Morgunblaðið - 21.09.1932, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 21.09.1932, Qupperneq 2
i M O R G V N B L A Ð I T> f frð Hstrfður Úlafsdúttir. 4 -í-/ 4 ílún var í daglegu tali kend við Nes — „Ástríður Óiafsdóttir frá . Jíesi'' — enda bjó hún þar ásanit fyrri apanni sínum, Sigurði Ólafssyni, yfir 30 'ár. Hann dó árið 192L Þau eignuð- *st eitt barn, sem dó í bernsku. Þeir, sem kunnugir voru á heimili þeirra, en þeir voru margir, vissu að bæði hjónin voru öðrum til fyrirmyndar í einn og öðru. Sigurður var framtaks- maður um margt. Jafnframt því sem Jiann ræktaði jörðina og rak stórt bú, sótti hann auðœfi í skaut Ægis. Á vetrum „gerði hann út4 ‘ suður með sjó, en á vorin frá Nesi. Heimilið var því umfangsmikið. Reyndi að sjálf- sögðu mjög á forsjá húsmóðurinnar. Sameiginlegt álit allra kunnugra er, að Ástríður, fyrir margra hluta sakir, hafi verið öðrum færari til þess að standa í stqrræðum. Hún var persónu- •ieg kona í orðains sönnustu og bestu merkingu, kona, sem rækti öll störf með frábærum dugnaði og alúð, kona, sem hjelt einarðlega á sínu í hvívetna. Margir munu minnast Ástríðar fyrir góðan skilning á að hjálpa. Pyrir hénnar atbeina gafst allmörgum tæki- færi á ,,að koma fótunum fvrir sig“ fjárhagsiega. Hitt mun þó sannast, að með uppeldi fósturbarnanna hafi liún reist sjer varanlegastae minnis- v.irða. Börnin, sem þau hjónin tóku ; ð sjer og ólu upp voru fjögur. Var J eim öllum veittur eins góður undir- búningur undir lífið, sem frekast varð á kosið. Gengu þau hjónin þessum börnum í foreldra stað. Fyrir átta árum giftist Ástríður öðru sinni, Oddi Jónssyni hafnarfó- geta. Verkefni biðu hennar nú sem fyr. Stjúpbörnin þrjú nutu glaðlynd- is hennar og hetjulundar; var hún þeim sem móðir, og hlaut að launum ústúð þeirra. Nokkurs lasleika mun Ástríður hafa kent síðustu mánuðina, þótt lítið bæri á. — Pædd var hún 23. júní 1866, en dó 13. þ. m. eftir uppskurð. Eftirlifandi maður hennar, uppeldis- og stjúpbörn, nákomnir ættingjar og aðrir vinir, sakna hennar sárt. Margir votta henni í dag þakklæti sitt, þegar hún er borín til grafar. Þess er að vænta að minn- ii.'gin um fágæta og ágæta konu, verði söknuðinum yfirsterkari. Kunnugur. Flugvjel v. Gronau skemmist. Samkvæmt útvarpsfrjettum í gær hefir v. Gronau orðið fyrir síysi í -Tapan og skemt flugvjel sína. Skemdirnar voru þó ekki miklar, og ]>vst flugmaðurinn við því að geta híildið fluginu áfram. Notið HBEINS- |RE,NM stai|flMáP,l» hún er jafngild bestn erlendri, en er ðdýrarl eg þar að anki innlend. Þýska þingrofið. — Myndin, er tekin á því augnabliki er v. Papen ríkiskanslari hað um orðið í þýska ríkis- þinginu, en forseti þingsins, GÖhring, neitaði honum um það. Þingrofið í Þýskalanöi. Strax eftir þingsetninguna 31. ág. var fundum þýska ríkisþingsins frest- að, þangað tii forsetar þingsins höfðu fcngið tækifæri til að tala við Hind- enburg um þingrofsáform stjórnarinn- ar. í byrjun þessa mánaðar kom Hind- enburg frá sumarbústað sínum, Neu- deek, til Berlín. Hann !). þ. m. fóru forsetar þingsins á fund Hindenburg og reyndu að afstýra því, að þingið yrði rofið. En viðræður þeirra við rík- isforsetann báru engan árangur. Hinn 12. þ. m.