Morgunblaðið - 01.09.1932, Page 4

Morgunblaðið - 01.09.1932, Page 4
4 r MORGUNBLAÐTP iluglffilnsadagbók Café Höfn selur meiri mat, ó- dýrari, betri, f jölbreyttari og fljótar afgreiddan en annars stað- ar. Signrður Thoroddsen verkfræð ingur. Tek að mjer mælingar lóða, hallamælingar, vegamælingar og ýms önnur verkfræðingastörf. — Fríkirkjuveg 3. Sími 227. Viðtals tími frá 4—6 síðd. Húsmæður! Sökum vöntunar á símum verður nú og framvegis tekið á móti pöntunum á nýjum fiski, til kl. 9 síðd. í síma 1456, daglega. Glænýr silungur, smálúða og margt fleira. Símar 1456 og 2098. Hafliði Baldvinsson. Góðir kolaofnar til sölu, Vestur- götu 31. ____ Tapað f Mosfellssveit. Skjóttur köttur! (Læða), liggur sennilega á ketlingum nú, nálægt bæjum. Upp- lýsingar óskast. Sími 2320. Lamb í fundarlaun. Fiskfars, heimatilbúið, 60 aura % kg., fæst daglega á Fríkirkju- veg 3. Sími 227. Kristín Thorodd- setn — Nýjar rófur og kartöflur á 10 aura pundið að Blátúni við Kapla- skjólsveg. Sími 1644. Haupmenn! er lang útbreiddasta blaðið til sveita og við sjó, utan Reykjavikur og um hverfis hennar, og er þvi besta auglýsingablaðið á þessum slóðum. Hndlitsfegrun. Gef andlitsnudd, sem læknar ból- ur og fílapensa, eftir aðferð Mrs. Gardner. Tekist hefir að lækna bólur og fílapensa, sem hafa reynst ólækn- andi með öðrum aðferðum. Heima kl. 6—7 og öðrum tímum eftir samkomulagi. Martha Kalman. Grundarstíg 4. Sími 888. Dilkaslátnr fæst nú flesta virka daga. . Slaturfjelagiö. islensk egg. K1 e i n, Baldursgötu 14. Sími 73. □agbók. Veðrið í gær: Lægðin, sem var suðvestur af Reykjanesi á þriðju- dagskvöldið er nú hjer yfir Vest- urlandinu og hreyfist áfram norð- austur eftir. • Vindur er allhvass S og SA um alt land nema á Vestfjörðum er ltomin NA-átt. Lítur út fyrir N- átt um alt land, ef lægðin heldur áfram austur eftir. Veðurótlit í dag: Vaxandi N-átt. Ljettir til og kólnar. Júlíus Sigurjónsson cand. med. lauk í júlímánuði prófi í gerla- fræði við Lundúnaháskóla, segir Læknablaðið. —- .Hefir hann lagt stund á þá fræðigrein í vetur við „London Schqol of Hygiene and Tropical Medicine“. Kensla þessi er aðeins fyrir þá, sem tekið hafa læknapróf, og er mjog til hennar vandað, ekki nema 13 læknar á námskeiðinu í vetur, en færustu gerlafræðingar Lundúnaborgar annast kensluna. Júlíus hefir feng- ið styrk frá Rockefellerstofnun- inni í eitt ár til. Hann er nú kom- inn til Berlínar, til að leggja stund á meinafræði. Ætlast er til þess að Júlíus verði aðstoðarmaður Dun- gals, er hann kemur heim, frá námi þessu. Hann er hinn mesti dugnaðarmaður, og hefir fengið góð meðmæli kénnara sinna. Halldór Hansen læknir hefir samið stóra bók, er heitir „Pseu- doulcus Ventriculi“, og fjallar um sjúkdóma, er líkjast maga- sári, en eru t. d. vægir berklar. Iléfir Halldór farið fram á, að verja rit þetta, sem doktorsrit- gerð við Háskólann og hefir lækna deildin samþykt ritið til doktors- prófs. Fer doktorsvömin sennilega fram skömmu eftir að háskólinn byrjar. Snæfellsjökulstöðin. Enn hefir ekki tekist að koma farangri vís- indamannanna upp á Snæfellsjök- ul. Hefir farangurinn legið und- anfarið uppi á Jökulhálsi. En í gær var byrjað að flytja bann upp í jökul. Var flutt á hestum. En vísindamennimir hafa, að því er frjettist í gær, hætt við að reisa stöðina