Morgunblaðið - 31.01.1933, Side 4
MOftG oNBLAÐIÐ
< 1
mm
y Huglýsingadagbðk
Þurkaður saltfiskur á 18 aura
y2 kg. Fiskbúðin í Kolasundi. ■—
Sími_4610._____
Reyktur fiskur á 25 aura % kg.
Fiskbúðin í Kolasundi. Sími 4610.
Veislur, skemtanir og fundahöld.
Sanngjarnt verð. Café Svanur við
Barónsstíg og Grettisgötu.
Fiskfars, fiskbúðingur, fiskboll-
ur, kjötfars, kjötbúðiugur, kjöt-
bojlur fást daglega. Freia, Laugá-
vég 22 B. gími 4059.
Kolaverslun Olgeirs Friðgeirs-
sonar. Sími 2255.
HÍKOHli:
Nýtl íslenskt sm]ðr
frá bændnm og
ostnr.
lækjargfitu 10 B.
(Áðnr BraiðaMik).
Sími 4046.
Silki-
flúmfepDl
mjðg falleg.
Kolasalan s.f.
Sfml 4514.
Qagbófc.
□ 59331317 = 2. Atkvgr.
Veorið (mánudagskvöld kl. 5):
Lægðin sem var yfir tírænlands-
hafi iá laugardag hefir færst aust-
ur eftir og er nú yfir Islandi. Er
veður enn fremur kyrt á S- og A-
landi, en seint á sunnudagskvöld
var komin N-hríð .á Vestfjörðum,
og nær hún nú yfir allan V- og
N-hluta landsins. Er vindur, bvass
með 5—6 st. frosti. Mun N-áttin
breiðast austur yfir landið í nótt,
en verður liægari á morgun, og
ljettir þá til hjer syðra.
Veðurútlit í Rvík í dag: All-
hvass N. Ljettir til.
Vörusýning í Leipzig. Þrátt fyr-
ir kreppuna ætlar Leipziger Mes-
samt að lialda hina árlegu vöru-
sýningu sína í vor eins og að und-
anförnu. Eru þar sýndir og seldir
margs konar hlutir, áhöld, hús-
gögn, vefnaðarvara, vjelar og
hvað annað, sem nöfnum tjiájr að
nefna. Segir svo í nýkomnu boðs-
brjefi frá sýningarstjórninni, að
margir erlendir (þ. e. ekki þýskir)
sýnendur hafi þegar tilkynt þátt-
töku sína. ftalir ætla t. d. að sýna
þar flestar tegundir framleiðslu
sinnar, iðnaðarvörur, matvörur og
allskonar hrávörur. Japanir hafa
iíka mikla allsherjarsýningu í
hyggju. —- Ennfremur verða þar
sýndar vörur úr þessum löndum:
Argentínu, Brazilíu, Danmörku,
Englandi, Finnlandi, Frakklandi,
Indlandi, Jugoslavíu, Mexíkó, Nor-
egi, Rúmeníu. Spáni og Ungverja-
landi. Austurríki og Tjekkóslc-
slóvakía sýna í sínum eigin sýn-
ingarskálum eins og þau ríki hafal
gert að undanförnu. Jafnframt
landssýningunum sýna fjölmörg
erlend verslunarfjelög ótalmargar
einstakar vörutegundir. — Sýn-
ingin liefst 5. mars.
Ungmennafjelagið Velvakandi
lieldur fund í kvöld kl. 9 á Loka-
stíg 14. Sambandslögin verða til
umræðu.
Hjeraðslæknirinn á ísafirði er
nú orðinn heill heilsu af inflúens-
unni og laus úr sóttkví. Veikin
hefir ekki breiðst neitt út á ísa-
firði.
Ekið á búðarglugga. Um kl. 2 í
gær kom vöruflutningabifreiðin
RE 728 niður Bankastræti. Hálka
var á götunni, og er bílstjórinn
var að beygja fyrir annari bif-
reið er kom á móti honum, misti
hann stjórn á bifreiðinni og rann
Þeir,
sem kaupa trúlofunarhringa
hjá Sigurþór verð altaf
ánægðir.
