Morgunblaðið - 13.10.1932, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ
*
2
HeUdsSlnbirgðir s
Þakjárn No, 24 og 26.
Gaddavír. - Girðingarnet.
Viljum selja
hús vort á Hofstanga á Kjalarnesi til niðurrifs, eða notk-
unar á staðnum. Húsið er úr timbri, járnklætt. Það er 10
x 33 metrar að stærð.
Þeir, sem vildu skoða húsið, geta snúið sjer til Ólafs
Kinnssonar, Bergvík, eða til vor sjálfra.
Tilboð um kaup á húsinu sendist oss fyrir lok þessa
mánaðar.
H.I. PfpnTerksmiðJan, - sími 251.
verslunin Skðgafoss
or flntt á Klapparstfg 37.
(áðnr Barnafataverslnnin).
Hattabúðin. Hlapparstíg 37,
(ekki Stjarnan).
hefir mikið úrv. af fallegum og ódýrum kvenvetrarhöttum
— seljum næstu daga nokkur stykki fyrir kr. 4.50. Gerum
upp gamla hatta, sem nýja, einnig yfirdekkjum lampa-
skerma og setjum upp stofupúða.
Klapparstíg 37. Inga Gíslason.
H. B. IGO.
Kanpmenn!
Kelloggs AU Bran og Gorn Flakes
er komfð aftnr.
H. Benediktsson & Co,
Sími 8 (4 línur).
Þeir, sem ganga best klæddír
orn f fðtnm frá
Árna & Ejarna.
Verslun i göium stað.
t,il sölu, afhendingar um næstu mánaðamót.
Góð búð, ódýr búðarleiga.
Fyrirspurnir merktar „Verslun“, sendist A. S. í.
Allir rnana A. S. L
SÍ5júkraBamlag
(Reykjauíkur.
A síðasta aðalfundi þess, sem hald-
inn var 20. f. m. lagði stjómin fram
ýmsar lagabreytingar, er hún að vel
athugnðu máli taldi nauðsynlegt að
næðu samþykki fundarmanna, isvo að
samlagið gæti starfað framvegis án
þess að lenda í líkum kriiggnm sem
þeim, er það komst í síðastl. ár. Til-
lögurnar voru vel skýrðar og rök-
studdar í fundinum og sýnt fram á,
að án samræmis þess, milli tekna og
gjalda, er í þeim fælist, væri óhugsan-
legt að samlagið gæti starfað fram-
vegis. Þrátt fyrir þetta kom þó svo
mikill misskilningur fram meðal fund-
armanna, að þeir feldu flestar laga-
breytingatillögur stjómarinnar, þær er
veigamestar voru: Hækkun iðgjalda
um 7 kr. á ári, takmörkun dýrra lyfja,
er víkja mættu fyrir öðrum miklu ó-
■dýrari lyfjum, en ágætum þó, sem að
ráði lækna gena sama gagn, og loks,
að fella niður aukaviðtöl og vitjanir
að næturlagi, sem stjórninni virtist að
spara mætti og spara þyrfti nú, með-
an kreppan stendur yfir.
Þegar svo stjóm S. R. leitaði stað-
festingar lá þeim lagabreytingum, sem
samþyktar vom á fundinum, taldi
stjórnarráðið, í brjefi sínu til stjórnar
S. R., dags. 4. þ. m., að þær kæmi
samlaginu að svo litlu liði, að ekki
væri unt að staðfesta þær einar íit af
fyrir sig eða án gagngjörðari trygg-
inga fyrir framtíð samlagsins. Jafn-
framt benti stjórnarráðið stjóm S. R.
á það í sama brjefi, að nauðsynlegt
væri að halda fund í samlaginu hið
fyrsta og kippa þessu í lag.
Af þessu er auðsætt, að !hjer er um
all-alvarlegt máí að ræða.
