Morgunblaðið - 19.02.1933, Page 4
r
4
MORGUNBLAÐIÐ
Hugitsingadagliðk
GóS íbúS, 2 herbergi og eldhús
til leigu í Hafnarfirði. Upplýsing-
ar í síma 9177.
Glæný ýsa, stútungur, reyktur
fiskur. Fiskbúðin í Kolasundi. —
Sími 4610.
Kaupum tómar flöskur og glös.
Sækjum lieim. Sími 4610.
Framkvæmdanefnd „íslensku
vikunnar“ biður þess -getið, áð
þeir sem hugsi sjer að koma aug-
lýsingura í vöruskrána og enn hafi
ekki sent tilkynningu þar um,
verði að koma handritum sínum 4
skrfstofu nefndarinnar, Lækjar-
götu 2, uppi, sem allra fyrst, og
ekki síðar en á þriðjudag.
Fiskfars, fiskbúðingur, fiskboll-
ur, kjötfars, kjötbúðingur, kjöt-
bollur fást daglega. Freia, Lauga-
veg 22 B. Sími 4059.
Í3lensk málverk, fjölbreytt úr-
val, bæði í olíu og vatnslitum,
sporöskjurammar af mðrgum
■tærðum, veggmyndir í stóru úr-
vali. Mynda- og rammaverslunin,
Freyjugötu 11. Sig. Þorsteinsson.
Simi 2105.
Þorskalýsi nr. 1, mjög bætiefna-
ríkt, seljum við í hálf- og heil-
flöskum. Verslunin Vegur, Vestur-
götu 52. Sími 2355.
Maturinn í Café Svanur við
Barónsstíg og Grettisgötu er nú
alviðurkendur, sem besti fáanlegi
maturinn í bænum, fyrir svo lágt
verð. —
Lægst verð.
Bestar vörur.
Vörubúsið.
Kolasalan s.f.
Siml 4514.
kostur, því mjög er það
misjafnt hve fægingin end-
ist lengi. -- Þetta ættu
Húsmæður að athuga.
HJ. Efuagerð Beykjavíknr
80 ára er í dag frú Sigríður
Þorláksdóttir frá Rauðayá. Nú tii
heimilis í Suðurgötu 18.
Frá Eimskip. Gullfoss fór frá
Kaupmannahörn í fyrradag áleiðis
til Leitli og Reykjavíkur. — Goða-
foss var væntanlegur til Vest-
mannaeyja snemma í dag og liing-
að í kvöld. — Brúarfoss var á
ísafirði í gær; væntanlegur til
Reykjavíkur í dag. — Dettifoss
fór frá Vestmannaeyjum í gær,
áleiðis út. ■— Lagarfoss er í Kaup-
mannahöfn. — Selfoss fór frá Ant
werpen í gær, áleiðis til Hull.
Óþekt fyrirbrigði. Tíminn skýr-
ir frá því, að ræða Hermanns
Jónassonar, sú, er hann flutti í
útVarpinu, um bæjarmál Reykja-
víkur, verði birt á prenti innan
skamms. Svo bætir blaðið við: „Er
það margra manna mál, að sú
ræða sje gleggsta og. skarpíegasta
yfirlit, sem gert hefir verið“. —
Þetta, að| Hermann Jónasson sje
glöggur og skarpur, er gersamlega
óþekt fyrirbrigði og engu líkara
en að blaðið sje að „gera grín“
að lögreglustjóranum.
Aflasala. Rán seldi afla sinn í
Grimsby 15. þ. m., 2100 körfur
fyrir 1032 stpd.
Mokafli var í öllum verstöðvum
við Faxaflóa í fyrradag.
Dansleikur Kvennadeildar Slysa
vamafjelags íslands, sem haldinn
var síðastliðinn fimtudag, var
mjög vel sóttur, svo að ekki gátu
líkt því allir, sem vildu, náð í að-
göngumiða að honum. Hafa for-
stöðunefndinni borist margar á-
skoranir um að endurtaka dans-
leikinn og mun hún að líkindum
verða við þeim tilmælum, einhvern
tíma í þessari viku. Ollum þeim,
sem með því að sækja dansleikinn
hafa veitt starfsemi deildarinnar
stuðning, vottar nefndin kærar
þakkir.