Fangl ð DlSflaey. — 42
viss um að hann verði ekki inn-
lyksa þar í landi. Jeg vil fá
gleggri vitneskju um þetta, og þá
er stjórnardeildin svo vingjarnleg
að síma til nágrannanýlendunnar
og spyrja um það hvaða skilyrði
hún setji fyrir því, að fanginn
Alfons Paoli Schwartz fái að koma
þar við -á heimleið.
Svarið kom um hæl, og varð
embættismönnum stjórnardeildar-
innar til mikillar undrunar. Þar
stóð aðeins að hollensku yfirvöld-
in hefði ekki nokkurn skapaðan
hlut við það að athuga, þótt Al-
fons Paoli Schwartz kæmi þar við
á heimleiðinni.
Nú kom það upp að það var
nú eitthvað annað en jeg mætti
fara þegar frá nýlendunni. Hvers
vegna? Það þurfti að gefa mjer
yfirlýsirgu um það, að jeg mætti
fara, en enginn í þessari opin-
beru skrifstofu bafði hugmynd um
það hvernig slíka yfirlýsingu
hún upp á gangstjettina og á
horngluggann og dyraumbúnað í
skrautgripaverslun Arna B.
Björnssonar. Urðu skemdir tals-
verðar.
Anna Borg. Dönsk blöð hafa
það eftir henni að hún sje að
liugsa um að hverfa frá Konung-
lega leikhúsinu í Höfn er yfir-
stanclandi leikár er úti. Orsökin
sje sú, að henni þykir sem hún
fói ekki lengur hlutverk þar við
sitt hæfi. Ennfremur sje henni um
geð, að vinna við leikhúsið, meðan
maður hennar, Poul Raumert, er
þar ekki.
Grímudansleikur Ármanns verð-
ur halclinn í Iðnó laugardaginn 11.
febrúar n.k., en ekki 4. mars, eins
og skýrt hafði verið frá í fjelags-
brjefinu. Nláinar verður auglýst
um dansleikinn hjer í blaðinu
bráðlega.
Togararnir. Af veiðum komu í
gær Belgaum, Skallagrímur, Gull-
toppur, Geir og Snorri goði, allir
með góðan afla. Þeir lögðu af
stað til Englands með aflann. Haf-
steinn kom frá Englandi í fyrra-
kvöld-
Samband ísl. leikara. Fundur
verður haldinn á morgun, mið-
A'ikudag, á Hótel Borg, kl. 8V2
stundvíslega. Áríðandi mál á clag-
skrá. —
Dronning Alexandrine fór á
sunnudagsmorguu kl. 10 frá Kaup
mannahöfn. Kemur við í Leith.
Aðalfundur Heimdallar verður
haldinn í kvöld kl. 8%. Þar sem
520 meðlimir þurfa að mæta til
þess að aðalfundur sje lögmætur,
má biiast við þvi að þetta verði
aðeins umræðufundur, og skal því
vakin athygli á umræðuefninu,
sem er: Framtíðarskipulag at-
vinnuveganna. Mun Alfreð Jóiras-
son, sem er frummælandi, leggja
ftarn ýmsar nýjar tillögur um það
mál. Fundurinn er í Varðarhúsinu.
Útvarpið í dag: 10.00 Veður-
fregnir- 12.15 Hádegisútvarp.
16.00 Veðurfregnir. 19.05 Fyrir-
lestur Stórstúkunnar (Sigfús Sig-
urhjaítarson stórtemplar.) 19,30
Veðurfregnir. 19.40 Tilkynningar.
Tónleikar. 20,00 Klukkusl-áttur.
Frjettir. 20,30 Erindi: Sálarrann-
sóknir og raunvísindi, I. (sr. Jak-
ob Jónsson). 21,00 Piano-sóló.
(Emil Thoroddsen). 21.15 Upp-
lestur: Kvæði. (Bjarni M. Gísla-
son). 21.35 Grammófóntónleikar:
Richard Strauss: Sjöslæðudansinn.
Samgöngur; bannaðar. Helgi
DKnnlð ttfsðlnna
kjá
K. Einarsson & BjSrnsson
RSðnpIer.
Höfum fyrirliggjandi fleiri stærðir af
Rúðugleri 18 og 24 ounzu.
Eggert Kristjánsson & Co.
Sími 1400 (3 línur).
SJðlfbleknngar
Carters sjálfblekungar eru pennategund sem treysta má fullkomleg®.