* koni fíkisþingið svo aftur safflan. Og stjóri) v. Papens mætti þá í fyrsta sinn í þinginu. Á dagskrá var aðeins eitt mál: Stefiiuræða ríkis- kanslara. Kommúnistar veitast að stjórninni. Menn bjuggust við að forseti þings- ins, Nazistinu Göhring, inundi strax gefa v. Papen orðið. En Göhring leyfði kommúnistaniun Torgler að taka fyrst til máls. Torgler lagði til, að dag- skránni yrði breytt þannig, að tillaga um afnám neyðarráðstafanalaganna fvá -.5. þ. in. og vnntraustsyfirlýsing til stjórnarinnar yrði sett efst á dag- skrá. Neyðarráðstafanaliigin voru gef- ii: út með undirskrift ríkisforseta án samþykkis þingsins. En þingið getur livenær sem er felt þau úr gildi. Með þessum lögum lögleiddi Papen efna- hagstillögur sínar, sem áður hefir verið getið um hjer í blaðinu. — Á næstu 4 árum á ríkið að endurgreiða helming þeirra skatta, sem greiddir verða á yfirstandandi ári — þó ekki tekju- og eignaskatta. Atvinnurekend- um er heimilað að lækka verkmanna- kaup um 20%, og þeir fá verðlaun fyrir að veita atvinnulausum atvinnu. Atvinnuleysisstyrkir og ellistyrkir verða lækkaðir. Göhring spurði, hvort þingmenn hefðn nokkuð við það að athuga, að dagskránni yrði brevtt samkvæmt til- lögu Torgífers. Dagskránni má ekki breyta, e£ aðeins einn þingmaður mót- mælir því. En enginn mælti á móti tillögu Torglers, ekki heldur þingmenn úr „þýsk-nationaIa“ flokknnm, einu -tuðningsmeiin Papen-stj,órnarinnar. — Það vakti almenna undrun í þingsaln- nm. Göhring frestaði nú þingfundi um hálfa klukkustund. HI. 16 hófst þingfundur að nýju. AJHr ráðherrarnir voru mættir. Menn tóku eftir því, að Papen hafði nú ,,rauða skjalahvlkið" með sjer. — í Þýskalandi er það siður, að kanslar- inn hafi tilskipnn nm þingrof í rauðu ] skjalahylki. Göhring lýsti yfir, að enginn hefði mótmælt því, að dagskránni væri breytt. Tillagan um afnám neyðarráð- stafanalaganna og vantraustsyfirlýs- i ngin var því borin undir atkvæði. j j Göhting neitar kanslaranum um orðið. Kanslarinn fleygir í reiði þingrofs- skjalinn á horð þingforseta. Nú biður v. Papen um orðið. — Göhring tekur ekki eftir því, eða íast ekki sjá það. Planck undirstjórn- arherra flýtir sjer upp að forsetaborð- inu og segir, að kanslarinn biðji um orðið. Göhring svarar: „Atkvæða- greiðslan er byrjuð. Jeg get ekki gefið neinum orðið fyr en henni er Iokið.“ Aldrei hefir það komið fyrir að þingforseti hafi neitað æðsta em- bættismanni ríkisins um orðið. Papen virðist fyrst vera agndofa og er ná- j föitir af geðshrærir.gu. .Tlann teknr •i'ii si jal upp úr „fii hylkinu“ og kastar því — auðsjáanlega í reiði — á borð þingforseta. Svo gengur liann af fundi, og allir hinir ráðherr- arnir með honum. Þingmenn standa á öndinni af eft- : irvæntingu. Var það þingrofsskjalið sein Papen kastaði á borð forsetans? Göhring ýtir skjaldinu til hliðar. 0g atkvæöagreiðslan heldur áfram. I f Vantraustsyfirlýsing samþykt með. í 513 atkvæðum á móti 32. Forsetinn hringir. Atkvæðagreiðsi-. unni er lokið. Með 513 atkvæðum á móti 32 hefir þingið samþykt að af- 1 nema neyðarráðstafanalögin og iýst j vantrausti á stjórn Papens. Aldrei fyr| hefir nökkur stjórn beðið annan eins ósigur í þýska þinginu. | Göhring tók nú til máis og las upp skjal það, sem kanslarinn hafði fleygt á borð forsetans. Það hljóðaði þannig: J „Samkvæmt 15. grein í stjórnarskránni rýf jeg hjer með ríkisþingið, þar sem búast má við að það felli úr gildi neyðarráðstafanir mínar útgefnar 5. ji. m.