Morgunblaðið - 18.01.1933, Page 3
MORGÖNBLAÐ.Ð
9
•m
i
IRorptiby^
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk.
Rltstjörar: Jön KJartansson.
Valtyr Stefánsson.
Rltstjörn og afgrelBsla:
Austurstrætl 8. — Slml 1600.
AuglýsinKastjöri: E. Hafberr.
Ausiyslngaskrlfstofa:
Austurstræti 17. — Slml 3700
Helmaslmar:
Jön Kjartansson nr. 3742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
E. Hafberg nr. 3770.
ÁskrlftaKjald:
Innanlands kr. 2.00 & mánuBl.
Utanlands kr. 2.50 á mánuBl.
1 lausasölu 10 aura elntaklB.
20 aura meB Lesbök.
Fjármagn.
Nokkrir menn, sem leynt eða
Ijóst aðEyllast niðurrifskenningar
sósíalista, hafa tekið sjer fyrir
hendur að ala upp þann misskiln-
ing meðal almennings, að peninga-
•eign einstakra manna kæmi eig-
•endunum einum að gagni; og
þjóðarheildinni, almenningi væri
það jafnvel skaðlegt og til tjóns,
nð einstöku mönnum græddist
fje, svo þeir yrðu sæmilega efnum
’húnir, og aflögu færir.
Yitaskuld geta menn varið fje
sínu og eignum mjög mismun-
Rndi vel fyrir sig og aðra. En
hvernig sem á málið er litið er
vandfundin leið til einstaklings-
notkunar eða meðferðar á fje,
sem eigi kemur almenningi að
gagni.
Tökum dæmi: Maður eignast f je
umfrarn daglegar þarfir sínar. —
Hann leggur fjeð í sparisjóð. —
Sparif je landsmanna er undirstaða
atvinnuvega vorra. Fjeð er lánað
út í atvinnufyrirtæki til fram-
leiðslu. Þeim mun meira sparifje
sem þjóðin á, þeim mun minna
þarf hún að sækja til útlanda,
þeim mun óháðari eru íslenskir at-
vinnuvegir öðrum þjóðum, því
sjálfstæðari er þjóðin.
En nú vill fjáreigandinn ekki
leggja fje sitt í sparisjóð til al-
mennings þarfa. T(ann vill nota
það sjálfur, til atvinnureksturs t.
d. Þá veitir hann atvinnu og lífs-
hjörg til annara. Hann leggur fjeð
í útgerð, landbúnað, iðnað. eða
eitthvað þess háttar. Ef til vill fær
’hann arð af fjenu, álíka og spari-
sjóðsvextina, eða meiri, eða minni,
■en hans er áhættan, arðurinn ketn-
nr ekki til greina, nema vel lánist,
er óviss. Atvinnan, sem fje hans
veitir, er hið trygga, en hans arð-
ur hið ótrygga.
Hugsum okkur að maðurinn
vilji ekkert af þessu. En hann
leggur fjeð í hús. Byggingin skap-
ar atvinnu. Og byggilegra er land-
Ið á eftir, ef vel er bygt.
Þá er enn eitt, að maðurinn
vilji eyða peningum sinum í ýmis-
konar óþarfa, tóbak og vín og
annað þess háttar. Það telja menn
verst varið peningum.
En ef keypt er t. d vín í Áfeng-
isverslun ríkisins, þá mun láta
nærri að fyrir hverjar 10 krónur
fari 8 í ríkissjóðinn. Maðurinn
sjálfur fær lítið fyrir þá eyðslu
•og jafnvel verra en ekkert.
Prjedikanir sósíalista um það,
að efnamennirnir sjeu einhverjar
blóðsugur á þjóðinni, er liin barna
legasta firra. Því betur er þjóðin á
veg* stödd sem henni auðnast að
eignast fleiri aflögufæra þjóðfje-
lagsborgara.
Kreppan
og opinberu gjölöin.
Tvent er það, sem segja má, að
sje undirrót allra erfiðleika hjá
okkur Islendingum nú í krepp-
unni. Annað er hið stórkostlega
verðfall á allri framleiðsluvöru
landsmanna. En hitt er hinn ægi-
legi þungi opinberra gjalda, sem
á atvinnuvegunum hvílir. í kjöl-
fari þessara megin erfiðleika
fylg'ja svo ótal margir aðrir, stórir
og smáir.