uppi á hájökli. Verður hún reist á svonefndum Þríhyrningum, sunnan í jöklinum. Flokkúr knattspymtunanna úr fjelaginu Vestra, fór á Gullfossi í gær frá ísafirði, ál'eiðis til Ak- ureyrar. Ætlar að keppa við fje- lögin þar og ef til vill Siglufjarð- arfjelögin líka. Fararstjóri er Gunnar Andrew. (FB). Safnaðarfundur var nýlega hald- inn í kirkjunni á ísafirði og var sóknarnefnd falið að fá útmælt og afhent land undir nýjan kirkju garð á Tungnaskeiði og láta gera uppdrátt að garðinum. Fundurinn lýsti sig eindregið mótfallið fækk- un prestakalla í prófastadæmi Norður-ísafjarðarsýslu og landinu yfirleitt. (FB). Eggert Stefájisson er nýlega kominn í bæinn. Hefir hann sung- ið víðsvegar á landinu í sumar; haldið. samtals 17 hljómleika. Þar að auki glatt sjúklinga á heilsu- hælum og spítölum á Seyðisfirði, Akureyri og ísafirði. Eins og vant er kemur hann með eitthvað nýtt á söngskrá sinni af tónverkum íslenskra tónskálda. Þrjú ný lög eftir Jón Leifs hefir hann sungið, tvö eftir Karl 0. Runólfsson, stjómanda Hljómsveitar Akureyr- ar, tvö lög eftir Áskel Snorrason þar á meðal lag við texta Matth. Jochumssonar „Atburð sje jeg anda mínum nær“, í fögrum ís- .lenskum stíl. Einnig gullfallegt lag eftir Sigvalda Kaldalóns við texta Friðriks Á. Brekkans „Den hvide Pige“. Eggert mun syngja þessi lög áður en hann fer til Róma- borgar, en þar verður hann í vetur. Handavinnunámskeið. Væntan- legir þátttakendur í handavinnu- námskeiði því, s*em auglýst hefir verið í Austurbæjarskólanum, eru beðnir að koma til viðtals í sauma stofu skólans í dag kl. 5. Eimskip. Gullfoss fór frá ísafirði í gær. — Goðafoss fór frá Hull í fyrradag áleiðis til Reykjavíkur. — Brúarfoss fór frá Leith í gær. — Dettifoss fór frá Reykjavík í gærkvöldi til útlanda. — Selfoss kom til Leith í gær. — Lagarfoss var á Fáskrúðsfirði í gær. Farþegar á Dettifossi til útlanda voru meðal annara: Ungfrú Krist- ín B'ernhöft. Jakobína Magnús- dóttir. Guðríðnr Gunnsteinsdóttir. Helgi Þórarinsson. Ásgeir Sig- urðsson skipstjóri. Einnig margir útlendingar og nokkrir farþegar til Vestmannaeyja. Dettifoss fór til útlanda í gær. Skipið var fullfermt íslenskum af- urðum, svo sem: síld, síldarmjöli, fisk, ull, ísfiski og hestum. Ungbarnavernd Líknar, Báru- götu 2, er opin hvem fimtudag og föstndag frá kl. 3—4. Leiðarmerki fyrir sjómenn. Vest- an við Eldvatnsós hafa verið reistir 4 leiðarstaurar, tveir þeirra með prentuðum leiðbeiningum og landabrjefum, og stendur anuar þeirra yst á tanganum vestan við ósinn, en hinn um 300 metra vest- ar. Þaðan er óhætt að halda beint að Hnausum í þeirri stefuu, sem spjaldið sýnir, éða beygja á miðri leið npp að Syðri-Fljótum. Austan við Kúðafljót hafa 'einnig verið reistir 4 leiðarstaurar, er sýna leiðina til bygða. Skipbrotsmenn mega ekki freista að fara yfir Eldvatnið eða Kúðafljót, því að vötn þessi eru alófær yfirferðar. Hæli fyrir skipbrotsmenn hefir verið reist um 100 metra NV frá vitanum á, Alviðruhömrum. Einnig hefir verið reist stauraröð frá Kúðaós og til hælisins. Hjónaband. Síðastliðinn laugar- dag voru gefin saman í hjónaband af síra Árna Sigurðssyni ungfrú Sigríður Guðmundsdóttir, Bræðra- borgarstíg 10 B, og Ingólfur Bjarnason verslunarfulltrúi, Rán- argötu 8 A. — Heimili þeirra verð- ur á Bragagötu 23. Danska