Morgunblaðið - 09.11.1932, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.11.1932, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐJÐ Hugltslngadag&fik BI6m og Ávextir, Hafnar- stræti 5. Daglega allar fáanlegar tegundir afskorinna blóma. Mikið úrval af krönsum úr tilbúnum blómum og lifandi blómum. Margs konar tækifærisgjafir. Munið símanúmerið 1663, því það er í Nýju fiskbúðinni, Lauf- ásvegi 37. Dívan til sölu, odýr. Aðalstræti 9 B. Fisksalan á Nýlendugötu 14, sími 1443, selur saltfisk úr stafla, mjög ódýrt. Kristinn Magnússon. Fæði, einstakar máltíðir, kaffi, öl, gosdrykkir með lægsta verði í Café Svanurinn. (Hornið við Barónsstíg og Grettisgötu). Best Mta kolin frá Kolaverslun Ólafs Benediktssonar. Sími 1845. Grlænýtt fars er altaf til. Fiskmetis- gerðin, Hverfisgötu 57. Sím* 2212. Orgelkensla. Kristinn Ingvarsson, Laugaveg 76. Iteiðhjól tekin til geymslu. „Örii' ínn“, sími 1161, Laugaveg 8 og Laugaveg 20. Fiskfars, heimatilbúið, 60 aura V2 kg., fæst daglega á Fríkirkju- veg 3. Sími 227. Kristín Thorodd sen. — Kökur. Er flutt í Tjarnargötu 3 (r.eðstu hæð) og ávalt vel birg af alls konar heimabökuðum kökum. — Ópið til klukkan 11 á kvöldin, alla ilaga. Guðmunda Nielsen. Barnapeysnr. Smábarnafðt. Mikið og fallegt nrval. Uöruhúsiö. Besta þorskalýsið í bænnm fáið þið í undirritaðri verslnn. Sí- vaxandi sala sannar gæðin. B jörninn, Bergstaðastræti 35. Sími 1091. Haupmenn! mm er lang útbreiddasta blaðið til sveita og við sjó, utan Reykjavikur og um hverfis hennar, og er því besta auglýsingabiaðið á þessum slóðum. Dagbók. Veðrið í gær: Lægðin, sem var fyrir suðvestan land í gær, er nú við V-ströndina og virðist nærri kyrstæð. Hún veldur nú S- og SV- átt um alt land með 4—8 st. hita og úrkomu á S- og V-landi. Hugs- ast getnr, að lægðin þokist NA- eftir og hefir í för með sjer NV- og N-átt hjer á landi, en fnlt eins miklar líkur eru til þess, að hún haldi kyrru fyrir næsta sólarhring og fari minkandi. Veðurútlit í dag: SV-kaldi. — Skúrir eða hryðjuveður. Áttræðisafmæli á frú Hólmfríð- ur Jónsdóttir, Viýastíg 18, í dag. Basar Systrafjelagsins „Alfa“ verður á morgun (fimtudag). fsfisksölur. Snorri goði hefir selt afla sinn í Cuxhaven (um 100 smál.) fyrir 11 þús. mörk. Gull- toppur hefir selt þar líka álíka mikið af fiski fyrir 11.824 mörk. Max Pemberton hefir selt afla sinn i Grimsby fyrir 504 sterlpd. Otur kom af veiðum í gærmorg- un með 1300 körfur af fiski, og hjelt áfram til Englands. Þorvaldur Skúlason málari sigldi til Kaupmannahafnar með Brúarfossi í gærkvöldi. Stórhýsi er Útvegsbankinn að láta hyggja í Keflavík og sjer Jóhannes Reykdal á Sethergi um smíðina. f húsinu er 'aðgerðarúm niðri fyrir 8 vjelbáta, en uppi á lofti eru beitingaklefar og veiðar færageymslur. Guðmundur Kristjánsson skipa- miðlari hefir nýlega leigt Kefla víkureignina af Útvegsbankanum. „Hnngurgangan“ til London. í gærdag fjell dómur í máli foringja hungurgöngumannanna í London og var hann dæmur í tugthúsvist. Einkennileg gulrófa var fyrir skemstu til sýnis í glngga Morg- unblaðsins, og vakti mikla athygli. Rófan var síðan send Náttúrn- gripasafninu, - en áður var tekin af henni