Engum dettur í hug að halda
því fram, að við getum á neinn
liátt ásakað okkur sjálfa fyrir
það, að framleiðsluvörur lands-
manna liafa fallið í verði. Við höf-
um í þessu efni oðrið að lúta sama
lögmáli og aðrar þjóðir. Hið al-
menna Verðfall á heimsmarkaðin-
um hefir náð til oltkar.
Það virðist svo, sem allmargir
landsmenn hafi til þessa litið svo
á, að verðfall afurðanna væri
sveifla Og þetta mundi brátt lag-
ast aftiu* — verðið mundi hækka.
En því miður er þetta ekki fyrir-
sjáanjegt, að minsta kosti ekki
í náinni framtíð. Margar líkur
benda til þess, að verðfallið verði
varanlegt og því engar stórvægi-
legar breytingar í vændum.
En einmitt vegna þess, að bú-
ast má við lágu afurðaverði í ná-
inni framtíð, er sú stefna háslta-
leg, sem fylgt hefir verið hjer
til þessa, að ætla sjer að reka
þjóðarbúskapinn með sömu eða
svipuðum útgjöldum til opinberra
þarfa og gert var veltiárin 1929
og 1930. En þá komum við að
öðrum megin erfiðleikum krepp-
unnar, sem eru opinberu gjöldin.
Þar verður ekki sagt hið sama og
um verðfall afurðanna, að opin-
beru gjöldin sje fyrirbrigði, sem
við ráðum ekkert við. Þar er bein-
línis um sjálfskaparvíti að ræða-
Á kjörtímabilinu 1924—1927,
þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór
með völdin í landinu, va.r árleg
evðsla ríkissjóðs til annara _út-
gjalda en afborgana af skuldum
II.1 imlj. króna að meðaltali. A
kjörtímabalinu 1928—1931, þegar
Framsóknarflokkurinn og sósíal-
istar fóru með völdin, hafa sömu
útgjöld ríkissjóðs orðið 19,2 milj.
kr. á ári að meðaltali. Hækkunin
nemur þannig 8,1 miljón króna,
að meðaltali á ári.
Eyðslumennirnir í Framsóknar-
flokknum hafa afsakað þetta tak-
markalausa f jáxbruðl með því að
segja, að sjálfsagt hafi verið að
láta þjóðina „njóta“ góðæristekn-
anna á veltiárunum. Þeir Ijetu svo
um mælt, að þeir væri altaf að
brynja þjóðina, og að loknu dags-
verki þóttust þeir sjá svo sterka
brynju, að kreppur og harðæri
fengju þar engu áorkað.
Þjóðin liefir vafalaust fundið
það nú, að þessi Framsóknar-
brynja er ekki til — var aldrei
til. Því að sannleikurinn er sá,
að þótt allmiklu fje hafi á góð-
ærunum verið varið til nytsamra
framkvæmda, atvinnuyegunum til
styrktar, varð hitt miklu meira,
sem fór í eyðslu og óhóf og varð
atvinnuvegunum til byrðar. Og
verst var, að fjárbruðlið og óhófið
stóð ekki aðeins sjálf hátekjuárin,
Iieldur var sköpuð varanleg
eyðsla, sem við nú verðum að
súpa seyðið af.
Samsteypustjórnin, sem nú situr
við völd í landinu, hefir að sjálf-
scgðu gætt sparnaðar í daglegum
rekstri ríkisbiiskaparins. -— Þótt
þetta *sje mikil bót frá því, sem
áður var, er það engan veginn
nóg. Nú, þegar verðfall afurð-
anna er yfir dunið, er það með
öllu ókleift atvinnuyegum lands-
manna, ,að bera uppi jafnhá eða
svipuð útgjöld til opinþerra þarfa
eins og þeir voru krafðir óhófs-
árin undanfarið.
