Morgunblaðið - 09.11.1932, Blaðsíða 3
M O R G U N B L A’D IÐ
8
6 $&orwnbl*t>ib
É'ta«f.: H.f. ÁrTJLkur, ItrUtTlll.
Xltatjðrw: Jðn Kjaxtanaaon.
Valtyr Sttf&naaoa.
Kltatjðrn o* afarelBala:
Auaturatrntl (. — glal IM,
AuBltalnKaatJðrl: B. Htíbtrf.
▲UKl?alnffaakrlfatoía:
Auaturatrastl 1T. — Waal ttl,
Xafmaalaear:
Jðn Kjartanaaon nr. T4I.
ValtjT Stefánaaon nr. l*»l.
B. Hafbarc nr. 770,
AakrlftaBjald:
Innanlanda kr. 1.00 & nlillL
Utanlanda kr. 1.10 á. nlnilL
É lauaaaðlu 10 aura alntaklO.
10 aura nal liaabOk.
Einkennileg
neitun.
íslenskum togara neit-
a5 um ag fá keyptan
ís í Hull.
Fyrir nokkrum clögum kom tog-
arinn Snorri goði til Hull. Hafði
Jhann selt afla sinn í Þýskalandi.
En þareð kol og ís fást jafnan
fyrir lægra verð í Englandi en
Þýskalandi, var farið til Hull til
þess að fá þessar nauðsynjavörur.
En er til Hull kom fekk togar-
inn eltki nema kolin keypt þar.
Um ísinn var neitað. Er mein-
bægni útgerðarmanna þar kent um,
því þeir munu eiga lilutdeild í ís-
kúsunum. En þetta þykir því
merkilegra, sem togarinn var hjer
ekki að selja afla, í samkeppni
við enska útgerðarmenn, heldur
kom aðeins til að kaupa nauðsynj-
ar sínar.
„Snorri goði“ sigldi til Aber-
deen og fekk þar keyptan ísinn.
„Hekla“
Eimskipafjelags Reykja-
víkur kom hingað í gær.
Frá því var sagt hjer í blaðinu
nýlega, að stofnað væri Eimskipa-
fjelag Reykjavíkur, er keypt hefði
í Noregi flutningaskip til flutn-
inga milli íslands og Miðjarðar-
hafslandanna.
Nú er þetta fyrsta skip fjelags-
ins komið hingað. Er skipið á
"Stærð við Gullfoss, t.ekur 1200 smál
í farmrými. Skipið hefir verið
nefnt „Hekla“. Var það áður eign
„Söndenf jeldske1 gufuskipafjelags
í Ósló. Er það rúml. 20 ára og
hefir nýlega fengið mikla við-
gerð. Skipið hefir verið bygt til
ávaxtaflutnings, er hraðskreitt,
eins og slík skip eru, og er allur
útbúnaður þess mjög vandaður.
Það hefir kolarúm fyrir 250—300
smálestir kola, járndekk með
timburþiljum ofan á, tvennar
bómur og því sex vindur, svo hægt
-er að losa sltipið á bæði borð í
-einu.
Allar eru íbúðir í skipinu hin-
_ar vönduðustu og rúmgóðar.
Yfirleitt- er skipið rennilegt og
-eigulegt í alla staði, og er ástæðá
til þess að óska hinu nýju fjelagi
til hamingju með þetta fyrsta
.skip sitt.
K. R. dansleikur. Á laugardag-
inn kemur heldur K. R. fyrsta
dansleik sinn á þessum vetri. —
Ágæt hljómsveit verður og húsið
fagurlega skreytt. (Sjá nánar aug-
lýsingu í blaðinu).
Mjólkurverðið lækkar.
Lelðin út úr atvinnuleysinu.
Frekari lækkun fáanleg um leið og
betra skipulag kemst á söluna, segir
Eyjólfur Jöhannsson framkvæmdar-
stjóri Mjólkurfjelagsins.
Mjólkurbandalagið hefir nú á-
kveðið að frá 16. nóv. skuli mjólk-
urverðið lækka úr 44 aurum lítr-
inn í 40 aura, þegar mjólk er seld
í lausu máli, en mjóllc í flöskum
á að kosta 42 aura.
í sambandi við lækkun þessa
hefir Mbl. haft tal af Eyjólfi Jó-
hannssyni framkvæmdastj. Mjólk-
urfjelagsins.
Hann sagði m. a.