ljósmynd og eru nokkr ar myndir til sölu hjá afgreiðslu blaðsins. Eggert Stefánsson söngvari fór í gær með Brúarfossi. Er ferðinni fyrst heitið til Lundúna; var Eggert boðið að syngja þar í út- varp y þessum mánuði (eftir 19. þ. m.) Mun hann syngja þar lög eftir Sv. Sveinbjörnsson, Kalda- lóns, Jón Leifs, Axel Snorrason, Karl Runólfsson o. fl. Síðan fer Eggert suður til ítalíu og dvelur í Rómaborg í vetur. í ríki jafnaðarmanna. „Ef jafn- Fangl ð Djðflaey. — 13 venja að flokka sakamenn sundur. — Yfir hliði þessarar bækistöðvar stend- ur höggvið í stein með logagyltum stöf um: „Liberté Egalité, Fratemité! “ *) Og þegar fangarnir sjá það, fer gremjukliður um allan hópinn. Pólitísku fangarnir, „hinir for- dæmdu“ voru fljótt skildir frá hin- um sakamönnunum. Það var farið með oss inn í garð, umluktan háum múr- veggjum, en umhverfis garðinn eru há trje, sem bera limar inn yfir vegg- ina, og í limum eins þeirra er slanga með rennandi vatni. Að Iokum, eftir 16 sólarhringa, fáum vjer að þvo oss, fáum kalt steypibað og megum ganga um og liðka oss, og síðan hvílast. — Það ern óumraeðileg viðbrigði eftir sjóferðina, að fá nú að sofa í næði. Eftir nokkra hvíldardaga þarna erum vjer enn reknir á stað. Hverjum *) Frelsi, jöfnuður, bróðerni! aðarmenn rjeðu hjer í borginni nú, myndu þeir hafa það eins og Hafn- firðingar“, segir Alþýðublaðið í gær. í Hafnarfirði, þar sem jafn- aðarmenn ráða, er ástandið þann- ig nú, að bærinn hefir ekki getað staðið í skilum við sitt eigið starfs fólk. Fast starfsfólk bæjarins hef- ir átt inni kaup sitt hjá bænum, stundum svo mánuðum skiftir, vegna þess að bærinn hefir engin ráð haft til þess að greiða kaupið. Yar að því komið, í sumar er leið, að barnakennarar í Hafnarfirði leituðu aðstoðar málaflutnings- manns til þess að fá greidd laun sín hjá hænum. Hvað mundi vera sagt um „íhaldið“ í Reykjavík, ef það færi þannig að ? Meðal farþega á Brúarfossi til útlanda í dag eru: Frú Ásta Ól- afsson. Gunnar Leyjström. Árni Guðmundsson. Theódór Brynjólfs- son, Gróa Sigmundsdóttir. Ásm. Jónsson. Sjómannastofan. í kvöld kl. 8% verður samkoma í Yarðarhúsinu. Flokkssöngur stúlkna (undirspil: liarmonium, flygel og guitarkvart- ett) aðstoða. Allir velkomnir. Dr. Max Keil hyrjar háskóla- fyrirlestra sína á föstudaginn kl. 8. Efni fyrirlestranna verður „Þýskaland eftir stríðið.“ Prófessor Árni Pálsson flytur í háskólanum fyrirlestra fyrir al- menning um „kirkju íslands á lýð- yeldistímanum1 ‘. Fyrirlestrarnir verða fluttir í 1. kenslustofu há- skólans á miðvikudögum kl. 8% -—9)4 síðd., hinn fyrsti í kvöld. Öllum er heimill aðgangur. Vínsmyglun. Aðalsteinn Jóna- tansson, sá er vann það níðings- verk í sumar að ráðast á Svein Benediktssson í rúminu og berja hann, var tekinn á ísafirði um daginn fyrir vínsmygl. Var hann ölvaður um horð í „Nova“ um nótt, hitti þar tollvörðinn og fór að tala við hann. Kvaðst hann hafa fengið flösku þar um borð og eiga nokkuð eftir í henni og bauð tollverði að súpa á. En toll- vörður tók flöskuna af honum og tók hann fastan. Síðan kom bæj- arfógeti um borð og setti þar rjett, en ekkert sannaðist um það hver hefði selt Aðalsteini vínið