“ 'Skjalið var undirskrifað af Hindenburg og meðnndirskrifað af Paxien. „Kanslarinn kom með þetta skjal eftir að atkvæðagreiðslan um van- traustsyfirlýsinguna var byr juð‘ ‘, sagði Göhring. „Við þessa atkvæða- greiðslu var stjórnin feld. Þingrofs- skjalið er undirskrifað af ráðherra, sem þingið hefir felt með yfirgnæf- andi meiri hluta. Þingrofsskjalið er því algerlega ógilt. Jeg er staði'áðinn í því, að vernda rjettindi þingsins. Næsti þingfundur verður haldinn á morgun‘ ‘. Gohring lítur þannig á, að þing- ið sje ekki rofið, en aftur á móti sje stjórn Papens fallin. Hn stjórnin held- ur því fram, að Göhring hafi brotið stjórnarskrána. Samkvæmt henni eigi ríkiskanslarinn heimtingu á að fá orð- ið, hvenær sem er, einnig utan dag- skrár. Göhring hafi því ekki haft heimild til að neita kanslaranum um orðið. Ennfremur heldur stjóruin því fram, að þingið hafi verið rofið áður en atkvæðagreiðslan um vantrausts- yfirlýsinguna hófst. Vantraustsyfir- lýsingin sje því ógild. Stjórnin ætlar }>v í að sitja áfram við völd. Og hún : egist ekki hika við að beita valdi, ef þingið verði kvatt saman, þrátt fyrir Jiingrofið. Papen segist ætla að stofnn nýrra kosninga innan 60 daga, samkv. ákvæðum stjórnarskrárinnar. Eins og þegar hefir verið sagt, ætl- aðist Göhring til, að þingfundir haldi áfram þrátt fyrir þingrofið. En bæði miðflokkurinn, ríkisflokkurinn og socialistar líta svo á, að þingið sje rofið. Nazistar hafa. því ákveðið, að kveðja ekki þing saman að svo stöddu, hóldur láta ríkisrjettinn í Leipzig skéra úr því, hvort þingrofið sje lög- legt. Annað mál er það, hvað Papen ger- iv, þegar þingkosningar eru um garð gengnar að 2 mánuðum liðnum. Því engar líkur eru til að hann fái þá meiri hluta í þinginu. Khöfn, 13. ágúst 1932. Hiðnatkllnaiarriistefna. í ágústmánuði var haldin alþjóða- ráðstefna í Oxford til þess að ræða um lög hinna ýmsu landa um hjónaskiln- aði, eða lagaleysi um jxitta efni. I ráðstefnunni tóku aðeins þátt lög- fræðingar og komu þeir sjer saman um tillögur að sameiginlegi'i löggjöf um hjónaskilnaði um allan heim til jiess- að freista að koma á sem mestu samræmi í þessum efiíum, en nú er sinn siður í landi hverju þar um. Hvert af ríkjum Bandaríkjanna hef- ■ir sjerstök hjónaskilnaðarlög. í Aust- urríki krefjast lögin þess ekki að hjónin þurfi að vera skilin að borði og sæng svo og svo langan tíma áður en þau geta skilið. — í Hollandi þurfa l>au að hafa verið skilin að borði og sæng í 7 vikur, og í Belgíu eitt ár. I ítölskum lögum er enginn stafur um lijónaskilnað. Fulltrúarnir í Oxford voru allir fje- lagar í „Alþjóða lögjafnaðarsam- bandi“, sem stofnað var í Bryssel fyrir 59 árum. í þeim fjelagsskap eru r.ú 3000 menn. Forseti ráðstefnunnar var Blanesburgh lávarður. Sirhu Konsam gúkknlaði er fyrsta flokks vara, sem þjer sjáið aldrei eftir að kaupa. Sigurður Agústason Laekjargötu 2. Raf lagnir Viðgerðir Breytingar Hringingar- lagnir. Simi 1019 Stangalamir, ýmgar tegnndir nýkonmar. Lndvig Storr. Langaveg 16. Lifnr.liiartii og srið. Klota, Baldursgötu 14. Sími 73. Öut i hálst þekja l>eir ekki, sem ætíð reykja Tiornn cigarettur. Verðið óbreytt 20 stk. 1.25. TEOFANI - LONDON.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.