Morgunblaðið - 25.11.1932, Síða 3

Morgunblaðið - 25.11.1932, Síða 3
MORGUNBL A"5'IÐ SEasaggss^aaaBÆaEsssaBSBiag JflorgttttMatofc ÍJtgef.: H.f. S-rvakur, Reykjavlk. Ritstjórar: Jón Kjartansson. Valtyr Stefánsson. Ritstjörn og afgreiiSsla: Austurstræti S. — Simi 500. Auglýsingastjórj: E. Hafberg. Auglýsingaskrifstofa: Austurstræti 17. — Slmi 700. Heimaslmar: Jón Kjartansson nr. 742. Valtýr Stefánsson nr. 1220. E. Hafberg nr. 770. Áskriftagjald: Innanlands kr. 2.00 á mánuBi. Utanlands kr. 2.50 á mánuTil. 1 lausasölu 10 aura elntakiö. 20 aura metS Lesbók. Úlleadar frjettir. Frjettastofa útvarpsins, 24. nóvember. Banniö í U. S. A. Bannið mun koma tií umræðu í þingi Bandaríkjanna í byrjiui des- ember í tilefni af því að nefnd, sem skipuð hefir verið til að at- 'huga bjórskatt, mun skila áliti •sínu. — Telja -menn að nefndin muni vilja leyfa bruggun áfengs öls, en þá muni að minstu kosti s.jö ríki í Bandaríkjitnum fara fram á að. ljett vín verði leyfð. Frá frlandi. Aðstaða de Yalera í írlandi er talin hafa versnað upp á síðkast- iÓ. •— írskir bændur berjast á móti stjórn lians og nú hafa járn- brautarembættismenn örfað til baráttu gegn stjórninni sökum þess að hún hefir farið fram á lækkun á launum embættismanna. Auðug gullnáma fundin. f Venezuela hefir nýlega fundist óvenju auðug gullnáma í miðjum frumskógunum og hafa gullnemar þeir, sem fundu hana, unnið úr henni 800 kg. af gulli á skömmum tíma. — Stjórnin í Venezuela hefir "gert út nefnd til þess að athuga gullfundinn. Innflutningshöftin í Englandi. Enski búnaðarmálaráðlierrann var spurður í neðri málstofu enska þingsins í dag hvaða áhrif ráðstaf- anirnar til innflutningshafta á kjöti hefðu Iiaft. eða mundu hafa. Hann svaraði því, að allar ráð- stafanir til þess að reyna að hafa áhrif á verðlagið hlytu aðeins að vera bráðabirgðaráðstafanir. En það sem nú þegar hefði verið gert, hefði haft þau áhrif að stöðva verðlækkunina heima fyrir, og jafnvel hækka verðið á ýmsum lijöttegundum. Tollstríð Breta og fra. frska fríríkið hefir ákveðið að leggja innflutningstolla á kart- öflur og lifandi blóm frá Bret- landi og Norður-írlandi. Tollur- inn nemur einni guineu á hverj- um hundrað pundum á kartöflum •en 6 pence á pundinu á blómin. (Tlannalát. Nýlega eru látnir tveir merkir bændur í Borgarfirði: Guðmundur Sigurðsson bóndi að Sigmundarstöðum í Háls^hreppi varð bráðkvaddur hinn 20. þ. mán. Snorri Þorsteinsson, bóndi að Laxfossi andaðist 22. þ. mán. eftir langvarandi vanheilsu. Hann var bróðir Kristleifs bónda á Stóra- Kreppi. 5ílöarmál Rlþýðublaðsins. Langt er síðan að nijer datt í hug að senda fáeinar línur til sanngjarnra manna, um það eilífa stag Alþýðublaðsins, um „mæli- ker“ h.f. „Kveldúlfs“, en svo kom hvíld, svertan var þrotin, og jeg sem altaf les Alþýðublaðið, var náðaður frá því að lesa meira af þessum þvættingi, og glaður var jeg. En nú er Alþýðublaðið byrjað aftur, og þess vegna vona jeg að mjer sje ekki af almenningi lagt það ti-1 lasts, þó jeg sendi þessar örfáu línur til almennings. Jeg hefi sjálfur verið við nokk- uð yfirgripsmikla síldarfram- leiðslu, kaup og sölu á bæði nýrri síld og saltaðri. Enginn skal hugsa það, að jeg hafi ekki bæði sem kaupandi og seljandi af nýrri síld, komist í þrætur út af „mál- inu“. Mest bar því við síldar- kaupmann Baekevig, sem er að vísu dáinn. Jeg seldi honum síld, sem var mækl í parti af síldar- tunnu (stömpum) eins og þá gerð- ist. Kaupandi heimtaði málið topp- mælt og bar það fyrir sig að ekki kæmi alt upp á bryggjuna sem í málið væri látið um borð, eins og rjett er, því þegar halað er upp með eimvindunni, með hraða, eins og ætíð er gert, kippist mælikerið snart við og hallast og lirekkur þá vanalega all drjúgt úr stamp- inum, svo rekst það á leiðinni í fiskikassa, skjólborð skipsins og annað sem fyrir er, og við hvern árekstur fer eitthvað út úr, sem eftir verður í skipinu og sem aftur er mælt. í þá daga þektist lítið annað en geyma síldina á dekki, en nú, þar sem síldin er einnig látin í lest, mun bera enn meira á því sem fer í siiginn, þar sem ílát- in munu að sjálfsögðu rekastíum- gjörð hinna litlu opa á lestunum, og mun það oft ómælt eða. ótalið hvað mikið hrynur niður í lestina aftur, og kemur seljanda til inn- tekta. Jeg skal í þessu sambandi skjóta því til almennings, hvort það sje undir svona kringumstæð- um nokkurt aðalatriði hvort ílátið gem mælt er í sje einum eða tveim- ur lítrum of stórt, ef kaupandi ekki fær í sínar hendur meira en honum ber eftir kaupsamningi. — Jeg fann á sínum tíma ráð við slík- um ágreiningi, og voru báðir aðilj- ar ánægðir. Galdurinn var sá, að við bjuggum til mæliker sem tók mikið meira en til var . skilið, mældum svo frá botni upp í ílátið, nákvæmlega sem það átti að skila kaupanda í lítra tölu, settum svo sveig innan í ,,málið“ nákvæmlega þar sem síldin átti að mælast til, og voru þá hjer um bil fimm þuml- ungar fyrir ofan hringinn. Með þessu móti fekk kaupandi það sem honum var mælt, og hvorki meira nje minna, því nú fór ekkert út úr ílátinu af því það var ekki fult þegar það fór á stað. Hýort sem það er h.f. „Kveld- úlfur“ eða einhver annar. sem kaupir síld eftir nákvæmu máli, sem mælt er niður í skipi og á eftir að halast upp og alla leið upp á bryggju, þá er jeg viss um að allir þeir, sem sjeð hafa þessi vinnubrögð, eða hafa meðal þekk- ingu til slíkra hluta, munu sann- I færast um að „ekki komast öll kurl til grafar“. Með línum þessum er það ekki ætlun mín að sannfæra þá sem ekki vilja sjá nema svörtu hliðina á því er andstæðinga þeirra snert- ir, heldur sendi jeg þetta til al- mennings til athugunar, þar sem jeg’ þykist vera nokkur „fagmað- ur“ á þessu sviði og lít þa.nnig á að aðalatriðið sje það að seljandi ekki græði á því að atvik komi honum í vil á kostnað kaupanda, heldur að hvor fái sitt eftir kaup- samningi, jafnt. hvort það er síld eða korn sem vérslað er1 með. Reykjavík í nóv. 1932. Hjalti Jónsson. Úrræðalevsisvinna og biargrðð. Dag eftir dag og viku eftir viku hefi jeg vænst þess að lieyra eða s.já hina mentuðu leiðtoga þjóðar vorrar benda á leið frá þeim vand- ræðuim sem atvinnuleysið skapar, en ennþá hefi jeg ekki orðið var annars en úrræðaleysisvinnu þeirr- ar er bærinn lætur í tje. Flestir munu sammála um, að óhyggilegt sje að festa það litla fje sem þjóðin hefir handbært í óarðberandi vinnu eins og nú á sjer stað, því það hlýtur óhjá- kvæmilega að enda með því, að ekkert verði til að vinna fyrir. Mjer skilst hin svokallaða kreppa sýna okkur að eitthvað sje ábóta- vant atvinnurekstri okkar, og ligg ur þá beinast við að verja því fje sem fyrirtækin hafa gefið í afgang —það er bæja- og ríkisgjöld — til endurbóta á þeim atvinnu- rekstr’i sem fyrir er, eða til st.ofn- unar nýrra atvinnufyrirtækja sem veittu arðberandi atvinnu til fram- búðar. f