Morgunblaðið - 24.11.1932, Blaðsíða 3
MORGUNBLA'£>IÐ
JPftorgutiHaMft
í Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Ritstjórar: Jón Kjartansson.
Valtýr Stefánsson.
Ritstjórn og afgreiSsla:
Austurstræti 8. — Simi BOO.
Auglýsingastjörl: E. Hafberg.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Simi 700.
Heimasimar:
Jón Kjartansson nr. 742.
Valtýr Stefánsson nr. 1220.
E. Hafberg nr. 770.
Áskriftagjald:
Innaniands kr. 2.00 á mánuBl.
Utanlands kr. 2.50 á mánuOl.
1 lausasölu 10 aura eintakiB.
20 aura meS Lesbök.
Strandið fy;ir vestan.
Óðinn bjargar skipinn.
Skömmu eftir að Óðinn fann
>«nska togarann Fiat, sem strand-
aði hjá Kóp, voru skipverjar úr
‘togaranum fluttir frá borði og
yfir í Óðinn til vonar og vara.
Þetta var seint í fyrrakvöld í
nátthríð og myrkri. Togarinn mun
hafa legið innanvert við Kópsnesið
'Og í vari.
Kl. rúmlega 3 í fyrri nótt. tókst
Óðni að draga skipið af grunni.
Ætlaði hann þá að draga það í
betra var, sennilega inn á höfn
í Tálknafirði, og láta kafara sinn
skoða þar botn skipsins. Eftir þá
skoðun skyldi ákveðið hvort Óð-
inn færi með skipið til ísafjarðar
eða Tteykjavíkur.
Sennilegt er, að togarinn hafi
ekki verið mikið brotinn, því að
mjög lítill leki hafði komið að
honum.
Talsverður fiskur er í togaran-
um. Enskur togari, sem hjer er,
símaði vestur í gær til skipstjór-
ans á Eiat og spurði hvort hann
•ætti ekki að bíða eftir honum hjer
til þess að taka úr honum fiskinn.
Fekk hann það svav aft.ur, að
ákveðið væri að koma hingað til
7’eykjavíkur.
Skipkerra á Óðni núna er Frið-
rik Ólafsson.
Fiat er frá Grimsby.
í gærkvöldi kom skeyti um að
bæði skipin væri á leið hingað.
Eftir ósk Lloyds fer fram ný botn-
skoðun á Fiat hjer og viðgerð
vsvo að öryggi skipverja sje borgið.
Bmni í Slglufirði.
Siglufirði FB 23. nóv.
Eldur kom upp um tvöleytið í
nótt á trjesmíðaverkstæði Guðm.
•Tóakimssonar, Grundargotu 15. —
Líkur benda til, að kviknað hafi
út frá rafmagni. Húsið var járn-
klæddur t.imburskúr. Brann hann
svo að rífa. verður. Trjesmíðavjel-
ar, nýlegar, eyðilögðust, einnig
nokkuð af smíðatólum og hálf-
smíðuðum húsgögnum, því ekkert
náðist út úr verkstæðinu. Slökkvi-
liðinu tókst skjótlega að slökkva.
Logaði þó alt verkstæðið innan.
er ]rað kom á vettvang. Hús og
vjelar var vátrygt fyrir 7000 kr.
hjá Sjóvátryggingarfjel. íslands,
en smíðatól og smíðisgripir munu
hafa, verið óvátrygt.
Norðan hríðarveður. Talsvert
frost.
Nýi Slippurinn. Bvíist er við að
hann geti tekið til starfa eftir
tíu daga.
Samsteypustjórnin.
Þegar það vitnaðist í vor, að
Sjálfstæðisflokkurinn og meiri
hluti Framsóknarflokksins hefðu
tekið höndum saman til myndunar
samsteypustjórnar, mæltist það
misjafnlega fyrir. Ymsir menn úr
báðum flokkum voru talsvert óá-
nægðir, en um þingflokkana eða
þingmenn flokkanna er það að
segja, að allir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins studdu samsteypu-
stjórnina, en fáeinir þingmenn
Framsóknarflokksins skárust úr
leik og vildu engu eða' htlu lofa
um fylgi. Forsprakki þeirra var
Jónas frá Hriflu, en samt sem áð-
ur hafði hin nýja stjórn öflugri
meiri hluta bak við sig en títt er
nm stjórnir.