Allir þeir, er 'bestan skilning hafa
sýnt á starfsemi S. R. og styrkt
það mjög lofsamlega, einkum nú á
síðastl. ári, ríkisstjórn, bæjarstjórn og
einstaklingar, bafa sagt og segja:
„Sjúkrasamlag Reykjavíkur má ekki
leggjast niður!“ Hins vegar virðast
sumir meðlimir sjúkrasamlagsins
sjálfs, a. m. k. þeir, er urðu til þess
að fella tillögur samlagsstjórnarinnar
— sennilega í hugsunarleysi og af mis-
skilningi —: eiga bágt með að skilja
það, hversu hættulegt og óhyggilegt
það getur verið í þessu efni, „að spara
skildinginn en láta dalinn fjúka“ : Að
spara sjer 7 kr. iðgjaldshækkun á ári
— þ. e. tæpir 2 anrar á dag —
og halda dauðahaldi í einhver smá-'
vægileg hlunnindi, sem hægt er án að
vera, a. m. k. í bili, en eiga svo á
liættu að missa að meira eða minna
leyti styrki þá, sem samlagið hefir
orðið aðnjótandi, og gæti átt von á
að fiá, ef samlagsmenn sjálfir sýndn
viðleitni sína í því að inna sjálfsagða
iskyjdu sína af hendi við sitt eigið f je-
lag og styrktarstofnun, til þess að
tryggja sjer þau miklu hlunnindi, sem
S. R. veitir þeim, hvenær sem slys
eða sjúkdómar bera þeim að höndum.
Samlagsmenn verða einnig að skilja
það, að sú stjórn, hver svo sem hún
er, sem þeir fela forstöðu samlagsins,
getur ekki til lengdar gengið fyrir
hvers manns dyr og beðið um æ hærri
og hærri styrk til samlagsins, án þess
að þeir íþyngi sjálfum ,sjer eitthvað í
móti, einkum eins og nú stendur á,
þegar allir, jafnt hið opinbera sem
einstaklingar, eiga í vök að verjast
með afkomu alla, á þessum krepputím-
um, enda hafa samlagsmenn að und-
anfömn og um langt skeið að miklu
leyti sloppið við kröggur samlagsins
hvað aukin útgjöld snertir.
S. R. mun nú orðið hafa h'átt á 8.
þúsund manna, eldri og yngri, ‘á sínum
vegum; það mun hafa, notið rúmlega
40 þús. kr. styrkja frá ríkissjóði og
bæjarsjóði síðastliðið ár, auk fullra 21
þús. kr. auka-afsláttar af viðskiftum
sinum við lækna, lyfjabúðir og sjúkra-
hús, Stjórn S. R. hefir alla tíð unnið
og vinnur enn istörf sín í þágu þess
endurgjaldslaust (sumir Jieirra hafa
þegar verið í istjórn þess frá byrjun
eða um nærri 24 ára. sfeeið, og af 236
þús. kr. viðskiftaveltu samlagsins nam
allur starfskostnaður þess („vinna, á
skrifstofu og annar kostnaður") rúml.
6% síðastl. ár.
Að þessu athuguðu virðiist naumast
sanngjarnt að gera frekari kröfur til
styrkveitinga frá hinu opinbera eða
einstökum stofnunum, nje heldur til
stjómenda samlagsins, sem áreiðanlega
hafa haft mikil og margvísleg störf á
höndum fyrir það og haldið sparlega á
öllu.
Er nú hugsanlegt, að samlagsmenn
felli tillögur þær til lagabreytinga, sem
stjórn S. R. ber fram á næsta fundi
og sem allar fara í þá átt, að tryggja
hag og tilveru samlagsins í framtíð-
inni og isjá því borgið? Fari svo, sem
ólíklegt er að verði, þegar samlags-
menn hafa áttað sig á málinu og sjá
hverja þýðingu það hefir fyrir þá og
samlagið, þá virðist enginn kostur
vera fyrir samlagsstjórnina annar en
sá, að segja samlaginu slitið og jafna
skuldum jjess niður á samlagsmenn
sjálfa, samkv. lögum um sjúkrasamlög
og lögum 'saiplagsins sjálfs, þeim, er í
gildi eru. Mundi þá mörgum bregða
kynlega v^ð og margir sakna vinar í
stað, ef það vrði að leggjast niður
fyrir þá sök eina að samlagsmenn
sjálfir með þröngsýni sinni yrðu til
þess að gera istjórn þess ókleyft með
öllu að halda þv.í við lýði; þeim, er
að því hefðu umnið, mundu engar góð-
ar þakkir goldnar.
