Morgunblaðið - 28.01.1933, Side 3
\ K
\ r*
V#» fr>
3Hor0unMaMft
trtgef.: H.f. Árvakur, Reykjaylk.
Ritetjórar: Jón KJartansaon.
Valtýr Stefánsaon.
Rltstjórn og afgrrelósla:
Auaturstræti 8. — Simi 1*00.
Auelýsinsastjðri: E. Hafber*.
Auglýalngraakrifstofa:
Austurstræti 17. — Slmi 8700
Heimaslmar:
Jón Kjartansson nr. 8742.
Valtýr Stefánsson nr. 4220.
E. Hafberg nr. 3770.
. - Áskriftagjald:
Innaniands kr. 2.00 A mánuOl.
Utanlands kr. 2.50 & mánuCl.
t lausasölu 10 aura elntaklO.
20 aura meö Lesbðk.
lárnsmfðaverkfallið.
A þriðjudagskvöld var sú á-
'kvörðun tekin á fundi í Fjelagi
járniðnaðarmanna, að fjelagið
skyldi ganga í AlþýðusambandiS.
Fjelagið hefir þá vafalaust verið
búið að fá nóg af handleiðslu
kommúnistanna.
En hvað kom í staðinn?
Þeir menn voru til, sem ljetu
•isjer detta í hug, að járnsmiðaverlr-
fallið myndi nú brátt leysast, þar
■sem Alþýðusambandið hafði tekið
’forystuna í því.
Alþýðusambandið fól Jóni Bald-
vinssyni að reyna að sætta deil-
una. Hann mun og hafa haft huga
á. að gera það, en þetta liefir geng-
ið erfiðleg'a,«])ví að andi kommiin-
ista svífur þar enn vfir vötnunum.
Samningatilraunii' hafa farið
fram undanfarna daga, en enginn
•úrangur orðið enn þá.
Frá því var skýrt hjer í blaðinu,
að tögarinn ,01afur‘ lægi skrúfu-
laus uppi í. fjöru, því kommúnistar
1)011011611 vjelstjórum skipsins að
•setja skrúfu á öxulinn. Flestir
bjuggust við. að svona skrípaleik-
ur mundi st.rax hætta, er Alþýðu-
'Sambandið fór að hafa afskifti
af málinu. En það fór á annan
veg. Fyrir sjerstaka náð fekst það
i gær, að skrúfa yrði sett, á öx-
ulinn. En blátt bann var lagt við
því, að skipið færi aftur á veiðar
fyr en járnsmiðadeilan væri til
Sykta leidd! ■
Ekkert hefir fengist unnið við
,Otur‘ enn þá. Og togarar, sem
inn hafa komið síðustu daga, og
þurft smávægilega viðgerð, hefir
úðara verið h.ótað „bannfæring“,
ef nokkur viðgerð færi þar fram.
■Svona gengur það undir hand-
leiðslu Alþýðusambandsins!
Inflúensan.
fer nú eins off logi
yfir akur um álfuna.
London, 27. janúar.
T.Tnited Press. FT?.
TJndanfarna viku ljetust af völd
um inflúensu í stórborgum í
Englandi og Wales fimtán hundr-
uð og áttatíu og níu manns, að
Lundúnaborg meðtalinni. —- In-
flúensan leggur nú hratt undir
sig lönd álfunnar og seinustu
löndin, þar sem veiltin hefir
breiðst út, svo ísjárvert er, eru
ítalía og (Trikkland.
Carmona skárri.
Lissabon, 26. janúar.
TTnited Press. FP.
Læknar Carmona ríkisforseta
Tiafa tilkynt, að umskifti til bata
liafi orðið í veikindum hans.
De Ualera sigrar.
Dublin, 26. janúar.
United Press. FB.
Seinustu úrslit voru þau, að
de Yalera hafði komið að 41,
verkamenn 5, Cosgrave 20, Mið-
flokkurinn 3 og óháðir sjö þing-
mönnum.
Dublin, 27. janúar.
United Press. FB.
Seinustu kosningaúrslit herma,
að Fianna-Fail-flokkurinn hafi
komið að fimtíu og þremur, Cos-
grave-flokkurinn þrjátíu og fimm.
Miðflokkurinn sjö, verkamenn sex
og óháðir verkamenn einum fram-
bjóðanda.
London 27. jan.
