust-
ur í Vík í Mýrdal snemma í ágúst-
mánuði í sumar. Þá voru garð-
ávextir þar orðnir svo þroskaðir,
að betri gerast þeir ekki hjer um
slóðir á haustdegi. Á sama tíma
komu með hverri skipsferð til
Reýkjavíkur frá útlöndum stórar
sendingar af jarðeplum, sem seld
vorú dýru verði í höfuðstaðnum.
Víkurbiium var þess varnað, að
koma sinni ágötu vöru á markað-
inn, vegna samgönguleysis.
Þess 'er nú að vænta, að þetta
samgöngumál — brú á Markar-
fljót — verði leyst á næsta sumri.
Þegar því verki er lokið og búið
er að brúa nokkrar minni ár á
austurleiðinni, þá er komið ak-
vegasamband alla leið frá Reykja-
vík austur að Skeiðarársandi.
Austfirðingar hafa nú um
nokkurt skeið verið illa útundan
hvað samgöngur snertir.Lega Aust
fjarða og staðhættir valda því, að
aðalflutningar til og frá Austur-
landi hljóta að fara fram sjóleið-
ina. En mikil samgöngubót yrði
pað fyrir Austfirðinga, ef akfært
yrði yfir Möðrudalsfjöll að sumar-
lagi og á þann hátt tengdir saman
bílvegir Norður- og Austurlands.
Vegamálastjóri hefir nýlega lýst
þessu samgöngumáli hjer í blað-
inu, og er sá kostnaður, sem af
þessari samtengingu leiðir svo
hverfandi, að sjálfsagt er að fram-
kvæma það verk hið bráðasta.
Eftir að bílar fóru að fara yfir
Holtavörðuheiði að staðaldri að
sumarlagi, má segja, að nálega
allur fólksflutningur milli Suður-
og Norðurlands hafi farið með bíl-
um. Enn eru þó torfærur á þessari
leið, sem þa.rf að vinna bug á.
Hinn ruddi vegur yfir Holtavörðu-
heiði getur orðið illfær eða ófær
fyrir bíla í rigningatíð. Þar þarf
að koma góð akbraut og mun nú
byrj.að að leggja hana. Einnig
þarf að fá góðan veg inn fyrir
Hvalfjörð, enda hefir vegamála-
stjóri látið í ljós það álit sitt, að
sú leið verði framtíðarleiðin til
Norðurlands.
Hjer hefir verið bent á nokkur
þan verkefni í samgöngumálum
vorum, sem þarfnast skjótra fram-
kvæmda. En svo standa í beinu
samhandi við þau önnur verkefni,
sem einnig bíða úrlausnar. Tengja
þarf t. d. Vestfirði við Norður-
land með vegakerfi og einnig
Dalasýslu. Verkefnin eru svo ó-
tal-mörg, að ógerningur er upp að
telja. En verði -ekki aftur stigið
stórt víxlspor í samgöngumálum
vorum, má óefað treysta því, að
eigi verði langt að bíða þess, að
fara megi á bíl frá Reykjavík til
Reyðarfjarðar og lijer sunnan
lands alla leið að Skeiðarársandi.
l?ýska ríkisþingið
sett.
Berlín 30. ágúst.
United Press. FB.
Ríkisþingið var sett í dag kl.
3 síðd. í forsetastól (sem aldurs-
forseti) var frú Zetkin, „móðir
stjórnarbyltingarinnar.“ Var það
í fyrsta skifti í sögu þingsins, að
kona hefir sétið þar í forsetastól.
Göring var kosinn forseti með 367
atkvæðum, jafnaðarmaðurinn Löbe
hlaut 135, kommúnistinn Torgler
80, Göring er Nazisti.
Berlín, 31. ágúst.
United Press. FB.
Þegar kommúnistinn Klara Zet-
kin sat í forsetastól ríkisþingsins
hjelt hún ræðu og fór hörðum
orðum um framkomu Hindenburgs
forseta, og kvað hann hafa brotið
ákvæði stjórnarskrárinnar. — Rík-
isþinginu var frestað um óákveð-
inn tíma, en Göring var veitt
heimild til þess að boða byrjun
venjulegra þingfunda og gerir
hann það sennilega 8.—9. sept., en
þá gera menn ráð fyrir, að við-
ræðum þeim, sem nú fara fram
milli Hindenburgs og ríkisstjóm-
arinnar, verði lokið.
Verður þingið rofið?
Berlín, 31. ágúst.