Samsteypustjórnin hefir nú set,-
ið að völdum hjer um bil missiri.
Hjer er ekki tilætlunin að meta
eða gagnrýna gerðir hennar. Sjálf
sagt má segja ýmislegt til með-
mæla og ýmislegt til andmæla
verkum hennar.En það er eftirtekt
arvert, að eftir fregnum að dæma
víðs vegar að utan af landi, eru
menn yfirleitt ánægðir við stjórn-
ina og þess fegnir, að Jónas frá
Hriflú. er farinn úr valdasessi.
Það er enginn efi á, að landsmenn
voru orðnir sárleiðir á þeim ófriði,
sem af þessum manni stafaði. Þeir
óttuðust hina. hræðilegu liefnigirni
hans og fordæmdu fjársukk hans
að maklegleikum. Landsmenn urðu
fegnir friðinum. Þeir fundu, að
eina líklega leiðin til að sigrast á
erfiðleikum yfirstandandi kreppu-
tíma var að standa saman sem
flestir.
Það er engin þörf á að iýsa
erfiðleikunum nú. Þeir berja að
livers manns dyrum oft og þung-
lega. Allir vita því, að þeir sem
í landstjórn eiga sæti nú hafa
erfitt hlutverk nieð höndum og
eiga ekki sjö daga sæla. Fjár-
skortur, verðhrun og atvinnuleysi
steðja alstaðar að og allra leiðir
hljóta að liggja til landsstjórnar-
innar til þess að fá úr bætt. ef unt
væri. En ríkissjóðurinn er fátæk-
ur. Tekjur lians bregðast vegna
innflutningshafta og illrar afkomu
atvinnuveganna. Og ekki eru til
óevddir sjóðir frá fyrri árum eins
og oft hefir verið bent á.
Á krepputímum eru miklar kröf-
ur gerðar til stjórnanna, en þá er
einmitt erfiðast að uppfylla kröf-
urnar. Sú stjórn, sem getur á
krepputxmum aflað sjer vinsælda
og haldið þeim, hlýtur að hafa
eitthvað til brunns að bera. Það
er viðurkent, að haturs-, hefnda-
og eyðslustjórn Jónasar frá Hriflu
á undanförnum árum, bætir stór-
kostlega fyrir núverandi stjórn,
því að ósjálfrátt hljóta þær að
vera bornar saman. Vinsældir þær,
sem samsteypustjórnin óneitanlega
nýtur, eru að sjálfsögðu að miklu
leyti fyrir það, að hún hefir kast-
að fyrir borð stjórnarskútunnar
þeim ókindum og ódygðum, sem
Jónas frá Hriflu bafði í skut og
stafni meðan liann rjeði lögum
og lofum innan borðs. Auðvitað
styður það og stjórnina geisilega,
að langstærsti flokkur landsins,
Sjálfstæðisflokkurinn, st.yður hana
með rá.ði og dáð. En sjálfsagt á
hún og sjálf þátt í vinsældum sín-
nm, meiri eða minni. Og margir
láta hana lilutlausa vegna þess að
þeir búast við, að hún leysi það
málið ,sem einna stærst er talið,
kjöi dæmamálið.
Það má segja, að Sjálfstæðis-
flokkurinn styðji stjórnina ein-
liuga, þótt hann sje þar í minni
hluta. Hið sama verður ekki sagt
um Framsóknarflokkinn, þótt
liánn hafi meiri hluta stjórnarinn-
ar. Framsóknarflokkurinn er tal-.
inn ráða yfir 2 þlöðum, Tíiffanum
og Degi. Bæði þessi blöð hafa frá
því samsteypUstjórnin tók til
starfa elt Sjálfstæðismanninn í
stjórninni með hinum ægilegustu
svívirðingum. Blaðastyrk handa
samsteypustjórninni leggur Fram-
sóknarflokkurinn því ekki til.