Lengi hefir verið um það talað,
að lækka mjólkurverðið hjer í
bænum. En við mjólkurbandalags-
menn höfum óskað þess, að um
leið og verðlækkunin kæmist til
framkvæmda þá kæmust önnur at-
riði mjólkursölumálsins í æskilegt
horf.
" Það er hagnaður jafnt selj-
anda sem kaupanda, að mjólkur-
sölunni sje þannig fyrir komið,
að útsöluverðið geti . orðið sem
lægst, og mjólkurframleiðslan þó
borið sig, þ. e. a. s. að kostnaður
við sölu og meðferð mjólkur verði
sem minstur.
Á síðastliðnum vetri ritaði
Mjólkurbandalagið bæjarstjórn
brjef, þar sem bandalagið fór
fram á, að bæjarstjórn gerði reglu
gerð um mjólkursöluna lijer í
bænum, sem miðaði að því að
minka útsölukostnaðinn, lækka
verðið. Þessu ætlum við að fá
framgengt aðallega með tvennu
rnóti: Með því að útsölustöðum
mjólkur yrði fækkað og með þvi
að bæjarstjórn gæfi út reglur
um það, að eigi mætti selja aðra
mjólk hjer í bænum en geril-
sneyddu, eða mjólkin væri fram-
leidd og seld undir þeim skilyrð-
um, að full trygging sje fyrir því
að mjólkin sje upp á það
besta. Nú hefir Mjólkurbanda-
lagíð yfir svo stórum mjólkur-
stöðvum að ráða, að þær geta
hreinsað eða gerilsneytt alla þá
mjólk, sem hjer er seld. En kostn-
aðurinn við hreinsun hvers mjólk-
urlítra verður þeim mun minni,
sem meiri mjólk fer gegnum
stöðvarnar.
Um útsölustaði mjólkur lijer í
bænum er það að segja, að þeir
eru eitthvað ferfalt fleiri en þörf
er á. Liggur í augum uppi, að
það eykur mjög sölukostnaðinn í
heild sinni, að hafa útsölustaðina
svo marga.
Nú er kostnaðurinn við þá
mjólk sem gerilsneydd er og sett
í flöskur, sem hjer segir, á hvern
l’ítra:
Útsölukostnaður 6-8 aurar. Ger-
ilsneyðing 5 aurar. Kostnaður við
flöskur 5 aurar, en af flöskukostn
aði borgar kaupandi 2 aura. Alls
er það 16—18 aura kostnaður, sem
legst á hvern lítra mjólkur, eftir
að mjólltin er komin liingað til
bæjarins.
En fækki útsölustöðum og fari
öll mjólkin gegnum mjólkur stöðv
arnar, lækka tveir þessara kostn-
aðarliða að verulegu leyti.
Mjólkurbandalagið ætlast sem
sje til þess, að bæjarstjórn sjái
sjer fært að kveða á um hæfilegan
fjölda útsölustaða og að öll mjólk
sem hjer er seld, verði geril-
sneydd eða hreinsuð á fullgildum
mjólkumstöðvum.
En fyrir þá aðstoð við mjólkur-
framleiðendur, ætlumst við til
þess, að þau fríðindi komi 4 móti,
að bæjarstjórn megi framvegis
hafa íhlutun um útsöluverð mjólk
ur hjer í bænum. Að mjólkurverð-
ið breytist eftir því hvernig fram-
leiðslukostnaðurinn breytist, og
verði verðlag mjóikurinnar ákveð
ið svo oft sem þurfa þykir sam-
kvæmt breytingum á ýmsum kostn
aðarliðum við framleiðslu mjólk-
urinnar, er reiknast eftir fyrir-
fram ákveðnu vísitalnakerfi.
Með því móti væri það trygt,
að framleiðendur og neýtendur
mættust á miðri leið í samningum
um sanngjarnt mjólkurverð hjer i
bænum.
Jafnframt verðúm við framleið-
endur vitanlega að lilíta því
strangasta eftirliti frá hendi heil-
brigðisyfirvalda og bæjarstjórnar,
um að öll meðferð mjólkurinnar
sje hin vandaðasta og besta.
Mun jeg innan skamms, segir
Eyjólfur að lokum, gefa bæjar-
búum kost 4 að kynnast af eigin
sjón og raun síðustu nýjung-
,um 4 því sviði, sem vísindi og
vjelamenning stórþjóðanna hafa
að bjóða.