Úrslit þau, sem kunn hafa orð-
io í Irlandi í dag, styrkja enn
sigurhorfur De Valera. Alls er nú
kunnugt um 123 þingsæti, en kjósa
skal 153 þingmenn. De Yalera
hefir nú 65 þingsæti, Verkamanna
flokkurinn 7, og eru því alls 72
þingmenn fylgjandi De Valera. —•
Cosgrave hefir fengið 35 þingsæti,
óliáðir 8, miðflokkurinn 7, og ó-
háðir verkamenn 1, og hefir De
Valera þá að minsta kosti 22 at-
kvæða meiri hluta. Það er ekki
búist við að úrslitin í kjördæmun-
um sem ófrjett er um, breyti þess-
um lilutföllum. FÚ
Franska stjórnin fær trausts-
yfirlýsingu.
París, 26. janúar.
United Press. FB.
Fulltrúadeild þjóðþingsins sam-
þjrkti traustsyfirlýsingn til ríkis-
stjórnarinn'ar með þrjú hundruð
sextíu og átta atkvæðum gegn
tvö hundruð og fimm. Varð Fland-
in ekki ágengt með þær tillögur
sínar, að senda fjárhagsnefnd f jár
lagafrumvarpið til nýrrar athug-
unar. Búist er við, að umræður
um það standi til morguns.
París, 27. janúar.
United Press. FB.
Stjórnin liefir nú látið undan
kröfum jafnaðarménna að taka,
'lán til þess að jafna nokkurn
hluta tekjuhallans. — Kauphallar-
viðskifti hafin á ný í morgun, en
mikil gremja meðal skattgreið-
enda, sem halda víða mótmæla-
fundi út af fjárlagafrumvarpinu
og nýjum skattaálagningum.
Doktorspróf
Halldórs læknis Hansens.
Hin munnlega sókn og vörn fer
fram í dag í Neðri deildarsal Al-
iþngis og hefst kl. 1. Gagnrýn-
endur af hálfu læknadeildar eru
þeir prófessorarnir Jón Hj. Sig-
urðsson og Guðm. Thoroddsen, en
enginn hefir gefið sig fram til að
gagnrýna doktorsritgerðina „ex
auditorio' ‘. Vegna þess, hve áheyr
endasvæði er af skornum skamti i
þingsalnum, hefir verið talið óhjá-
kvæmilegt að takmarka aðsókn að
athöfninni, og hafa því ekki aðrir
aðgang en háskólakennarar, há-
skólastúdentar og þeir aðrir, sem
læknadeildin hefir boðið.
Frakkneskur togari, ,.L’Orage“
ltom liingað í gærkvöldi og tók
kol.
íþróttaskemtun
í Hafnarfirði.
Undanfarin ár hefir verið hljótt
um íþróttastörf Hafnfirðinga, og
má það undrun sæta um jafn á-
gætan og stóran hóp landsmanna.
Hafnfirðingar hafa sjálfir veitt
þessu athygli, og reynt að ráða
bót á. Síðastliðið sumar urðu stór-
feldari framfarir á sviði íþrótt-
anna, en áður þekkist, þar í bæ.
Og enn er haldið í sömu átt, og
þá var stefnt. Fimleikaæfingar
hófust í haust, er veður hamlaði
áframhaldandi útiíþróttum, og eru
enn stundaðar af áhugasömum
æskulýð.
Síðastliðinn sunnudag var liald-
in íþróttaskemtun í fimleikahúsi
bæjarins. Kom þar fyrst fram
flokkur kvenna úr „Knattspyrnu-
fjelaginu Þjálfi“. Voru það alt
ungar stúlkur, á aldrinum 12—16
ára. Hafa þær áður sýnt fimleika
i Hafnarfirði, Beykjavík og víðar
lijer í nágrenni, og. ætíð'getið sjer
góða dóma. Enda, mátti glögt sjá
á sunnudagskvöldið, að stúlkurnar
voru vel samæfðar og framförum
hefir flokkurinn tekið miklum frá
fyrri sýningum.
Að lokinni fimleikasýningu
flutti formaður „Þjálfa“, Adolf
Björnsson, ræðu. Hvatti hann
Hafnfirðinga til að styrkja og
styðja íþróttalíf bæjarins, og
gerast Iandnámsmenn íslenskra
íþrótta.
Þá sýndu tveir fimleikaflokkar
karla og tókst furðanlega vel.
Mátti sjá að þar eru mörg ágæt
íþróttamanna efni.