Hafnfirðingar. í kvöld kl. 8%
og á hverju kvöldi alla þessa viku
verða haldnar kristilegar samkom
ur í hxisi K. F. U. M. — Sinn
ræðumaður hvert kvöld. Allir eru
hjartanlega velkomnir.
Sjómannastofan. Samkoma í
kvöld kl. 6 í Varðarhúsinu. Allir
velkomnir.
Leikhúsið. Þess skal getið að
Æfintýri á gönguför verður leik-
ið' í kvöld fyrir niðursett verð.
Hjónaband. í gær voru gefin
saman í hjónaband hjá lögmanni
ungfrú Asta Árný Guðmundsdótt-
ir, Vitastíg 9 og Jón Brynjólfsson,
Austurstræti 3. Heimili ungu hjón
anna er á Sölvhólsgötu 12.
Germania hjelt aðalfund sinn
síðastliðinn föstudag í Oddfellow-
húsinu. Formaður gaf skýrslu um
störf fjelagsins á síðastliðnu ári.
Var síðan gengið til stjórnarkosn-
ingar og var konsúll Julius
Schopka kosinn formaður og með-
stjórnendur, ungfrú Sigríður
Björnsdóttir, Theodor Siemsen,
Steingrímur Arnórsson og Dr. F.
Mixa. Endurskoðendur voru kosn-
ir Halldór Jónasson og Þorlákur
Arnórsson. Því næst Ias E. Hintz
upp ferðasögu þýska herskipsins
Schlesien, er hjer var á ferð fyrir
skömmu. Næsti fundur verður
væntanlega haldinn í mars.
Skautafjelagið. Stjórn fjelags-
ins biður þess getið, að nýir fje-
lagar geti gefið sig fram í hljóð-
færaversl. Katrínar Viðar og látið
skrá sig þar í fjelagið, gegn
greiðslu árstillags.
Álafoss-útbúið í Bankastræti 4
hefir dag fjölbreytta sýningu á
allskonar skíða- og „sport“-fötum.
Símanúmeraspjald fvrir nokkur
helstu fyrirtæki hjer í bænum,
hefir Gunnar Bachmann símritari
gefið út. Er spjaldinu útbýtt gef-
ins til símnotenda í bænum. Spjald
ið er kringlótt og haganlega gert,
með giátskífu er vísað á símanúm-
erin. Uppdráttur eftir Tryggva
Magnússon prýðir spjald þetta, er
mun verða mörgum símanotendum
vinsæll hægðarauki.
Nýr fisktollur í Þýskalandi? í
tilkynningu frá sendiherra Dana
segir, að danska blaðið Politiken
flytji þá fregn frá Hamborg, að
'von sje á mjög háum tolli á fiski
í Þýskalandi. — Ut af fregn þess-
ari átti Mbl. í gær tal við full-
trúa utanríkismálaráðuneytisins
og skýrði hann frá, að engin op-
inber tilkynning væri komin við-
víkjandi þessum nýja tolíi, hingað.
E.s. Hokla fór í gær frá Akur-
eyri áleiðis til Seyðisfjarðar.
Björganarstarfsemin við Vest-
mannaeyjar. Eins og að undan-
föi’nu annast varðskipið Þór eftir-
lits- og björgunarstarf við Vest-
mannaeyjar í vetur. Er hann fyrir
nokkru farinn til Eyja. — Tveir
hjörgunarbátar eru einnig í Eyj-
um; annar á Eiðinu og hinn við
Háfnareyri.
Tregfiski hefir verið að undan-
förnu á ísafjarðarbáta og sjaldan
gefið á sjó.
Dánarfregn. Nýlega er látinn
Eiríkur Þórðarson fyrrum bóndi
á Mýrum í JFlóa, þektur dugnað-
ar og sæmdarmaður.
Einar H. Kvaran hefir í þessum
mánuði lokið við nýja skáldsögu
fir Reykjavíkurlífinu. Bókin kem-
ur út innan skamms á forlag fsa-
f old arpr entsmið ju.