og hann þóttist ekkert muna það. Var hann síð-an sektaður, en tollvörður lát- inn fara með skipinu hingað suð- ur til eftirlits. Karen heitir saga, sem Barna- hlaðið Æskan hefir gefið út. Er hún eftir Hellen Hempel, en þýtt hefir Margrjet Jónsdóttir. Lá við slysi á ísafirði nm dag- rnanni er fenginn poki með nesti, sem á að nægja til margra daga, og svo er farið með oss niður að böfn. Vjer komumst þá að raun um að vjer, „hinir fordæmdu““, erum heppnismenn. Vjer verðum ekki rekn- ir til þess að vinna að járnbrautar- lagningu inn í landi, ekki heldur í mýraflóunum, heldur á Djöflaey. — Þar er veðráttufar sagt beilnæmara, þar hrynja menn ekki niður, eins og hjá Cayenne, þar sem -hrægammarnir vofa stöðugt yfir æti. Vjer erum tíu saman, og rekn- ir nm borð í lítinn og óþrifalegan gufubát, sem „Maroni“ heitir, og í steikjandi hita bröltir hann niður fljótið seinni hluta dags. Hann á að flytja oss til Djöflaeyjar. Vjer verðum að vera á þilfari, því að lestin er full af sakamönnum, sem lengi hafa verið í Cayenne, en hafa brotið þar eitthvað af sjer meðan á hegningar- tímannm stóð. Nú á að flytja þá út í eyna St. Joseph og þar eiga þeir að taka út mikið þyngri refsingu en ella. inn þegar Nova var þar. Um kvöld kom Hjálpræðishermaður og kona um borð til að spyrja hvenær skipið færi. Dimt var é hryggj- unni og er þau ætluðu í land aftur, gekk maðurinn út af hrygg- nnni í sjóinn. Hann var ósyndur. Þó tókst að bjarga honum. Var hann þá allmjög dasaðnr og hafði drukkið mikið af sjó. Bráðkvaddur varð í fyrradag Gunnlaugur Gunnlaugsson fyrv. barnakennari til heimilis á Rauð- arárstíg. Hann var við húsabygg- ingarvinnu hjá Axel Sveinssyni verkfræðing. Hafði hann kent hjartabilnnar og hafði verkstjóri því tekið það fram við hann, að hann skyldi ekki leggja að sjer við vinnuna. En í fyrramorgnn linje hann niður, er hann var ný- kominn í vinnuna og var þegar örendur. H;ann var 57 ára að aldri. Hann lætur eftir sig konu, Kristj- önu Kristjánsdóttur. Tvær dætur þeirra hjóna ern háðar giftar. Staka þessi var send blaðinu í gær. Þarf ekki útskýringar við: Hvort mun verða á þingi þá, þarflegt margt að fela, ef ekki í híl jeg aka má, og ekki neinu stela. Útvarpið í dag: 10.00 Veðurfregnir. 12.15 Hádegisútvarp. 16.00 Veður- fregnir. 19.05 Grammófóntónleikar. 19.30 Veðurfregnir. 19.40 Tilkynning- ar. Tónleikar. 20.00 Klukkusláttur. Frjettir. 20.30 Háskólafyrirlestur. (Árni Pálsson, prófessor). 21.00 Ó- pera: Rigoletto, eftir Verdi (1. og 2. þáttur). Aðalfundur Verslunarmannafje- lagsins Merkúr verður haldinn í kvökl kl. 8V2 í K. R. húsinu, uppi. Hefir annar aðalfundur verið liald- inn í ár, en þar sem hann var ekki nógu fjölmennur til þess að upp- fylla skilyrði í lögnm fjelagsins þá er þessi fundur haldinn, sem er löglegur hversu margir sem koma. Eru fjelagsmenn mintir á þetta sjerstaklega og vonar stjórn fjelagsins að þeir fjölmenni á fnndinn, þar sem til umræðu og atkvæða verða mörg mikilsverð mál. Stjórn fyrir fjelagið verður og kosin á fundinum. fslenska málverkasýningin í Ósló verður opnuð íá morgun. Segir í norskum útvarpsfregnum að Há- kon konungur ætli að vera þar viðstaddur. Scotland