þetta skifti leiði jeg hjá mjer ao skrifa um þann atvinnurekstur, sem fyrir er, en leyfi mjer að vekja eftirtekt manna á atvinnu- greinum sem við gætum og ættum að stunda með góðum árangri. Emmitt það, að aðalatvinnuvegir okkar eiga örðugt, ætti að kenna okkur að líta í kringum okkur eftir öðrum atvinnumöguleikum, og þá fyrst á þeim sviðum, sem innflutningur okkar er mestur. Við flytjum inn steinlím (cem- ent) fyrir hundruð þúsunda ár- lega, það er erlendur gjaldeyrir, en hjer í nánd við bæinn er ágætis efni i steinlím, og ekki vantar hendur til að vinna það. f Esjunni eru kalklög, leirlög með ca. 60% og kalksteinn alt að 96% kalk, sannanlega eitthvert besta kalk sem hjer hefir verið notað. Til- raunir hafa verið gerðar til vinslu á því, en þær hafa lítinn árangur borið, í fyrra skiftið vegna flutn- ingavandræða aðallega, í síðara skiftið vegna vanþekkingar og kjarkleysis. Vil jeg bera það und- ir háttvirta bæjarbúa, hvort þeim fyndist ekki hinu svokallaða at- Vinnubótafje betur varið til stofn- unar slíku fyrirtæki. Jafnvel þó þa misheppnaðist. Gæt.i komið til mála, að einstaklingar stofnuðu fjelag og bærinn legði fram helm- ing fjárins sem áhættufje, á ein- hvern hátt. sem háðir gætu vel við unað. Til flutninga mætti nota járnbraut hafnarinnar. Við kaupum salt fyrir miljónir króna — erlendan gjaldeyri — en sjórinn hjer er saltríkur eins og á Spáni, sólarhiti er minni hjer, en við höfum jarðhitann í staðinn. Hjer í Reykjavík stendur stein- steypukassi einn mikill, sem kall- aður er sundhöll, þó fáir hafi laug- að sig þar, fram hjá honum rennur heitt vatn í skolpræsi til sjávar, engum að gagni. Komið hefir til orða að leggja sjóleiðslu sunnan úi Skerjafirði að þessari höll, að- eins til að menn gæti sagt að þeir hefðu laugast úr sjó. Væri okkur þá ofvaxið að dæla sjó þangað, útbúa skilvindu sem gæti skilið saltið úr sjónum og notað síðan heita vatnið til að þurka leðjuna' sem kæmi frá skilvindunni, og framleiða salt? Hygg jeg að at- vinnubótafjenu væri þar ólíkt betur varið. Bændur fá styrk fyrir þúfna- sljettun og hlandforir, og lán til luisabygginga, sem þeir rísa ekki undir vegna kaupgetuleysis kaup- staðarbúa, og stöðugt gala þing- menn og blöðin um að auka land- búnaðinn og það er biiið að berja þetta svo inn í þjóðina, að margir efnamenn í Rvík eru farnir að leggja fje sitt í landbúnað. En er ekld framleiðsla á landbúnaðaraf- urðum nægjanleg — önnur en gai'ðrækt? — Alveg áreiðanlega. Hvaða gagn er að því fyrir bónda sem hefir 15 manns í heimili að framleiða handa 30 ef enginn get- ur keypt ? Hann mætti brenna af- ga.nginum eins og Ameríkumenn hafa gert. Það vantar ekki að fram leiða meira af kjöti óg ull. Það vantar að geta selt það sem við framleiðum. Við verðum að gera atvinnuvegi okkar fjölbreytt- ari og tryggari, og þá fyrst að not- færa okkur markaðinn innanlands, og vinna sjálfir úr þeim hráefnum sem til eru í landinu og framleiða snyitilega og vandaða vöru. Til dæmis væri bændum meiri styrkur að því áð fje því sem varið er í allskonar styrki fyrir þúfnasljett- un, til búnaðarfjel. og fleira, væri varið til kaupa á fullkomnum tækjum til klæðagerðar, svo bænd um jrnði eitthvað úr ullinni. Feg- urðartilfinning íslendinga er það fáguð orðin að það þýðir ekki að bjóða þeim rudda. Við eigum ekki að kaupa úrelt tæki sem aðrir eru að leggja niður af því þau eru ekki samkeppnisfær og fullnægja ekki kröfum t.