íþróttafjelagið hjelt samsæti í gær á Hótel Borg. Þar hjeldu ræður formaður fjelagsins H. Áberg; sendiherra Dana de Fontenay og forseti í. S. 1. Einnig afhenti sendiherrann verðlaun þau sem unnin voru á innanf jelagsmóti D. í. um síðustu h'elgi. Meðal verð- launanna var fallegnr silfurbikar sem sendiherrann hafði gefið til Verðlauna, og vinna verður þrisv- ar til fullrar eignar. Samsætið stóð til miðnættis og fór mjög vel fram. Heimatrúboð leikmanna, Vatns- stíg 3. Almenn samkoma í kvöld klukkan 8. Útvarpið í dag: 10.00 Veður- fregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00 Veðurfregnir. 19.30 Veðurfregnir. 19,40 Tónleikar (útvarpstríóið). — 20.00 Klukkusláttur. Grammófón- tónleikar: Hebriden-Onverture, eftir Mendelsohn. Einsöngur: Lög eftir Donizetti: Ebba "Wilton syngur: Sönginn til 21. hersveitar- innar og -Kveðju Maríu úr „Dóttir hersveitarmnar“; Tito Schipa syngur: Una furtiva lacrima úr „Ástardrykknum“; — Michele Fleta syngur: Una vergina úr „La ,Favorita“. 20,30 Frjettir. Músík. Tenniskeppni. — Tvímennings kvenna og karla tennismótinu lauk þannig, að fyrst voru ungfrú “jwottunnn luiílari — ekkert strit seqirMaría Rinso gerir verkið auoveldara, þvottinn hvítari STÓR PAKKI 0,55 AURA LÍTILL PAKKf 0,30 AURA M-R 43-047AIC Það er þarflaust að J>væla, þræla og nugga. Farðu bara að einsog jeg.— Láttu þvottinn í heitt Rinso vatn. Sjóddu eða þvældu lauslega þau föt sem eru mjög óhrein. Skolaðu J>vot- " tmn vel og sjáðu hvað hann verður hvítur. Rinso sparar manni strit og J>vottinum slit. JL. S. HUDSON LIMITED, LIVBRPOOL, ENGLAND ðdýrt. Eilistyrkur. islenskar kartöflnr ob rófnr í heilnm sekkjnm og lansri vigt. TIRIMND1 unuRaveK Simi 2898, Ágústa Pjetursdóttir og Friðrik Sigurhjörusson og næst þeim að vinningum ungfrú Ásta Benja- toínsson og Sigurður Sigurðsson. í. R. mótinu innaöfjelags lauk með sigri Friðriks Sigurbjörnssonar; annar varð Kjartan Hjaltested. „Gullnáma“ í Finnlandi. í Ivalo-hjeraði í Norður-Finn- landi hafa menn stundað gullleit undar.farin ár, án þess að gull hafi þar fundist í svo ríkum mæli, að leitin hafi borgað sig. Fyrir nokkru þóttust menn nokkrir þar í sveitinni hafa fundið svo mikið gnll í árfarvegi einum, að þar myndi vera rík náma. Sögðust þeir ekki hafa fjármagn til að starfrækja þessa námu sína, og buðu hana því til kaups. Gull- leitarmenn aðrir athuguðu staðinu, fundu gylt korn í sandinnm, er þeir álitu vera gull. Keyptu þeir síðan námurjettindin. En þeir sem seldu höfðu sig burt í skyndi með fjeð. Því þegar til átti að taka reynd- ust gyltu koruin að vera messing, er svindlararnir höfðu dreift um sandinn. Umsóknum um ellistyrk úr elli- styrktarsjóði Reykjavíkur skal skilað lxingað á slcrifstofnna fyrir lok septembermánaðar næstkom- andi. Eyðublöð undir umsóknir fást lijá prestunnm og hjer á skrif- stofunni. Borgarstjórinn í Reykjavík, 31. ágúst 1932. Guðmundur Hsbifirnssoit settur. Hefl í matmn í dag: Nýjan lax og nýjan silung, nýja síld og þorsk og margar fleiri teg- undir af fiski. Sími 1402. ]ón Magnússon. Fisksölutorginu. Fjallkonu- skúriduftið reynist betur en nokkuð annaffi skúriduft sem hingað til hefir þekst hjer á landi. Reynið strax einn pakka, og látið reyusluna tala. Það besta er frá H.í. Efnagerö* Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.