Yard. Nú er komin í bókaverslanir bókin eftir Joseph Gollomb um Scotland Yard, í þýð- ingu Magnúsar Magnússonar rit- stjóra Storms. Þetta eru sannar sögur, telcnar upp úr dagbókum Þegar út úr fljótinu kemur byrjar „Maroni“ að hoppa og skoppa alveg hræðilega. Það er blæjalogn en mikil undiralda. Nú er líka rigningartínu. og hver hellidemban eftir aðra skell- ur á skipinn. Vjer verðnm undir eins gegndrepa og skjálfum af kulda. — Þannig líður nóttin. Fyrst í stað klæddum vjer oss úr hverri spjör eftir hvert úrhelli og undum fötin, en brátt gáfumst vjer upp við það, því að það var alveg þýðingarlaust. — Undir morgun kom maður nokkur upp á þiljur. Það lagði af honum laukþef og óhreininda. Þetta var matreiðslu- maður skipsins. Með því að láta hann fá önnur stígvjelin mín, fekk jeg hjá honum einn bolla af heitu kaffi. Skömmu eftir klukkan fimm, rjett þegar var að birta, risu þrjár smá- eyjar úr hafi. Það eru „Iles du Salut“ eða Kveðjueyjarnar, sem er of fagurt nafn fyrir þessi sandkorn, sem úthafið hefir gleymt að gleypa. Ein af þessum eyjum, sem er beint fram nndan oss, er Djöflaey, þar sem BRID6E- spilaborð skínandi falleg og ódýr. Hnsgagnaversl. við Dómkirkjnna Toppasyknr Púðnrsyknr Skrantsyknr lögreglunnar í stórborgum. Norð- urálfu, um viðureign hennar við ýmsa slinga afbrotamenn. Flestar eru þær svo spennandi, að þær taka ölluin skáldsögum fram. Má t. d. benda á frásögnina um Hugo Breitwisser, afburða hugvitsmann, er kominn var af gömlum og góð- um ættum, naut í æsku allrar þeirrar mentunar sem hægt var að veita. En. setti sjer síðan það tak- mark að jafna anðnum milli ríkra og fátæka. „Og þúsnndir fátækra fjölskylda í Vínarborg lofuðu, guð og gefandann.“ En lögregl- unni tókst þó áð lokum að finna,; hann eins og fleiri. X. Á stefnr.moti. Unglingspiltur hafðí: msélt sjer mót með blómarós á götu- horni. Hann var stundvís. Hún ekki. Hann beið. Hún kom, seint og síðar meir, önugy og segir: „Og svo ertu ó- rakaður í tilbót“. — „Jeg var nýrak- aður þegar jeg kom“, sagði pilturinn- Þrjár miljónir manna eru nú atvinnulansar í Þýskalandi,. og njóta einskis styrks eða bjargar frá ríki eða sveitarfjelögum. Frakkar geyma „fórdæmda“ menn,. og þar sem jeg á nú bráðum að fara.. í land. Skamt þaðan er eyjan St. Joseph. Þar er tugtbús, og þar er refsað þeim föngum, sem eitthvað hafa brotið af' sjer í fangavistinni og þar með þyngt refsingu sína. Á þriðju eynni, sem heitir Royal, eru byggingar umsjónar- manna fanganýlendunnar. — Þar eru geymdar allar lífsnauðsynjar, þar er sláturhús og brauðhús. Allar eyjarnar þrjár eru um 50 hektara að stærð. Vjer fangaynir þyrpumst út að há- stokk skipsins og störum á Djöflaey. Fyrst er krækt fram hjá henni og þá eru hinar eyjarnar, St. Joseph og Royal framundan, en Djöflaey hverf- ur að baki þeim. Skipið staðnæmist og ferja kemur út að því. Sex menn ■sitja. undir árum. Þeir eru með flatar fangahúfur á kollunum. Vjer hinir tíu „fordæmdu“ erum reknir niður í ferjuna. í henni eru líka tveir al- vopnaðir „Surveillants“, fangaverðir, og yfirumsjónarmaður sténdur í fram— stafni ferjunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.