United Preea. FB.
von Papen kanslari, von Gayl
og von Schlejcher, eru komnir
frá Neudeck, þar sem þeir sátu
á ráðstefnu við Hindenburg ríkis-
f'orseta. Veitti hann von Papen
heimild til þess að rjúfa ríkis-
þingið, ef hann teldi þess þörf.
mollison
hættur við að fljúga heim,
Sidney 31. ágúst.
United Press. FB.
Fyrir þrábeiðni konu sinmar,
liefir Mollison horfið frá því á-
formj^að fljúga heim til Bretlands
frá Kanada. Leggur hann á stað
heimleiðis á skipinu „Empress of
Britain* ‘, sem samkvæmt áætlun
,á að fara frá Quebec þ. 3. sept.
(Mollison gekk fyrir nokkuru
að eiga flugkonuna Amy Johnson,
sem talin er frægasta flugkona
Bretlands).
Þjóðverjar heimta
jafnrjetti.
París 31. ágúst.
United Press. FB.
Opinberlega tilkynt, að þýska
ríkisstjórnin hafi tilkynt frakk-
nesku ríkisstjóminni, að Þýska-
land fari fram á hernaðarlegt jafn
rjetti.
Skipsflakið „Inger Benedikte11
í ytri Reykjavíkurhöfn, hefir nú
að mestu verið jafnað við botn
og talið hættulaust að sigla þar
um. ,Þó eru farmenn varaðir við
að leggjast þar sem flakíð er.
t
uan Rossum
kardináli,
andaðist í fyrradag á leiðinni frá
Kaupmannahöfn til Hollands. —
Kardinálinn hafði setið fund ka-
þólskra manna í Kaupmannahöfn.
Hann var, sem kunnugt er, einn
af merkustu höfðingjum hinnar
kaþólsku kirkju.
Hann var 78 ára að aldri.
Rsigling.
17 menn drukkna.
í gær rákust á tvö japönsk
skip við norðurströnd Japan. —
Sökk annað skipið á fáum mín-
útum, og drukknuðu 17 menn.
uon Oronau
hjelt í gær áfram flugi sínu. -—
Hann flaug frá Alaska og til
eyja, sem eru norðarlega í Kyrra-
hafinu. Þaðan áformar hann að
fljúga til Japan.
Flug Hutchinson.
Port Meniér, Anticosti 30. ág.
United Press FB.
Hutchinson lagði af stað hjeðan
kl. 11 árd. í dag áleiðis til Hope-
dale, Labrador.
Hann kominn til Labrador.
Montreal 31. ágúst.
United Press. FB
Loftskeytastöð ríkisins tilkynn-
ir, að Hutchinson hafi lent í Hope
dale kl. 2.30 síðd.
IþrdtHr ð Vestflörðum.
Isafirði 31. ág. FB.
Knattspyrnumóti 3. aldursflokks
lauk 27. ágúst. Vestri vann með
4 stigum. 1. flokks mótinu lauk
28. ágúst. Vestri vann það einnig
með 4 stigum og hefir þannig
unnið í öllum aldursflokkum í
sumar. Þátttakendur í mótum
þessum voru Vestri, Hörður og
Stefnir, Suðureyri.
Á Suðureyri hefir verið knatt-
spyrnunámskeið að undanfömu.
Kennari: Axel Andrjesson. Voru
42 þátttakendur, en 3 tóku dóm-
arapróf. 1 lok námskeiðsins var
kennaranum haldið samsæti. Töl-
uðu þar form. Stefnis, Sturla
Jónsson, Friðrik Hjartar skólastj.
og Friðbert Friðbertsson kennari.
Sundmót var haldið hjer síðast-
liðinn sunnudag. 50 m. hraðsund
nieð frjálsri aðferð vann Jónas
Magnússon frá Vestra. 1 .verðl. í
fegurðarsundi hlaut Haukur Helga
son úr Vestra, en 2. verðl. Leó
Leósson rir Herði, og 3. verðl.
Sig. Jónsson, úr ísfirðingi.
Höfnin. Fisktöþuskipið ,Ophir‘
kom í gær, og norskur flutninga-
bátur, ,Resolut'e‘. Enskur togari
kom til að sækja fiskiskipstjóra
(Guðna Pájsson). Pollux, hinn
franski ísbrjótur, fór í fyrradag.
Ætlaði upprunalega að bíða hjer
eftir rannsóknaskipinu „Pour quoi
pas?“ En „Pour quoi pas?“ hefír
seinkað, vegna vjelarbilunar.