Morgunblaðið - 01.03.1933, Page 2
2
MOKGUNBLAY 11»
f
Skúli 5kúlason
prófastur,
f. 26. apr. 1861;
d. 28. febr. 1933.
Það var forðum daga sagt um
IÞorlák biskup Runólfsson, að
hann hefði verið „hugþekkur
hverjum góðum manni“. Hið
sama xmin með sanni verða sagt
«m „síra Skúla frá Odda“,
•eins og hann venjulega var
nefndur, sem nú er hniginn
dauðans faðm, tæplega 72 ára
.gamall.
„Hugþekkur hverjum góðum
manni“ er áreiðanlega sann
mæli um síra Skúla. Við það
munu allir kannast, sem kynt-
ust honum á lífsleið hans, sem
:nú er á enda runnin; því að
þess betur, sem menn kyntust
honum, þess auðsærri urðu
mannkostirnir, sem prýddu
hiina góðu og göfugu sál, er
inni fyrir bjó, og mótuðu alla
framkomu hans hið ytra bæði
til orða og verka. Fyrir því má
•öllum vinum hans þykja mikill
hiarmur að sjer kveðinn við frá-
fall jafn ágæts manns. Að vísu
var aldurinn orðinn nokkuð
hiár, en flestir, sem þektu hann
munu þó hafa vonað, að hann
ætti enn nokkurn aldur ólifað-
an, svo tiltölulega lítið, sem
hann var farinn að láta á sjá.
En enginn kemst yfir skapa-
dægur sitt, og því er að taka
fráfalli hans með undirgefni
‘Og gleðjast við endurminning-
arnar, sem geymast frá sam-
-vistardögunum. En þær endur-
minningar eru margar og hug-
Ijúfar eftir jafn hugþekkan
mann.
Prestskapurinn varð hið eig-
xnlega æfistarf hans. Og það
æfistarf fór honum alla tíð
svo úr hendi, sem best má.
Hann var manna vandvirkast-
ur við ræðugjörð og gerði sig
aldrei ánægðan með að bjóða
fióknarbörnum sínum annað en
það besta, sem hann gat þeim
í tje látið. Vandvirkni var yfir-
OÍtt eitt af aðaleinkennum sírs>
Skúla við öll sín störf. Hann
kastaði aldrei höndunum til
nokkurs þess verks, sem hann
átti að vinna og þá síst af öllu
tfi prjedikunarstarfsins. Til
þess var það altof háleitt í huga
hans. Öll altarisþjónusta fór
þonum prýðilega úr hendi, því
að hann var ágætur raddmað-
nr og söngvinn með afbrigðum
— en afleiðingar þess að tala í
köldum kirkjum urðu að síðustu
þær, að hann misti röddina og
-varð svo erfitt um ræðuflutn-
ing, að hann varð að láta af
prestskap aðeins 57 ára gamall.
Hann var ennfremur ágæturj
nngmennafræðari — eins
hann hefir eflaust verið búinn
ágætum kennarahæfileikum —
og munu hin mörgu ungmenni,
hann bjó undir fermingu
lengi minnast þessa fermingar-
föður síns með ást og virðingu.
Loks stundaði hann með mikilli
alúð sálgæslu innan safnaða
sinna og var óspar á að vitja
sjúkra og gamalmenna, þar sem
hann vissi af þeim í sóknum sín-
um. Með þessari emstöku
skyldurækni við hin prestlegu
störf ávann hann sér elsku og
virðingu sóknarbarna sinna svo
að fáir prestar hafa átt þetta á
hærra stigi en hann. Og sókn-
arbörnum hans var því ljúfara
að láta honum þetta í tje, sem
hann var prestur í allri fram-
komu sinni, — maður, sem á-
reiðanlega mátti segja um að
„prýddi lærdóminn með grand-
vöru lífemi“.
En auk þess, sem síra Skúli
Skúlason var fyrirmynd ann
ara sem prestur, var hann það
líka sem fjelagsmaður innan
sveitar sinnar og sýslufjelags
meðan hann starfaði í sveit.
