Morgunblaðið - 01.03.1933, Síða 3
*
Jffior&mtWttMft
Út*«f.: H.f. Árrakur, BirUkTlk.
Kltatlörsr: Jðn KJsrtsnaaon.
Vsltjr St«fánuoo.
Rltatjðrn og sfgrdtils:
Austurstrœtl 8. — Stssl 1600.
ÁBglJilngsitJðrl: XL Hsfbirg.
Ausl^alngrsakrifctofs:
Austurstrœti 17. — Slssi 6700
Hslsssslsssr:
Jðn KJartansson nr. 6742.
Valtýr Stefánason nr. 4220.
B. Hafberg nr. 8770.
Áakrlftsglsld:
Innanlands kr. 2.00 á. mánutSi.
Utsnlsnds kr. 2.60 A ssAnuBL,
1 lsusasðlu 10 surs slntskiS.
20 surs msO Lssbðk.
Pinghúsbruninn.
Síðastliðið ár hefir Alþýðu-
lilaðið reynt að telja lands-
mönnum trú um, að mikið djúp
væri staðfest og jafnvel, óbrú-
Rndi, milli sósíalista og komm-
únista þessa lands.
Þótt þessir flokkar eða flokks-
brot hafi skammast óbóta-
skömmum, og- forystumenn
Jieirra borið hvern annan verstu
svívirðingum, hafa menn ekki
dagt mikinn trúnað á klofn-
inginn.
'Götudrengseðli manna ryður
«jer til rúms, hvort heldur þeir
elga viðskifti við flokksmenn,
skoðanabræður eða andstæð-
anga.
1 gærmorgun bárust hingað
■þær fregnír, að þýskir komm-
únistar hefði í fyrrakvöld gert
hina stórkostlegu íkveikju í
iþinghúsi þýsha lýðveldisins,
sem skýrt er frá á öðrum stað
hjer í blaðinu. Átti þinghús-
þruninn að verða uppreisnar-
tákn fyrir gervallan byltinga-
lýð Þýskaiands.
En hvað gerir stjórnmála-
Titnefnd Alþýðublaðsins við
fregn þessa?
Hún snýr henni við. Það eru
■ekki kommúnistar, sem kveikt
’Jhafa í þínghúsinu í Berlín, seg-
ir hr. alþm. Hjeðinn Yalde-
tnarsson. öðru nær. Það eru
þýsk yfirvöld, sem lagt hafa
hina glæstu þinghöll að miklu
leyti í rústir(I). Eins og hann
viti þetta ekki langtum betur,
en t. d. lögreglan í Berlín (!)
En hvers vegna þessi yfir-
"breiðsla yfir talandi staðreynd-
ir, hvers vegna þessar barna-
legu málsbætur fyrir athæfi og
'byltingastarf þýskra kommún-
ista?
Skýringin er auðfundin.
Alþýðublaðið, skjÓl og skjöld
ur hins íslenska kommúnisma,
breiðir í lengstu lög yfir óvirð-
ingar erlendra skoðanabræðra
- samstarfsmanna — til þess að
.alþjóð manna hjer á Islandi
gangi þess sem lengst dulín,
að hjer er flokkur manna, sem
hlakkar yfir hermdarverkunum
í Þýskalandi, og býður þess með
■óþreyju, að þeim takist, að láta
loga hjer við Austurvöll.
Ríkisvald, varalögreglu, vald
til þess að hindra kommúnista
'í fyrirætluðum fordæðuskap
•sínum mega Alþýðublaðs-menn
•ekki heyra nefnt á nafn.
••• *•••
Fundur í Kvennadeild Slysa-
varnafjelags íslands í kvöld kl.
'8V2, í K. R.-húsinu, upþi. Fundar-
efni: Fjelagsmál og skemtíatriði.
Allar konur, sem styðja vilja starf
semi deildarinnar og gerast með-
"limir hennar, eru velkomnar á
'fundinn.
kgunrlab:
Kommúnistar í Þýskalanöi
efna til borgarastyrjalöar.
Otsala.
Þeir kveikja í ríkisþinghöllinni í Berlín
og urðu á henni miklar skemdir. Einn
aif brennuvörgunum næst.
Ríkisþinghöllin.
Þingmenn og foringjar kommúnista
handteknir, útgáfa blaða þeirra bönn-
uð í mánuð.
Berlín 28. febr.
United Press. FB.
Stuttu eftir klukltan 9 í gær-
kvöldi varð þess vart, að eldur
var uppi í Ríkisþingbyggingunni.