En það verður ekki erfiðleika-
laust að fá útgjöldin lækkuð. —
Syndabaggar Hriflunga verða þar
erfiðir þröskuldir. Það verður að
breyta löggjöf og koma á skipu-
lagsbreytingum á mörguxn og víð-
tælcum sviðum. Það þarf að af-
nema ríkisstofnanir og sameina
aðrar og einnig sameina skyld
embætti og störf. ! að þarf að end-
urskoða launalög og samræma
laun opinberra starfsmanna. Það
þarf að koma á bættri vinnuaðferð
í'. skrifstofum hins opinbera. Ótal
marft fleira mætti nefna; hvar
vetna bíða verkefnin.
Ekki hefir lieyrst, að samsteypu
stjórnin hafi neitt verulega unn-
að að þessum málum. Verið getur
þó, að liún hafi eitthvað gert
þótt ekki sje það almenningi kunn
ugt. En hafi hún ekkert aðhafst
í þessa átt, þá verður þjóðin
áreiðanlega fvrir miklum von-
brigðum.
Kosningahorfur í írlandi.
Gin- og klaufnaveiki.
Inflúensan.
Togarinn „Belgaum“ kom
hingað í gær með 9 menn
veika. — Enskur togari
kom hingað einnig með
6—7 menn veika.
„Belgaum11 kom frá Englandi
í gær og voru 9 skipsmenn veikir
af inflúensu, en enginn þungt
haldinn. Skipið var sett í sóttkví
og liggur nú á ytri höfninni. Ef
ekki veikjast fleiri um borð, mun
það fara á veiðar strax og þeir
liressast, sem nú eru lasnir.
Enskur togari kom hingað einn-
ig í gær með 6—7 menn veilca af
inflúensu. Var liann einnig settur í
sóttkví og liggur á ytri höfninni.
Goðafoss kom til Seyðisfjarðar á
dögunum, á leið frá útlöndum. —
Höfðu þrír menn verið lasnir á
skipinu, og hafði hjeraðslæknir
grun um, að þáð mundi vera in-
flúensa. Var þess vegna höfð var-
úð við afgreiðslu skipsins á Aust-
fjörðum. Skipið tók þó 80 farþega
á Austfjörðum; voru það vermenn
á leið til Vestmannaeyja. Goðafoss
kom til Vestmannaeyja í gær, og
var hann settur í sóttkví þar til
fimtudagsmorguns. Ef allir verða
þá frískir um borð, verður skipið
leyst úr sóttkví aftur og vermönn-
r.num leyft að fara í land.
Þeir, sem lasnir höfðu verið, eru
rui albata.
Maður fellur fyrir burð.
Alda skolar honum inn
á þilfarið — örendum.
V<:stmannaeyjum, 17. jan.
Kolaskip Benediete kom hingað
í nótt eftir sextán sólarhringa ferð
frá Englandi. Skipið misti út mann
skamt frá Eyjum. Alda bar hann
aftur inn á. þilfarið og náðu skip-
verjar honum, en tókst ekki að
lífga hann við aftur
Púlli.
Nýtt þingrof í Þýskalandi?
Berlin, 17. janúar.
United Press. FB.
Blöðin spá því, að þing verði
rofið, er ríkisþingið kemur saman
26. janúar. Nýjar þingkosningar
fara þá sennilega fram 9. febrúar.
Talið er, að horfurnar fyrir mikið
auknu fylgi Nazista, hafi batnað.
Draga menn það af kosningaúr-
slitunum i Lippe, en þar fóru
fram þingkosingar alveg nýlega.
Fengu Nazistar 38.844 atkvæði, en
við kosningarnar þar á undan
33.038 (í ríkisþingskosningnnum
6. nóv. 1932).
Dublin, 17. janúar.
United Press. FB.
í Cork er veðjað um það 6:4,
að de Valern hafi ekki nægilegt
fylgi til þess að fá meirihluta á
þingi, til þess að koma fram til-
lögum sínum.
Mannbjörg af „Sakhalin“.
Af gufuskipinu „Sakhalin“, sem
kviknaði í við norðurströnd Asíu
er nú það að frjetta, að tekist
hefir að hleypa skipinu til strands
á ísnum og koma öllum farþegum
heilu og höldnu á land. (FÚ.).
Þrjú ný tilfelli liafa komið fyrir
í dag af gin- og klaufnaveiki í
Englandi, þar á meðal eitt á svæði
sem talið var ósýkt. Utflutnings-
banni á gripum verður ljett af
nokkrum hjeruðum í austur-Eng-
landi nú um miðja viku. (FÚ.).