Forsetafcosning
í Banöaríkjum.
I gær fór fram kjörmannakosn-
ing í Bandaríkjunum, og hinir
kosnu kjörmenn eiga síðan að
velja forseta. Fer sú kosning ekki
fram fyr en í febrúar, en eftir
úrslitum kjörmannakosningarinn-
ar í gær, verður vitað hvert for-
setaefnið verður valið. Er ekki
nema tveimur mönnum til að
dreifa. Hoover núverandi forseta,
sem er forsetaefni republikana,
og Theodore Roosevelt, forsetaefni
demokrata.
Seinustu kosningaræður sínar
hjeldu þeir í gærmorgun í út-
varpið. H.oover var þá á ferð í
járnbrautarvagni, en Roosevelt
heima hjá sjer í New York.
Samkvæmt seinustu fregnum að
vestan er talið, að Roosevelt muni
vinna stórsigur í kosningunum. í
vesturríkjunum og miðríkjunum,
þar sem Hoover hafði mest fylgi
áður, muu i demokratar nú hafá
stórum meira fylgi heldur en re-
publikanar. 1 nótt var útvarpað
kosningafrjettum frá stuttbylgju-
stöðvum vestra, en úrslitatölur
munu tæplega væntanlegar í dag.
Sá, sem kjörinn verður forseti,
;á að taka við völdum 4. mars.
Stiórnarummyndun í
Juffoslaviu.
Belgrade, 5. nóv.
United Press. FB.
Srsehitch hefir lokið við að endur-
-kipnleggja ríkisstjórnina. Flestir
gömlu ráðherranna eiga sæti í nýju
ríkisstjórninni.
Bæjarstjórn Reykjavíkur hefir
haldið uppi svonefndri atvinnu-
bótavinnu síðan í miðjum ágúst-
mánuði síðastliðnum og hefir rík-
issjóður styrkt vinnu þessa með
nokltrum f járframlögum. Mun
hafa farið hátt 4 þriðja hundrað
þúsund króna í þessa atvinnubóta
vinnu til þessa tíma. Og nú er svo
komið, að bæjarsjóður og ríkis-
sjóður hafa eytt nálega öllu því
fje, sem liægt er að verja í þessu
skyni.
Það liggur í augum uppi, að
það er ákaflega miklum erfiðleik-
um bundið fyrir ríkið og bæjar-
sjóðj, að; leggja fram stórfje á þess-
um krepputímum í vinnu, sem
engan arð gefur. Það mun ög
flestum hafa verið ljóst frá upp-
hafi, að til þessara atvinnubóta-
vinnu var gripið aðeins út úr
neyð. Hún átti að draga úr sár-
ustu neyðinni, sem af atvihnuleys-
inu stafaði.
En nú verða menn hinsvegar að
horfast í augu við blákaldan sann-
leikann, og hann er sá, að atvinnu
bótavinnan getur ekki haldið á-
fram eins og verið hefir, af þeirri
einföldu ástæðu, að fje er ekki
til.
í þessu ináli er ekki til neins
að vera að rífast um það, hvort
kaupgjald í atvinnubótavinnunni
verði kr. 1,36 (1,50) um klst.
eða 1 kr.óna. Hitt er aðalatriðið,
að sáralítið fje er eftir, sem hægt
er að verja í þessu skyni og að
eins lítill hluti þeirra, sem atvinnu
lausir eru, geta komist að í at-
vinnubótavinnunni. Það er því ber
sýnilegt, að atvinnubótavinnan
ein út af fyrir sig er engin lausn
á atvinnuleysinu.
Hjer í blaðinu hefir oft verið
á það bent, að eina leiðin út úr
atvinnuleysi væri sú, að koma
öllum togaraflotanum af stað, og
sjá svo um, að hann geti gengið
nokkurn veginn liindrunarlaust
mikinn hluta ársins. En til þess
að þetta megi takast, verða allir
aðilar, sem hjer eiga hlut að máli
að taka liöndum saman og vinná
sameiginlega að lausn málanna.
Reykjavíkurbær stendur og fell-
ur með togoraútgerðinni. Bæjar-
stjórn ætti því að skilja það, að
ekki er lítið leggjandi í sölurnar
til þess, að þessi atvinnuvegur geti
blómgast og dafnað hjer í höfuð-
staðnum. En því miður hefir bæj-
árstjórn ekki sýnt þann skilning
4 þessum málum, sem vera ber.