Kl. 10,k5 hafði slökkviliðsmönnum
tekist að slökkva eldinn. Húsið
varð fyrir miklum skemdum, eink-
■anlega í aðalsalnum, en í hinum
mikla og veglega. forsal þinghúss-
ins flóir alt í vatni. Var þangað
varpað bekkjum og borðum úr
þingsalnum, er unnið var að því
að kæfa eldinn. Yms herbergi á
fyrstu hæð hússins skemdust mik-
ið. Nokkur hætta er talin á, að
þaklivelfingin hrynji.
Hollenskur kommúnisti hefir
verið handtekinn og sakaður um
að hafa kveikt í húsinu. Játaði
hann á sig söldna. Því næst skip-
aði Göhring ríkisforseti svo fyrir,
að liafðir skyldi í haldi allir þing-
menn kommúnista, einnig flokks-
leiðtogar þeirra, og Ijet gera ráð-
stafanir til þess að banna útkomu
allra kommúnistiskra blaða í mán-
uð, en blöð jafnaðarmanna um
hálfan mánuð.
Hollenski kommúnistinn, van
der Luebbe, liefir játað, að hann
hafi staðið í sambandi við jafn-
aðarmenn í flokki þeirra. Var
útkoma blaða jafnaðarmanna bönn
uð af þessum orsökum.
Berlín, 28. febr. FII
Af brunanum, sem varð í
ríkisþinghöllinni í Berlín í gær,
er það að frjetta, að slökkvilið-
inu tókst eftir erfiða og hættulegá
vinnu í hálfa aðra stund að tak-
marka svo eldinn, að hann breidd-
ist ekki út þaðan, sem hanii hafði
upptök sín. Brann miðálman til
kaldra k,ola og þar með fundar-
salur þingsins og áheyrendapall-
ar. Tjónið nemur miljónum ríkis-
marka. Húsið var eitt hið fegursta
þinghúsi í heimi og bygt á ár-
únum 1884—94; valt byggingar-
kostnaðurinn á tugum miljóna rík-
ismarka, og þótti svo mikið í bor-
ið, að lnisið var í skopi kallað
miljónahöllin.
í tilkynningu frjettastofu prúss-
nesku stjúrnarinnar segir, að þetta
sje gífurlegasta íkveikja, sem sög-
ur fari af. ITm alt liúsið, frá kjall-
ara og upp undir þak hafi verið
dreift tundrum, og eftir að brun-
ans varð vart hafi lögregluþjónu,
sem hljóp inn í höllina, rekist á
marga menn, sem voru á hlaup-
um að koma fyrir tundrum. Hafi
þeir verið með blys í höndum og
borið þau að eldfimum efnum, er
þeir hafi dreift um húsið. Er lög-
regluþjónninn sá þetta, greip hann
til skammbyssunnar og skaut á
mennina, og náðist í þeirri viður-
eign Hollendingurinn, sem getið
hefir verið um. í tilkynningunni
segir að þetta sje svívirðilegasta
ógnunartilraun, sem komnnpiistar
hafi framið utan Rússlands.
Enn fremur segir í tilkynning-
unni, að um daginn, þegar rann-
sókn var gerð í Karl Liebknecht
Haus, aðalbækistöð kommúnista í
Berlín, hafi þar fundist sönnun-
argögn fyrir því, að kommúnistar
ætluðu sjer að hefja ógnaröld;
um Þýskaland að hætti bolsivikka.
Þar hafi fundist fyrirskipanir og
áætlanir nm íkveikjur r ýmsum
helstu opinberum byggingum.
gripasöfnum, höllum, kirkjum og
viðskifta- og iðnaðarbóhmi. Nú sje
þetta að vísu hindrað með hús-
rannsókniinni, en þetta, sem gerð-
ist í gær hafi iátt að vera merki til
kommúnista um að nú skyldi upp-
reisnin hefjast, en samkvæmt á-
ætlunum þeim, sem fundust við
húsrannsóknina í Karl Liebknecht
Haus, hafi síðan átt að hefja rán
og rupl í dag bæði hjá ríkinu og
emstökum mönnum, en á þennan
hátt ætluðu kommúnistar að
hleypa um borgarastyrjöld.
Göhring innanrikisráðherra hef-
ir lýst yfir því, að hann nntni
neyta allra bragða til þess, að
liindra óaldarmennina frá hinum
glæpsamlegu fyrirætlunum. Þegar
Þessa viku seljum við með mjög miklum afslætti.:
Kjóla
Ulsterefni,
mjög hentug í vorkápur fyrir börn og fullorðna.
Kjólatau
• i . og ýmsar aðrar vörur.