Hjer er um svo mikilvægt velferðar-
mál fyrir Reykjavíkurbæ og lands-
menn alla áð ræða, að ,full ástæða er
til að skora 'á meðlimi S. R. að at-
huga það gaumgæfilega, og mæta á
fundinum, sem haldinn verður nú
í kvöld, og taka skynsamlegar á-
kvarðanir í málinu, því að Sjúkrasam
lag Reykjavíkur má ekki leggjast nið-
ur! —
JÓN PÁLSSON.
Kuxteisi.
Danir gerðu sem eðlilegt er alt sem
í þeirra valdi stóð til þess að taka sem
best á móti prinsinum af Wales, er
•hann kom til Danmerkur í tilefni af
bresku sýningunni. Að aflokinni heim-
sóknirmi 'í Höfn ætlaði prinsinn að
vera nokkra daga um kyrt á herra-
garði einum á Fjóni. Þar eru allstórir
skógar. Yar búist við að prinsinn
vildi fara þar á veiðar, isjer til dægra,-
•styttingar. En samkv. friðunarlögun-
um m'átti ekki skjóta hjera 'nje fasana
fyr en nokkrum dögum eftir að prins-
inn var farinn. Búnaðarraðherra Dana
fanst þetta ótækt. Hann gaf út bráða-
birgðalög um, að veiðin mætti bvrja
þessum dögum fyr ,og hætta að sama
sfeapi, fyr í vetur. Þetta þótti veiði-
mönnum landsiins afleitt, því með því
móti var veiðin úti í jólafríi manna
í vetur. Fekk ráðherrann ákúrur fyrir
þetta kurteisisbragð. Jukust þær eink-
um er það vitnaðist, að hinn breski
prins alls ekki hafði hugsað sjer að
gera veiðidýrum Dana neitt ónæði.
Hann ætlaði sjer aldrei að fara þar á
veiðar, sýo fyrirskipanir ráðherrans
komu að engum notum. ,
„Brnatrf oss“
fermir í London nálægt 17.
október, kemur við í Leith,
til Reykjavíkur.
Hentug brúðargjðf.
Verslnnin „París“ selnr
nokknr ekta anstnrlensk
borð með afslætti.
Svið.
Lifur opr hjörtu.
Ávextir, hurkaðir, nýir off
niðursoðnir, flestar tegundir
— sanngjarnt verð.
Nýlendnvörn og
matarverslnn
Svelns Þoikefssonar.
Sími 1969.
Muilersskólinn,
Austurstræti 14. Sími 738.
Vegna þess, að fjölgað hefir verið
leikfimitímum, fyrir börn innan
skólaskyldualdurs (frá 5—8 ára), er
hægt að bæta við 11 drengjum kl. 10
—11 lá'rd. á niánudögum og fimtudög-
um og 8 drengjum kl. 4—5 síðd. á
þriðjud. og föstud., 4 telpum kl. 10—
11 'árd. á miðvikud. og laugardögum
og 8 telpu.m kl 5—6 síðd. sömu dsga.
Allir kvenflokkar, ,sem áður hafa
verið auglýstir og æfa eftir kl. 6 á
kvöldin, ei.u þegar fullskipaðir, en
nýir kvenflokkar hyrja leikfimi eftir
20. þ. m. og æfa á kvöldin tvisvar í
viku kl. 7—8 eða kl. 9—10, tveir af
þessum flokkum verða eingöngu fyrir
bvrjendur. Stúlkur, er sótt hafa um
skólann í haust og ekki fengið inn-
göngu, eru vinsamlega beðnar að
ítreka umsókn sína, ef þær geta æft
með þessum nýju flokkum.
Nánari upplýsingar kenslunni við-
víkjandi gefur aðstoðarkennari skól-
an,s, un'gfrú Ingibjörg Stefánsdóttir,
eða undirritaður.
Jón Þorsteinsson,
frá Hofsstöðum.
EGQERT CLAESSEN
hæstar j ettarmálaflutningsmaður.
Skrifstofa: Oddfellowhúsið,
Vonaistræti 10.
(Inngangur nm austurdyr).
Sími 871. Viðtalstími 10—12 árdegis.
Heii ávalt
tilbúnar líkkistur frá allra ódýrustu
til fullkomnttstu gerðar. Leigi vand-
aðasta líkbílimn fyrir lægstu leigu.
Sje um útfarið að öllu leyti.
Tryggvi Árnason,
Njálsgötu 9. 'Sími 862.