Frá höfninni. Kolaskip kom í
gær með kolafarm til Kol & Salt.
Tveir franskir togarar, sem hjer
hafa legið undanfarna daga fóru á
veiðar í gær. Max Pemberton kom
af saltfiskveiðum í gær með 103
föt lifrar eftir 14 daga útivist.
Útvarpið í dag: 10.40 Veður-
fregnir. 15.30 Miðdegisútvarp. Er-
indi: 1 klaustri. (Síra Garðar Þor-
steinsson). Tónleikar. 17.00 Messa
í fríkirkjunni. (Síra Árni Sig-
urðsson). 18.45 Barnatími. (15
börn, öll 9 ára gömul). 19.30 Veð-
urfregnir. 19.40 Grammófónsöng-
ur: Gounod: Garðsenan og Kirkju
senan úr „Faust“. 20.00 Klukku-
sláttur. Frjettir. 20.30 Erindi: Um
Edvard Grieg. (Baldur Andrjes-
son). 21.00 Grieg-tónleikar: Fiðlu-
sónata í C-moll. (Kreisler & Rach-
maninoff). Solveigs Sang. (Ame-
lita Galli-Curci). Mens jeg venter.
En Svane. (Jos. Hislop). Ballade
í G-molI. (Leopold Godwsky). Per
Gynt Suite. (Óperuorkestrið í
London, EiTgene Goossens). Dans
lög til kl. 24.
Útvarpið á morgun: 10.00 Veð-
urfregnir. 12.15 Hádegisútvarp.
16.00 Veðurfregnir. 19.05 Þing-
frjettir. 19.30 Veðurfregnir. 19.40
Tilkynningar. Tónleikar. 20.00
Klukkusláttur. Frjettir. 20.30 Er-
indi: Frá útlöndum. (Vilhj. Þ.
Gíslason). 21.00 Tónleikar: Al-
þýðulög. (Útvarpskvartettinn).
Einsöngur. (Guðrún Þorsteinsdótt
ir). Orgel-sóló (Páll fsólfsson).
Pjetur Sigurðsson flytur fyrir-
lestur í Varðarhúsinu í kvöld kl.
81/2, um trúarhæfileika manna,
slcoðun eðlisfræðinnar á trúar-
skorti, og það, hvort trúhneigð
íslendinga fari hnignandi. Allir
velkomnir.
Hjálpræðisherinn. Samkomur í
dag: Kl. 11 árd. helgunarsamkoma.
KI. 2 síðd. barnasamkoma. KI. 4
hallelújasamkoma. Kl. 8 hjálpræð-
issamkoma. Adjutant C. Taylor
stjórnar. Lúðra- og strengjasveitin
aðstoða. Á morgun verður Heim-
ilasambandsfundur kl. 4 síðd. og
opinher samkoma kl. 8 síðd.
Hjónaband. í gær voru gefin
saman í hjónaband af síra Árna
Sigurðssyni ungfrú Sigríður Þórð-
ardóttir og Guðm. Einarsson versl
unarmaður. Heimili þeirra er á
Ásvallagötu 23.
65 ára afmæli á í dag Gísli Þor-
bjarnarson fasteignasali.
Ríkisfjehirðir, Jón Halldórsson.
hefir látið af starfi sínu í þjón-
ustu ríkisins og gerst skrifstofu-
stjóri Landsbankans. Settur ríkis-
fjehirðir er ungfrú Ásta Magn-
úsdóttir, sem starfað hefir sem
fulltrúi skrifstofúnnar í yfir 20 iá,r.
Heimilisiðnaðarf jelag fslands hef
ir nýlega gefið út 4 stafróf, eftir
fyrirmyndum Þjóðminjasafnsins:
Reflum, ábreiðum o. fl. til út-
saums eða útvefnaðar. Það kemur
mörgum . vel að fá þessi stafróf
gefin út, því margir vilja sauma
eftir hinum þjóðlegu fyrirmynd:
um safnsins, en það hafa ekki allir
tíma til að sitja á safninu og
sauma. Nii gefst mönnúm kostur á
að sauma stafina heima. — Svo
sem kunnugt er, hefir fjelagið
gefið út 2 möppur með uppdrátt-
um eftir gömlum fyrirmyndum
bæði frá safninu og annars staðar
að. —
Heimatrúboð leik- ma, Vatns-
stíg 3. Samkor - g. Fyrir
trúaða kl. 10 árn rir börn kl.