Hins vegar hafa blöð Sjálfstæðis-
flokksins yfirleitt sýnt stjórninni
vinsemd og gera eflaust meðan
hún brýtur ekki iaf sjer í veru-
legum atriðum. En því verður ekki
neitað. að þessi afstaða er undar-
leg og til frambúðar óþolandi.
Framsóknarmenn geta tæpast bú-
ifý. við, að Sjálfstæðismenn leggi
til mann í stjórnina með þeim
sldlmálum, að hann eigi einn að
standa fyrir skotum Framsóknar-
blaðanna, svívirðingum þeirra og
upplognum sakargiftum. Og hvern
ig eiga kjósendur Framsóknar-
manna að átta sig á þessu. Þeir
hljóta að verða alveg áttaviltir.
Það má segja, að þetta sje inn-
byrðis mál Frantsóknarflokksins,
en meðan samsteypan helst hefir
þó Sjálfstæðisflokkurinn fullan
rjett til að átelja þetta, harðlega.
Flestum kjósendum landsins
mun vera það kunnugt hverjir
þeir Framsóknarmenn voru, sem
á síðasta þingi spyrndu fæti við
samvinnu hinna stóru landsmála-
flokka. Þeir voru fáir og for-
sprakki þeirra var Jónas Jónsson.
Þá séx mánuði, sem síðan eni
liðnir, hefir hann notað rækilega
til að rægja og ófrægja þessa sam-
vinnu, sem er gerð til þess að
reyna með sameiginlegu átaki að
verjast áföllum kreppunnar. Hann
hefir ferðast um landið þvert og
endilangt til þess að ná
sínu marki. Hvárvetna prjedikar
hann ófrið. Hvarvetna svívirðir
hann Sjálfstæðismenn og tranar
sjálfum sjer frám. Hann getur
ekki glevmt því. að hans eigin
flokkur sparn við honum fæti, svo
að hann varð að liröklast úr
valdasessi. TTm alt þetta kennir
hann Sjálfstæðismönnum, en hann
gæt.ir þess ekki, að það eru hans
eigin verk, sem hafa valdið þessn.
Hann hafði verið ráðherra í nærri
5 ár og þá var hans eigin flokkur
biíinn að fá svo nóg af honum,
að í hans stað var settur í stjórn-
ina utanþmgsmaður, óvanur stjórn
arstörfum, þótt, að öðru leyti sje
hann mörgum kostum búinn.
Vitanlegt er. að þótt Jónas
Jónsson kenni ófarir sínar Sjálf-
stæðismönnum, þá finnur hann vel,
| hvaðan aldan kom. sem skolaði
honum úr valdastólnum. Og það
er auðsjeð af atferli hans hvert
hann stefnir. Það sem fyrir honm
vakir er að sundra. Hann vill ekki
beygja sig fjrrir hinum mikla
meiri hluta flokks stns. sem á síð-
astliðnu vori hjálpaði til að koma’
á fót samsteypustjórninni,. Hann
t *
ferðast um bygðir landsins til
þess að vinna á móti því, er mikill ]
meiri hluti haus eigin flokks hefir'
ákveðið.
Trýggvi Þórliallsson fyrv. for-
sætisráðþerra liefir í sumar ritað
fáeinar greinar um samsteypu-
stjórnina og' er liann henni vin-
veittur. Tíminn hefir birt þessar
greinar, en með liinni mestu ólund
og þannig, að sem minst bæri á.
Eina slíka grein hefir hann ritað
í síðasta hálf-„Tíma“ og mælir
liann þar eindregið með samvinnu
milli hinna stóru stjórnmólaflokka,
en í sama blaði er þessi grein Tr.
Þ. íifin og tætt sundur og alt gert
til að spilla samvinnunni. Ekki er
hægt að hugsa sjer greinilegri voit
en þetta um liin tvö andstæðu öfl
innan Framsóknarflokksins. En
um leið og' þessa er getið ber og
að geta þess. að það er alveg víst,
að hið sundrandi afl er miklum
mun liðfærra i flokknum. Ófrið-
arstarfsemi Jónasar frá Hriflu
liefir lítinn byr. Fylgið hrynur af
honum daglega og snikjudýrin
skríða af honum eins og lýs af líkiv
*
Lanöbúnaðurmn.