Gjöld þau, sem Reykjavíkurbær
tekur af fiskiflota sínum eru svo
gífurleg, að menn flýja hjeðan
með skip sín. Reykjavíkurbær á
að veita fiskiflotanum vildarkjör,
svo að menn sækist eftir að gera
út hjeðan.
Ríkið eða ríkissjóður er vissu-
lega veigamikill aðili í þessum
málum. Það má segja líkt um
ríkisbúskapinn og sagt var um
bæjarsjóð Reykjavíkur, að hann
stendur og fellur með útgerðinni.
Það er fyrst og fremst hún, sem
færir ríkissjóði þær tekjur, sem
hann þarf að fá til þess að geta
staðist sín útgjöld. En hvað hef-
ir ríkið gert til þess að hlúa að
þessum atvinnurekstri ? Ekkert. —
Þvert 4 móti hefir stefna Alþing-
is tíðum verið sú, að finna öll
hugsanleg ráð til þess að fjefletta
isem best þenna aðalatvinnurekstur
þjóðarinnar. Enda er nú svo kom-
ið, að togaraútgerðin rís ekki
lengur undir þeim gífurlegu skott
um, sem ríkið leggur á hana. Alt
sem útgerðin þarfnast til fram-
leiðslunnar er skattað og sumt
gífurlega. Jafnvel sjálf framleiðslu
varan er sköttuð. Hvaða vit er
í þessu ? .
Utgerðarmenn, sjómenn og verka
menn, sem eiga alla sína afltomu
undir því, að togaraútgerðin gangi
vel, eyða miklum tíma í illkynj-
aðar deilur innbyrðis, í stað þess
að vinna sameiginlega að vél-
gengni . útgerðarinnar. Þetta er
hörmulegt og óútreiknanlegt það
tjón, sem af þessu hlýst. Hvers
vegna reyna ekki þepsir aðilar að
koma sjer saman um kaupgrund-
völl, sem miðast við afkomu at-
(vinnuvegarins á hverjum tíma? —
Fengist kaupgjaldsmálið leyst 4
þessum "rundvélli. þá mundi skap
ast varanlegur vinnufriður við
þenna atvinnurekstur.
Utgerðarmenn, sjómenn, verka-
menn í landi, bæjarstjórn og rík-
isstjórn, takið nú liöndum saman
og vinnið í sameiningu að því,
að koma togaraútgerðinni á heil-
brigðan grundvöll.Heppnist þetta,
þá mvndi um leið leysast að sjálfu
sjer flest þau vandræðamál, sem
bæjarstjórn á nú við að gliíma.
Lausn vandamálanna getnr
aldrei verið fólgin í því, að nokk-
ur hluti borgaranna heimti alt af
samborgurum sínum, en leggi
ekkert í sölurnar sjálfir.
Frá Þýskalandi.
\
Beflin. 6. nóvember.
ITnited Press. FB.
Kosningarnar fóru fram án ó-
eirða að kalla má og voru í því
frábrugðnar þeim kosningum, er
seinast fóru fram í Þýskalandi,
því að þá var allvíða óeirðasamt í
landinu á kosningadaginn. Þátt-
takan í kosningunum var ljeleg —
einkum framan af degi, sumpart
vegna deyfðar kjósenda, en einn-
ig veðurs vegna.
Berlin. 7. nóvember.
United Press. FB.
Verkfallinu mátti heita lokið
síðari hhita dags í dag. Yfirvöld-
in tilkyntu þá, að umferð væri
hafin á 62 af 73 sporvagnabraut-
um borgarinnar og 22 af 32 stræt-
isvagnabrautum. Umferð er einnig
liafin á flestpm neðanjarðar-járn-
brautarlestunum. — Lögreglu-
varðlið er á öllu lestum og stöðv-
um. —
Ofviðri í Noregi.
Oslo, 7. nóv. NRP. — FB.
Frá Tromsö er símað að mikið
óveður hafi farið vfir Norður-
Noreg í gær. Miklar skemdir urðu
á húsum í Tromsö. Frá Sörengen
á Vestfold er símar að enski botn-
vörpungurinn Golden Deep hafi
farist. Skipsmenn gerðu t.ilraun til
þess að komast í land, en mikið
brim var, og óttast menn, aS þeir
þafi allir farist.
... i
» » ♦ >