CHIC
Bankastræti 4.
sje búið að setja lögregluvörð í
allar opinberar byggingar, bilið
sje að hervæða alla aðallögregl-
una og kalla saman varalögregl-
una. —
Tveir þingmenn kommúnista
hafa verið úrskurðaðir í varðhald,
vegna þess að grunur hvilir á
þeim um hlutdeild í íkveikjunni
í þinghöllinni, en allir aðrir þing-
menn kommúnista hafa verið tekn-
ir í gæslu. Göhring skorar á alla
góða borgara til aga og löghlýðni
og biður þá að stuðla að því að
óaldaráform kommúnista nái ekki
fram að ganga. (FÚ.).
Berlin, 28. febrúar.
United Press. FB.
Göhring liefir gefið út yfirlýs-
ingu og lýst yfir því, að uppreisn-
artilraun bolsivikka hafi verið
kæfð í fæðingunni.
Hundrað og þrjátíu kommún-
istar hafa verið handteknir út af
íkveikjunni í ríkisþingsbygging-
nnni, iflestir kommúnistar og
flokksfulltrúar, einnig nokkrir
þingmenn.
Á meðal hinna handteknu er
Hermann Remmele, kommúnisti,
sem á sæti í ríkisþinginu, og Al-
fred Apfel lögfr., róttækur þing-
maður.
Miðstjórn jafnaðarmannaflokks-
ins hefir símað Göhring og neit-
ar liún því mjög ákveðið, að flokk
urinn hafi átt nokkurn þátt að
íkveikjunni.
Lögreglan hefir gert húsrann-
sókn hjá blaðinu Vorwárts og
var morgunútgáfan gerð upptæk.
Berlin, 28. febrúar.
Þýska ríkisstjórnin helt fund í
dag kl. 10 til þess að ræða um
íkveikjuna í ríkisþingsbygging-
unni. Stjórnin hefir til meðferðar
tillögur um neyðarráðstafanir út
af brunanum og verður alt per-
sónulegt frelsi stórkostlega heft
með riáðstöfunum þessum. — Göh-
ring skýrði frá því á fundinum,
að í neðanjarðarlivelfinu í Karl
Liebknecths-liúsinu hefðu fundist
söhnunargögn fyrir þvi, að kom-
múnistar ætluðu sjer að hefja ógn
aröld um alt ríkið og hann taldi
það sannað, að sumir af foringj-
um kommúnista hefðu undirbúið
íkveikjuna. Hann kvað menn
verða að vara sig á njósnurum
kommúnista, því þeir kæmu fram
í einkennisbúningum Stálhjálma-
manna óg Nazista.
Torgið við ríkisþingsbyggingunai
er í höndum lögreglunnar og
slökkviliðsins og enn rýkur nokk-
uð úr rústunum. — Lögreglan hef-
ir tekið um 130 menn fasta og
eru margir þingmenn meðal
þeirra, t. d. Torgler og Schminke,
og hinir þektu rithöfundar Ludwig
Renn, Erich Múhsam og Bgon
Erwin Kisch.
í borgum um alt Þýskaland hef-
ir lögreglan í nótt hafið húsrann-
sóknir hjá kommúnistum og jafn-
aðarmönnum og tekið marga fasta.
í Hannover einni hafa 140 menn
verið teknir fastir. (FÚ.).
•••• ••••
Grænlandsmálið.
Hvemig dómstóllinn í Haag
starfar.
Að lokinni málfærslunni í Græn
landsmálinu fengu dóinarar nokk-
urra daga frest til þess að kynna
gjer enn betur málsútlistun beggja
aðilja. Síðan verður ákveðinn dag-
ur þegar dómarar eiga að koma
á fund og úrskurða hver málefni
eigi að koma til greina og hverjum
megi sleppa sem niðurstöðu dóms-
iiis óviðkomandi. Síðan er aftur
veittur athugunarfrestur og að
honum liðnum á hver dómari að
koma fram með skriflegt álit sitt
á málinu og rökstyðja það. Ollum
þessum álitsskjölum verður útbýtt
meðal dómenda og síðan ákveður
dómsforseti umræðufund um mál-
ið, þar sem hver dómari heldur
fram sinni skoðun. Að þeirri um-
ræðu lokinni fer fram bráðabirgða
atkvæðagreiðsla. Að henni lokinni
er skipuð nefnd, dómsforseti og
tveir dómendur úr meiri hlutan-
um, og á hún að koma fram með
uppkast að dómsniðurstöðu. Hún
verður svo tekin til umræðu á
fundi, og að þeim umræðum lokn-
um fer loka-atkvæðagreiðsla fram.
Þessi er hinn venjulegi gangur
mála hjá gerðardómnum.
En vegna þess hvað Grænlands-
málið er óvenjulega yfirgripsmik-
ið, er í ráði að kjósa nokkrar
nefndir og fela hverri þeirra sjer-
staka hlið málsins til athugunar.
Hjer er um sjerstaklega þýðing-