ímans. Þó við fáum þau ódýrt sem kallað er, en sem venjulega verður dýrast. Við skulum hugsa okkur heimili. Það er komið að matmálum og eitt barnið er sent eftir brauði, á leiðinni hittir það kunningja sína og fer að leika sjer, brauðið gleym ist og þegar það loks rankar við sjer, er biiið að loka brauðbúðum svo brauð fæst ekki það kvöldið. Barnið er ávítað fyrir kæruleysið. — En þjóðfjelagið — fulltíða fólk er alveg eins, við byggjum leik- hús, en rannsóknarstofa í þágu at- vinnuveganna á hvergi inni, og þjóðin líður skort fyrir óhagnýta mentun og söngfuglalíf. Ef við værum ekki orðnir eins kvektir og við erum á meðferð sjóða — þeir verða flestir nolck- nrskonar skepnuhús — þá skyldi jeg bera fram tillögu um að tekju- skattur atvinnnfyrirtækja rynni í sjerstakan sjóð til stofnunar nýj- um atvinnugreinum og rannsókna í þágu atvinnuveganna. Þjóðfjelag okkar er eins og skip sem hefir brotnað í stórsjó og orðið lekt, mannskapurinn heldúr að sjer liöndum og býður eftir að skipið verði heilt af sjálfu sjer, en er ekki nær að halda að það sökkvi, ef þessu heldur áfram? Árni Árnason. ðr rfkí söslalistanna í Hafnarfirði. Fyrir stuttu tilkyntu sósí- alistar í Hafnarfirði lögtak á ó- greiddum bæjargjöldum. Meðal annara hringdu þeir upp velmét- inn borgara og tilkyntu honum að lögtak jn-ði tekið hjá hontim innan þriggja daga, ef hann ekki borgaði innan þess tíma. Var það allhá upphæð, sem hann átti að greiða, eða rúmar 12000 krónur. Tjáði liann sósíalistum að hann mundi gera full skil innan hins ákveðna tíma. Þessi fregn — um þessa stóru greiðslu — flaug eins og eldur í sinu um bæinn, og vildu maírgir verða til að hremma aur- ana — upp í kröfur sínar á bæ- inn — strax og þeir kæmu á gjaldkeraskrifstofuna. Á tiltekn- um tíma kom borgarinn til að greiða gjöld. sín. Var þá kominn múgur og margmenni á skrifstof- una, svo varla var þverfótað, til þess að n,á í eitthvað upp í kröf- ur sínar. Borgarinn hafði með sjer mann er hjelt á stórri skjalatösku er allir hjeldu vera úttroðna af peningum. Ráku þá allir viðstadd- ir upp stór augu og hugðu nú gott til glóðarinnar. Er borgarinn hafði mjakað sjer inn úr mann- þrönginni, að borði gjaldkerans, opnaði hann hina ferlegu skjala- tösku og dró upp úr henni bunka mikinn af ávísuðum reikningum á bæinn, suma frá 1930, og sagði gjaldkera að telja saman upphæð- ina á reikningunum, og þegar það hafði verið gert, vantaði aðeins 28 kr. á að full greiðsla á rúmum 12000 kr. væri int af hendi, og greiddi borgarinn þær vitanlega samstundis. Er hjer var komið sló óhug miklum og ótta á mannfjöld- ann, sem beið eftir greiðslum, og ruddist hann samsfundis á dyr, og sagði farir sínar ekki sljettar. VSýnir þessi smásaga greinilega fjárhagsástand Hafnarfjarðar und ir stjórn sósíalista. Málafærslan í Haag. (Tilkynning frá sendiherra Dana). Forseti alþjóðadómstólsins í Konstantinopel, N. V. Boeg hóf málfærsluna í Haag fyrir Dana. hönd. Gaf hann yfjrlit um land- hætti á Grænlandi og lífskjör Skrælingja, sem eru eingöngu und- ir veiðum komin. Grænland yrði að teljast sem ein heild. Náttúran gerir það nauj synlegt að íbúarnir flytjist úr einum stað í annan. Vegna Græn- lendinga sjálfra verði því alt Grænland að Júta sömu stjórn, en þó hafi Danir leyft framandi veiði mönnum að vera þar, sem Skræl- ingjum er ekki bagi if.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.