Mun það ekki ofmælt, að ekki
hafi verið völ á betri fjelags
manni en hann var, bæði til-
lögubetri úm öll hjeraðsmál og
áhugasamari um tímanlegan
hag sóknarbarna sinnu og fram-
faramál öll. Fyrir því varð hann
líka mikill áhrifamaður innan
sveitar sinnar og sýslufjelags,
einnig í tímanlegum efnum.
Allir báru hið besta traust til
hans sökum vitsmuna hans,
ráðhyggni og ósjerplægni, enda
hlóðust á hann margvísleg trún
aðarstörf, sem ekki þóttu bet-
ur komin í annara höndum.
Sjálfur var síra Skúli sál.
fyrirtaks búsýslumaður og má
með sanni segja, að hinn forn-
frægi Odda-staður hafi ekki
verið betur setinn af öðrum en
honum, og er þó alkunna hve
margir ágætismenn hafa á öll-
um tímum gert þar garðinn
frægan. Hann prýddi staðinn
með ágætum húsabótum, svo
að ekki þótti önnur prestsetur
hjer á landi taka fram Odda-
stað að híbýlaprýði og allri um-
gengni staðarins, utanhúss og
innan. Þar ríkti þá líka rausn
og höfðingskapur á háu stigi
alla embættistíð síra Skúla þar
eystra. — •
Þegar á alt er litið, verður það
sannastur dómur um síra Skúla
Skúlason, sem segir í upphafi:
Hugþekkur hVerjum góðum
manni!“ sökum mikilla mann-
kosta sinna, manngæsku, trú-
mensku, stillingar og prúðmensku
Þess vegna mun hans lengi
xinst verða með kærleikshug
og söknuði af þeim er kyntust
honum á lífsleið hans, en þó af
engum fremur en ástvinum
íans, sem stóðu honum næst
lífinu og þektu hann best, eftir-
ifandi eiginkonu og börnum,
sem nú harma hann látinn!
Blessuð sje minning hans!
1918, er hann vegna heilsu-
brests varð að láta af prest-
skap. Síðustu 5 árin í Odda var
hann jafnframt prófastur í Rang
árþingi. Hann var fyrstur
presta, sem fjekk embætti hjer
samkvæmt kosningu safnaða.
Frá því er síra Skúli Ijet af
prestskap, dvaldist hann hjer í
bæ og hafði lengst af á hendi
skrifstofustörf í fjármálaráðu-
neytinu. Hinn 15. júní 1887
kvæntist hann Sigríði Helga-
dóttur (lectors Hálfdánarson-
ar) og lifir hún mann sinn eftir
nærfelt 46 ára farsæla og gæfu-
ríka sambúð, ásamt þrem son
um þeirra, Skúla ritstjóra
Helga augnlækni og Pál rit-
stjóra, og eihni dóttur, Soffíu,
matreiðslukenslukonu. En tvær
dætur mistu þau hjón: Þórhildi
og Guðrúnu, báðar uppkomn-
ar. —
* *
Bankalokun
í Ðandaríkjum.
Iltsala byriar í dag.
Verslun Ben. S. Þórarinssonar selr fyrir hálfvirði og
minna: Stufkápur, Morgunkjóla, Svuntur, Náttkjóla,
Skyrtur, Bamanáttföt, Gúmmísvuntur, Vinnujakka og
Smádrengjajakka, í Matrósaföt og fl. Útsalan stendr til
helgar. —
Frá New York er símað, að um
20 fylki í Bandaríkjunum ætli að
setjast á ráðstefnu iit af banka
vandræðunum. — Þingið hefir sam
þykt skyndilög um að leyfa ríkj-
unum að stöðva útborganir banka.