2 síðd.; almenn samkoma kl. 8
síðd.
Gunnar Ólafsson útgerðarmaður
í Vestmannaeyjum átti 69 ára af-
mæli í gær. f því tilefni sæmdi
norska stjórnin hann St. Ólafs-
orðu af fyrsta flokki. Hann hefir
lengi verið ræðismaður Norð-
manna.
Kreppunefnd. Sósíalistar í Nd.
flytja svoliljóðandi þingsályktun-
artillögu: „Neðri deild Alþingis
ályktar að kjósa 7 manna kreppu-
nefnd, er vísað verði til málum,
sem snerta kreppuna og ráðstaf-
anir gegn henni“.
Ríkisfjehirðisstarfið. Jónas Jóns
son flytur í sameinuðu þingi svo-
hljóðandi tillögu til þingályktun-
ar: „Sameinað Alþingi skorar á
ríkisstjórnina að veita ekki ríkis-
fjehirðisstarfið, sem nú er laust,
en semja við Landsbankann um
að annast gjaldkerastörfin, eins
og áður var“.
Útflutningsgjald af landbúnað-
arvörum. Jónas Jónsson flytur
frv. um það, að frá 1. mars 1933
falli niður útflutningsgjald af
hverskonar landbúnaðarvörum. —
Oft hefir verið á það bent hjer í
blaðinu, hve óhæfilegt væri að
vera að skattleggja útflutnings-
vöru landsmanna á slíkum tímum
sem þessum. Þetta frv. er því spor
í rjetta átt, en vitanlega á það að
ná einnig til aðalútflutningsvöru
sjávarútvegsins.
Kaupin á Reykjahlíð. Sósíalist-
ar í neðri deild flytja svohljóð-
andi þingsályktunartillögu í sam-
einuðu þingi: „Alþingi ályktar að
fela forsætisráðherra að sjá um,
að kaupum Minningarsjóðs Jó-
hanns Jóhannessonar og Sigur-
bjargar Guðnadóttur á jarðeign-
inni Reykjahlíð í Mosfellssveit
(áður Hlaðgerðarkoti) verði rift
þegar í stað, með málssókn ef þörf
er á“. — Svo sem kunnugt er, eru
ltaup þessi bundin því skilyrði,
að fjárveitinganefndir Alþingis
samþykki þau. Þessi þingsályktun-
art.illaga virðist því óþörf.
Hryllilegur glæpur. (FÚ. 18.
febr.). 1 bænum Trebnitz í Slesíu
myrti aldraður maður 2 fullorðna
syni sína og eina dóttur með öxi, í
nótt. — Hann kveikti síðan í hús-
iuu og hengdi sig. — Menn halda
að hann hafi verið geðveikur.
SMin
Vegfna fjölda áskorana er-
buitferð skipsins frestað til
föstuda,e:s 24. þ. m. kl. 8 síðd„
Vörum verður veitt mót-
taká um miðja vikuna.
Lokað
alla þessa vikœ
vegua málnnar á
bnðinni.
H. Einarsson 8 Bjðrnsson
Hár
við íslenskan búning fáið þið best
og ódýrast unnið úr rothári í
Versl. Goðafoss.
Laugaveg 5. Sími 3436t
Sænskt
FlHibrauð
!æst best f
isl. sinlör
frá bændum fyrirli.úgjandi.
Lækkað verð!
Lækjargölu 10 B.
(Áður Breiðablik).
Sími 4046.
Hirmllílir,
Svuntur, Sloppar, hvítir off
mislitir. Lakaefni kr. 2.75«
í lakið. Barnapeysur. Falleg
Kjólasilki frá 4.50 metrinn..
ManGhester,
Lau^aveg 40. Sími 3894»