Frá Argentínu.
Hernaðarástandið í Argentínu
hefir verið framlengt um óákveð-
inn tíjna.--Stjórnin skipaði fyrir
hernaðarástand um alt, land eftir
óeirðirnar, sem urðu í desember.
(FÚ.).
\ enizelos myndar enn stjórn
Berlin, 17. jamiar.
Katanaris hefir nú gefist upp
við að mynda nýja stjórn á Grikk-
landi, en það orðið lir að Venizelos
myndaði stjórnina, og er hanji
forsætisráðherra. Er stjórnin þeg-
ar tekin við völdum og ríkisfor-
setinn þegar búinn að eiðfesta
hana- Er þetta í níunda sinn, sem
Venizelos tekur að sjer stjórnar-
forustu þar í landi. Annar ráð-
herranna, Kopulos, hefir og marg-
sinnis verið ráðherra áður. (FÚ.).
Bruni í Bergen.
Tvær konur og ungbara
brenna til bana.
Oslo, 17. jan. NRP. FB.
Um kl. 4 í nótt kom upp eldur
í lnisi því í Sandbrogaten, Bergen,
sem „Restaurantsforbundet1 ‘ hef-
ir skrifstofur sínar í. Eldurinn,
sem kviknaði á annari hæð, breidd
ist óðfluga út, svo ógerlegt var
að komast upp og ofan stigann.
íbúarnir á efri bæðunum björguðu
sjer með því að fara út á svalirn-
ar og var þeim því næst bjargað
þaðan. Kona Hansens nokkurs
stýrimanns og dóttir hennar,
tveggja ára gömul, hlutu bruna-
sár mikil, og voru þær fluttar á
sjúltrahús af slökkviliðsmönnum.
Voru þær þá meðvitundarlausar.
Ljetust þær skömmu síðar. Lík
aldraðrar komi, frú Birkeland,1
fanst í íbúð hennar, þegar búið
var að slÖkkva eldinn.
Srcrnlanösmálid.
Oslo, 17. jan. NRP. FB.
Frá Haag er símað: í ræðu
þeirri, er Steglieh Petersen flutti,
tók hann til athugunar öll helstu
atriði úr ræðum málflytjenda Norð
manna og taldi skoðanir þeirra
rangar. í ræðulok fór hann vin-
samlegum orðum í garð Norð-
manna. Kvað hann Danmörku eihn
ig í framtíðinni mundu standa við
allar alþjóðlegar skuldbindingaT
sínar, en danska stjórnin bæri
mikinn velvildarhug í brjósti til
Norðmanna og mundi af heilum
huga leitast við að virða löglegar
kröfur þeirra, að því er atvinnn-
skilyrði í Grænlandi snerti.
Róstur í Prússneska þinginu.
Berlin, 17. janúar.
Prússneska þingið hjelt fund í
dag og voru þar aðeins smærri
mál til umræðu: en þegar kom-
múnisti einn, Fránken, var að
halda ræðu um erfiði bænda, rjeð-
ist Nazisti, að nafni Blei, að h'on-
um og gaf honum utan undir og
urðu að þessu nolckur handalög-
mál. Forseti sleit fundi, en þegar
fundur hafði verið settur aftur
voru bæði Fránken og Blei reknir
úr þingsalnum. (FÚ.).
Lloyd George spáir.
Lloyd George birtir í tilefni af
70 ára afmæli sínu ávarp í enskn
blaði. Hann kveður enga von til
þess að Bretar muni vinna á örð-
ugleikum sínum á stuttum tíma en
þó sje útlitið skárra en það hefir
verið og sje nú mörg merki til
þess að nú ætli að fara að rofa til.
(FÚ.).
Japan og Þjóðabandalagið.
Genf, 17. janúar.
United Press. FB.
Japan hefir verið veittnr
tveggja sólarhringa frestur til
þess að leggja fram fyrir nítján
fulltrúa þjóðabandala gsnefndiim
tillögur, sem bandalagið getur fall-
ist á, um samkomulag við Kína.
Geri Japan þetta ekki munu verða
lagðar fram tillögur af nefncföjni
í samræmi við skýrslu Lytton-
nefndarinnar.