í lok fimleikanna mælti forseti
í. S. í. nokknr orð til samkom-
unnar, og sagðist vel, sem að
vanda. Þakkaði hann Hafnfirðing-
um aitkinn áhuga á sviði íþrótt-
anna, og bað þá að leggja ríku-
lega. rækt við líkamsmentun, án
þess að mismunandi stjórnmála-
skoðanir sundruðu þeim. — Eftir
þetta var dans stiginn fram eftir
nóttu.
' Skylt er að geta þess, að íþrótta-
kennararnir. i ITafnarfirði eru dug
legir og áhugasamir og eiga ef-
laust eftir að auka íþróttahróðúr
Hafnfirðinga.
— Íþróttaskemtun Hafnfirðinga
fór ágætlega fram og áhorfendur
ljetu ánægju sína óspart í ljós.
Ættu íþróttafólkið að endurtaka
þessa fágætu skemtun, því víst
mun, að margir bæjarbúar hafa
hug á að sækja slíkar ánægju-1
stundir.
Hafnfirðingur.
Fyrirætlun Roosevelts.
Berlin. 27. janúar.
í New York blaði einu er skýrt
frá áformum Roosevelt forseta og
hafa ummæli þessa blaðs vakið
mikla athygli.---Hygst hann að
auka tekjur ríkisins með hækkun
á nokkrum sköttum, einkum á
erfðafjárskatti og koma á meira
samræmi milli heildsölu og smá-
sölu. — Um hernaðarskuldirnar
er sagt, að hann muni fyrst um
sinn stinga upp á, að strika yfir
alla vexti. — Þá hygst hann og
að láta ráðast í að reisa opinberar
byggingar til þess að draga úr
atvinnuleysinu og á að verja 20
miljörðum marka í þessu skyni.
Ýmsa tolla á að hækka, en einkum
að leggja kapp á að auka erlend-
ar- markað fyrir amerískar vörur
og mun sú krafa verða sett fram,
að rússneski markaðurinn verði
opnaður fyrir amerískar vörur. —
Verslunarmálaráðneyti Bandaríkj-
anna leggur til, að hækka tolla á
vörum frá þeim þjóðum, er gildi
peninga hefir rýinað hjá. — Versl
unarmálaráðuneytið vill verja 16
miljónum marka til smíða á flug-
vjelum. (FÚ.).
Rússar og Japanar.
Berlin, 27. janúar.
Japanski hermálaráðherrann,
Arraki, hefir nýlega haldið ræðu,
er vakið hefir mikla athygli í
Bússlandi, — þykir Bússum sem
ræða þessi bendi í þá átt, að Jap-
anar búist við fjandskap af Rúss-
um. Arraki mintist á fyrirætlanir
Japana og gat þess, að nauðsyn-
legt væri, að auka vígbúnað Jap-
ana einkum í lofti. — Rússneska
stjórnin bíður eftir orðahljóðan
béssarár'ræðu, og búist er við at-
hugasemdum frá rússnesku stjórn-
inni. —
í ríliinu Columbia í Suður-Ame-
ríku er á, sem heitir Rio Magda-
lena. Hpn er öll skipgeng nema á
2 km. kafla fyrir neðan borgina
Honda. Þar rennur áin í gljúfrum,
og er þar kaststrengur í henni og
hávaðar, sem kallaðir eru fossar.
Honda stendur 215 m. yfir sjávar-
flöt, Það þótti Columbiamönnum
mikið mein að skip skyldi ekki
komast alla leið til Honda. Var
það tafsamt og dýrt að afferma
skip fyrir neðan hávaðana, flytja
vörurnar á landi upp til Honda og
skipa þeim þar út aftur í annað
skip, sem flutti þær svo inn í
landið.
Fyrir nokkru samdi gufuskipa
fjelagið „Compania de Navigacion
sin Transbordos" við þýskt fjelag,
Gutehoffnungshiitte A. G., Ober-
hausen. um það að smíða fyrir
sig slrip, sem kærnist yfir hávað-
ana í ánni og gæti dregið báta á
eftir sjer. Þetta hefir fjelagið gert,
Það smíðaði sterkan dráttarbát
með 4 skrúfum. Uppi hjá Honda
var- svo festur 2000 metra langur
kaðall og 4 cm. í þvermál. Er
neðri endi hans festur á sterka
vindu Um borð í dráttarskipinu
(smíðaða af Deutsche Maschinen-
bau A. G. í Duisburg). Dieselvjel
skipsins, sem knýr skrúfurnar
fjórar, knýr einnig þessa vindu.