— Auk þeirra ríkja sem þegar
hafa verið nefnd, hafa nú New
York, New Jersey. Nebraska, Ohio,
Pennsylvania og Deleware v sam-
þykt, að veita bönkunum greiðslu
frest. — Bankarnir í Columbus,
Cleveland og Dayton í Ohio hafa
lokað í gær og er innstæðufje
þeim talið að nema 815 miljónum
dollara. — Bankastjórar 12 helstu
þankanna í New York eru nú að
ráðgast um, hvort ekki megi tak-
ast að finna einhvern annah gjald
miðil í stað peninga meðan vand
ræðin standa yfir. — Roosevelt
hefir einnig haft marga fundi með
tilvonandi fjármálaráðherra sínum
Woodin og ýmsum fjármálasjer-
fræðingum. (FÚ.).
Skattfrelsi
samuinnufjelaga.
Verður það afnumið í Eng-
landi?
Síra Skúls Skúlason prófast-
ur var fæddur á Breiðabólstað
í Fljótshlíð 26. apríl 1861. For-
eldrar hans voru: Skúli pró-
fastur Gíslason (t 1888), þjóð-
kunnur merkisprestur (systur-
sonur Bjarna Thorarense.:) og
Guðrún Þorsteinsdóttur, prests
í Reykholti, Helgasonar (f
1839). Hann útskrifaðist úr
skóla 1884 og af prestaskóla
1886 með hárri lofseinkunn frá
báðum þessum skólum. Ári síð-
ar gerðist hann eftirmaður síra
Matthíasar, sem prestur í Odda
ogl og dvaldist þar í 31 ár, eða til
London, 28. febrúar.
Nefnd sú sem fjármálaráðherra
Breta skipaði fyrir nokkru til þess
að athuga skattgreiðslu samvinnu-
fjelaga, hefir nú skilað áliti sínu,
og er það á þá leið, að nema beri
úr gildi þau ákvæði um undan-
þágu frá skatti sem samvinnufje-
lög hafi yfir önnur framleiðslu- og
verslunarfjelög. (FÚ.).
Danskt skip rænt.
Oslo, 28. febrúar.
Kínverskir sjóræningjar rjeðust
á danskt skip skamt frá Hong
Kong í gær, og rændu öllu fje-
mætu um borð. Hótuðu þeir far-
þegunum með skammbvssum og
hnífum, og höfðu síðan 3 þeirra á
brott með sjer sem gísla. Fyrsti
stýrimaður særðist í kviðinn af
skammbyssuskoti, en þó ekki
,hættulega. Skipið er 3000 smá-
lestir að stærð, og er frá Aaben-
yaa. (FÚ.).
Colman's albektu vörur fyrirliggiandi:
Karry - Sinnep - Línsterkja.
Sfmi: Einn - Iveir - þrfr - ffúrir.
Segiun 5 Krúnur.
í dag fá flestir útborguð laun sín, megnið
af þeim peningum fer í viss útgjöld, en sem
betur fer, verður oftast nær eitthvað eftir
óráðstafað.
í þetta sinn
verður þeim peningum ekki betur varið en
að kaupa miða í bílhappdrætti íþróttafjelags
Reykjavíkur.
4000 króna bíll fyrir 1 krónu.
Fata- og frakkaefni.
Nýkomtð úrval.
Arni & Bjarni.
Dppsklpnn
á Best South Yorkshire Hard Steamkolum stendur yfir í
dag og næstu daga.
Kolasalan S.f.
Sími: 4514.
Tilkynning.
Hjer með tilkynnist heiðruðum viðskiftamönnum að
jeg hefi pr. 1. mars þ. á. selt þeim systrunum, Guðrúnu
og Elísabet Jónsdætrum, þvottahúsið „Grýta“.
Um leið og jeg þakka viðskiftin, vona jeg að þær fái
að njóta sömu velvildar og jeg.
Virðingarfylst.
Franlz Hákansson.
Samkvæmt ofanrituðu höfum við undirritaðar, sem
áður voru starfsstúlkur hjá herra Hákansson, tekið við
þvottahúsinu „Grýta“, Laufásveg 19, pr. 1. mars.
Um leið og við munum kappkosta að vanda alla vinnu,
svo sem verið hefir hingað til, vonumst vjer eftir velvild
heiðraðra viðskiftavina.
Virðingarfylst.
Gnðrún og Elísabel Júnsdætnr.