Endast langa æfi og eru við hvers manns hæfi. — Fást í
Bðkavershra Sigfnsar Eyaraadssaaar
(0g bókabúð Austurbæjar BSE, Laugaveg 34).
■sannHnnoiMSBonaHMHBnaaHMaanaaMaaai^BanHaaHHanaaMHanMagEaananBBMMMaBHBHnaBnBBD
r' NOTID MIQ
áO E.R FL VÓTV IRKUR OQ QER I DÚKftNA
HALDGÓDR M OQ 111] -TPEG ILTAQRA
mmmjf mm omjwm.
Ingvarsson læknir liressingahælis-
ins í Kópavogi hefir bannað allar
samgöngur við hælið fyrst um
sinn.
Esja fer á föstudag. Varð að
bíða hjer vegna járnsmiðaverk-
fallsins.
Fjöldi vermanna streymir nii að
úr öllum áttum. Eru allar ver-
stöðvar hjer í nágrenninu og eins
í Vestmannaeyjum að yfirfyllast
af aðkomufólki.
og vefnaðarvöru
er best að kaupa í
Laugevag 40. Sínú 3894.
skyldi stíla. Það kom svo afar
sjaldan fyrir í Cayenne að saka-
maður væri laus látinn. 1 þrjái
claga varð jeg að ganga eftir
þessari yfirlýsingu, og að lokum
fekk jeg hana.
Mörgum mönnum hafði jeg
kynst þarna, sem jeg þurfti að
kveðja. Og margir komu niður á
bryggju til þess að kveðja mig.
Þetta var um kvöld. Skipið, sem
jeg átti að fara með var lítið
og jeg átti að hafast þar við á
þilfari. Jeg lagði mig þar til
hvíldar og sofnaði fast. Þá var
kominn morgun, og beint fram
undan blasti Djöflaeyjan við mjer.
jeg sneri mjer unclan, en hinum
megin við skipið blasti við mjer
önnur sjón. Það var bátur, sem
róið var af sakamönnum. Þeir
gláptu á oss og einn þeirra kann-
aðist jeg við. Hann kinkaði kolli
til mín í kveðjuskyni.
Næsta kvöld kom skipið til
hollensku hafnarinnar. Jeg var
ákveðinn í því að heimsækja þar
þegar þýska ræðismanninn og láta
hann sjá um það að jeg kæmist
heim. Þegar skipið lagði að
bryggju, stóð jeg i hóp þílfarsfar-
þeganna og beið þess rólegur ao
röðin kæmi að mjer að ganga á
lancl. Nefnd sú, er hefir eftirlit
með innflutningi manna í hol-
lensku nýlenduna, var sem sje
komin um borð, og heimtaði skil-
ríki af hverjum manni, sem ætl-
aði í land. Jeg bjóst við þvi, að
fyrst kæmi röðin að farþegum á
fyrsta farrými, síðan yrði rann-
sakaðir farþegar á öðru farrými
og seinast kæmi röðin að okkur
þilfarsfarþegum. En formaður
nefndarinnar kallaði fyrst upp
mitt nafn. Jeg ætlaði ekki að
trúa mínum eigin eyrum, en samt
gekk jeg fram, og var þó hikandi.
Hann sló áj öxl mjer, tók síðan
undir hönd mjer og leiddi mig
inn lá, sal á fyrsta farrými og a,t-
hugaði þar skjöl mín. Og áður en
varði var þangað kominn þýskíi
sendiherrann í Paramaribo, Ass-
mann lieitir hann. Hann heislaði
mjer mjög vingjarnlega og liauð
mig velkominn í nafni þýska rík-
isins.
Þá klöknaði jeg.
Jeg fór heim með honum, og:
dvaldi þar í nokkra claga í hesta
vfirlæti. Það voru sólskinsstundir,
og mjer fanst ævi'mín þá vera
eins og fagur draumur, og þá
varð jeg þó glaðastur, þegar jeg
gekk um borð í hið ágæta hol-
lenska skip „Oranje Nassau“. —-
Mjer fanst þetta þá svo ótrúlegt,
að jeg væri frjáls maour, og-jeg'
trúði því eklti að þetta gæti verið
rjett, fyr en jeg steig fótum lá
hina heilögu grund fósturjarðai*'
minnar.
Þá fann jeg að jeg var kominrr
heim, kominn til landsins, sem átti
mig og jeg elskaði heitast af öllu
ENDIR