Álit prófessor Weis um
ræktunarskilyrði hjer á
landi.
f tilkynningu frá sendiherra
Dana í gær segir svo:
Eftir áskorun Metúsalems Ste-
fánssonar búnaðarmálastjóra, hef-
ir prófessor Weis sent honum álit
sitt um ræktunarskilyrði á fs-
landi, og mun það birtast x Bún-
aðarritinu.
Rannsóknir Weis prófessors
sýna það, að jarðvegur á íslandi
stendur ekki að baki svipuðum
jarðvegi í Miðevrópu og á Norð-
urlöndum, um næringarefni fyrir
gróður. Hann er að vísu dálítið
fátækari að fosforsýru. og sjer-
staklega kali, en auðugri að kalki.
Jarðveginum hættir ekki til þess
að súrna. Köfnunarefnisinnihald
jarðvegs er furðu mikið. Það má
því segja að hinn íslenski jarð-
vegur sje ágætur.
Tíu sýnishorn, sem tekin voru
eftir nýjum aðferðum, sýna það,
að íslenskur jarðvegur þarfnast
ekki kölkunar eða merglunar, er
annars staðar er nauðsynlegt skil-
vrði fyrir því að ræktun og garð-
yrkja geti gefið fullan arð. Eins
og íslenski jarðvegurinn er. ætti
þar að vera skilyrði fyrir mjög
miklu gerlalífi. Hið mikla köfn-
unarefni er auðsuppspretta, ef
hægt er að levsa það úr læðingi,
en það er enn óráðin gáta hvernig
sxi þraut, vinst best.
Brófessorinn bendir sjerstaklega
á Korpúlfsstaðabúið. sem talandi
tákn þess hvað hægt er að fram-
kvæma þegar vísindi og reynsla
haldast í hendur. Hann leggur
það til að tiinræktinni verði hagað
á, heppilegri hátt en áður. að
bændur hafi fleiri kýr, auki svína-
rækt og mjólkurbúa starfrækslu.
Hjálpræðisherinn. t kvöld kl. 8
verða hljómleikar og ýmsar sýn-
ingar. Aðgangur 50 au. Annað
kvöld samkoma „Andleg uppbygg
ing“. AHir velkomnir.
Hið frumlega jafnvægis
To To
rent úr einu stykki, er
hægt að læra alla
Yo—-Yo töfra
með, fyrir samkepnismótið
Hljöðfærahðsið,
Austurstræti 10.
A11 a b n ð,
Laugaveg 38.
„Dettiioss“
fer í kvöld klukkan 10 um Vest-
mannaeyjar til Hull og Hambory-
ar. — Farseðlar óskast sóttir fyr-
ir klukkan 2 í dag.
, .BrnarÍGSs"
lestar freðkjöt á norður- og aust-
urlandi til London í byrjun des-
ember. Þareð hraða verður ferð
Brúarfoss, þá fer hann hjeðan
beint til ísafjarðar og norður um
land. — Goðafoss sem fer hjeðap
29. þ. m., kemur við á öllum vi8-
komustöðum Brúarfoss á Breiða-
firði og Vestfjörðum í norðurleið.
0.8. lsland
fer sunnudaginn 27. þ. mán.
kl. 6 síðdegis til Ísafjarðftí,
Siglufjarðar, Akureyrar. —
Þaðan sömu leið til baka.
Fylgibrjef og vörur þurfa
að koma fyrir kl. 3 á laug-
ardag.
Farþegar sæki farseðla á
morgun og laugardag.
Skipaafgreiðsla
Jes Zlmsen.
Tryggvagötu Sími 26.
Ðlómasúlur,
Spilaborð
og fleira nýkomið. ódýrast
í bænum.
Húsgagnaverstunki
við
Dómkirkjuna.