Vefnr hún kaðalinn upp á sig og
á þann liátt tekst skipinu að kom-
ast yfir hávaðana og upp til
Honda. Á leiðinni niðureftir er
látið rakna hægt af vindunní, svo
að skipið fer með hóglegri ferð.
Slíkar dragferjur, aðeins miklu
minni, mætti ef til vill nota á sum-
um ám hjer á landi, sem með
köflum eru svo straumlygnar og
djúpar, að hægt er að sigla smá-
fleytum eftir þeim.
Knútur prins trúlofast.
Khöfn 27. jan.
United Press. FB.
Konungurinn og drottningin
hafa tilkynt trúlofun Knút.s prins
og Karóltnu Mathilde, dóttur Har-
alds prins, bróður konungs.
Háttúran
og skaplyndi þjóðanna.
í sænska tímaritinu „Nor(ljgk
Tidskrift för vetenskap, konst' g£h'
industri1 ‘, sem út er gefið jafl
Letterstedtska Föreningen, bij|jst
nú síðast fyrirlestur dr. ^tð-
mundar Finnbogasonar um JjTfvif ■
íslenskrar náttúru á skaplyndf
þjóðarinnar.
Tímarit þetta er eitt hið merk-
asta þeirra, sem fjalla um norvæn
mál. Er það liróður fyrir íslánd,
íslenska menningu og hyggjúVit
að ]ietta erindi dr. Guðmundar
Finnbogasonar skuli birtast þar,
því að hjer er um ný náttúruvís-
indi að ræða, áhrif náttiirurihar á
hugsanahátt þjóðanna. Er gáman
að vita til þess að hljóð skuli hafa
bori'st hjeðan úr horni um
órannsakaða mál. Mun kannske
verða um þetta eins og dráúm
Þorsteins surts, að þá vakni atlír
menn við, og þyki þetta nokkurri
nýjung sæta og taki að athiiga
hvernig á því stendur t, d. að lág-
lengisbúar og fjallabúar, sjómýnn
og sveitamenri liafa ekki saima
hugsunarhátt, og hvað það er sem
helst skilur skaplvndi þjóða og
veldur erjum, stríðum og styrj-
öldum.
Óeirðir í Austurríki.
Vínarborg. 27. jan.
United Press. FB.
Vegna óeirða, sem brotist hpfa
út hjer, hefir herlið verið §et,t
á vörð við allar opinberar bygg-
ingar. Óeirðirnar standa í sam-
bandi við verkfall bifreiðast.jóra,
sem hafið var í mótmælaskyjÉi,
gegn auknum bensínskatti. Gjjtu-
umferð er víða tept í borgmpi.
Margir verkfallsmanna hafa ajf i
érjum við lögregluna seinni hljita1
dags.
Þegnskylduvinnan
1 Ðúlgarfu.
Það eru um 11 Va ár síðan Búl-
garía tók upp lögboðna þegn-
skylduvinnu í þágu ríkisins, !'og
þessi tími ætti að nægja til áð
•••, ,'iL #
geta gert sjer hugmynd um lrösti
og galla ]iessa fyrirkomulags.
Hverjum búlgörskum þegn á
aldrinum 20—40 ára er lagt á
herðar að vinna endurgjaldsla&st
fvrir ríkið í 8 mánuði, nema luytn
éigi fyrir fjölskyldu eða foreídr-
um að sjá. eða sje í herþjónusiu.
Alment vinna menn 40 daga á ári,
þar til þjónustutíminn er útrunn-
inn. Hver maður fær í fæðispen-
inga 15 levas á dag (h. u. b. 70
áura). Unnið er átta tíma á dag
og íþróttir stundaðar í tvo tíma.
Menn búa í skálum eða tjöldiijn,
meðan á vinnunni stendur, og JjÚa
yfirmenn við sömu kjör og undir-
menn. Það er alment viðurkent, að
samkomulag sje gott og að yfir-
menn geri sjer far.um að útycga
eins gott fæði og liægt. er fýrir
hina litlu fæðispeninga.
Búlgarar eiga þegnskylduvinn-
unni að þakka ýmsar þýðingpf
miklar framkvæmdir svo sem jjjóð
brautina frá. Chiapka og allsj^ri
vegakerfi annað.. Þessar frfm-
kvæmdir benda á, það. að hy^ju
i leyti fyrirkomulaginu er áfjg,tt„